Skólavarðan - 01.11.1990, Qupperneq 11
Skólanámskrár þær sem nú þegar hafa verið gefnar út eru
misjafnlega ítarlegar. Upplýsingar varðandi skólareglur,
félagslíf, skóladagatal, starfshætti og húsnæði skóla
o.fl. er í þeim flestum ásamt köflum um námsefni og
námstilhögun hvers árgangs fyrir sig.
Skólasafnsins er getið í þeim flestum en oftast er þá
einungis getið um staðsetningu þess, opnunartíma,
starfsfólk, útlán, bókaeign og fleiri upplýsingar af því
tagi.
Aðeins í einni skólanámskrá hef ég séð ítarlegan kafla um
skólasafnið. Þar er tilgreint hver merkmiðin með starfi á
skólasafni eru og sagt frá helstu viðgangsefnum hvers
árgangs fyrir sig.
Það er kannski ofur eðlilegt að svo lítið skuli vera
skrifað um skólasöfnin því í mörgum skólum standa söfnin
varla undir nafni. Enn hefur ekki verið mörkuð nein
heildarstefna um hvers konar starf skuli fara fram í
íslenskum skólasöfnum og hvaða viðfangsefni beri að
leggja áherslu á.
Þetta gerir skólasafnvörðum óneitanlega erfitt fyrir því
þeir eru að vinna hver í sínu horni. Meiri hluti
vinnutíma þeirra fer í að vinna störf s.s. flokkun,
skráningu, plöstun o.fl. sem með samvinnu og hagræðingu
þyrftu þeir ekki að eyða sínum takmarkaða tíma í og gætu
einbeitt sér að sjálfri safnfræðslunni.
Skólasafnamiðstöðvar í hverju fræðslumdæmi myndu létta af
þeim þessum störfum og skapa meira samræmi í frágangi
safnefnis í skólasöfnum landsins.
María Hrafnsdóttir
11