Fregnir - 01.03.2005, Blaðsíða 19

Fregnir - 01.03.2005, Blaðsíða 19
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða sem safnið fær reglulega og um 1450 raf- ræn tímarit sem fást án endurgjalds á Net- inu (skráin DOAJ sem margir kannast við). Halldóra Þorsteinsdóttir Landsbókasafni Islands - Háskólabókasafni Stefna menntamálaráðuneytis um upplýsingatækni Á UT2005, sem haldin var á Hótel Sögu 4. mars síðastliðinn, var kynnt rit mennta- málaráðuneytisins Arœði með ábyrgð. Stefna menntamálaráðuneytisins um upp- lýsingatœkni í menntun menningu og vísindum 2005-2008. Þar em mótuð stefnumið í menntun, menningu og vísind- um til ársins 2008. Leitast er við að líta á þessa málaflokka sem heild og tengja þá saman eftir því sem kostur er. Sett em fram stefnumið í fimm málefnaflokkum: aðgangi að upplýsingasamfélaginu, tækni og fjarskiptum, stafrænu efni, breyttum starfsháttum og siðferði á Netinu. Heimild: Vefsetur menntamálaráðuneytisins www. menntamalaraduneyti. is Efnisorðaráð Gegnis Efnisorðaráð var sett á stofn í janúar 2004 að fmmkvæði skráningarráðs og heyrir undir það. I efnisorðaráði eiga sæti Elísa- bet Halldórsdóttir, Guðný Ragnarsdóttir, Ragna Steinarsdóttir, ritstjóri efnisorða í Gegni, og Þórdís T. Þórarinsdóttir. Fyrstu verkefni ráðsins vom að skil- greina hlutverk þess, verkefni og verklag. Hlutverk ráðsins er m.a. að móta efnis- orðastefnu og var strax tekin sú ákvörðun að nota 3. útgáfu Kerfisbundins efnisorða- lykils (KE 3) eftir Þórdísi T. Þórarinsdóttur og Margréti Loftsdóttur við lyklun í bók- fræðigmnn Gegnis og vinna síðan að frekari þróun hans. Þar með var tekin sú ákvörðun að nota ekki efnisorðastrengi heldur miða gerð efnisorða við staðal um gerð kerfisbundinna efnisorðalykla ÍST 90 útg. 1991. Við sameiningu gamla Gegnis og Fengs í nýjan Gegni var ljóst að mikið ósamræmi væri milli þessara tveggja kerfi varðandi efnisorð og því vom efnisorð Fengs sett í sérstakt svið, 692, þannig að auðveldara yrði að vinna að samræmingu síðar. Efnis- orð Fengs em tekin úr KE 3 og stefnan er að öll íslensk efnisorð verði í því sviði eftir að samræmingu verður náð. Eftir sem áður er hægt að nota svið 693 fyrir ný efnisorð sem lyklarar vilja að tekin verði upp í lykilinn. Það verður því fast verkefni efn- isorðaráðs undir stjóm Rögnu Steinarsdótt- ur, ritstjóra efnisorða Gegnis, að meta þessar tillögur og annað hvort finna þeim réttan stað í stigveldi lykilsins eða koma með aðrar tillögur. I þessu sambandi hefur nrikið verið rætt um verklag við þróun lykilsins og hvaða búnað þurfí til þess. Ráðið hefur kynnt sér efnisorðaforritið MultiTes sem hefur verið notað í nokkmm söfnum hér á landi. Hægt er að kaupa vefútgáfu þannig að allir sem vinna við lyklun geti flett upp í Kerfis- bundna efnisorðalyklinum og séð jafnóð- um þær breytingar sem em gerðar. Hins vegar myndu einungis mjög fáir hafa að- gang til að skrá inn í MultiTes. Enn er nokkmm spumingum varðandi forritið ósvarað en allt stefnir í að efnisorðaráðið festi kaup á því. Haft hefur verið samband við aðila sem vinna að sérefnislyklum og er stefnt að því að skoða nánar hvað hægt er að nýta af þeirri vinnu og hvemig samvinnan skuli skipulögð. Efnisorðaráð mun halda námskeið þann 25,- 27. maí um lyklun og hefur fengið Lois Mai Chan prófessor við School of Library and Information Science, Uni- versity of Kentucky, sem er þekktur sér- fræðingur á sviði efnisgreiningar til að kenna á námskeiðinu. Er það von ráðsins að þetta verði til að auðvelda stefnumörk- un og auka þekkingu starfsfólks safnanna á lyklun. Stærstu verkefni varðandi lyklun nú er ekki þróun lykilsins heldur hreingemingar- starf í Gegni. Það er mjög áríðandi að leggja í töluverða vinnu til að hreinsa út tvöföld orð, eyða vikorðum, færa úr 690 það sem má vera í 692 o.s.frv. Verið er að vinna að því að koma nafnmyndaskrá kerfisins í gagnið og fyrir þann tíma þurfa a.m.k. öll orð í 692 að vera kórrétt. Vegna þessara verkefna hefur dregist að marka efnisorðastefnu til nokkumar hlítar og fara yfir tillögur um ný efnisorð í 693. Undirbúningur undir námskeið um lyklun 30. árg. - 1. tbl. 2005 - bls. 19

x

Fregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.