Helgarpósturinn - 28.11.1994, Page 8
8
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1994
smaa
letrið
Ólafur
Jóhann
náðaður
Nú rignir góðu dómunum yfir hann
Óiaf Jóhann Ólafsson, forstjórann
sem framdi þá höfuðsynd, að mati
íslensku intellígensunnar, fyrir fáum
árum að skrifa vonda bók. Dóms-
niðurstöður voru þær að atvinnu-
laus maður eða illa launaður mætti
skrifa eins vonda bók og hann hefði
getu til en forstjórar mættu það
ekki. Og á milli línanna mátti lesa að
forstjórar ættu yfirhöfuð ekki að
vera skrifa bækur í frítíma sínum. En
nú er Ólafur Jóhann náðaður í
hverjum ritdóminum á fætur öðrum.
Þegar Ólafur gaf út sína fyrstu og
aðra bók var synd hans sú að skrifa
bækur sínar í flugvélum. Hann sat
ekki og drakk eins og aðrir íslend-
ingar gera á milli landa og hann fór
heldur ekki yfir skýrslur eins og út-
lendra forstjóra er víst siður. Hann
skrifaði og virtist halda að slík skrif
ættu erindi á bók eins og skrif fólks
sem hefur samviskusamlega skrif-
að fimm tíma á dag og gætt þess að
gera ekkert annað á meðan og
helst af öllu að hugsa um ekkert
annað þess á milli. Það að Ólafur
skyldi skrifa og fá útgefið var ögrun
við aðalkenningu intelígensunnar,
að listin væri fullt starf en ekki tóm-
stundardútl.
Margar aðrar stéttir hafa farið í
gegnum það sama. Kennarar fengu
löggildingu starfsheitis síns og
sendu leiðbeinendur, sem höfðu
kennt alla sína hunds- og kattartíð,
á námskeið. Sömu sögu er að segja
af bókasafnsfræðingum, fóstrum og
nú síðast bilasölum. Allar stéttir í leit
að bættum kjörum hafa brugðið á
það ráð að loka stéttunum fyrir ut-
anaðkomandi og auka sjálfsvitund
sína með því að þrástagast á að
hver sem er geti nú ekki innt þessi
störf af hendi.
Listamenn eiga hins vegar ekki auð-
velt með þetta. Fólk verður að fá að
tjá sig ef það kærir sig um. Það er
ekki hægt að krefja höfunda um
bókmenntafræðikúrs eða lágmarks
viðurkenningu samfélagsins í gegn-
um styrki. Þess vegna bregst lista-
heimurinn við þeim sem standa á
skjön við stéttarhagsmunina með
því að hafna þeim. Það var gert við
Ólaf Jóhann.
En hvers vegna er hann tekinn í sátt
nú? Ef til vill vegna þess að hann er
búinn að skrifa tvær bækur og er
þar af leiðandi fullgildur meðlimur í
Rithöfundafélaginu. Ef til vill vegna
þess að intelígensíunni er Ijóst að
það skiptir engu hversu heiftarlega
hún hafnar Ólafi Jóhanni, almenn-
ingur mun alltaf kauþa hann og
lesa. Ef til vill vegna þess að Ólafur
Jóhann hefur fengið bækur sínar
gefnar út í stærri upplögum en aðr-
ir núskrifandi Islendingar og fengið
um þær betri dóma. ■
Séra Hjálmar Jónsson, sóknarprestur á Sauðárkróki, sigraði Vilhjálm Egilsson
með yfirburðum í próíkjöri Sjálfstæðisflokksins á Norðurlandi vestra um helgina
Ekki pláss fýrír spámenn
í Sjátfstæðisflokknum
Á laugardaginn fór fram prófkjör
Sjálfstæðisflokksins á Norðurlandi
vestra. Hjálmar Jónsson, sóknar-
prestur á Sauðárkróki og varaþing-
maður flokksins, vann öruggan sig-
ur á Vilhjálmi Egilssyni, þing-
manni og framkvæmdastjóra Versl-
unarráðs. Hann mun því taka sæti
Pálma Jónssonar á Alþingi eftir
næstu kosningar, en Pálmi ætlar að
hætta þingmennsku að þessu kjör-
tímabili loknu.
