Frjáls verslun - 01.08.2000, Side 26
VIÐTflL
Ungi bæjarstjórinn
Margir sjá fyrir sér miðaldra karl-
mann í hlutverki bœjarstjóra en hún
er abeins 32 ára gömul og þegar
orðin bæjarstjóri í einu stærsta sveit-
arfélagi landsins. Hver er hún, þessi
unga kona sem skýtur körlunum ref
fyrir rass?
Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Mynd: Geir Ólafsson
ásamt sonum sínum, Jónasi Aðalsteini,
sem nú er 10 ára, og Braga, sem nú er
1 árs, og eiginmanni, Aðalsteini
Jónassyni, forstöðumanni lögfræði-
sviðs Islandsbanka-FBA, til náms í
Bandaríkjunum. Þau settust á bekk í
Harvard háskólanum til að leggja
stund á íramhaldsnám, hann í laga-
deild og hún í opinberri stjórnsýslu,
„master of public administration" eða
MPA í náminu lagði hún áherslu á
samskipti atvinnulífs og stjórnvalda,
stjórnun og leiðtoga en hún útskrifað-
ist í vor.
Að undanförnu hefur Ásdís Halla starfað sem framkvæmda-
stjóri nýsköpunar- og þróunarsviðs hjá Háskólanum í Reykjavík
þar sem hún hefur unnið að nýjungum og fýrst og fremst verið
að leita eftir tækifærum til að bæta íslenskt menntakeríi. Hún
er hrifin af Háskólanum í Reykjavik og því starfi sem þar er unn-
ið. Unga fólkið þar telur hún að hafi kraft til að láta hugmyndir
sínar verða að veruleika. „Eg hef mikla trú á þessum skóla og
held að hann sé ein bjartasta vonin í íslenskum menntamálum,"
segir hún.
Eg var ekki nema 15 ára þegar ég
fór að taka þátt í starfi Sjálfstæðis-
flokksins á Akranesi. Eg þvældist
jafnvel ein á fundi því að mér þóttu
stjórnmálin svo áhugaverð. Þegar
jafnaldrar mínir fóru í bíó eða út að
skemmta sér eyddi ég stundum heilu
kvöldunum í að hlusta á þingmenn,
bæjarfulltrúa eða aðra fundargestí. Ég
sat í stjórn ungra sjálfstæðismanna á
Akranesi og þegar ég var í Háskóla Is-
lands vann ég með Vöku, sat í Stúd-
entaráði oggegndi formennsku í utan-
ríkisnefnd. Á þessum tíma fékk ég
nóg af stjórnmálum og ákvað að hætta þessu vafstri. Ég fór að
vinna sem blaðamaður á Morgunblaðinu. Það var góð reynsla
og frábært starf,“ segir Ásdís Halla Bragadóttir sem um þessar
mundir tekur við starfi bæjarstjóra í Garðabæ.
Úrlögin tóku í taumana Ásdís Halla hefur verið nokkuð áber-
andi í stjórnmálalífi landsins undanfarin ár en fæstír vita mikið
um hana. Hún er fædd árið 1968, ein af sex systkinum en af
þeim eru fimm á lífi. Foreldrar hennar heita Bragi Eyjólfsson og
Sigríður Sívertsdóttír Hjelm. Hún fæddist í Reykjavík en fluttí
nokkurra mánaða gömul tíl Olafsvíkur en þaðan eru flestír
hennar ættíngjar. Faðir hennar var trillusjómaður og verkstjóri
og móðirin heimavinnandi. Fjölskyldan fluttist til Svíþjóðar og
Noregs um nokkurra ára skeið. Eftír heimkomuna settist hún
að á Akranesi þar sem faðir Ásdísar Höllu hóf störf hjá íslenska
járnblendifélaginu.
Ásdís Halla útskrifaðist frá Fjölbrautaskóla Vesturlands og
lauk BA prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla íslands árið 1991.
Eftir tveggja ára starf á Morgunblaðinu tóku örlögin í taumana.
„Einn daginn hringdi Geir Haarde í mig og bauð mér að verða
framkvæmdastjóri þingflokks sjálfstæðismanna. Það kom mér
mjög á óvart því að ég bjóst alls ekki við að mér yrði boðið slíkt
starf. Þingflokkurinn var að leita að einhverjum sem átti meðal
annars að sjá um ritstjórn Flokksfrétta
og þar nýttíst blaðamannsreynslan vel.
Flokkurinn sigraði í kosningunum
1995 og myndaði aftur ríkisstjórn en
þá bauð Björn Bjarnason mér að verða
aðstoðarmaður sinn í menntamála-
ráðuneytínu. Ég hættí þar í janúar ‘99
þegar ég eignaðist mitt annað barn en
það fýrsta hafði ég eignast meðan ég
var í námi árið 1990,“ segir hún.
Bjartasta vonin Árið 1997 var Ásdís
Halla kosin formaður Sambands ungra
sjálfstæðismanna til tveggja ára og var
það í fýrsta sinn sem kona náði kjöri í
það embættí. Sumarið 1999 hélt hún
- Þú haföir lokið framhaldsnámi í opinberri stjórnsýslu þegar
þú sóttir um bæjarstjórastarfið. Varstu allan timann að stefria að
því að fara í sveitarstjórnarmál eða pólitík?
„Nei. Þegar ég ákvað að fara utan til náms sóttí ég annars veg-
ar um „MBA“-nám og hins vegar „MPA“. Þegar það kom í ljós
að ég hafði fengið inni á nokkrum stöðum valdi ég MPA-námið
tíl að læra almennt um sfjórnun og rekstur vegna þess að mig
langaði tíl að starfa meira að rekstri en ég hafði gert áður. Ég
bý í Garðabæ og þegar Ingimundur ákvað að hætta sem bæjar-
stjóri taldi ég að reynsla mín og nám myndu nýtast ágætlega
enda felst þetta starf aðallega í framkvæmdastjórn bæjarins.
Þetta snýst um að halda starfsemi bæjarins gangandi og tryggja
að bæjarbúum líði sem best í sínu umhverfi," segir hún.
Þvældist ein á fundi (
„Ég var ekki nema 15 ára þegar ég fór aö
taka þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins á ^
Akranesi. Ég þvældist jaínvel ein á íundi '
því að mér þóttu stjórnmálin svo áhugaverð.
Þegar jafnaldrar mínir fóru í bíó eða útað
skemmta sér eyddi ég stundum heilu
kvöldunum í að hlusta á þingmenn,
bæjarfulltrúa eða aðra fundargesti.
- Starf aðstoðarmanns menntamálaráð-
herra hlýtur að veita þér heilmikla
reynslu til að takast á við skólamálin í
svo stóru sveitarfélagi?
„Mjög mikla. Ég var aðstoðarmaður
menntamálaráðherra þegar flutningur
grunnskólans frá ríki til sveitarfélaga
stóð yfir og fylgdist náið með því máli
til loka. Það nýtist mér ekkert síður að
ég starfaði sem aðstoðarmaður þegar
við vorum að ljúka við gerð námskráa
fýrir leikskóla, grunnskóla og fram-
haldsskóla i ráðuneytinu. Við erum
með nokkra leikskóla, nokkra grunn-
skóla og einn framhaldsskóla í
26