Fregnir - 01.03.2005, Blaðsíða 43

Fregnir - 01.03.2005, Blaðsíða 43
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða miðstöð er veitt ráðgjöf til starfsfólks skólasafna, svo sem vegna húsbúnaðar og bókavals. Þar er tekið við bókapöntunum frá skólunum, bækur og önnur gögn skóla- safna eru flokkuð, skráð og plöstuð. Lánþegar skráðir og lánþegakort prentuð. A skólasafnamiðstöð starfa sex starfs- menn í fimm stöðugildum, þar af þrír bókasafnsfræðingar. 2000 2001 2002 2003 2004 2.179 1.162 1.231 1.591 935 Yfírlit yfír flokkun og skráningu á skóla safnamiðstöð 2000-2004 2000 2001 2002 2003 2004 22.035 21.052 25.491 29.289 29.641 Frágangur safngagna, eintakafjöldi 2000-2004 Margrét Björnsdóttir forstöðumaður Sjötti aðalfundur Uppýsingar haldinn 9. maí 2005 í Þjóðar- bókhlöðu Dagskrá fimmta aðalfundar Upplýsingar mánudaginn 9. maí 2005, kl. 15:15 í fyrir- lestrasal Þjóðarbókhlöðu, sbr. 8. gr. laga félagsins: a) Skýrsla stjómar. b) Skýrslur hópa og nefnda. c) Reikningar félagsins. d) Fjárhags- og framkvæmdaáætlun næsta starfsárs. e) Árgjald fyrir 2006. f) Lagabreytingar og skipurit. g) Kosning stjómar og varamanna sbr. 5. gr. h) Kosning skoðunarmanna reikninga. i) Kosning í nefndir. j) Önnur mál: 1) Afhending viðurkenninga fyrir bestu íslensku fræðibækumar fyrir böm og fullorðna fyrir árið 2004. 2) Fyrirlestur - Efnið verður tilkynnt síðar á póstlista félagsins. 3) Annað. Sérstakt fundarboð fylgir blaðinu. Enn- fremur tillögur til lagabreytinga. Veitingar verða í boði félagsins. Stjórn Upplýsingar Aðild að Upplýsingu Vakin er athygli á þeim faglega og ljár- hagslega ávinningi sem er samfara full- gildri aðild að félaginu, þ.e.: V Aðgangur að faglegri umræðu og fræðslu um bókasafna- og upplýsingamál. V Félagslegur ávinningur af því að tilheyra til- teknum faghópi og geta deilt reynslu og sameiginlegum vandamálum með félags- mönnum. V Ókeypis þátttaka í árvissri jólagleði. V Áskrift að fagtímaritinu Bókasafnið sem kemur út einu sinni á ári og hefur að geyma fræðilegar greinar á sviði bókasafns- og upplýsingamála. V Áskrift að fréttatímaritinu Fregnir sem kemur út þrisvar á ári og flytur m.a. fréttir af starfsemi félagsmanna, því sem efst er á baugi í bókasafnaheiminum hér á landi og erlendis, ennfremur frásagnir félagsmanna af ráðstefnum. V Réttur til að sækja um Ferðastyrk Upplýs- ingar sem er kr. 20.000 fyrir verkefni er- lendis og kr. 10.000 fyrir verkefni innan- lands, sbr. reglur sjóðsins www.upplvsing. is/umfel/ferdasiodur.htm V Réttur til að sækja um ferðastyrk NVBF að upphæð 7.000 norskar krónur sem veittur er árlega einum aðila á hverju Norðurlandanna til endurmenntunar og/eða námsferðar innan Norðurlandanna, sjá http://inet.dpb.dpu.dk/ nvbf/nvbf.html V 10% afsláttur af námskeiðum Endurmennt- unar Háskóla Islands á sviði bókasafns- og upplýsingafræða. V 20% afsláttur af Landsfundi Upplýsingar sem haldinn er annað hvert ár. V Afsláttur af ráðstefnugjaldi á árlega heims- ráðstefnu IFLA sem er einn stærsti við- burðurinn í bókasafnaheiminum ár hvert. V Afsláttur af ráðstefnugjaldi á ársþing IASL sem er sérstaklega áhugavert fyrir starfsfólk skólasafna. V Aðgangur að viðburðum NVBF á félags- verði, m.a. ráðstefnur og kynnisferðir, sjá http://inet.dpb.dpu.dk/nvbf/nvbf.html. V Aðstaða fyrir fundi, m.a. fyrir faghópa og nefndir Upplýsingar, að Lágmúla 7. V Aðgangur að öllu félags- og faglegu starfi Upplýsingar á félagsverði. Nánari upplýsingar um félagið er að finna, á vefsetri þess www.upplysing.is. Stjórn Upplýsingar 30. árg. - 1. tbl. 2005 - bls. 43

x

Fregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.