Frjáls verslun - 01.08.2000, Side 22
Skúli Gunnsteinsson
Framkvæmdastjóri IMG, móðurfélags Gallups og Ráðgarðs,
fv. leikmaður með Stjörnunni og landsliðsmaður í hand-
knattleik. Skúli var lengst af fyrirliði hjá Stjörnunni. Um
1990 ætlaði hann að hætta í íþróttunum og hóf uppbyggingu fyr-
irtækisins Gallup sem hann stofnaði ásamt Sigurði Olsen og
Kristni Ágústssyni. í dag eru eigendur fyrirtækisins auk Skúla:
Kristján Agústsson, Svafa Grönfeldt og Gunnsteinn Skúlason.
Fyrirtækið hefur vaxið og dafnað síðustu ár. Skúli hefur komið
að þjálfun hjá Val og Aftureldingu. IMG veltir tæpum 700 millj-
ónum króna á þessu ári. Innri vöxtur hefur numið 30-50 pró-
sentum síðustu ár og er búist við að hann haldi sama takti á
næsta ári. Fjöldi fastráðinna starfsmanna er yfir 100.
- Hvað hafa íþróttirnar kennt þér?
„Hópsamstarf, að halda góðum liðsanda, axla ábyrgð og halda
hópnum saman, keppa að markmiði og ná árangri, aga, að
takast á við gagnrýni og samkeppni á jákvæðan og uppbyggj-
andi hátt. Sterkur félagsskapur. Mér finnst dýrmætt að við-
halda tengslum í íþróttaheiminum.“ I4!f
Guðmundur Þorbjörnsson
Forstöðumaður hjá Eimskip. Byrjaði 16 ára gamall í fótbolt-
anum og var hjá Val, og fyrirliði bæði í yngri flokkum og
meistaraflokki. Hann var atvinnumaður hjá FC Baden í
Sviss í nokkur ár. Lék 37 leiki með landsliðinu í knattspyrnu og
var fýrirliði í nokkrum leikjum. Arið 1987 hætti hann að keppa
og hafði þá orðið Islandsmeistari og bikarmeistari sex sinnum.
Guðmundur er verkfræðingur og MBA frá Bandaríkjunum og
Kanada. Hann hefur starfað sem forstöðumaður flutningasviðs
Eimskips í fimm ár. Flutningasvið ber ábyrgð á millilandaflutn-
ingum félagsins. Verðmæti fyrirtækisins er yfir 30 milljarðar
króna og veltan nemur 16 milljörðum. Starfsmenn félagsins
eru um 1.250 talsins.
- Hvað hafa íþróttirnar kennt þér?
„Sterkur félagsskapur og vinátta. Öflugt samstarf innan hóps-
ins, enginn er vanmetinn. Iþróttir ala á keppnisskapi, aga og
þrautseigju og kenna mótlætaþol. Markmið eru skýr og mæl-
anleg. Að takast á við óvenjulegar aðstæður. Vinna undir mikl-
um þrýstingi.“ 33
Einstaklingsíþróttir kenna aga Hér hefur einungis verið
talað um hópíþróttamenn en einstaklingsíþróttamenn öðlast
að sjálfsögðu einnig mikilvæga reynslu þó að ekki hafi þeir
í jafn ríkum mæli orðið jafn áberandi stjórnendur í atvinnu-
lífinu. Viðmælendur Frjálsrar verslunar eru sammála um að
þessir íþróttamenn séu mjög agaðir og reiði sig á sjálfa sig
fremur en aðra. í einstaklingsíþróttunum er ekki hægt að
leita eftir hjálp, að keppa í skjóli hinna þegar illa stendur á
eins og hægt er í hópíþróttunum. Hugsanlegt er að einstak-
lingsíþróttamönnum falli stjórnun ekki jafn vel þar sem þeir
hafa ekki þjálfast í hópvinnu á sama hátt og hópíþróttamenn.
„Eg hugsa að einstaklingsíþróttir gefi svipaðan lærdóm og
hópíþróttir. I einstaklingsíþróttum reynir hins vegar mjög á
einstaklinginn, að hann vinni skipulega og sé fær um að við-
halda eigin stöðu og getu. Hann vinnur skipulega með sjálfan
sig og er mjög agaður. Eg hugsa að þetta nýtist fólki vel í
starfi, sérstaklega sérfræðingum. Þeir eiga það margir sam-
merkt með afburða íþróttafólki að þurfa stöðugt að bæta getu
sína. Þeir einir bera ábyrgð á árangrinum," segir Skúli.
Regluleg hreyfing Flestallir íþróttamenn eiga það sameig-
inlegt að hafa byggt upp traustan vina- og kunningjahóp og
hafa tamið sér heilbrigða lífshætti. Líkamlegt ástand, þrek
og þol, skiptir miklu máli í atvinnulífinu, að mati þeirra
Valdimars og Guðmundar, og segjast þeir báðir finna mik-
inn mun á sjálfum sér eftir því í hvernig formi þeir séu. „Ut-
hald í líkama gefur úthald í vinnu. Eg fór í gegnum allt mitt
skólanám með íþróttunum þannig að ég hef alltaf unnið und-
ir álagi. Eg vinn vel þannig og mér finnst úthaldið hjálpa
mér mjög mikið hvað það varðar,“ segir Valdimar sem kom-
inn er „heim“ að Hlíðarenda, æfir með Val ijórum til fimm
sinnum í viku þó að vinnan gangi fyrir, eins og hann segir.
Boltinn er bara áhugamál í dag.
„Maður er betur upplagður, hefur meira úthald, hugsar
skýrar og er jákvæðari ef maður er í góðu formi. Þetta
þekkja allir þeir sem hafa stundað líkamsrækt. Regluleg
hreyfmg skilar sér vel inn í starfið frá degi til dags,“ segir
Guðmundur. 33
22