Alþýðublaðið - 15.10.1970, Síða 12
15. dktóber
RUST-BAN, RYÐVCxN
RYÐVARNARSTÖÐIN H.F.
Ármúla 20 — Sími 81630.
SAMSTARF
SAFIRDI
Annat framsóknarfulItrúinn
gengur á gerða samninga
Framsóknarmenn hafa rof-
ið meirihlutasamstarf vinstri
flokkanna í bæjarstjóm ísa-
fjarðar. Á bæjarstjómar-
fundi, sem lialdinn var í gær
kvöldi, greiddi annar bæjar-
fulltrúi 'Framsóknarflokksins
í annað sinn atkvæði gegn
samkomulagi, sem meirihluta
flokkarnir höfðu gert með
sér.
Á dagskrá fundarins i gær
var ráðning’ skrifstofustjóra
bæjarins. Samkomul'ag hafði
Verið gart um það milli rrteiri
hluta flokkanna, — Alþýðu-
flokks, Alþýðubandalags og
Framsóknar —, að greiða at-
kvæði með ráðningu. Guð-
mundar Rúnars Óskarssonar
til starfans. Fundur hafði ver-
ið haldinn í fiXlltrúaráði og
stjórn flokksfélags Framsókn-
ar um þetta mál og þar 3am-
þykkt einróma að bæjarfull-
trúar -flokksins styddu ráðn-
ingu Guðmundar til starfans
eins og flokkurinn hafði gert
samkomulag um '\4ð sam-
starfsflokka sína. Var áður
samþykkt, að ef ágreiningur
kynni að koma upp milli
hinna tveggja bæj arfulltrúa.
Fr'amsóknar, þá skyldu þeir
hlíta úrskurði fulltrúaráðsins
og stjórnar Framsóknarfélags-
ins.
Annar bæj arfulltrúi Fram-
sóknar á ísafirði er ungur
maður, Barði Ólafsson, fyrr-
Verandi félagi í Fylki, félagi
ungra sj álfstæðismanna á
ísafirði. Er hann enn undir
mjög sterkum áhrifum firá sin-
um fyrri pólitisku félögum
og var einn af örfáum Fram-
: sóknarmönnum á ísafirði,
sem eftir síðustu kosningar
börðust af alefli fyrir því, að
Framsóknarflokkurinn mynd-
aði meirihluta með íhaldinu.
Lenti hann í miklurn minni-
hluta í flokknum með þær
skoðanir.
Síðar hefur komið í ljós, að
þessi framsóknarfulltrúi er
gersamlega óhæfur til sam-
starfs og gerir sér enga grein
fyrir því hvað metrihlutasam-
starf er, hvaða skyldur fylgja
slíku samstarfi og hvaða á-
byrgð. iStrax eftir myndun
vinstri meirihluta á ísafirði
kom þetta í ljós þar eð að-
eins nokkrum dögum eftir
myndun samstarfsins- rauf
hann samkomulag, ssm geid
hafði verið um kosningar í
nefndir og greiddi atkvæði
með frambjóðanda ihaMs-
manna í formennsku rafveitu-
stjómar. Gerði hann þetta í
andstöðu við mikinn meiri-
hluta sinna eigin flokks-
manna.
Alþýðu Elökksmen n og AJ-
þýðubandalagsmenn höfðu
spurnir aí því fyrjr bæjarstjórn
arfundinn í fyrradág, að þessi
sami-maður Kefði áformað að
rjúfa samkomlag meirihluta-
flokkanna. Skrifuðu þeir þá
Framsóknarmönnum bréf þar
sem því var lýst ýtfir, að þeir
teldu ekki unnt að vinna með
bæjarfu'lltrúum Framsóknar
nema treysta mætti þeim til að
ha:lda gerða samninga. Var þá
umvædd samjþykkt gerð í full-
trúaráði og flokksfélagsstjórn
Framsóknarmanna, sem þessi
annar ‘bæjarfulltrúi þeirra
hafði- að erigu á bæjarstjórnar-
fundinum. Á bæjarstjórnar-
fundinum greiddi þannig þessi
bæjarfulltrúi Framsóknar at-
kvæði gegn samkomufagi meiri
hlutans um ráðningu skrifstofu
stjóra, — gegn hinum bæjar-
fulltrúa Framsóknar, sem var
einn af flutningsmönnum um
tillögurnar og með tillögu í-
haldsmanna í minnihlutanum
um róðningu til starfans.
. Rauf þessi framsóknarmað-
-ur þar m'eð samstarf vinstri
flokkanna í bæjarstjórn ísa-
fjarðar, sem staðið hefur í
mörg ár og jafnan reynzt vel.
