Helgarpósturinn - 28.11.1994, Side 15

Helgarpósturinn - 28.11.1994, Side 15
MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1994 MORGUNPÓSTURINN SKOÐUN 15 Afreksmaður án afreka Það eru nokkur stór afrek sem vert er að vinna á íslandi. Gera KR að Íslandsmeisturum. Vinna borg- ina af sjálfstæðismönnum. Ná ár- angri í Eurovision. Fá fleiri áhorf- endur en Hemmi Gunn. Og sam- eina vinstri menn. Afreksmaðurinn Ólafur Ragnar stendur nú frammi fyrir því að hann mun ekki sem gamall maður geta hreykt sér af neinu þessara afreka. Og það er biti sem er erfitt fyrir hann að kyngja. Hann, sem öllum ber saman um að sé klárari en fólk er flest, kappsam- ari og einbeittari. Þessi afrek verða unnin af ókláru fólki, duglausu og reikullu á meðan hann verður að sætta sig við að stærstu afrek hans hafi verið framin á Indlandi og í nokkrum velvöldum einræðisríkj- um í Afríku, Asíu og Suður- Amer- íku. Það er öllum ljóst að Ólaf skortir ekki vit til afreka. Og öllum er jafht ljóst að hann hefur nógan kapp til afreka og að hann hefur í raun ein- staklega hentuga innréttingu til að skara fram úr. Ekkert er svo sterkt i hugarheimi hans að það trufli metnað hans. Hann hefur bara eina hugsjón og hún er Ólafur Ragnar Grímsson. En þrátt fyrir rétt hjarta- lag, skap og vit til afreka er hann dæntdur til að verða hornreka. Ólafur Ragnar verður ekki sakað- ur um að hafa ekki reynt. Hann reyndi fyrir sér í Framsókn, hann reyndi fyrir sér í Samtökum frjáls- lyndra og vinstri manna, hann reyndi fyrir sér í Alþýðubandalag- inu. Og eins og það væri ekki nóg, þá bjó hann sér til baklönd í Birt- ingu og Nýjum vettvangi. Allt hefur komið fyrir ekki. Á Ólafi hefur sann- ast það sem áður hefur svo margoff sannast á fólki sem flýr sjálft sig. Það skiptir ekki máli þótt það fljúgi til Timbúktú. Sá fyrsti sem það hittir á flugvellinum er það sjálff. Þess vegna hefur Ólafur ekki náð betri hljóm- grunni í Alþýðubandalaginu en í Framsókn. Og þess vegna hefur fólk ekkert frekar hlýtt á hann þótt hann sé formaður eða óbreyttur. Þegar Ólafur talar þá talar Ólafur. Honum mun aldrei takast að breyta því. Og það er löngu sannað að enginn hlustar á Ólaf. Og það skiptir engu reka. “ hvaða titil hann ber eða úr hvaða púlti hann talar. Hver nema Ólafur gæti verið for- maður í flokki sem vill ekkert með hann hafa. Þeir Svavar og Stein- grímur hafa skömm af honurn. Og hans eigin fylgismenn eru nú flestir annað hvort gengnir í Jóhönnu eða á leiðinni í Jóhönnu. Einn situr hann eftir í ormagryfjunni og bíður pólitísks dauða síns. Áður en Jóhanna kom til voru þeir Svavar og Steingrímur að leggja á ráðin hvernig þeir gætu losað sig við Ólaf fyrir kosningar. Nú standa þeir frammi fyrir því að líkast til er best að láta hann sitja áfram og leiða leifarnar af Alþýðubandalaginu til ósigurs í næstu kosningum. Etja fíflinu á foraðið. Það er betra að losna við stjórnmálamann með því að láta kjósendur hafna honum en að fella hann í samsæri. Þeir sem eru felldir af flokksmönnum eiga það til að rísa upp að nýju, eins og stórkanónurnar Eggert og Jóhanna eru að sýna fram á. Þeir Svavar og Steingrímur munu því líklega losa sig við Ólaf á þann hátt sem alltaf hefur verið augljós- astur. Skilja hann einan eftir í hönd- unum á kjósendum. Það eru engar líkur til að hann lifi það af. -ÁS „Ekkert er svo sterkt í heimi hans að það trufli metnað hans. Hann hefur bara eina hugsjón og hún er Ólafur Ragnar Grímsson. En þráttfyrir rétt hjartalag, skap og vit til afreka er hann dœmdur til að verða horn- Menn Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins BHMTfSll Jafnrœðisregla ífjölmiðlum „Á hverjum mánudegi hefur mátt lesa heims- endakenndar frásagnir afhegðun unglinga niður í miðbœ í DV eins ogþað vœri heilagt markmið blaðsins að hraeða almenningfrá því að ganga um miðbceinn