Frjáls verslun - 01.08.2000, Síða 152
Bandaríska verðbréfafyrirtœkið Vanderbilt lét Saga Film gera fyrir sig auglýsingu á Islandi ogýmis brögð voru notuð til að gera skemmtilega
mynd.
Pan Arctica: Grín á frosnu Jökulsárlóni þarsem hljómsveitin Bentley
Rhytm Ace fraus undir ísnum en eldspúandi Inúíti frelsaði hana.
leikstýrðu þessari auglýsingu en kvikmyndatökumaðurinn var
tékkneskur, Jan Velicky að nafni. Hann er ákaflega fær á sínu
sviði og þekktur."
Frakkar á ferð „I lok sumarsins var hér ansi ijörugt, hér
voru á ferð Frakkar sem voru að gera myndband við lag úr
vinsælli teiknimyndaséríu þar úti. Einnig Bandaríkjamenn,
sem voru að gera kynningarmynd
fyrir verðbréfafýrirtæki, Spánverjar,
sem voru að taka upp kynningu á
hausttísku verslunarkeðju sem heit-
ir E1 Corte Inglés, og Japanar sem
voru að taka kynningarmyndir af
nýrri japanskri poppstjörnu. Enn eru
ýmsir aðilar að velta fyrir sér að
koma til landsins og nýta sér það sem
við Islendingar höfum upp á að
bjóða,“ segir Leifur sem horfir björt-
um augum til framtíðarinnar eftir nær
sumarlanga dvöl á landsbyggðinni.
Eldspuanúi Inúíti Pan Arctica Productions var stofnað vorið
1997 og er aðaleigandi fyrirtækisins Snorri Þórisson. Sex
starfsmenn eru í föstu starfí en til ýmissa starfa eru ráðnir
verktakar, 10-50 lalsins eftir umfangi verksins sem vinna á.
Framleiðandi Pan Arctica er Asta Hrönn Stefánsdóttir. Pan
Arctica er systurfyrirtæki Pegasus Pictures sem er kvik-
myndafyrirtæki og er með tækjaleigu. Pegasus er einnig um-
boðsaðili fyrir tækjafyrirtækið Arri Media í London.
„Nafnið eru hugsað þannig að við getum náð yfir (panað)
norðurhjarann (Arctica),“ segir Einar Sveinn Þórðarson
tengiliður við erlenda viðskiptaaðila Pan Arctica. „Pan þýðir á
kvikmyndamáli að fara með myndavélina lárétt eftir landslagi
t.d. til að fá víðmynd."
Kafað undir ísjaka Einar Sveinn segir fyrirtækið hafa verið
stofnað fyrst og fremst til að vinna erlend verkefni á Islandi
önnur en kvikmyndir í fullri lengd. „Yið gerum auglýsingar,
tónlistarmyndbönd, kynningarmyndbönd og svo vinnurn við
einnig ljósmyndaverkefni. I mars gerðum við verkefni með
fyrirtæki sem heitir Velocify Films og er í Suður-Afríku. Aug-
lýsingastofan sem er útibú frá Ogilvy and Mather er í Singa-
pore. Varan sem auglýst var er frá Cerebos og sá hluti sem
við sáum um var kona í froskmannabúningi að koma upp um
vök á ísilögðu vatni. Leikstjórinn heitir
Ricardo de Carvalho og framleiðand-
inn Sean Beukes. Þeir höfðu myndað
stúlkuna fyrst í Suður-Afríku þar sem
hún synti um og kafaði og voru útbún-
ir gerviísjakar þar. Síðan var efninu
skeytt saman við það sem kom frá Is-
landi og var mjög sannfærandi. Við
létum m.a. útbúa tank sem við kom-
um fyrir í vök, sem höggvin var í
ísinn á Fjallsárlóni af þessu tilefni, og
létum hita vatn í tankinn svo stúlkan
héldi þetta út.“
IJata'í með @radical.media á Gmn-
þar sem auglýsing fyrir Orange símafynr-
152