Frjáls verslun - 01.08.2000, Síða 75
Árni Sigfússon, framkvœmdastjóri Tæknivals
Sigfús Sigfússon, forstjóri HEKLU.
í þjálfunarbúðum
Tæknival er í 40. sœti listans og erstærsta fyrirtœkið á ís-
lenskum tölvumarkaði og heldurþar með stöðu sinni
Jjórða árið í röð. Velta Tæknivals var rúmir 4,4
milljarðar á síðasta ári.
Um tíma fólst aukin velta í breiðri nálgun upplýsingatækni
við fyrirtækja- og heimilismarkað. Kaup á smærri ein-
ingum voru tíðari en það jók veltu. Hugbúnaðarþróun
og sala á tölvum og tæknilausnum varð til þess að stefna inn-
an fyrirtækisins varð óskýrari. Þetta leiddi til þess að við-
skiptavinir fengu óskýr skilaboð, þeim fannst þeir stundum
vera bæði í samkeppni við Tæknival og í samstarfi. Uppstokk-
un í fyrirtækinu og skýrari sýn á afmarkaðri verkefni á tveim-
ur aðskildum mörkuðum er nú að skila fyrirtækinu áfram í
auknum styrk. Það er auðvelt að stækka með því að fitna en
það er erfiðara að stækka með réttri vöðvasöfnun. Nú erum
við í þeim þjálfunarbúðum,“ segir Arni Sigfússon fram-
kvæmdastjóri.
- Að hverju mun Tæknival einbeita sér á næstunni?
„Við staðsetjum okkur meðal fyrirtækja sem byggja upp-
lýsingahraðbrautina, veita ráðgjöf, hanna og selja búnað til
vinnslu, geymslu og flutnings gagna. Nútíma gullgrafarar eru
fjarskipta- og upplýsingaveitur. Við seljum ráðgjöf og skóflur
til þeirra. Við munum með nýjum leiðum styrkja okkur í sölu
og þjónustu á notendabúnaði og BT heldur sínu striki á heim-
ilismarkaði, eykur upplifun í tæknilegri afþreyingu. Þessar
áherslur fela í sér ónýtt tækifæri, bæði hér og erlendis. Velt-
an er ekki lengur áhersluatriðið. Mestu skiptir að auka hagn-
að okkar og viðskiptavina okkar um leið og starfsmenn fá að
njóta sín,“ svarar hann og bætir við að Tæknival glími enn við
þungan fjármagnskostnað vegna erfiðleika fyrri ára. Fyrir-
tækið þurfi tíma til að vinna sig út úr þeim. 35
Hekla í heimabyggð
Hekla er 15. stærsta fyrirtæki landsins. „Margar ástæður
eru fyrirgóðu gengi Heklu á síðustu árum en grundvöllur-
inn er frábært starfyfólk, góður starfsandi og framúrskar-
andi vara,“segir Sigfús Sigfússon, forstjóri Heklu.
w
Ahættudreifing í Heklu er meiri en flestir gera sér grein fyr-
ir þar sem bílasala er einungis hluti starfseminnar, t.a.m.
hefur Vélasvið Heklu, með Scania, Caterpillar og MaK í
broddi fylkingar, verið í miklum uppgangi. „Við erum stolt af því
að um þessar mundir er verið að koma fyrir hverflum frá Gener-
al Electric í Vatnsfellsvirkjun og Mitsubishi í Nesjavallavirkjun.
Þá vega þungt lækningatæki frá General Electric. Við höfum
gengið frá stórum samningi við sjúkrahúsið í varnarstöðinni í
Keflavík. Ennfremur er mikill vöxtur í sölu á heimilistækjum frá
GE,“ segir hann.
„Við hjá Heklu erum hóflega bjartsýn með næsta ár. Saman
höfum við þó sett okkur metnaðarfull markmið sem við ætlum
að kappkosta að ná,“ segir Sigfús. „Það er eðli málsins sam-
kvæmt ekki hægt að upplýsa hver sýn Heklu er til næstu ára en
þó má segja að „Hekla í heimabyggð" sé hornsteinn að stefnu fé-
lagsins. Nýtt hús í Reykjanesbæ, sem var formlega tekið í notk-
un nú í september, og Heklu-hús á Selfossi og í Borgarbyggð,
sem opnuð voru á síðasta ári, eru til vitnis um áherslu Heklu i
þessum efnum.
- Er fyrirtældð á leið á hlutabréfemarkað og þá hvenær?
„Það má segja að íslenski hlutabréfamarkaðurinn sé frekar eins-
leitur. Hann er í vissum skilningi enn að slíta barnsskónum. Við sjá-
um ekki betur en að Hekla væri góð viðbót á markaðinn. Vonandi
eru þátttakendur á markaðnum sammála okkur um að fyrirtækið
sé álillegur ijárfestingínkostur. Okkur finnst nauðsynlegt að hafa
opinn hug gagnvart því hvaða rekstraríorm henti best Þess vegna
höfum við í stöðugri skoðun þann möguleika að fara með Heklu á
hlutabréfamarkað en endanleg ákvörðun hefur ekki verið tekin." SH
75