„Fólkið verður að svara því, ég get
það ekki,“ sagði Hjálmar, aðspurður
um ástæðuna fyrir stórsigri sínum á
Vilhjálmi. „í prófkjöri er tekist á um
persónur ekki síður en málefni og
það er greinilegt að ég hef átt hljóm-
grunn meðal kjósenda.“ Það hefur
verið haft á orði, að Vilhjálmur hafí
liðið nokkuð fyrir afstöðu sína til
Evrópubandalagsmála í prófkjör-
inu, en Hjálmar vill ekki gera of
mikið úr því. „Það er bara eitt af
Hjálmar Jónsson Lætur af
prestsstörfum í haust til að geta
sinnt þingstörfunum af fullri al-
vöru.
Vilhjálmur Egilsson Segist bara
vona að Hjálmar sé jafn rosalega
góður og kjósendur virðist telja
hann vera.
mörgum málum. Ég gerði mér far
um það að kynnast fólkinu í kjör-
dæminu, fór vitt og breitt um kjör-
dæmið og reyndi að nýta mér alla þá
jákvæðu þætti sem prófkjör hefur.
Ég reyndi að setja mig inn í málefn-
in, hlusta á fólk og komast að því
hvar skórinn kreppir. Við búum hér
á mesta láglaunasvæði landsins sam-
kvæmt úttekt á skattskýrslum lands-
manna. Ég hef verið að velta því fyr-
ir mér hvers vegna svo sé, og án þess
að boða einhverjar töfralausnir þá er
ég óánægður með þá stöðu mála.
Hér er ákaflega gott að búa og ég vil
leita ástæðunnar fyrir þessu og
bregðast við með einhverjum hætti.
Ég held að þingmenn sem aðrir
megi ekki unna sér hvíldar meðan
við erum á þessum botni. Efnahagur
fólks skiptir máli hvað varðar aðra
velferð þess, fólk sem á í basli í pen-
ingamálum á oft í basli í tilfinninga-
málum líka, eins og ég hef komist að
í starfi mínu sem prestur.
Hvað utanríkismálin varðar, þá
greinir okkur Vilhjálm auðvitað á
um þau. Ég er afskaplega ánægður
með hvernig flokksforystan hefur
haldið á því máli og vil ekki skapa
mér sérstöðu innan Sjálfstæðis-
flokksins með því að vera gagngert á
m b 1 1 ;
j li-i « i[t ,1 1 1 | ii J 'f jwseani
Kvennafangelsið í Kópavogi.
Ung móðir situr þar af sér dóm
og hefur nokkurra mánaða
gamalt barn sitt hjá sér.
Haraldur Johannessen
fangelsismálastjóri.
„Það er gert ráð fyrir því í fang-
elsismálalögum að þessi staða
geti komið upp,“ segir hann um
það þegar kvenfangar hafa
kornabörn hjá sér.
í Kvennafangelsinu í Kópavogi eru ekki aðeins sakamenn. Einn fanganna hefur barn sitt hjá sér.
Komabam sltur með
móður sinni í fangelsi
Ungur kvenfangi afplánar dóm í slíka beiðni þarf einnig samþykki Haraldur.
Kvennafangelsinu í Kópavogi með
nokkurra mánaða gamalt barn sitt
hjá sér. Barnið hefur verið hjá
henni frá því það fæddist i surnar.
Fangelsisvist móðurinnar lýkur
um jólin en hún hefur setið inni í
langan tíma.
Haraldur Johannessen fang-
elsismálastjóri segir það vera af
heilsufarsástæðum sem fallist er á
að aðskilja ekki móður og korna-
barn fyrstu mánuði eftir fæðingu.
Til þess að fangelsisyfirvöld fallist á
lækna, barnaverndarnefnda og
fleiri aðila.
Fangelsislæknir og hjúkrunar-
fræðingur fylgjast vel með líðan
barnsins og móðirin fer í eðlilega
mæðraskoðun.
„Ákvæði í fangelsislöggjöfinni
heimila kvenföngum að hafa
kornabörn sín hjá sér í fangelsi.
