Helgarpósturinn - 28.11.1994, Síða 11
'1-
MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1994
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
11
Halldór Ásgrímsson
og Jóhanna Sigurðardóttir
ætla að kynna sér baráttu
Sævars Marinós Ciesielskis
fyrir því að verða hreinsaður
af dómi vegna Geirfinns-
og Guðmundarmálanna.
Vilja gefa honum tækifæri
til að ávarpa flokksmenn sína
Jóhanna
og Halldór sýna
baráttu Sævars
Ciesielskis áhuga
Ólafur Ragnar Grímsson um stofnfund Þjóðvaka
I gær stóð til að Sævar Marinó
Ciesielski ávarpaði flokksþing
Framsóknarflokksins, sem haldið
var á Hótel Sögu um helgina. Hafði
hann fengið vilyrði af hálfu flokks-
ins um að fá að kynna baráttu sína
fyrir því að fá æru sína hreinsaða
vegna Geirfinns- og Guðmundar-
málanna. Af óviðráðanlegum or-
sökum gat ekki orðið af þessu. Sæv-
ar ræddi hins vegar stuttlega við
Halldór Ásgrímsson, formann
Framsóknarflokksins, í gær.
„Ég fékk mjög jákvæðar undir-
tektir hjá Halldóri," segir Sævar.
„Hann vill ræða þetta mál við mig
fljótlega. Ég talaði einnig við flesta
þingmenn flokksins um helgina og
þetta fólk hvatti mig til að halda
áfram minni baráttu. Það sem kom
mér mest á óvart var að fá að vita að
þetta mál hefur verið rætt sérstak-
lega í miðstjórn Framsóknarflokks-
ins. Ég veit því að það er mikill vilji
innan flokksins að skoða rann-
sóknina og dóminn yfir okkur upp
á nýtt, enda var þetta mál notað
gegn flokknum á sínum tíma og
hann bendlaður við ákveðna þætti
þess.“
Sævar segir að hann hafi ætlað að
ræða um erfiðleika einstaklingsins
við það að ná fram rétti sínum í
samfélaginu við Framsóknarmenn.
„Mér finnst alvarlegast hvað það
Jóhanna Sigurðardóttir hefur
gefið Sævari vilyrði um að hann
fái að kynna mál sitt á vettvangi
Þjóðvaka. „Það er mér mikill léttir
að stjórnmálaforingjarnir vilji
hlusta á mig eftir alla þá baráttu
sem ég hef staðið í til að fá æru
mína hreinsaða," segir Sævar.
mig og enn hef ég ekki fengið kröf-
ur mínar uppfylltar. Svo virðist sem
einstaklingurinn komi engu fram
nema hafa þrýstihópa á bak við sig
og borga lögfræðingum háar fjár-
Halldór Asgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, ræddi
stuttlega við Sævar í gær og í
hyggju er að þeir hittist fljótlega
til að ræða málin betur. „Ég fékk
mjög jákvæðar undirtektir hjá
Halldóri," segir Sævar.
tekur langan tíma fyrir fólk þegar
það vill fá yfirvöld til að skoða
hvort brotið hafí verið á rétti þess.
Það hefur tekið mig næstum tutt-
ugu ár að fá einhvern til að hlusta á
„Fólk sem hefúr flosnað
upp úr sljómmálum“
„Það sem mér fannst athyglisvert
við þennan fund var að í ræðu
Jóhönnu Sigurðardóttur var hvergi
að finna neinn boðskap um sam-
fylkingu félagshyggjufólks og jafn-
aðarsinna. Það fannst mér sanna að
það hefur skort raunverulegan
áhuga og heilindi af hennar hálfu.
Það væri nú gaman að vera fluga
á vegg þegar þeir menn sem maður
sá á fundinum fara að mynda stefn-
una, til dæmis Páll Halldórsson
og Ágúst Einarsson eða Bjarni
Guðnason.
Mér fannst þetta satt að segja
vera ærið mikið fólk sem með ein-
hverjum hætti hefur flosnað upp af
starfsvettvangi stjórnmálanna. Ég
er ekki að segja það í neikvæðum
tón en mér sýndist það vera
þannig. Ég varð fýrir vonbrigð-
um með að það kom ekkert fram
af nýjum hugmyndum sem hægt
væri að segja að sættu tíðindum."
Óttast þú ekki framboð Jó-
hönnu?
„Nei, ég geri það ekki. En mér
finnst miður að hennar framboð
virðist hafa orðið til þess að
sundra mjög vinstri kantinum í Ólafur Ragnar Grímsson „Það væri
íslenskri pólitík og gefa Sjálfstæð- nú gaman að vera fluga á vegg þegar
isflokknum hér oddastöðu sem Páli Halldórsson, Ágúst Einarsson og
hann ekki hafði áður.“ Bjarni Guðnason fara að mynda
pj stefnuna."
hæðir. Ég hef aldrei leitað til stjórn-
málamanna áður eða kvabbað í
háttsettum mönnum þótt ég hafi
haft ástæðu til þess.
