Fregnir - 01.03.2005, Blaðsíða 32

Fregnir - 01.03.2005, Blaðsíða 32
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða mun ekki hafa verið mikils metinn. Hann var kunnugur íslenskum fomritum og sótti þangað efni í byrjun. Kristín Unnsteinsdóttir nefndi erindi sitt „Munnmælaævintýri: rætur þeirra og gildi fyrir böm.“ Kristín er MED frá Kenn- araháskóla Islands og með doktorsgráðu frá University of East Anglia í Bretlandi. Hún talaði um ólíkar hugmyndir fræði- manna um uppmna ævintýra, gildi þeirra fyrir böm og hvenær þau em móttækileg- ust fýrir þau. Þá ræddi hún um varðveislu ævintýranna, tiltók m.a. að oftast hefðu það verið karlar sem skráðu þau á bók, eft- ir konum sem hefðu varðveitt þau í munn- legri geymd. Einnig kom Kristín inn á þá tilhneigingu sem nú sést oft, að breyta ævintýmm, milda þau og sníða af það ljót- asta. Ekki em allir á einu máli um að slíkt sé til bóta, böm geta orðið ennþá hræddari ef vonda persónan fær ekki makleg mála- gjöld. Eftir hádegisverð var sýnt lítið brot úr verkinu „Klaufar og kóngsdætur“ sem ver- ið er að fmmsýna hjá Þjóðleikhúsinu þessa dagana. Þetta litla brot lofar góðu um sýn- inguna. Næst talaði Jónína Óskarsdóttir. Erindi hennar hét „Alltaf sama sagan...?“. Jónína er fóstra frá Fósturskóla Islands og með B.Ed. gráðu af leikskólakennarabraut KHÍ. Hún bar saman íslenskar þýðingar á verk- um Andersens og sagði frá tilraunum Dana við að endurrita ævintýri hans og færa til nútímamáls. Síðust talaði Margrét Tryggvadóttir bókmenntafræðingur og kallaði hún sitt erindi „Andersen á okkar tímum“. Hún tal- aði líka um þýðingar og endurritanir á verkum Andersen en tók sérstaklega fyrir myndskreytingar og hvemig þær spegla samtíma sinn. Hún tók sem dæmi „Nýju fötin keisarans" þar sem myndir sýna mjög misjafnlega mikið af nekt hans hátignar eftir því hvenær þær em teiknaðar. Öll vom þessi erindi fróðleg og skemmtileg. Ráðstefnugestir fóm því margs vísari úr húsi um kl. 14:00. Inga Kristjánsdóttir Bókasafni Kópavogs fulltrúi Upplýsingar Jólagleði Upplýsingar 2004 Jólagleði Upplýsingar 2004 var haldin í Bókasafni Hafnarfjarðar föstudaginn 26. nóvember síðastliðinn, kl. 20-22:30. Jóla- gleðin var jafnframt fimm ára afmælis- hátíð Upplýsingar og bar upp á stofndag félagsins. Gleðin var að vanda ókeypis íyrir fullgilda félaga í Upplýsingu og hald- in í samstarfí við Bókasafn Hafnarijarðar. Við innganginn fengu gestir aflient barm- merki félagsins sem útbúið var í tilefni af afmælinu. I glæsilegu húsnæði bókasafnsins var boðið upp á ræðuhöld og tónlistardagskrá þar sem tríóið Sopranos söng sig inn í hjörtu viðstaddra. Auk þess var boðið upp á léttar veitingar og notalega samverustund í góðum félagsskap. Til leiks mættu yfir hundrað gestir með jólaskapið í farteskinu. I tilefni af fímm ára afmæli félagsins útnefndi stjóm Upplýsingar átta heiðurs- félaga. Það eru þau Einar Sigurðsson, Else Mia Einarsdóttir, Erla Jónsdóttir, Haraldur Guðnason, Hulda Sigfusdóttir, Láms Zophoníasson, Ólafur Pálmason og Óli J. Blöndal. Tóku þau á móti heiðursskjölum nema Haraldur og Láms sem áttu ekki heimangegnt og fengu skjölin send. Stjóm Upplýsingar þakkar Bókasafni Hafnarfjarðar innilega fyrir samstarfið og rausnarskapinn en sú hefð hefur skapast að jólagleði félagsins er gjaman haldin til skiptis á bókasöfnum á höfuðborgarsvæð- inu og hefur sá siður mælst vel fyrir meðal félagsmanna. Stjórn Upplýsingar IFLA í Ósló 71. árleg heimsráðstefna IFLA um bókasafns- og upp- lýsingamál (World Library and Information Congress) verður haldin í Osló dagana 14,- 18. ágúst næstkomandi. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Libraries - a Voyage of Discovery. Ráðstefnugjald fyrir skuldlausa félaga Upplýsingar er €350 með skráningu fyrir 1. maí 2005. Eftir það er gjaldið €425. Gjaldið er í báðum tilfellum €75 hærra fyrir þá sem ekki em félagsmenn. Verð 71. þing 30. árg. - 1. tbl. 2005 - bls. 32

x

Fregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.