Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.2000, Page 21

Frjáls verslun - 01.08.2000, Page 21
ÍÞRÓTTIR OG VIÐSKIPTI Sólin kemur upp að nýju íþróttamenn læra snemma að takast á við meðlæti og mótlæti og það þurfa stjórnendur fyrirtækja líka að kunna. Vilji skiptir gríðarlegu máli. íþróttamenn sætta sig ekki við ósigur og Einar telur að íþróttirnar kenni mönnum að sólin komi upp að nýju. Menn, sem stunda reglulega líkamsþjálfun, eru ekki vanir að gefast upp þótt á móti blási. leysi er nokkuð sem margir hópíþróttamenn þekkja. Valdi- mar Grímsson líkir fyrirtæki við kappleik. Ef leikmaður er ósáttur í leiknum hefur hann um tvennt að velja, að ræða um hlutina eða þegja. Ef hann þegir „þá getur hann bókað að hann hefur tapað þegar leikurinn er flautaður af. Það er því mikilvægt að ganga hreint til verks og tala um hlutina. Menn rífast kannski og ná svo niðurstöðu. Ef um sterka ein- staklinga er að ræða er oftar en ekki hægt að snúa leiknum sér í vil og vinna. Það sama á við í fyrirtækjarekstri. Oft lendir maður í mótlæti og er ósáttur við umhverfið. Þá er rétt að ræða það. En mikilvægast fyrir fýrirtækið er að ná réttri stefnu hið fyrsta. Það er mjög kostnaðarsamt að fara krókaleiðir að árangri," segir hann. Sætta sig ekki Við Ósigur íþróttamenn læra snemma að takast á við meðlæti og mótlæti og það þurfa stjórnendur íyrirtækja líka að kunna. Baráttuvilji skiptir gríðarlegu máli. Iþróttamenn sætta sig ekki við ósigur og Einar telur að íþróttirnar kenni mönnum að sólin komi upp að nýju. Menn sem stunda reglulega líkamsþjálfun eru ekki vanir að gefast upp þótt á móti blási. íþróttamenn læra líka að axla ábyrgð og vinna undir miklum þrýstingi. Landsleikur eða úrslita- leikur í Islandsmóti er til dæmis lokapunktur á löngum und- irbúningi þar sem ýmislegt hefur gengið á, bæði á æfingum og í sálarlífi. Þá getur sviðsljósið tekið á en það getur líka gefið yfirvegun og sjálfsöryggi. „Þekktir og sigursælir íþróttamenn geta þurft að takast á við erfiða hluti sem ekki eru öllum ljósir. Það eru á þessu hliðargreinar sem herða menn,“ segir Guðmundur. Afreksmenn í íþróttum fá mikla alþjóðlega reynslu á keppnisferðalögum og kynnast ýmsu. „Þetta er þvælingur um allt og ekki alltaf í alfaraleið. Menn kynnast mörgu og læra að eiga við framandi aðstæður. Þegar maður hefur spil- að fýrir framan 50 þúsund áhorfendur á útivelli á suðrænum slóðum eru ýmis verk, sem maður þarf að taka sér fýrir hendur seinna í lífinu, léttvægari og mönnum vaxa þau ekki eins mikið í augum,“ segir Guðmundur og rifjar upp lands- leik í Tyrklandi 1980. Leikurinn var spilaður við 35 stiga hita um miðjan dag með tugþúsundir af „æstum áhorfendum. Þeir hentu í okkur tómötum og öllu lauslegu þegar við vor- um að hlaupa inn á og út af vellinum. Á þessum tíma voru herlög í landinu og í kringum völlinn voru hermenn, gráir fýrir járnum. Tyrkirnir gerðu okkur eins erfitt fýrir og þeir mögulega gátu en okkur tókst samt að vinna leikinn." Iþróttamenn láta stundum námið sitja á hakanum og til neikvæðrar hliðar íþróttanna getur talist þegar íþróttamenn hætta snemma í námi til að einbeita sér að atvinnumennsku. Þetta telur Valdimar hvorki uppbyggilegt né þroskandi fýr- ir atvinnulífið. „í íþróttunum er hægt að velja tvær leiðir, annars vegar samblöndu náms og íþrótta og ná þannig ár- angri. Það var sú leið sem ég fór. Hins vegar er hægt að ýta skólanum til hliðar en það öðlast enginn atvinnuþroska í gegnum íþróttir eingöngu. Hann fæst náttúrulega best með samspili náms og íþrótta," segir hann. Rétt stilltog hreint loftræstikerfi sparar peninga og heldur loftinu hreinu fyrir starfsfólk og vélbúnað Við smíðum og setjum upp stjórnbúnað fyrir loftræstikerfi, stillum þau og lagfærum - láttu okkur um loftrœstikerfið! HITASTÝRING hf. Þverholti 15a • 12 Reykjavík • Sími 552 2222 • Fax 562 4966 21
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.