Alþýðublaðið - 11.05.1970, Side 1
Stórglæsileg
hátíðarsamkoma
Glæsileg hátíðarsamkoma A-
listans í Keykjavík var haldin
í gær í Súlnasal Hótel Sögu
fyrir troðfullu húsi og þurftu
fjölmargir gestir að standa sam-
komuna á enda vegna þrengsla
í húsinu. Þessi hátíð A-Iistans
í Reykjavík fyrir borgarstjóm-
arkosningamar, sem fram fara
31. maí næstk., ber þess vott,
að aldrei hefur ríkt meiri á-
hugi meðal flokksmanna og
stuðningsfólks Alþýðuflokksins
fyrir sigri flokksins í kosning-
um en nú. Frambjóðendur í
fjórum efstu sætum A-listans
fluttu ræður á samkomunni,
Björgvin Guðmundsson, við-
skiptafræðingur, scm skipar
efsta sæti listans, Árni Gunn-
arsson, fréttamaður, sem skipar
annað sæti listans, frp Elín
Guðjónsdóttir, húsmóðir, sem
skipar þriðja sæti listans, og
Ingvar Ásmundsson, skrifstofu-
stjóri, sem skipar fjórða sæti
Framh. á bls. 15
ufl .■■■:
o'U
ÉilliSPSílii
: ••% t ''%:
Ný berglegund finnst í Hekluhrauni nýja:
Saga Heklu lengri
en álitið er?
O f hrauninu nýja við nyrztu
gígana á Heklusvæðinu fundu
visindaménn á sunnudag berg-
tegund, sem ekki ihefur áður
fundizt á því svæði, en fundur
þessi gæti gefið vísbendingu um,
að saga Heklu væri lengri og
flóknari en vísindamenn hafa
til þessa álitið.
Blaðamenn Aiiþýðublaðsins
fylgdust með rannsóknum vís-
indamanna við Heklu um helg-
ina, og spurðu þá Guðmund Sig
valdason, jarðefnafræðing, um
bergtegundina.
— Þessi bergbegund heitir
iignimbrít, sagði Guðmundur, —
og 'er súr gosaska sem hefur
fallið mjög íheit og bráðnað sam
an í fast berg. Hefur hún fund-
izt víða í blágrýtismyindunum á
Austfjörðum og Vesífjörðum og
einu sinni á sunnanverðri gos-
sprungunni sem liggur um land
ið frá Tindfjallajökli, en aldrei
á Heklusvæðinu. Við fundum
hnullunga á dreif um nýja
hraunið hér við nyrztu gígana,
Framh. á bls. 15
Pjönkurnar
urðu eftir
í London
□ Á Hekhislóðum var á
laugardaginn mættur þekktur
franskur eldf j allafræðingur,
Haa-oun Tazieff að nafni. Hanin
kom hingað er Surtsey byrjaði
að gjósa, og hami var ekki lengi
að tákia saman pjönkur sínar,
er hann frétti um Heklugosið.
En pjönkumar urðu fyrir ein-
hver mistök eftir í London og
hann kom því hingað allslaius
að kalla, en Heklufarar lánuðu
honum gamla úlpu, peysu og
stígvél. Tazieff var samt hiinn
ánægðasti og kvaðst myndu
dvélja hér nokkra daga, ef gos-
ið byrjaði aftur, annars sagðist
bann fara heim á morgun. Ef
gosið heldur áfram kvaðst hann
koma hinigað aftur í ágúst ásamt
nökkrum frönskum vísinda-
mönnum. Þegar Hekla gaus
1947 var Tazieff við eldfj alla-
rannsóknir í Kongó, og gat
því ekki komið hingað. 1 gser. I