Fregnir - 01.03.2005, Blaðsíða 7

Fregnir - 01.03.2005, Blaðsíða 7
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafræða full text of her paper, "Empowering Child- ren: Rights-Based Library Services", at http://www.ifla.org/IV/ifla70/papers/004e- Koren.pdf Other speakers are still to be conflrmed. The conference will be held at Hotel Saga. The June issue of Fregnir will have more details, and further information will be provided over the coming months on Skrudda and Bokin. Students in the BA (Library and Information Science) and MLIS programs at the University of Iceland will be able to attend the conference for course credit (on completion of an assignment based on the conference papers). Dr. L. Anne Clyde Auglýsing eftir umsóknum í Ferðasjóð Upplýsingar 2005 Auglýst er eftir umsóknum í Ferðasjóð Upplýsingar - Félags bókasafns- og upp- lýsingafræða. Hlutverk sjóðsins er að styrkja fullgilda félaga til náms- og kynnisferða. Uthlutunarreglur sjóðsins eru m.a.: • Upphæð sem úthlutað er til hvers styrk- þega er að jafnaði kr. 20.000 vegna ferða- lags til útlanda en kr. 10.000 vegna ferðar innanlands. Fjöldi úthlutana fer eftir í]ár- hagsstöðu sjóðsins hverju sinni. Heimilt er að úthluta samtals allt að átta styrkjum ár hvert. • Styrkþegi skal hafa verið skuldlaus félagi í Upplýsingu a.m.k. fimm ár og a.m.k. fimm ár þurfa að líða á milli úthlutana til sama einstaklings. • Umsækjandi sem ekki hefur hlotið styrk úr sjóðnum áður skal að öðru jöfnu sitja fyrir um styrkveitingu. • I umsókn skal tilgreind ástæða ferðarinnar, hvert ferðinni er heitið, kostnaðaráætlun og annar hugsanlegur fjárstuðningur. • Umsóknarfrestur er til 15. apríl næstkom- andi. Því miður er ekki hægt að taka til greina umsóknir sem berast eftir þann tíma (miðað er við dagsetningu tölvupósts eða póststimpils). • Styrkþegar skulu skila skýrslu til stjómar sjóðsins að lokinni ferð og skal skýrslan að öðm jöfnu birt í Fregnum - Fréttabréfi Upplýsingar. í sjóðsstjóm em gjaldkeri Upplýsingar, sem er formaður sjóðsstjómar, auk hans formaður og varaformaður félagsins sem era meðstjómendur. Nánari upplýsingar um reglur og úthlutunarreglur sjóðsins er að fínna í Fregnum 1/2001, bls. 17. Umsóknir um styrki skal senda til Upp- lýsingar - Félags bókasafns- og upplýs- ingafrœða, Lágmúla 7, 108 Reykjavík. - Netfang: upplysing@bokis.is - Bréfa- sími: 588 9239. Stjórn Ferðasjóðs Upplýsingar Auglýsing um Ferðastyrk NVBF NVBF (Samband félaga norrænna rann- sóknarbókavarða) veitir árlega ferðastyrk að upphæð kr. 7.000 norskar krónur. Styrkurinn er veittur til eins aðila í hverju Norðurlandanna fyrir sig til endur- menntunar og/eða námsferðar innan Norð- urlanda. Umsækjandi þarf að vera í Upplýsingu. Nemar í bókasafns- og upplýsingafræði geta einnig sótt um séu þeir í félaginu. Að öllu jöfnu ganga þeir fýrir sem vinna innan rannsóknar- eða háskólabókasafnageirans. Umsóknir um styrk fyrir árið 2005 þurfa að hafa bórist fyrir 20. sept. 2004 til Poul Erlandsen (poer@dpu.dk), ritara NVBF. Sjá einnig vefsetur NVBF: http://www. dpb.dpu.dk/nvbf/nvbf.html Fulltrúar Upplýsingar í stjórn NVBF Námsferð NVBF til Banda- ríkjanna og Kanada Nýjar bókasafnsbyggingar verða í brenni- depli í námsferð NVBF til Bandaríkjanna og Kanada 30. maí - 10. júní næstkomandi. Einnig verður hægt að sækja ráðstefnu SLA (Special Library Association): We're taking impact í Toronto 4.- 9. júní. Fólk getur tekið þátt í námsferðinni að hluta, 30. árg. - 1. tbl. 2005 - bls. 7

x

Fregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.