Þar segir að eigi kona ungbarn við
upphaf afþlánunar eða fæði barn í
afplánun þá má heimila henni að
hafa það hjá sér í fangelsinu," segir
„Það er erfiðleikum bundið fyrir
fangelsiskerfið að standa frammi
fyrir þessum vanda, þar sem leysa
þarf mörg praktísk vandamál. En
þegar ákvörðun er tekin, er vegið
og metið hvaða hagsmunir eru í
húfi. Yfirleitt vegur það þyngst að
hafa móður og barn saman. En um
leið og barnið er orðið nokkurra
mánaða gamalt þá horfir málið
öðruvísi við,“ segir Haraldur.
Þetta mun vera annað tilfellið á
Ijórum árum sem fangi óskar þess
að hafa kornabarn sitt hjá sér í
fangelsi.
Fyrir fjórum árum var kona ný-
búin að eignast barnið þegar henni
var gert skylt að afplána dóm sinn.
Barnið hafði hún hjá sér í um tvo
mánuði.
Fyrir tíu árum eignaðist kona
barn í afplánun og var vistuð í
framhaldi af því á Bitru. Og á með-
an Múrinn var og hét var aigengt
að konur ættu börn og hefðu þau
hjá sér í fangelsinu.
-GK/HM
móti stefhu flokksins í veigamiklum
málum. Sjálfstæðisfólk á yfirleitt allt
þátt í að móta stefnu flokksins og
það er í rauninni ekki pláss fyrir spá-
menn í þessu, því að forystumenn-
irnir í stjórnmálunum eru í rauninni
að leiða mikið starf, sem byggir á
hugsjónum og skoðunum og vilja til
þess að móta lífið í ákveðinn farveg."
Á Alþingi situr nú einn prestur,
séra Gunnlaugur Stefánsson, og
gegnir hann jafnframt prestsstarfi.
Hjálmar ætlar hins vegar eingöngu
að helga sig þingstörfúnum þegar
þar að kemur. „Ég hef gengið ffá því
við biskup og kynnt það hér í presta-
kallinu að ég muni ekki reyna að
sinna hvoru tveggja, heldur muni ég
óska eftir leyfi á næsta kjörtímabili
til að sinna þingstörfunum. Það er
fullt starf að vera þingmaður og ég
vil reyna að sinna því sem slíku,“
sagði Hjálmar að lokum.
Ekkiífýlu
„Ég er ekki í neinni fylu, en hefði
að sjálfsögðu verið ánægðari ef ég
hefði náð fyrsta sætinu," sagði Vil-
hjálmur í samtali við MORGUNP-
ÓSTINN. „Þetta var hvorki sigur né
ósigur fyrir mig, ég náði ekki því
sem ég ætlaði mér en tapaði heldur
engu.“ Þeir eru þó til sem eru ósam-
mála þessari fullyrðingu Vilhjálms
og telja hann, sem sitjandi þing-
mann flokksins í raun hafa beðið
ósigur í prófkjörinu. „Það hlýtur að
fara eftir því, hvað verið er að keppa
við sterkan mann. Við skulum bara
vona að sá sem lenti í fyrsta sætinu
hérna sé svona rosalega góður. Mað-
ur verður að trúa því, það er niður-
staða þessa prófkjörs.“ Vilhjálmur
sagði afstöðu sína til Evrópubanda-
lagsins vissulega hafa verið honum
fjötur um fót í prófkjörsbaráttunni.
„Það hefur verið notað mjög gegn
mér, en það er auðvitað ekki eina
málið. Ég er vanur því að hafa skoð-
anir á hlutunum og er venjulega
nokkuð umdeildur í sambandi við
hin ýmsu málefni. Það er nú bara
þannig sem ég er.“ Vilhjálmur
kvaðst ekki telja að hann hafi sinnt
kjördæmi sínu of lítið á kjörtímabil-
inu.
„Þingmenn eru náttúrlega kosnir
bæði til að sinna sínu kjördæmi og
eins til að stjórna landinu. Ég held
að ég hafi skilað mínu sem þing-
maður og vel það, en það er annarra
að meta það líka. Út á það ganga nú
kosningar.“
Vilhjálmur segist ætla að taka
annað sætið á framboðslistanum.
