Helgarpósturinn - 28.11.1994, Page 31
MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1994
MORGUNPÓSTURINN SPORT
31
Tíu leikir fóru fram í bikarkeppni HSÍ um helgina
KA-menn skelltu
Víkingum á Akureyri
Jón Kristjánsson
var markahæstur
Valsmanna með
fimm mörk. Hér
sést hann í baráttu
við tvo leikmenn
Aftureldingar, en
Geir Sveinsson er
viðbúinn öllu á H'n-
unni.
Körfubolti
Bowmeð
stórleik
gegnKR-
ingum
Valur-KR 86-83
Stigahæstir: Valur: Jonathan
Bow 45, Bragi Magnússon 19,
Ragnar Jónsson 15. KR: Falur
Harðarson 25, Hermann Hauks-
son 23, Ólafur Jón Ormsson 14.
Það var stórleikur Jonathan
Bow sem gerði útslagið í leik KR
og Vals að Hlíðarenda í gærkvöld.
Auk þess að skora 45 stig hirti hann
24 fráköst og hélt Donovan Cas-
anave í aðeins 5;stigum, sem
reyndar telst alls ekki til undan-
tekninga þar sem. sóknarleikur
Casanave er langt frá því að vera
góður. KR-ingar höfðu yfirhönd-
ina framan af leiknum en Bow og
félagar létu ekki deigan síga og
tryggðu sér mikilvæg stig.
Keflavík- Tindastóll 105-97
Stigahæstir: Keflavík: Lenear
Burns 36, Sigurður Ingimundar-
son 17, Kristján Guðlaugsson 16.
Tindastóll: Ómar Sigmarsson 33,
John Torrey 25.
Keflvíkingar sýndu að þeir eru
ekki dauðir úr öllum æðum þrátt
fyrir að oft hafi þeir vakið meiri
ugg í hjörtum andstæðinga sinna.
Lenear Burns er mjög sterkur
leikmaður og Sigurður Ingi-
mundarson hefur verið að leika
vel að undanförnu. Ómar Sig-
marsson, Tindastóli, átti stórleik
-og mega menn fara að vara sig á
þessari ungu stórskyttu.
ÍA-Snæfell 113-102
Stigahæstir: ÍA: B.J. Tomph-
son 34, ívar Ásgrímsson 23, Har-
aldur Leifsson 19. Snæfell:
Raymond Hardin 41, Karl Jóns-
son 21, Eysteinn Skarphéðins-
son 14.
Sigur Skagamanna var aldrei í
teljandi hættu en mörg lið hafa nú
verið að brenna sig á því að van-
meta Snæfellinga og erfitt er að
álasa þeim fyrir það. Snæfellingar
hafa þó sótt í sig veðrið og það líð-
ur eflaust ekki á löngu þar til Snæ-
fellingar læðast aftan að einhverju
liðinu og stela sigri.
Skallagrímur-Þór Akureyri
74-78
Stigahæstir: Skallagrímur:
Gunnar Porsteinsson 20, Tómas
Holton 19, Henning Hennings-
son 18. Þór: Kristinn Friðriksson
25, Konráð Óskarsson 16, Sandy
Anderson 13.
Sjónvarpsleikurinn var ekki ýkja
merkilegur enda spilaði hvorugt
liðið eins og getur best. I lið Skalla-
gríms vantaði Alexander Ermo-
linskíj sem er burðarás liðsins.
Kristinn Friðriksson var í mikl-
um ham í fyrri hálfleik og hitti úr
fimm 3-stiga skotum. Skallagríms-
menn náðu aldrei að ógna gestun-
um verulega en börðust þó hetju-
legri baráttu og fór þar fremstur í
flokki Gunnar Þorsteinsson sem
var drjúgur í fráköstunum.
