Frjáls verslun - 01.08.2000, Side 165
FYRIRTÆKIN fl NETINU
Slóðin er www.flugur.is.
„Borðar" og vörumerki eru ekki málið, fremur útfærð skilboð
fyrir skilgreindan hóp og upp á það mun ég bjóða.“
Fluguveiðar hafa verið það áhugamál í Bandaríkjunum á síð-
ustu árum sem örast vex meðal almennings og framtíðarmögu-
leikarnir eru góðir. Þróunin er svipuð hér og víðar i Evrópu.
„Fluguveiðar eru í tísku,“ segir Stefán Jón, „en það góða við
þessa tísku er að sá sem einu sinni hefur játast henni snýr aldrei
aftur frá henni!“
Island er veiðimekka og því hafa Islendingar stór útflutnings-
tækifæri á þessu sviði. Sjálfur er Stefán Jón að áforma upplýsinga-
og skemmtivef um fluguveiðar á ensku.
Uppskrift Stefáns Jóns Meginforsendurnar eru þrjár: Skýrt
skilgreindur markhópur, ritstýrt efni, sem unnið er á fagleg-
an hátt af atvinnumanni í fjölmiðlun, og yfirburðir í efnisfram-
boði og þjónustu.
Jafet S. Ólafsson, forstjóri Verðbréfastofunnar, bendir m.a. á vefinn
dolomiti.itfyrirþá sem hafa áhuga á að fara á skíði til Italíu í vetur.
Mynd: Geir Olafsson
Netið er orðið eitt mikilvægasta tækið til viðskipta með
verðbréf, til að koma skilaboðum til önnum kafinna for-
stjóra og til að nálgast upplýsingar. Hér koma uppá-
haldsvefir Jafets Olafssonar, forstjóra Verðbréfastofúnnar:
WWW.altaviSta.com Á altavista leitarvefnum er mikið af upp-
lýsingum og alltaf einhvað áhugavert að finna. I gegnum þenn-
an vef er yfirleitt hægt að finna það sem verið er að leita að.
WWW.smartmoney.com Fyrir þá sem eru í verðbréfavið-
sldptum er þetta góður vefur. Á honum er að finna ótnilega
mikið af upplýsingum um flest fyrirtæki sem skipta máli.
Fjögur þjónustustig eru á flugur.is:
1 Gjaldfijálsar greinar. Allir geta skráð sig inn á vefinn og lesið
stóran hluta greinanna. „Þetta er til að venja fólk við að nota
vefinn og bjóða það velkomið. I íluguveiðum er líka hefð að
gefa mikið af sér. Eg virði þá hefð. Þetta gefur lika tekju-
minna fólki, til dæmis börnum og unglingum, færi á að nýta
sér vefinn að miklu leyti.“
2 Itarefni til sölu, unnar greinar með td. lýsingum á veiði-
aðferðum eða aðstæðum, jafnvel korti og myndum. Kaup-
andinn gefur upp greiðslukortanúmer. Ekki þarf að vista
greinina eða prenta hana út eftir kaup. Hún er kaupandanum
alltaf opin á vefnum.
3 Netklúbbur. Innifalið er vikulegt fréttabréf sem kemur á
tölvupóstfang auk þess sem alltaf er hægt að lesa það á vefn-
um. Fréttabréfið er brotið um á hefðbundinn hátt með mynd-
um og fyrirsögnum. Klúbbfélagar fá ýmis tilboð, til dæmis
bækur, íiugupakka og tæki.
4 Sérfræðiþjónusta. Netverjar geta sent inn spurningar og birt-
ist svarið á vefnum. „Vefurinn er rekinn sem lifandi fjölmiðill
frá degi til dags. Eg er alltaf við, svara bréfiim og erindum og
er stöðugt að uppfæra efnið,“ segir Stefán Jón Hafstein. S5
Leiðrettiny
í umfjöllun um vib.is í síðasta blaði kom fram að ekki væri
hægt að senda starfsfólki póst með því að smella á netfang.
Þetta er ekki rétt. Það er hægt að senda póst með þeim hætti
og er beðist afsökunar á þessum mistökum. 33
WWW.althingi.iS Þarna er hægt að fylgjast með stjórnmálun-
um. Oftast skoða ég vef Péturs Blöndal og Jóhönnu Sigurðar-
dóttur. Agúst Einarsson hefur lengi haldið úti góðum vef sem
gaman er að skoða. Því miður er hann ekki lengur á þingi og
er þar skarð fyrir skildi.
WWW.valur.iS Hjarta mitt slær með Val í íþróttum, enda var
Hlíðarendi mitt annað heimili þegar ég ólst upp í Hlíðunum.
Við erum aftur komnir upp í aðaldeildina, fórum bara niður í
1. deild. Sum góð félög, sem núna hampa titlum, fóru niður í
2. deild á sínum tíma og þarna er jú töluverður munur á.
WWW.dOlomiti.it Fjölskyldan hefur farið á skíði til Val Gar-
dena í Dolomitfjöllunum á Italíu undafarin ár. Eg er þcgar far-
inn að skoða þennan vef með tilliti til nýrra gistimöguleika.
Þetta er stórskemmtilegt svæði. Þegar fer að snjóa
fjölgar ferðum inn á þennan vef, maður skoðar færi
og veður og hugurinn ber mann hálfa leið til Ítalíu.
WWW.Winespectator.com Á vef bandaríska tíma-
ritsins winespectator er oft bent á góð vin, sem
ég hef síðan oft og tíðum fundið í Heiðrúnu.
Guðrún Helga Sígurðardóttir.
ghs@talnakonnun.is