Fregnir - 01.03.2005, Blaðsíða 28

Fregnir - 01.03.2005, Blaðsíða 28
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafræða ledge sem NORDINFO stóð að. NORD- INFO er ekki lengur til eins og menn vita. Þar sem þessi beiðni barst stjóminni ekki fyrr en á fundinum var ekki tekin afstaða til hennar en ráðstefnan verður að öllum líkindum haldin í Danmörku í ágúst 2006. Sjöunda millisafnalánaráðstefnan verð- ur í Danmörku um mánaðamótin sept.-okt. árið 2006. Fleiri ráðstefnuefni bar á góma en ákvarðanir bíða næsta fundar. Námsferðir Næsta námsferð NVBF verður farin til Bandaríkjanna og Kanada 30. maí - 10. júní 2005 og verða nýjar bókasafnsbygg- ingar í brennidepli. Einnig verður hægt að sækja ráðstefnu SLA (Special Library As- sociation), We're taking impact í Toronto 4.-9. júni. Fólk getur tekið þátt í námsferð- inni að hluta, þ.e. sleppt ráðstefnu SLA, eða farið eingöngu á hana. Greinargóðar upplýsingar em á vefsetri NVBF http:// dpb.dpu.dk/nvbf/. Fararstjóri verður Poul Erlandsen. Ahugasamir skrái sig sem fyrst. Námsferðir NVBF hafa fengið góða dóma þátttakenda eins og sjá má á vefsetri NVBF. NVBF mun skipuleggja ferðir nor- rænna bókasafnsfræðinga á IFLA-ráð- stefnuna í Seoul, Suður Kóem, 2006. Annað René Steffensen, annar dönsku fulltrúanna í stjóminni, kynnti tvo litla bæklinga sem Danmarks Forskningsbiblioteksforening og Bibliotekarforbundet hafa gefíð út. Það er annars vegar Idékatalog (nóv. 2004) sem inniheldur hugmyndir um markaðs- setningu rannsóknarbókasafna, eða „... hvordan forskningsbibliotekeme kan for- bedre deres profíl i forhold til beslutnings- tagere, bibliotekets bmgere, nuværende som kommende medarbejdere samt den bredere offentlighed.“ Flins vegar er Hand- lingsplan 2005-2007 (feb. 2005) sem fjallar um hvemig hrinda á hugmyndunum í Idékatalog í framkvæmd. Báðir bækling- amir em aðgengilegir í PDF-formi á vef- setri Upplýsingar. Næsti stjómarfundur NVBF verður haldinn í Osló 10. október 2005. Guðrún Pálsdóttir Heimsókn í Köbenhavns Tekniske Bibliotek Haustið 2003 fékk ég styrk frá NVBF til að heimsækja bókasöfn. Ég nýtti styrkinn til að heimsækja Köbenhavns Tekniske Bibliotek þann 24. maí 2004. Ég dvaldi þar einn dag og varð margs vísari og hvet ég sem flesta bókasafnsfræðinga sem tök hafa á að fara í svona heimsókn. Maður styrkist í því sem maður er að gera og lærir alltaf eitthvað nýtt. Kirsten Due forstöðumaður bókasafns- ins tók á móti mér og sýndi mér safnið og Ingeniörhöjskolen sem safnið er staðsett í. Hún fræddi mig jafnframt um samstarf bókasafna og bókavarða í Danmörku. I Ingeniörhöjskolen er boðið upp á nám í tæknifræði m.a. á bygginga-, rafmagns- og tölvusviði. Einnig er boðið upp á undir- búningsnám fyrir þá sem ekki hafa nægan gmnn til að hefja nám í tæknigreinunum. Bókasafnið er staðsett í miðju skólans, byggt eins og tum upp úr annars lágreistri byggingunni. Hönnunin er mjög glæsileg og safnið bjart og opið. Bókasafnið er á þremur hæðum. Lofthæðin fær að halda sér í miðju tumsins og önnur og þriðja hæð kom út eins og svalir fram í miðjuna. Á jarðhæðinni er afgreiðslan, handbækumar og nýjustu tímaritin. Þar em einnig sex hópvinnuherbergi mismunandi að stærð. Á annarri hæð em útlánsbækur og á þriðju hæðinni er m.a. eldri tímarit, þar er líka vinnuaðstaða starfsmanna. Ég var í heim- sókn á prófatíma og margir vom á safninu að læra og hópvinnuherbergin vel nýtt. Fyrir framan safnið er svo vísir að lítilli kaffístofu fyrir nemendur þar sem þeir geta gluggað í dagblöð og fýlgst með því sem er á döfínni í skólanum. Á safninu var auðvitað mest að fínna af efni sem tengist því námi sem fram fer í skólanum en þó var þar einnig að fínna nokkuð af fagurbókmenntum. Safnið er opið öllum eldri en 18 ára, ekki er skilyrði að vera nemandi eða starfsmaður skólans. Sex stöðugildi em á safninu. Hver starfs- maður ber ábyrgð á ákveðnu sviði, einn yf- ir útlánum, annar innkaupum o.s.frv. Fjórir starfsmenn sáu um safnkennslu og í for- svari fyrir safnkennslunni var Eva Bye Andersen og hún fræddi mig um hvemig 30. árg. - 1. tbl. 2005 - bls. 28

x

Fregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.