Fregnir - 01.03.2005, Blaðsíða 30

Fregnir - 01.03.2005, Blaðsíða 30
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða Tíminn var fljótur að líða og áður en við vissum af var komið að lokum nám- skeiðsins og afhenti Emilía okkur viður- kenningarskjal fyrir þátttökuna. Þá var komið að því að kveðja og þakka fyrir sig með viðkomu í eldhúsinu, þar sem maður Emilíu losaði bækumar úr pressunni og okkur til furðu og ánægju héldum við heim á leið með heilar og vel brúklegar bækur sem áður höfðu litið út fyrir að vera allt annað en nothæfar. Emilía hefur einnig boðið upp á tveggja daga námskeið og byggir það á því að geta haft bækumar í pressu yfir nótt og meðhöndlað þær svo frekar daginn eftir þegar þær hafa jafnað sig eftir límingu. Þetta dagsnámskeið í bókaviðgerðum var afar gagnlegt og skemmtilegt þótt stutt væri og gefur það mér nýja og víðari sýn á hvaða möguleikar em fyrir hendi varðandi minniháttar viðgerðir í söfnurn. Einnig var gagnlegt að kynnast þeim efniviði sem nota þarf og að hægt er að bjarga mörgu fýrir hom með því að þekkja rétt handtök. Ekki síður er það mikilvægt að átta sig á því að meta skemmdar bækur í víðara samhengi en „ónýtar“ því að svo ótrúlega margt er hægt að gera ef aðeins er staldrað við og jafnvel þegar verst lætur að hafa samband við fagmanninn, bókbindarann, og standa þannig vörð um „besta vininn“, bókina. Þórunn Erla Sighvats bókasafns- og upplýsingafrœðingur Landmœlingum Islands Vettvangsnám á bóka- söfnum: Starfsþjálfun nemenda í bóka- safns- og upplýsingafræðiskor við Háskóla Islands Nám og kennsla í bókasafns- og upplýs- ingafræði byggist að miklum hluta á fræði- legum gmnni. Þó má ljóst vera, vegna eðl- is greinarinnar, að hluti fræðslunnar þyrfti að vera verkleg þjálfun á starfsvettvangi. Hin síðari ár hefur því miður einungis ver- ið hægt að bjóða upp á vettvangsnám í bókasafns- og upplýsingafræði að litlu leyti en nú má greina bjartari tíma hvað þetta varðar. Ástæðan er sú að talsverður fjöldi bókasafna hefúr gert samning um samstarf við bókasafns- og upplýsinga- fræðiskor í Háskóla íslands um ýmsa þætti, meðal annars vettvangsnám. Lengst af var allmikil áhersla lögð á starfsþjálfun á bókasöfnum í náminu og nemendum gert skylt að skila tilteknum einingafjölda í vinnu á starfsvettvangi. Fyrir tæpum áratug reyndist óhjákvæmi- legt vegna ijárskorts að leggja niður svo til alla starfsþjálfun á bókasöfnum. Það hefúr haft í för með sér að ekki hefur verið hægt að skylda nemendur til þess að ljúka til- teknu námi á vettvangi. Þó hefur starfsfólk einstaka bókasafna tekið að sér leiðbeina nemendum í vettvangsnámi í formi val- námskeiðs. Eins og flestir eru sammála um var það mikil afturför þegar ekki var lengur hægt að veita starfsþjálfun sem formlegan hluta námsframboðs. Ljóst var að leita þyrfti nýrra leiða varðandi starfsþjálfún. Áður en formleg vinna við það hófst innan skorar- innar vildi svo til haustið 2000 að Stefanía Júlíusdóttir, þáverandi forstöðumaður Bókasafns Landspítala - Háskólasjúkra- húss, lagði til að rætt yrði hvort hægt væri að koma á fót formlegu samstarfi milli bókasafns spítalans og bókasafns- og upp- lýsingafræðiskorar. Þeirri tillögu var tekið fegins hendi af hálfu skorarinnar og úr varð fyrsti formlegi samningurinn um samstarf milli tiltekins bókasafns annars vegar og bókasafns- og upplýsingafræði- skorar hins vegar. Samningurinn var undir- ritaður í desember 2000 og felur í sér sam- starf um nemendavinnu í ýmsu formi báð- um aðilum til hagsbóta. Hvorugur aðili innir af hendi peningalega greiðslu. I framhaldi af undirritun fyrsta sarnn- ingsins um samstarf var haft samband við forstöðumenn ýmissa bókasafna og enn- fremur voru haldnir kynningarfundir um málefni skorar og hugsanlegt samstarf fyr- ir bókasafns- og upplýsingafræðinga í ýmsum faghópum. Fyrsti kynningarfund- urinn var haldinn fyrir forstöðumenn al- menningsbókasafna í maí 2002, annar fyrir forstöðumenn í náttúrufræðihópi í apríl 2004 og sá þriðji fýrir samstarfshóp bóka- safnsfræðinga í framhaldsskólum í október 2004. 30. árg. - I. tbl. 2005 - bls. 30

x

Fregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.