Helgarpósturinn - 28.11.1994, Page 27
MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBEÁM'á94
MORGUNPÓSTURINN SPORT
27
Ætlar maðurinn aldrei að hætta?
Vérður betri
með aldrinum
Robert Parish, miðhetji Charlotte, erkominn á fimmtugsaldur en læturengan bilbug á sérfinna.
Nayirn er ein heista stjarna Zar-
agozamanna. Hann er kannski
betur þekktur sem leikmaður Tot-
tenham þegar Guðni Bergs og
Gazza voru upp á sitt besta.
Ný lið að narta
í stórliðin tvö
á Spáni
Vantar
aðeins
hárs-
breidd
Spánverjar hafa haft töluverðar
áhyggjur afþví hin síðari ár að of fá
lið þar í landi ættu í raun mögu-
leika á sjálfum meistaratitlinum,
titillinn færi venjulega til Barcel-
ona, þá Real Madrid og kannski
aftur til Barcelona svona til til-
breytingar.
Síðan þá hefur komið til sögunn-
ar góðæri tveggja liða sem smám
saman eru að öðlast aðdáun og vin-
sældir, Deportivo la Coruna og Re-
al Zaragoza.
Á síðasta tímabili voru leikmenn
Deportivo aðeins hársbreidd frá því
að vinna titilinn frá Barcelona. Áð-
eins varin vítaspyrna frá Brasilíu-
manninum Bebeto og mark frá
Börsungnum Romario gerðu þá
drauma að engu. Það er því
kannski ekki skrýtið að Spánverjar,
aðrir en Madrídingar og Börsung-
ar, líti vonaraugum til félaganna
tveggja.
Þegar þetta er ritað er staðan
þannig í spænsku deildinni að Zar-
agoza er í efsta sæti og Deportivo í
því fjórða. Ekki þarf sérstaldega að
taka fram hvaða tvö lið eru þeirra á
milli, Real Madrid og Barcelona
byrjuðu ekki vel á tímabilinu en
hafa vaxið í hverjum leik.
Zaragoza átti oft ágæta spretti á
síðasta tímabili og endaði í þriðja
sæti. Liðið gerði það einnig gott á
öðrum vígstöðvum og stóð uppi
sem bikarmeistari þrátt fyrir að
leika illa í sjálfum úrslitaleiknum.
Hvort sem það verður lið hefðar-
innar eða nýbreytninnar sem
stendur að lokum uppi sem meist-
ari skal ósagt látið. Hinsvegar er
orðið alveg ljóst að stórliðin tvö
geta ekki lengur látið eins og hin
liðin séu ekki til og þá er eitthvað
farið fetið. ■
Hinn 41 árs gamli Robert Pa-
rish er Islendingum að góðu kunn-
ur, enda einn aðalmaðurinn í sig-
ursælu liði Boston Celtics á síðasta
áratugi. Hann vann þrjá meistara-
titla og var hluti af bestu framlínu
allra tíma ásamt Larry Bird og Ke-
vin McHale. Hann er nú að spila
sitt nítjánda tímabil í deildinni og
stefnir óðfluga á leikjamet Kareem
Abdul-Jabbar en Parish hefur
leikið 1.425 leiki. Met Jabbar er
1.560 leikir. Hann mun því slá met-
ið undir lok næsta leiktímabils ef
hann heldur sér hraustum og í liði.
Hann er einnig á lista yfir tíu frá-
kastahæstu leikmenn sögunnar og
er þar í áttunda sæti og er tólfti
stigahæsti leikmaður allra tíma.
Þegar Robert Parish var að byrja í
deildinni var yngsti leikmaður
deildarinnar nú, Jason Kidd, að-
eins tveggja ára og Shaquille
O’Neal fjögurra ára. Parish, sem
fæddur er árið 1953, hefur nú verið
aldursforseti deildarinnar í fimm
og hálft ár, alveg síðan Abdul-Jab-
bar lagði skóna á hilluna. Á þessum
tíma liefur Parish verið einn ástsæl-
asti leikmaður deildarinnar og
hvers manns hugljúfi. Fræg er sag-
an af því þegar Parish gekk um vin-
sæla verslunargötu í Boston og hitti
þar fyrir heimilislaust barn, sem
hann tók að sér og félck síðan vin
sinn til að ættleiða. Hann er ötull
málsvari gegn barnaofbeldi og hef-
ur hann starfað í athvörfum fyrir
heimilislaus börn og safnað millj-
ónum til handa bágstöddum. Þrátt
fyrir mannúðarstörf hefur viss
skuggi fylgt honum síðan hann var
handtekinn fyrir að hafa marijúana
í fórum sínum.