Og þótt ég sé að kynna mál mitt
fyrir leiðtogum stjórnmálaflokk-
anna er ég ekki að fara fram á sér-
staka fyrirgreiðslu frá þeim heldur
er ég að vonast til þess að vekja at-
hygli á málinu. Baráttuna fyrir því
að fá málið endurupptekið fyrir
Hæstarétti ætla ég að vinna sjálfur.
Greinargerðin sem ég skilaði í síð-
ustu viku er skotheld að mínu mati
þannig að ég er bjartsýnn á að það
takist.“
Fleiri áhrifamiklir stjórnmála-
menn hafa sýnt baráttu Sævars
áhuga því hann hefur rætt við Jó-
hönnu Sigurðardóttur. „Hún ætl-
ar að gefa mér tækifæri til að kynna
mín sjónarmið á vettvangi hinnar
nýju stjórnmálahreyfmgar, Þjóð-
vaka.“
Sævar ætlar ekki að láta þar stað-
ar numið því hann hyggst reyna að
fá viðtal við Davíð Oddsson, Jón
Baldvin og fleiri stjórnmálaleið-
toga.
„Það er mér mikill léttir að
stjórnmálaforingjarnir vilji hlusta á
mig eftir alia þá baráttu sem ég hef
staðið í til að fá æru mína hreins-
aða.“
-SG
Kæra Lindu
komin til
saksóknara
Kæra Lindu Pétursdóttur á
hendur lögreglumönnum þeim,
sem hún segir hafa beitt sig harð-
ræði fyrir tveimur vikum, er nú
komin í hendur ríkissaksóknara.
Rannsóknarlögreglan hefur því
lokið rannsókn sinni á þessum
hluta Lindumálsins svokallaða,
en rannsókn stendur enn yfir
vegna kæru lögreglumannanna á
hendur Lindu. „Eg fagna því að
rannsókninni er lokið,“ sagði
Gísli Gíslason, lögmaður Lindu,
í samtali við blaðið. Gísli kvaðst
ekkert vita enn um niðurstöður
rannsóknarlögreglunnar. „Mað-
ur verður bara að bíða og sjá
hvað setur. En ég er feginn að
þetta er komið til ríkissaksóknara
og ég veit að málið fær faglega
meðferð þar.“ ■
I návíqi
Jón Baldvin Hannibalsson
formaður Alþýðuflokksins
Eiga óánœgju
og skipbrot í öðrum
flokkum sameiginlegt
I gær kynnti Jóhanna Sigurðar-
dóttir framboð stjórnmálahreyfing-
ar sinnar, Þjóðvakans, við alþingis-
kosningarnar í apríl. Fylgi hennar
mælist miklu meira í skoðanakönn-
unum en fylgi Alþýðuflokksins sem
er í sögulegu lágmarki. Jón Baldvin
Hannibalsson þarf því að leiða flokk
sinn í kosningabaráttunni við þær
aðstæður að hann er rúinn trausti
kjósenda.
Hvernig skýrir þú hrikalega
stöðu Alþýðuflokksins í skoðana-
könnunum undanfarið?
„Það er nú einkum tvennt sem
hefur orðið til þess að veikja Al-
þýðuflokkinn á undanförnum mán-
uðum og vikum. Hið fyrra er brott-
hvarf fyrrverandi varaformanns og
ráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur.
Hið síðara er allur málabúnaðurinn
sem kenndur hefur verið við Guð-
mund Árna Stefánsson. Þetta tvennt
hefur verið uppistaðan í allri um-
fjöllun um Alþýðuflokkinn á und-
anförnum mánuðum, allt frá því
fyrir flokksþing, og öll hefur sú um-
fjöllun verð fremur neikvæð. Þannig
að þetta eru nú áreiðanlega megin-
skýringarnar.
Ekki geta skýringarnar verð þær
að þetta endurspegli óánægju með
stefhu Alþýðuflokksins, sérstaldega í
ljósi þess að nú, þegar við sjáum
fyrst forsmekk að þeirri stefhu sem
Jóhanna Sigurðardóttir boðar, þá er
hún í stærstu málum nánast tekin að
láni frá Alþýðuflokknum þannig að
það framkallar nú ekki mikinn
ágreining. Þá á ég vð stór mál eins og
jöfnun atkvæðisréttar þar sem stefn-
an er sú hin sama. Að því er varðar
afstöðu til Evrópusamhandsins, þar
sem stefnan er í stórum dráttum sú
hin sama og var mörkuð á seinasta
flokksþingi Alþýðuflokksins, og
ýmsar tillögur um tekjujöfnun inn-
an skattakerfisins, sem eru tillöur
sem Alþýðuflokkurinn hefur á dag-
skrá og er að vinna í.
