Fregnir - 01.03.2005, Blaðsíða 40
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
ekki gömlu stórveldi sem nærðist á fomri
frægð.
Sagan kom fyrst út árið 1907, tveimur
ámm eftir að löndin tvö skildu að skiptum.
A íslensku em til tvær þýðingar á sögunni,
báðar styttar en sú sem hefur að geyma
texta ársins kom út hjá Æskunni árið 1946.
Með því að velja þemað: „Á ferð í
Norðri" hvetjum við bókasöfn og aðra
þátttakendur til að beina sjónum sínum að
ferðalögum um Norðurlönd í sinni fjöl-
breyttustu mynd, bæði í tíma og rúmi.
Væntanlega verður enginn skortur á góð-
um hugmyndum fyrir vikuna og hinn ár-
vissi hugmyndalisti PR hópsins ætti að
vera til reiðu um miðjan maí.
Ef þú hefur áhuga á að skella þér með
okkur í þetta ferðalag viljum við biðja þig
að panta far með því að fýlla út þátttökutil-
kynningu á vef verkefnisins á slóðinni:
www.bibliotek.org eða með því að senda
verkefnisstjóranum póst eða símbréf á
heimilisfangið hér að neðan:
Við óskum öllum góðrar ferðar!
Hólmkell Hreinsson
Verkefnisstjóri: Leila Lukander
Pohjola-Norden, Sibeliusgatan 9 A
LIN-00250 Helsingfors
t-póstur: leila.lukander@pohiola-norden.fi
Lax: +358-9-454 20820
Nemendur í bókasafnstækni
útskrifaðir í fyrsta skipti
Þann 18. desember síðastliðinn voru 87
nemendur brautskráðir frá Borgarholts-
skóla. Þar á meðal voru 23 nemendur sem
stundað hafa dreifnám í bókasafnstækni á
upplýsinga- og Qölmiðlabraut síðastliðin
tvö ár. Námið í bókasafnstækni skipulagði
Upplýsing og Samtök forstöðumanna al-
menningsbókasafna í samvinnu við
menntamálaráðuneytið og Starfsgreinaráð
upplýsinga- og fjölmiðlagreina. Dreifnám-
ið var ætlað starfandi ófaglærðum bóka-
vörðum. Varðandi framkvæmd námsins
var gengið til samstarfs við Borgarholts-
skóla en Starfsmenntasjóður félagsmála-
ráðuneytis styrkti verkefnið m.a. um þrjár
m.kr. auk styrkja frá menntamálaráðuneyti
til skipulagningar námsins og námsefnis-
gerðar en styrkimir höfðu úrslitaáhrif um
uppbyggingu námsins. Reglulega hefur
verið sagt frá framvindu mála í Fregnum.
Fréttabréfi Upplýsingar.
Alls hófu 30 nemendur dreifnámið en
23 luku því. Þar af luku 12 nemendur
gmnn- og séráföngum í bókasafnstækni en
11 eiga eftir að ljúka hluta af almennum
greinum.
Nú sem stendur starfar vinnuhópur
þriggja bókasafnsfræðinga á vegum Prent-
tæknistofnunar (skv. samningi við mennta-
málaráðuneytið) að því að undirbúa mat á
starfsreynslu þeirra, sem lokið hafa gmnn-
og séráföngum, í samræmi við námskrá
menntamálaráðuneytisins um vinnustaða-
nám í bókasafnstækni en samkvæmt nám-
skránni er gert ráð fyrir eins árs starfsþjálf-
un. í vinnuhópum em þær Hulda Björk
Þorkelsdóttir, Pálína Magnúsdóttir og Þór-
dís T. Þórarinsdóttir.
Stjóm Upplýsingar óskar nýútskrifuð-
um nemum í bókasafnstækni til hamingju
með áfangann og þakkar öllum þeim sem
tóku þátt í að gera námið að vemleika fyrir
þeirra framlag. Sérstakar þakkir em færðar
áhugahópi um menntun ófaglærðs starfs-
fólks bókasafna, Borgarholtsskóla og höf-
undum námsefnis í bókasafnstækni.
Þórdís T. Þórarinsdóttir
vantar meðal annars Steinunni Óskarsdóttur
sem fékk verðlaun fyrir bestan námsárangur.
Myndina tók Bára Stefánsdóttir.
Eftirfarandi luku dreifnáminu:
Aðalbjörg Sigþórsdóttir
Bókasafni Hafnaríjarðar
Anna Kristín Guðmundsdóttir
Bókasafninu í Hveragerði
Anna Marta Valtýsdóttir
Bókasafni Reykjanesbæjar
30. árg. - 1. tbl. 2005 - bls. 40