„En ég vil að sjálfsögðu ekki vera að
íþyngja fólki með nærveru minni ef
það telur að listinn verði sterkari án
ntín,“ sagði Vilhjálmur. -aeöj
Bætifláki
Yfirlœtisfullur klámhundur í gervi fréttamanns
Oddur Ólafsson aðstoðarrit-
stjóri Tírmws sendi Loga Berg-
manni Eiðssyni fréttamanni hjá
Ríkissjónvarpinu heldur kaldar
kveðjur í grein á fimmtudag þar
sem hann gagnrýnir tvískinnung í
garð klámefnis hjá sjónvarpinu.
Oddi er sérstaklega heitt í hamsi út
af matreiðslu Loga á „bláurn" hlið-
um hins viðamikla Internets í
fréttaskýringaþættinum Kastljósi á
dögunum, eins og glöggt má sjá af
þessum orðum hans:
„Yfirlætisfullur klámhundur
kom nýlega fram í gervi frétta-
manns, fullur upp af því að hafa
komist á snoðir um að í einhverj-
um útnárum alþjóðlegs upplýs-
inganets, sent „háskólatölvan“,
hefur aðgang að, sé hægt að ná
fram ástarlífslýsingum í hreyfi-
mynd.
Ríkisrekna upplýsingamiðlunin
gerði heila dagskrá um fyrirbærið
og tvísýndi lostarlega kvenkroppa
og barnaldám, sem einhverjir öf-
uguggar kváðu hafa smekk fyrir.
Svo talaði lúðinn við háskóla-
konur, sem voru miður sín yfir því
að Háskólinn væri áskrifandi að
ósómanum og skilja ekkert í því að
tölvuskömmin hegði sér svona.
Nú situr Háskólinn uppi með
óorðið en Ríkissjónvarpið með
vandlætinguna.“
Logi Bergmann Eiðsson
Ég veit ekki á hverju maðurinn
er. Tilgangurinn með þessari
sýningu var að vekja athygli og
konia af stað umræðu um þessi
mál, eins og hefur líka tekist.
Það sent við sýndum var til-
tölulega saklaust nmiðað við
hvað annað var þarna að finna
eins og til dæmis harðsoðið
barna- og dýraklám. Ég var
síður en svo að velta mér upp
úr kláminu. Og ég held að ég
verði að vísa því á bug að ég sé
klámhundur, hvað þá yfirlæt-
isfullur klámhundur. Ég
treysti mér hins vegar ekki til
að leggja dóm á hvað landbún-
aðarblaðið meinar með orðinu
lúði, það er margt sem ég skil
ekki á þessu heimili. “
Niðurföll stífluðust
í Reykjavík
Vatn flæddi
inn í íbúð og
prentsmiðju
Mikil úrkoma fylgdi vonsku-
veðrinu, sem reið yfir höfuðborgar-
svæðið um helgina. Slökkviliðið var
kallað á tvo staði með dælubifreið
sína vegna stíflaðra niðurfalla. Vatn
komst í kjallara við Síðumúla þar
sem prentsmiðjan Steindórsprent
er til húsa en allur pappír var á
brettum þannig að skemmdir urðu
óverulegar. Hitt útkallið var í hús
við Drápuhlíð en þar hafði stíflast
niðurfall á svölum og vatn var farið
að flæða yfir þröskuld út á svalirnar
og inn í íbúðina. Engar teljanlegar
skemmdir urðu á húsinu. ■
Reykjavík
Brotist var inn í bíl við fjöl-
brautaskólann í Breiðholti á
föstudag og stolið úr honum
63.000 krónurn í peningum. I
fyrrakvöld var síðan farið inn í
bíl við Sundlaugarnar í Laugar-
dal og andvirði 70.000 króna í
enskum pundum tekið ófrjálsri
hendi.
Lögreglan í Reykjavík vill
brýna fýrir bifreiðaeigendum að
skilja ekkert sýnilegt eftir í bílum
sínum sem freistað gæti inn-
brotsþjófa. ■