Þannig að það er eitthvað annað
en stefnan, enda kemur á daginn í
skoðanakönnunum til dæmis að
verulegur hópur landsmanna er
sammála Alþýðuflokknum í stór-
málinu um að við eigum að leggja
fram umsókn og Iáta reyna á samn-
inga að því er varðar Evrópusam-
bandið. Svo ég held að það sé fyrst
og ffemst þessi tvö mál.“
Þungavigtarfólk, eins og Ágúst
Einarsson, yfirgefur flolddnn og þó
telst hann til hægri kratanna sem
þú sækir fylgi þitt til.
„Það er ágætt dæmi um umfjöll-
un þegar menn segja að Ágúst Ein-
arsson hafi verið þungavigtarmaður
í Alþýðuflokknum. Ágúst hefur
þrisvar sinnum sagt skilið við AI-
þýðuflokkinn. Hann sagði fyrst af
sér og hætti störfum sem gjaldkeri
flokksins vegna ágreinings við Kjart-
an Jóhannsson. Eftir prófkjör í að-
draganda kosninganna 1983 sóttist
hann eftir þriðja sæti og atti kappi
við Bjama Guðnason, sem nú er
orðinn samferða honum til Jó-
hönnu. Hann tapaði með naumum
mun fýrir íþróttafélaginu Víkingi,
eins og hann sagði sjálfur, og hvarf á
braut. Hann kom ekki aftur inn í AI-
þýðuflokkinn fýrr en Jón Sigurðsson
leitaði til hans til þess að gera hann
að formanni bankaráðs Seðlabank-
ans. Og svo er hann nú að segja sig
úr flokknum, í þriðja sinn. Af því að
menn tala um þungavigt þá er þetta
ekki mikil þungavigt metið á mæli-
kvarða Alþýðuflokksins.“
Þannig að þú sérð ekki eftir Ág-
ústi?
„Ég var ekki að segja það, heldur
að útskýra að þetta er í þriðja sinn
sem hann rýkur á dyr. Það er ákveð-
„Menn eru að koma
saman vegna þess að
þeim hefur ekki vegn-
að vel í öðrum stjórn-
málahreyfingum. “
ið hegðunarmynstur. Þú sagðir sjálf-
ur að hann væri hægrikrati sem gæri
þýtt það að hann ætti kannski sitt-
hvað ekki sameiginlegt með þeim
sem þarna eru samankomnir, eins
og til dæmis hörðustu andstæðing-
um kvóta. Ágúst er viðurkenndur
sem einhver harðasti talsmaður
óbreytts kvótakerfis. Þannig að ef
miða má við reynsluna úr fortíðinni
er kannski ekki við því að búast að
hann staldri lengi við þarna heldur.“
Er ekki málið að tími Jóhönnu er
kominn og þinn liðinn?
„Sá sem spyr svona á grundvelli
skoðanakannana hefði gott af því að
líta á skoðanakannanir fýrr. Þannig
að ég myndi nú ráðleggja þér að
álykta ekki allt of mikið af þessum
skoðanakönnunum.“
Þú ert sem sagt að spá þvi að
Þjóðvakinn eigi sér eldd langa líf-
daga framundan?
„Sá sem þekkir eitthvað til ís-
lenskra stjórnmála og þekkir reynsl-
una af svipuðum samtökum sér
menn hlaupa saman úr öllum áttum
þar sem í forystuliðinu er fýrst og
fremst fólk sem á eitt sameiginlegt,
það er óánægju með framgang sinn í
öðrum flokkum eða sameiginlegt
skipbrot. Menn sem eru harðir tals-
menn kvótakerfis og menn sem eru í
algjörum uppreisnarham gegn því.
Menn sem eru leifarnar af Þjóðar-
flokknum en eiga að standa að kröfu
um jöfnun á atkvæðisrétti sem fyrst
og fremst skírskotar til þéttbýlisbúa.
Þeir sem eru eindregnir og einarðir
talsmenn inngöngu í Evrópusam-
bandið, eins og til dæmis Sigurður
Pétursson, formaður Sambands
ungra jafnaðarmanna, og svo fjöl-
margir sem mega ekki heyra það
nefnt. Þetta eru staðreyndir um það
að þarna eru menn ekki að samein-
ast á grundvelli málefna. Menn eru
að koma saman vegna þess að þeim
hefur ekki vegnað vel í öðrum
stjómmálahreyfingum. Þessi grund-
völlur er ótraustur, hann er ekki til
ffamtíðar. Þannig að niðurstaðan er
að mínu mati sú hin sama og með
önnur slík pólitísk skyndikynni.
Þetta gýs upp í skoðanakönnunum
og nærist nú á umtalsverðri þjóðfé-
lagslegri óánægju, sem er pólitísk
staðreynd á Islandi eftir margra ára
erfiðleikatímabil. En límið sem á
halda þesu saman, sem eru hug-
myndir, stefnumál og lífsviðhorf, er
ekki fýrir hendi.“
Kemur til greina að þú víkir og
nýr formaður verði kosinn á auka-
flokksþinginu eftir áramót ef staða
flokksins sýnist þá ekkert betri en
hún er núna?
„Það kemur bara í ljós.“
-SG