Frjáls verslun - 01.08.2000, Síða 164
Stefán Jón Hafstein, eigandi flugur.is. „Vef-
urinn er rekinn sem lifandi fjölmiðill frá degi
til dags. Ég er ailtaf við, svara bréfum og
erindum og er stöðugt að uppfæra efnið."
FV-mynd: Geir Ólafsson
Fegurðin í vefnum
Eg fór að skoða Netíð af alvöru í
upphafi ársins og kynntí mér
möguleikana. Þar hefur nkt órit-
stýrð ringulreið, fólk hefur villst inn á
Netið og ekkert fundið nema frum-
skóg sem mikil fyrirhöfn er að rata um.
En það kemur að því að hægt verður að
markaðssetja hugvit og þekkingu og
selja á Netinu. Menn hafa ráðist í starf-
semina af hugsjón og áhugamennsku,
sem er annað orð yfir fúsk, en ég lagði
upp með faglegar forsendur; að vinna
þetta sem atvinnumaður á viðskiplaleg-
um grunni. Eftir að hafa litíð í kringum
mig eftír heppilegu reynsluverkefni rann upp fyrir mér ljós. Eg
áttí sjálfur 200 greinar um fluguveiðar. Sá gagnabanki smellpass-
aði inn í þær hugmyndir sem ég var búinn að gera mér um
þarfasniðna þjónustu á Netínu," segir Stefán Jón Hafstein, sem
hófst handa í vor við að koma hugmyndum sínum í framkvæmd.
Verslun og tímarit Stefán Jón er eigandi útgáfufyrirtækisins
Islands ehf. og hefur hann rekið fluguveiðivefmn flugur.is í
um það bil fjóra mánuði. Viðtökurnar hafa verið frábærar. Um
2.500 notendur hafa skráð sig inn á vefinn frá upphafi og er
það vel yfir helmingur af því sem talið er „harðasti kjarni
markaðarins". Notendur hafa opnað og lesið um 20 þúsund
greinar. Stefnan er að ná 5.000 skráðum notendum í vetur, fyr-
Ritstýrt efni, skýrt skilgreindur mark-
hópur ogyfirburdir í efnisframboöi og
persónulegri pjónustu. Þetta er upp-
skriftin að því að ná árangri á vefnum
að sögn Stefáns Jóns Hafitein. Hann
hefur rekið flugur.is ífióra mánuði og
stefnir að enskri útgáfu innan tíðar.
Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Mynd: Geir Ólafsson.
ir næstu vertíð. Það er um 70-80 pró-
sent af því sem skilgreint er sem
áhugasamasti hluti markaðarins.
Tekjurnar eru farnar að skila sér en
Stefán Jón hefur selt ítarefni fyrir 99
og 299 krónur greinina, vikulegt
fréttabréf á 99 krónur og bækur og
pakka með sérhnýttum flugum á til-
boði. Vefnum líkir Stefán Jón við veiði-
tímarit og sérvöruverslun; gæðaversl-
un fýrir þekkingu og þjónustu, hag-
nýtar upplýsingar, skemmtan og sér-
fræðijjjónustu og segir hann vettvang
fluguveiðimanna.
Auglýsendur hafa tekið vefnum rólega. „Eg var ekki búinn
að gera mér neinar gyllivonir um auglýsendur. Það er ofmetinn
markaður. Maður þarf að sanna sig áður en maður fær aug-
lýsendur tíl að hoppa á vagninn. Menn eru svo vanir fúski í
kringum þennan vef að hann hefur á sér óorð,“ segir hann og
spáir því að auglýsendur taki við sér þegar þeir uppgötvi það
stöðuga áreití og notkun sem vefurinn hefur fram yfir t.d. tíma-
rit. „Auglýsendur munu uppgötva fegurðina í vefnum. Þar hitta
þeir markhópinn beint, hitta hann oft og geta stöðugt uppfærl
skilaboðin. Þegar auglýsing er komin inn er endalaust hægt að
þróa hana og bæta við hana. Upp á það verður boðið,“ segir
hann og bætír við að menn hafi hreinlega ekki áttað sig á
hvernig eigi að auglýsa á Netínu.
164