eftir myrkur. Að und- anförnu hefur mátt greina ákveðin hlutverka- skipti ífréttum blaðsins, nýbúar eru að taka við hlutverki unglinganna sem vandamál númer eitt. “ Ég hef aldrei keypt þá hugmynd að fjölmiðlar hafi vald. Og þá fyrst og fremst af tvennum ástæðum. Annars vegar vegna þess að ég yrði verri blaðamaður ef ég hugsaði um áhrif þess sem ég skrifa eða birti. Blaðamanni, sefn er upptekinn af hugsanlegum eða ímynduðum áhrifum sínum, er hætt við að ntissa af aðalatriði fréttarinnar sem hann er að segja og einblína þess í stað á afleiðingar fréttarinnar. Hann hættir að vera hlutlaus skrá- setjari og upplifir sjálfan sig sem geranda og þátttakanda í fréttinni. Hins vegar hef ég orðið vitni af vinnubrögðum blaðamanna sem líta á sig sem eitthvað annað og meira en eyra og hendi. Þeir enda á því að verða sölumenn heirns- myndar sinnar og glínta látlaust við að berja raunveruleikann inn í fyr- irfram ákveðið form. En þrátt fyrir að ég hafni því að líta á fjölmiðla sem valdastofnanir er eitt sem þeir geta lært af slíkum stofnunum og yfirfært á sjálfa sig. Það er sú grundvallarregla valdsins að allir skuli njóta sömu aðstöðu og valdhafanum sé gert ómögulegt að mismuna einstaklingunum. Ef fjölniiðlar fylgja þessari reglu þá þurfa þeir að láta eitt yfir alla ganga. Ef þeir nafngreina einn for- stöðumann fyrirtækis eða stofnun- ar sem hefur verið vikið frá störf- um, þurfa þeir að nafngreina aðra einnig. Ef þeir mynda einn sem ákærður er fyrir líkamsárás í réttar- salnum þá þurfa þeir að mynda aðra einnig. Og ef þeir setja sér ein- hverjar reglur um þessar nafn- og myndbirtingar þurfa þær að vera sanngjarnar. Morgunblaðið hefur lengi beitt þeirri reglu varðandi nafnbirtingar í sakamálum að veita þeim nafn- leynd sem dæmdir eru í minna en tveggja ára fangelsi. Þessi regla hef- ur að sjálfsögðu alla galla þumal- puttareglna. Ef menn líta á nafn- birtingu sem jafn alvarlegan verkn- að og í raun felst í þessari reglu er erfitt að sjá sanngirni þess að birta nafn manns sem er dæmdur í 24 mánaða refsivist en ekki þess sem er dæmdur í 22 mánaða refsivist. Og enn erfiðara ef 18 mánuðir af dómi þess fyrrnefnda eru skilorðs- bundnir en ekkert af dómi þess síð- arnefnda. Það er sömuleiðis erfitt að verja regluna þegar haft er í huga að niðurstöður dómstóla hafa löngum verið í litlu samhengi við réttlætisvitund almennings. Þessi þumalputtaregla er því, eins og aðr- ar slíkar, fyrst og fremst til að fría þann sem beitir henni hugsun og dómgreind. Ástæðan fyrir því að ég nefndi val fjölntiðla á því hvenær þeir mynda sakborninga í réttarsal og hvenær ekki, er myndbirting DV af víetnömskum manni sem ákærður var fyrir hnífsstungu í Lækjargötu. Það er óvanalegt að DV tjaldi svo miklu til í jafn ómerkilegu líkams- árásarntáli (þetta mál var ómerki- legt ef líkamsárásarmál geta verið það). Eina hugsanlega skýringin á viðbúnaði DV er uppruni hins ákærða. Ef rnenn skoða DV undan- farin ár er ekki hægt að komast að annarri niðurstöðu en þeirri að blaðið hefði látið það ógert að senda Ijósmyndara í Hæstarétt ef sakborningurinn hefði verið úr Vík í Mýrdal en ekki frá Víetnam. Fyrir áratug eða svo hóf DV massívan fréttaflutning af drykkju unglinga í miðbæ Reykjavíkur. Blaðið er höfundur af hugmynd- inni um Hlentm sem helvíti. Á hverjum mánudegi hefur mátt lesa heimsendakenndar frásagnir af hegðun unglinga niður í rniðbæ í DV eins og það væri heilagt mark- mið blaðsins að hræða almenning frá því að ganga um ntiðbæinn eftir myrkur. Að undanförnu hefur mátt greina ákveðin hlutverkaskipti í fréttum blaðsins, nýbúar eru að taka við hlutverki unglinganna sem vandamál númer eitt. Eitt skal. yfir alla ganga, sagði ég áðan, og ef sagt er frá fjármála- óreiðu eins forstöðumannsins þá á að segja frá öðrum einnig. Ástæðan fyrir því að ég nefni