Frjáls verslun - 01.08.2000, Blaðsíða 163
Þórunn Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri menningarborgarinnar, er ánœgð með árangurinn eftir margra mánaða þrotlaust starf. Allt hefur
gengið uþp, bœði hvað varðar fjármál og stjórnun.
að kynna verkefni hennar heldur einnig landið sjálft og þjóðina
með svipuðum áherslum og í almennri landkynningu. Menn-
ingarborgin starfar aðeins þetta eina ár en við verðum að hafa
í huga langtímamarkmið í Islandskynningu og bindum því
kynningarnar ekki við það eitt að hér séu margir listviðburðir
og frægar stjörnur. Við þurfum einnig að gæta þess að ekki sé
um tómar flugeldasýningar og stórviðburði að ræða hér heima
vegna þjóðarinnar sem vill hafa ákveðið jafnvægi milli lítilla við-
burða og stórra, sýnilegra og ósýnilegra."
Aðsókn goð Ó alla viðburði Eitt af því sem menningarborgin
hefur lagt áherslu á er að þeir sem að viðburðum standa geri
nákvæmar íjárhagsáætlanir og standi við þær. Það sé eðlilegt
að menn fái greitt iýrir sína vinnu en ekki megi sprengja alla
skala og líta á menningarborgina og það sem henni fylgir sem
e.k. síldarár eða vertíð þar sem allt megi hækka í verði umfram
það sem eðlilegt geti talist. Öll aðsókn hefur verið einstaklega
góð á listviðburði, að sögn Þórunnar, og varla nokkur viðburð-
ur þar undanskilinn. „Nokkuð var um að menn hefðu áhyggjur
af því að seinni tónleikar Radda Evrópu yrðu minna sóttir en
þeir fyrri en þær áhyggjur reyndust ástæðulausar. Við hefðum
getað selt margfalt fleiri miða en í boði voru.“
Karnival i klakaböndum Um beint framhald menningarborg-
arinnar verður ekki að ræða en Þórunn segir Listahátíð vera að
hefja störf með nýjum samþykktum og muni með þeim geta
fært út kvíarnar. Þar mun Þórunn heija störf sem stjórnandi
þegar verkefninu um mennningarborgina lýkur og segir: „Eg
myndi vilja beita mér fyrir því að Listahátíð ynni meira með
landsbyggðinni strax á næsta ári og geta þá veitt faglega aðstoð
og ráðgjöf í meira mæli en gert hefur verið.“
Opinber lok Menningarborgarinnar hafa ekki verið endan-
lega ákveðin en verða þó sennilega þannig að allir fái tækifæri
til að taka þátt í þeim, líkt og í menningarnóttinni. Lokin verða
í desember en líklega ekki um áramótin og er Þórunn dularfull
þegar hún er spurð um það hvað eigi að gera: „Það verður
karnival í klakaböndum...; segi ekki meira.“
upp Úr Stendur... Eftir ár sem þetta hljóta margar minning-
ar og góðar að verða eftir hjá þeim sem að vinnunni hafa stað-
ið. Þórunn er spurð hvort eitthvað eitt standi upp úr. „Þær eru
nú margar minningarnar því þetta hefur verið skemmtilegasta
ár í lífi mínu. Eg get eiginlega ekki gert upp á milli verkefnanna
því þau hafa svo mörg verið glæsileg og spennandi. En kannski
fannst mér áhrifaríkast þegar listahátíð þroskaheftra var sett.
Þá sá maður glöggt hve miklu svona verkefni getur skipt og
hve mikill hvati að merkilegu starfi það getur orðið. Þegar
maður finnur að verkefnin ná til fólks, sem alla jafna hefur litla
eða enga möguleika á að takast á við menningarstarf, þá finnst
manni að allt þetta puð sé til einhvers." 35
Landkynning sem nýtist ferðaþjónustunni
Þótt menningarborgin sé kynnt erlendis þá er ekki endilega alltaf veriö að kynna
verkefni hennar heldur einnig landið sjálft og þjóðina með svipuðum áherslum
og í almennri landkynningu.
163