Frjáls verslun - 01.08.2000, Qupperneq 20
Próf í iðnrekstrarfræði og iðnaðartæknifræði. Æfði og
keppti í handbolta meðfram námi og vinnu. Gerði m.a.
úttekt á kjötverslun KÁ og var framkvæmdastjóri 11-11 í
þrjú ár. Tók við framkvæmdastjórn hjá Goða 1. júlí í sumar
eftir tvö ár í atvinnumennsku erlendis.
Goði er nýtt fyrirtæki í kjötiðnaði og sláturhúsareksti sem
varð til þegar fimm fyrirtæki sameinuðust í eitt. Fyrirtækin
sem sameinuðust eru: Borgarnes-Kjötvörur ehf. í Borgar-
nesi, Sláturhús og kjötvinnsla Kaupfélags Héraðsbúa á Egils-
stöðum, Kjötumboðið hf. í Reykjavík, Norðvesturbandalagið
hf. á Hvammstanga og Þríhyrningur hf. Velta Kjötumboðsins
var 2,2 milljarðar á síðasta ári. Áætluð ársvelta hins nýja fé-
lags er 3,6 milljarðar. Starfsmannaijöldi er 260, yfir 700 í slát-
urtíð. Um þessar mundir er unnið að endurskipulagningu og
á næsta ári fara breytingar að sjást, t.a.m. með flutningi í nýtt
vinnsluhúsnæði.
- Hvað hafa íþróttirnar kennt þér?
„Að vinna undir miklu álagi og þola mótlæti þannig að maður
geti staðið gegn straumnum og haldið áfram þegar þörf kref-
ur. Uthald í líkama veitir úthald í vinnu. Iþróttir veita aðhald í
námi. Tæpitunguleysi." 33
Einar Bollason
Framkvæmdastjóri íshesta hf. Leikmaður með KR, Haukum
og íslenska landsliðinu í körfuknattleik til ijölda ára. Þjálf-
ari í 20 ár, bæði hjá félagsliðum og landsliðinu. Átta sinnum
Reykjavíkurmeistari, sex sinnum Islandsmeistari og tólf sinn-
um bikarmeistari. Einar stofnaði ferðaþjónustufyrirtækið ís-
hesta árið 1982 samhliða þjálfarastarfi sínu og hefur sfyrt því
frá upphafi. Fyrirtækið selur hestaferðir og leigir út hesta.
Rekstrinum var breytt fyrir nokkrum árum þegar byggð var
hestamiðstöð með veitingastað og verslun. Veltan nemur í dag
um 140 milljónum króna og er hún áætluð um 158 milljónir á
næsta ári. Fastráðnir starfsmenn eru yfir 16 í dag fyrir utan af-
leysingafólk. Á sumrin er starfsmannaijöldinn yfir tvöfalt meiri.
Stærstu hluthafar eru: Einar og eiginkona hans, Sigrún Ing-
ólfsdóttir, með 40 prósent. Stórir hluthafar eru einnig Kynnis-
ferðir og Ferðaskrifstofa íslands með 30 prósenta hlut.
- Hvað hafa íþróttirnar kennt þér?
„íþróttirnar ala á keppnisskapi og aga, ástundun og jafnvel
hlýðni. Gefa sterkan vilja, þjálfa samstarf með öðru fólki, „eng-
inn heild er sterkari en veikasti hlekkurinn". Þrek eykst og per-
sónulegt atgervi sfyrkist. Virðing fyrir mótherjum og samherj-
um. Iþróttamenn gefast ekki upp.“ 33
ir íþróttamenn vel í bónuskerfi, þeir eru vanir því að fá klapp
á bakið, launahækkun eða bónus. Það er meðal þess sem
drífur þá áfram.
Framlag allra er dýrmætt „í íþróttaliði kemur ólíkt fólk
saman í eina liðsheild. Framlag allra er dýrmætt þannig að
maður lærir að meta alla og vanmeta engan í hópnum. Liðið
hefur ákveðin markmið og það er tilbúið til að leggja ýmis-
legt á sig til að ná árangri. Markmiðin eru skýr og mælan-
leg - að leika til sigurs. Til að ná settu marki gripa menn til
þeirra aðgerða sem þeir telja þörf. Niðurstaðan mælist strax
svo að íþróttamennirnir vita hvort þeir eru að ná árangri eða
ekki. Allir þessir þættir skipta með sambærilegum hætti
verulegu máli í rekstri fyrirtækja. Það þarf þrautseigju til að
ná árangri, sérstaklega ár eftir ár eins og fyrirtæki þurfa að
gera, og í rauninni er það ótrúlegur árangur þegar fyrirtæki
halda sér á toppnum áratugum saman. Ekkert er sjálfgefið í
því efni,“ segir Guðmundur.
Iþróttirnar ala á keppnisskapi og aga, ástundun og jafnvel
hlýðni, að sögn Einars. Allir keppa að sama marki og vinna
á jákvæðan og uppbyggilegan hátt með stórum hópi manna.
Liðsmenn verða að vera heilir í samstarfinu sín á milli.
„Grundvöllurinn er hópsálin, samvinnan og það að bera
virðingu fyrir mótherjum og samherjum,“ segir hann. Sam-
vinnu læra íþróttamenn snemma, í harðri samkeppni er
nauðsynlegt að kunna að treysta sjálfum sér og félögum sín-
um, hafa trú á eigin getu og annarra og treysta öðrum til að
ljúka þeim verkefnum sem þarf að ljúka. „Það getur enginn
verið góður stjórnandi nema hann kunni sjálfur að láta að
sljórn,“ segir Einar.
Allir verða að kunna að taka gagnrýni og hún verður að
vera sett fram á jákvæðan og uppbyggjandi hátt. Tæpitungu-
20