NBA ferill Parish hófst hjá Gold-
en State Warriors, en þar náði hann
aldrei að sýna sitt besta. Mesta
gæfuspor ferilsins var þegar honum
var skipt ásamt valrétti (sem síðar
var notaður til að velja Kevin
McHale) til Boston fyrir Joe Barry
Carroll. Hjá Boston varð hann þrí-
vegis meistari og var mikilvægur,
en þó vanmetinn, hlekkur í sigur-
keðjunni. Það var alltaf hægt að
treysta á „Indíánahöfðingjann“ til
að skora 17-18 stig og hirða 10 frá-
köst í leik. Viðurnefnið fékk hann
Margir hafa gagrýnt Parish fyrir
að vera aðeins að hanga svona
lengi í bransanum, vegna pening-
anna en „Indjánahöfðinginn” hef-
ur vísað þessari gagnrýni á bug
enda hafi hann ennþá stórgaman
að leiknum.
frá samherja sínum Cedric Max-
well eftir samnefndri persónu í
kvikmyndinni Gaukshreiðrið.
Fyrir þetta tímabil var Parish
með lausa samninga frá Boston og
gat því samið við hvaða lið sem er.
Hæstbjóðandi var hið unga lið
Charlotte Hornets, en þar á bæ
voru menn á höttunum eftir reynd-
um leikmanni, sem gæti kennt Al-
onzo Mourning og verið auk þess
varamaður hans. Margir hafa gag-
rýnt Parish fýrir að vera aðeins að
hanga svona lengi í bransanum,
vegna peninganna, en „Indjána-
höfðinginn“ hefur vísað þessari
gagnrýni á bug enda hafi hann enn-
þá stórgaman að leiknum. Robert
Parish verður lengi minnst sem
snjalls leikmanns og ljúfmennis.
Eins og Einar Bollason hefur oft
sagt þá er Parish eins og rauðvínið;
verður bara betra með aldrinum.
-eþa-PK
Eiður Smári og félagar fá
nýjan þjálfara
Advocat hættir með
hollenska landsliðið
og tekur við PSV
Dick Advocat landsliðsþjálfari
Hollands hefur verið ráðinn þjálf-
ari hollenska stórliðsins PSV
Eindhoven og mun því hætta með
hollenska landsliðið á næstunni.
PSV Eindhoven, eitt ríkasta og
frægasta lið Hollands, er aðeins í
fimmta sæti deildarinnar þrátt
fyrir að hundruðum milljóna hafi
verið kostað til kaupa á stjörnum
að undanförnu. Síðasti leikmað-
urinn sem fenginn var til félagsins
var einmitt Eiður Smári Guð-
johnsen.
Ákveðið hefur verið að Guus
Hiddink taki við stöðu landsliðs-
þjálfara Hollands sem nú berst
fyrir sæti í úrslitum Evrópu-
keppninnar.B
Dópið í boltanum
Paul Merson viðurkennir kökaínneyslu
Enn eitt áfallið fyrir enska boltann.
Það syrtir enn í álinn hjá enska
liðinu Arsenal og ofan á lélegt gengi
liðsins. bættist sú fregn á föstudag
að miðjumaðurinn snjalli, Paul
Merson hefði verið háður kókaíni
undanfarna mánuði.
Hinn 26 ára gamli Merson sagði
enska blaðinu Daily Mirrorad hann
hefði stundum eytt allt að 15.000 kr.
á kvöldi í efnið á löngum fylleríum.
Paul Merson hefur lengi verið
enn af hæfileikaríkustu og um leið
erfiðustu leikmönnum ensku
knattspyrnunnar. Fyrir nokkrum
árum sté hann sjálfviljugur fram og
viðurkenndi ofnotkun sína á víni
og víst er að þessar fréttir bæta ekki
syndalista leikmannsins.
George Graham, framkvæmda-
stjóri Arsenal, hefur gefið leik-
manninum vikutíma til að koma
hlutunum í rétta röð og komast aft-
ur í leikform samkvæmt frétt blaðs-
ins.
„Þetta hefur næstum eyðilagt líf
mitt,“ sagði Merson í viðtalinu. „Ég
hef lagt ferilinn minn í stórhættu
og einnig hjónabandið. Nú vil ég að
allir viti af þessu vandamáli svo ég
geti snúið við því baki og byrjað
aftur.“
Mál Mersons er mikið áfall fyrir
enska knattspyrnu og var ekki á það
bætandi eftir hina miklu umræðu
um mútumál markvarðarins
Bruce Grobbelar. Enski boltinn
hefur verið í mikilli uppsveiflu að
undanförnu og óttast forkólfar
hans að ef ekki verði að gert í máli
kappanna tveggja sé búið að gefa
afar vont fordæmi.
„Ég á enn eftir að ræða þetta við
konuna mína,“ sagði Merson enn-
fremur grátandi við blaðamanninn.
„Hún veit enn ekki um neysluna og
ég þarf nú að setjast niður með
henni og ræða málin. Ég hef verið
svo mikill asni.“
Hver sem niðurstaðan verður úr
umræðum hjónanna er ljóst að
enska knattspyrnusambandið mun
ekki taka málið neinum vettlinga-
tökum. Argentínsku leikmennirnir
Diego Armando Maradona og
Claudio Caniggia voru báðir
dæmdir í fimmtán mánaða keppn-
isbann vegna kókaínneyslu og
hæpið er talið að þau mál hafi ekki
fordæmisgildi nú.B