Frjáls verslun - 01.07.1993, Page 66
FOLK
VIKTORÍA VALDIMARSDÓTTIR, MARKAÐSSTJÓRILANDSBRÉFA HF.:
Viktoría Valdimarsdóttir, marðasstjóri Landsbréfa, er fædd og uppalin að Núpi í
Dýrafirði. Hún er virkur þátttakandi í safnaðarstarfi Laugarneskirkju.
„Undanfarin ár hefur
valmöguleikum spari-
fjáreigenda fjölgað svo
mikið að það getur
reynst erfitt að átta sig á
því hvar best sé að fjár-
fersta,“ segir Viktoría
Valdimarsdóttir, mark-
aðsstjóri Landsbréfa.
„Við leggjum áherslu á
að veita vandaða ráðgjöf
sem tekur mið af pers-
ónulegum högum hvers
og eins.“
Viktoría er 35 ára gömul og
varð stúdent frá Verslunar-
skóla íslands árið 1979. Tveim-
ur árum síðar settist hún í við-
skiptadeild Háskóla íslands og
útskrifaðist þaðan 1985. Hún
eignaðist sitt fyrsta barn um
sama leyti og eftir bameignafrí-
ið hóf hún störf hjá tölvu- og
rekstrarráðgjafafyrirtækinu
Þróun þar sem hún starfaði
lengst af sem markaðsstjóri.
Viktoría var þar fram til ársins
1990 en fór þá til Landsbréfa
þar sem hún starfaði fyrst sem
fyrirtækjaráðgjafi og tók við
markaðsstjórastarfi u.þ.b. ári
síðar.
Að sögn Viktoríu er mark-
aðsstjórastarfið fjölþætt. Ilún
situr í rekstrarráði fyrirtækis-
ins, sér um um samræmingu
allra kynningar- og markaðs-
mála, þ.e. auglýsinga, kynning-
arita, fréttarita og skýrslna.
Hún sér einnig um undirbúning
stærri funda og ráðstefna og
skipulagningu þjálfunar starfs-
manna og umboðsmanna í úti-
búum Landsbankans um allt
land.
ÓRÁÐLEGT AÐ
LÁTA ÖLL EGGIN
í SÖMU KÖRFUNA
Fyrirtækið Landsbréf hf.
hefur haslað sér völl á verð-
bréfamarkaðinum hér á landi á
tiltölulega skömmum tíma því
ekki eru nema rúm þrjú ár frá
því fyrirtækið hóf starfsemi.
„Allt umhverfi í flármálaheimin-
um er að breytast mjög mikið
um þessar mundir, markaðir
erlendis eru að opnast og
möguleikar fyrir Qárfesta orðnir
svo miklu fleiri, bæði hérlendis
og erlendis. Þörfin á sérfræði-
þekkingu er því meiri nú en
nokkru sinni fyrr. Við hjá
Landsbréfum leggjum áherslu á
að bjóða viðskiptavinum okkar
traustar afurðir, bæði innlendar
og erlendar, sem gefa góða
ávöxtun á hverjum tíma. Verð-
bréfasjóðirnir okkar hafa að
jafnaði gefið bestu ávöxtun
sambærilegra sjóða undanfarna
mánuði.“
LÍFSHAMINGJA
ÆÐSTA MARKMIÐIÐ
Viktoría er fædd og uppalin á
bænum Núpi í Dýrafirði. „Ég
fer þangað á hverju sumri og
það er alltaf jafn gott að koma
heim,“ segir hún. „Ég finn enn
meira fyrir friðnum og kyrrðinni
í sveitinni núna en þegar ég var
að alast upp. Það er mikilvægt
að hverfa úr skarkala borgar-
innar þótt ekki sé nema einu
sinni á ári.
Viktoría er gift Diðriki Eir-
íkssyni, framkvæmdastjóra hjá
Lumex hf. og eiga þau stúlku á
áttunda ári og dreng á þriðja ári.
Hún segist eyða eins miklum
tíma með fjölskyldunni og hún
geti. „Það er ekki svo mikill tími
aflögu til þess að eyða í önnur
áhugamál þar sem ég er í fullu
starfi. Ég hef þó tekið þátt í
safnaðarstarfi í Laugarnes-
kirkju, bæði barnastarfinu og
safnaðaruppbyggingu. Þátttaka
í starfsemi kirkjunnar styrkir
mig og auðveldar mér að takast
á við erfið verkefni. Einnig gef
ég mér tíma til að fara út að
skokka til að viðhalda líkamlegu
þreki,“ segir hún að lokum.
REYNIAÐ KOMAST HEIM AÐ
NÚPIÁ HVERJU SUMRI
66