Alþýðublaðið hafði í morg-
un tal af Björgvin Sighvaís-
syni, forseta bæjai-stjórnar á
ísafirði og öðrum bæjarfull-
trúa Atþýðuflokksins.
— jÉg hef litlu við þetta að
bæta, sagði Björgvin. — Skoð
un okkar Alþýðuflokksmanna
er sú, að áframJhaldandi sam-
starf við Framsóknarflokkinn
undijr þessi’m kringumstæðum
komi ekki til greina. Þessi bæj
arfulltrúi þeirra hefur frá upp-
hafi: verið igersamlega ósam-
starfshæfur, þverbrýtur alla
gerða samninga og er gersam-
lega skilningslaus á það hvað
m'eirihlutasamstarf er og
hvaða skyldur því ifylgja. Hann
tekur hvorilíi ti/Úit til gerðra
samninga né heldur einróma
samþykktar síns eigin flokks
og með Slíkum mönnum er
ekki ihægt að v.inna, Ég vil þó
að endingu aðeins talía það
fram að afistaða hans er ger-
samlega í andstöðu við vilja
'mikils meginþorra framsóknar •
manna á ísafirði, sem hljóta þó
að verða að teljas t bera ábyrgð
á' framferði síns eigin bæjar-
fulltrúa í samstarfi við aðra
flökka. —
Spurt um
ðtvinnumál
[]~| Meðal þeirra mála, sem á
dagskrá firu á fundi borgarstjórn
ar í dag, eru tvær fyrirspurnir
frá borgarfulltrúa Alþýðuflokks
ins um atvinnumál skólafólks í
Reykjaank á s. 1. stimri. Fvrir-
spurnirnar eru á þessa leið:
1. Hve margir skólanemar
fengu atvinnu hjá borginni s. 1,
sumar?
2. Hve lengi höfðu nemendur
þessir atvinnu hjá bórginni?
(Samanburður við s. I. ár æski-
legur). —•
Ráðuneytið sendir
dómarafulltrúum bréf:
eftir landshlutum
□ >.Það er hart, að í þessu eft-
irvrinnuþjóðifélagi skuli vera ein
stétt, sem bannað er að vinna
aukavinnu. Og ég fel að laun
dómarafulltrúa séu þannig, að
þeir neyðist til þess að vinna
aukavinnu“.
Þetta voru orð dómarafulltrúa
á Akureyri, er við ræddum við
lvann í gær í tilefni þess, að
dómsmólaráðuneytið hefur sent
dómarafulltrúum við sýslu-
mannsembættið á Akureyri bréf
þess efnis að ráðuneytið sjái sér
ekki annað færi en banna þeim .
að flytja mál við eígið embætti.
Á sama tíma hefur raðuneytið
sent dómarafuliltrúum í Rey.kja-
vík annað bréf' — og öllu mild-
ara — því eftir þeim upplýsing-
um, sfim blaðið hefur aílað sér,
telja dómarafulltrúar að bréfið
verði ekki skrlið á annan veg,
fin íþeim sé ekki bannað að
stunda almenn lögfræðistörf ut
an vinnutíma síns. Ráðuneytið
vekur í bréfinu afhygli fulltrú-
anna á því, að í auglýsingum um
opnun lögfræðiskriÆstofa sé ekki
nákvæmlega tilgreint: hvenær
skrifstofumar séu opnar, en það
kunni að geta valdið misskiln-
ingi.
Af þessu virðist mega draga
þá á'lyktun, að ráðuneytið mis-
muni dómarafuliltrúum fiftir
landshlutum, og telja fulltrúar
nyrðra bréf ráðuríeytisins gfita
valdið talsverðri . kjaraskerð-
ingu, en sumir þeirra hafa um
órabil stund:að málflutningsstörf
í hjáverkum, og þá „ekki af
vinnugil'eði einni samari, heldur
einnig' til að geta lifað mann-
sæmaridi lí{i“, eins og komizt
var að orði. —
Nyir fræðslu
þættir í
útvarpi
sjá bls. 3
Flokksþing sett
Gunnar
Gylfi
Guðmundur
Setningarfundur 33. flokksþings Alþýðufiokksins verff-
ur í Átthagasal Hótel Sögu, föstudagskvöldiff 16. októ-
ber n.k. kl. 8,30. — Á dagskrá fundarins verffur upp.
lestur, Gunnar Eyjólfsson, leikari; Guffmundur Jónsson,
óperusöngvari, syngur og Gylfi Þ. Gíslason, formaffur
Alþýffuflokksins, flytur setningarræffu____Allt Alþýffu.
flokksfólk er velkomiff á setningarfundinn meffan hús.
rúm léyfir. gj