þetta er sú, að þegar við birtum nafn forstöðu- konu Kvennaathvarfsins í frétt urn fjármálaóreiðu þar innandyra urðu viðbrögðin þessleg að sumir hér innandyra fóru að velta því fýrir sér hvort þetta hefðu ekki verið mis- tök. Hvort ekki hefði mátt sleppa nafninu og myndinni. En ef það hefði verið gert — vegna óþæginda sem starfsmenn Mogunpóstsins urðu fyrir vegna nafnbirtingarinn- ar — þá má spyrja hvort ekki væri jafnframt rétt að birta ekki nafn þess sem stendur fyrir söntu óreiðu, en á sér enga vini eða stuðningsmenn sem eru tilbúnir að verða móðgaðir fyrir hans hönd. Það væri einfaldlega brot á jarn- ræðisreglunni að birta nafn hans en ekki þess sem kemur úr verndaðra umhverfi. Þetta síðasttalda tengist öðru ntáli sem brátt mun gera mig grá- hærðan af leiðindum. Fyrir nokkr- um vikurn birtist grein í blaðinu um styrki til listamanna og var hún í alla staði svipuð og hliðstæðar greinar um styrki til annarra hópa. Eftir sem áður hef ég varla getað látið sjá mig á opinberum stöðum síðan þá án þess að hlusta á vand- lætingarræður þeirra sem teljast listamegin í lífinu. í raun má ekki skilja þetta fólk öðruvísi en svo að tjáningarfrelsið sé góðra gjalda vert svo framarlega sem þeir sem efast unt ágæti styrkja til listamanna haldi kjafti. Ég minnist á þetta hér vegna þess að þessi vandlæting er sprottin af sama grunni og hneykslan þeirra sem vildu hlífa forstöðukonu Kvennaathvarfsins við nafni sínu. Alveg eins og embættismenn í ganila daga sem báru fína titla ög skrautlega búninga misstu andlitið þegar einhverjum datt í hug að vé- fengja stöðu þeirra, eiga þeir sem telja sig vera í heilaga liðinu (listir, mannúðarmál, menning, trúboð) bágt nteð að þola sömu meðferð og þeir telja aðra eiga skilið. Þá skortir einfaldlega þá afslöppun gagnvart sjálfum sér sem þarf til að skilja að þeir eru nokkurn veginn eins og fólk er flest og eiga að fá sömu meðferð og það. Gunnar Smári Egilsson Er tími Jóhönnu kominn? Bjarni P. Magn- ússon, sveitar- stjóri Reykhóla- hrepps. „Hann er löngu kominn.“ Bubbi Morthens tónlistarmaður. „Nei.“ Ragnhildur Vig- fúsdóttir ritstjóri. „Það fer eftir hverj- ir fara með henni og hvað hún hefur til málanna að leggja." Júlíus Sólnes verkfræðingur. „Já. Þetta er skyn- samleg tímasetn- ing. Hún greip tækifærið þegar það gafst.“ Ragnheiður Dav- íðsdóttir upplýs- ingafulitrúi. „Já, hann er fyrir löngu kominn.“ Hannes Hólm- steinn Gissurar- son stjórnmála- fræðingur. „Til þess að stjórn- málamaður sé vel heppnaður þarf hann í senn að hafa fylgi og standa sig vel. Sumir standa sig vel en hafa ekki fylgi, til dæmis Jón Baldvin og Ólafur Ragnar. Aðrir hafa fylgi en standa sig ekki vel og í þeim hópi er Jóhanna. I þriðja hópnum eru þeir sem standa sig vel og hafa líka fylgi. Þar kem ég auga á Davíð Oddsson og Ingibjörgu Sól- rúnu.“ Nína Björk Árna- dóttir skáld. „Ég veit ekki hvað hún ætlar að gera en vona það besta.“ En er tími Jóns Baldvins liðinn? Bjarni P. Magn- ússon „Já, hann er löngu liðinn. Jón Baldvin ætti að standa upp fyrir Jóhönnu og bjóða henni að taka við flokknum." Bubbi Morthens „Já.“ Ragnhildur Vig- fúsdóttir „Já, hans tími er löngu liðinn og það vita allir nema hann sjálfur." Júlíus Sólnes „Margt bendir til þess. Jón Baldvin sagði sjálfur að ef kallinn í brúnni hætti að fiska, þá ætti hann að víkja. Það verður nú samt að gefa honum færi á að Ijúka kosningabaráttunni og kosningunum áður en endanleg afstaða er tekin." Ragnheiður Dav- íðsdóttir. „Það ætla ég rétt að vona, og þó fyrr hefði verið." Hannes Hólm- steinn Gissurar- son „Um Jón Baldvin má hafa það sem segir í Grettissögu: Slyngt yrði þér um margt, frændi, ef ekki fylgdu með slysin." Nína Björk Árna- dóttir „Mér finnst Alþýðuflokkurinn ekki vera Alþýðu- flokkur lengur.“

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.