Frjáls verslun - 01.08.2000, Síða 52
4
lýsinga sem yfirleitt liggja fyrir um félögin. Óvæntir óreglulegir
liðir skekktu líka spár í einhverjum tilvikum. Eg held að þessar
spár séu gagnlegar og lærdómsríkar, bæði íyrir þá sem gera
spárnar og þá sem lesa þær. Eflaust mun okkur fara fram við spár
út frá þeim gögnum sem liggja fyrir. Það er hins vegar mikilvægt
að gera sér grein fyrir því að spárnar verða aldrei betri en upplýs-
ingarnar sem þær byggjast á. Tíðari og meiri upplýsingar munu
gera spárnar nákvæmari og auka skilvirkni markaðarins."
7. Spennandi kostir framundan vegna nýskráninga?
„Eg held að það séu mjög spennandi kostir framundan og maður
hættir sér nú út á hálan ís ef fara á að nefna einhver sérstök nöfii.
Það er líka allur gangur á því hvort fyrirtæki hafa yfirleitt lýst þvi
yfir að þau steíhi að skráningu og hvort hún verði hér á landi eða
annars staðar. Af áhugaverðum kostum sem ég man eftir mætti
nefna Íslandssíma, EJS, Flögu, Kaupþing, Samskip og X-18. Af
þessum „hálfislensku" félögum mætti nefiia OZ.COM og Net-
verk. Eg vona líka að fjárfestar eigi eftir að fá tækifæri til að kaupa
hlutabréf í Landssímanum og Landsvirkjun innan tíðar.“
2. Jákvæðustu tíðindin?
„Sameining FBA og íslandsbanka í Íslandsbanka-FBA í vor.“
*
3. Neikvæðustu tíðindin?
„Viss hægagangur fyrirtækja, ekki síst í sjávarútvegi, við að
auka arðsemi sína og hagræðingu í rekstri.“
4. Hlutabréfavísitalan. Hvers vegna lækkun?
„Meiri hækkun mánuðina janúar 1999 til febrúar 2000 en verð-
mætasköpun fyrirtækjanna stóð undir - en yfirskot i verðmynd-
un á eignamarkaði eru ekki óalgeng. Framundan: Nokkurs
konar,„hálfleikur“ uns verðlagning verður eðlileg á ný.“
5. Hvort fara fjárfestar á skuldabréf eða hlutabréf?
„Hlutabréf - en líkast til einkum erlend.“
6. Spár ónákvæmar um afkomu. Hvers vegna?
„Er ekki viss - spár aðeins fáar vikur fram í tímann skipta sjald-
an mestu.“
8. NOREX-samstarfið, sóknarfæri?
„Fyrir Ijárfesta felast sóknarfærin í þvi að víkka út fjárfestingar-
heim sinn þar sem þeir geta nú með auðveldari hætti en áður bor-
ið saman kosti þess að kaupa eða selja íslensk hlutabréf fremur
en bréf í félögum sem skráð eru í öðrum NOREX kauphöllum.
Eg held að það muni færast í vöxt að fjárfestar beri saman með
beinum hætti verðlagningu íslenskra og erlendra félaga á sömu
starfssviðum. NOREX samstarfið auðveldar slíkan samanburð.“
9. Abending til stjórnvalda?
„Halda einkavæðingu áfram af fullum krafd.“ S3
SigurðurB. Stefánsson,framkvœmdastjóri VIB. „Spár aðeinsfáar vikur
fram í tímann skipta sjaldan mestu. “
Sigurður B. Stefánsson
1. Mest á óvart?
„Sú áhersla sem vissir stjórnmálamenn, einkum frá stjórnar-
andstöðu, reyna að leggja á að efiiahagsástandið sé slakt, nú
þegar það hefur sjaldan verið betra, árangur að baki ánægju-
legri eða horfúr bjartari."
7. Spennandi kostir framundan vegna nýskráninga?
„Nýskráningar eru að jafnaði ekki eins spennandi og gróin, frá-
bær félög. En símafyrirtækin og orkufyrirtæki og umbreyting
þeirra til nútímans verða spennandi þegar að þeim kemur."
8. NOREX-samstarfið, sóknarfæri?
„Þau felast í áhrifum af enn aukinni samkeppni sem hlýst af
samstarfi á alþjóðlegum markaði."
9. Ábending til stjórnvalda?
,Að beita öllum tiltækum ráðum til að ryðja burt höftum á eðli-
lega samkeppni hér innanlands: í landbúnaði (framleiðsla og
dreifing), í orkuframleiðslu, -sölu og -dreifingu, á fjármálamark-
aði (selja hlutabéf í ríkisbönkum, umbreyta sparisjóðum), í
samgöngum og fjarskiptum (Síminn, halhir og flugvellir)111
Sævar Helgason
1. Mest á óvart?
„Erfitt er að taka fram mörg atriði sem komið hafa verulega á
óvart á fjármálamarkaði á árinu. í flestum tilfellum liefur verið
hægt að sjá með einhverjum fyrirvara fyrir þau atriði sem mað-
ur taldi í upphafi árs að ættu ekki eftir að gerast. Það verður að
segjast að uppgjör fyrirtækja á Verðbréfaþingi íslands komu
nokkuð á óvart, almennt var talið að þau yrðu betri en raunin síð-
ar varð, þó voru atriði eins og hækkandi oliuverð og óhagstæð
gengisþróun atriði sem búið var að sjá að ekki yrðu til að hjálpa.
Sama má segja um þróunina á skuldabréfamarkaði, hún kom
nokkuð á óvart, einnig hve afföllin urðu mikil á hæsta punkti. Þó
myndi ég telja að skarpar lækkanir á erlendum mörkuðum hafi
komið mér mest á óvart“
2. Jákvæðustu tíðindin?
„Margt jákvætt hefur átt sér stað á verðbréíamarkaði á árinu
sem er að líða. Af innlendum vettvangi er td. jákvæð sú þróun
52