Staðan eftir 15 umferðir:
A-riðill Leikir Stig
Njarðvík 14 26
Skallagrímur 15 16
Þór Ak. 14 14
Haukar 14 10
Akranes 15 10
Snæfell 14 0
B-riðill Leikir Stig
Grindavík 15 24
ÍR 15 22
Keflavík 15 20
KR 15 16
Valur 15 10
Tindastóll 15 8
Nú er ljóst hvaða lið verða í hatt-
inum þegar dregið verður í átta liða
úrslitum bikarkeppni HSÍ, karla-
flokki. KA, ÍBV, Stjarnan, Valur,
KR, Haukar og Grótta unnu öll
leiki sína og komast þar með áfram
í keppninni. I kvennaflokki fóru
fram tveir leikir. Stjarnan og ÍBV
tryggðu sér áframhaldandi þátt-
tökurétt í keppninni. Úrslit urðu
eftirfarandi:
Karian
KA - Víkingur 30:24
UBK - ÍBV 23:27
Stjarnan - HK 27:25
UMFA - Valur 20:24
Valur b - KR 24:26
Haukar-ÍH 29:17
Grótta - Fram 31:19
Selfoss - FH 26:22
Konun
FH - Stjarnan 15:34
ÍBV - Víkingur 23:22
Þeir sem héldu því fram að
Grindavík væri liðið ósigrandi í úr-
valsdeildinni þurfa nú að læðast
með veggjum frani. I gærkvöld
tókst IR, liðið sem lék í fyrstu deild í
fyrra, að leggja Grindavík að velli í
stórkostlegum leik í Séljaskóla. Þar
með sigraði ÍR sinn áttunda heima-
leik í vetur og hefur liðið urinið alla
sína leiki í Iþróttahúsi Seljaskóla. -
Áhorfendur troðfylltu íþrótta-
húsið enda enginn smáleikur hér á
ferð. Bæði lið hafa leikið mjög vel í
vetur svo að leikmenn voru ákveðn-
ir að selja sig dýrt. Stemmningin var
ólýsanleg í upphafi leiks þegar að
ÍR-ingar kynntu lið sitt með ljósa-
sýningu. Grindvíkingar náðu þó
undirtökunum fljótt í fyrri hálfleik
þar sem ÍR-ingar hittu illa úr skot-
um utan af velli. Þar með tókst
þeim að ná mörgum hraðaupp-
hlaupum, eins og þeir eru þekktir
fyrir, og nýttu þau vel. Guðmundur
Bragason tróð tvisvar, á þessum
kafla, með þvílíkum fítonskrafti að
rnenn héldu að karfa Breiðhyltinga
væri að syngja sitt síðasta. Ánnars
skoraði hann tíu stig í fyrri hálfleik
eins og Pétur Guðmundsson.
Stigahæstur Grindvíkinga var þó
Guðjón Skúlason með ellefu stig.
Þegar leið á hálfleikinn tókst IR
að saxa á forskot Grindavíkur en
þar fór fremstur Herbert Arnars-
son sem skoraði fimmtán af síðustu
nítján stigum liðsins í hálfleiknum.
Grindvíkingum tókst aftur að ná
KA-menn sýndu allar
sínar bestu hliðar
KA-menn gera það heldur betur
gott þessa dagana. Liðið hélt áfrarn
sigurgöngu sinni í gærkvöld er liðið
sigraði Víking, 30:24. „Við lékum
ekkert sérstaklega vel í vörninni í
fyrri hálfleik en í þeim seinni var
þetta vinnusigur og vörnin þjapp-
aðist vel saman,“ sagði Sigmar
Þröstur Óskarsson, markvörður
KA, kampakátur í leikslok.
Jafnræði var með liðunum frarn-
an af og munurinn aldrei rneira en
eitt mark. KA-menn tóku þó kipp
rétt fyrir leikhlé, skoruðu fjögur
mörk í röð, og höfðu yfir í hálfleik,
15:12. Sriémma í seinni hálfleik fór
Sigmar Þröstur að verja eins og ber-
serkur og KA náði sjö marka fór-
ystu, 20:13. Eftir það var sigurinn
aldrei í hættu og lokatölur leiksins
urðu 30:24. Patrekur Jóhannes-
son fór á kostum í leiknum. og
undirtökunum í byrjun seinni hálf-
leiks en ÍR-ingar, sem börðust eins
og ljón, komu til baka. Þannig gekk
þetta fram aftur; Grindavíkingar
náðu góðu forskoti en alltaf tókst
Breiðhyltinum að rninnka muninn.
Þeir náðu þó ekki forystunni fyrr
en með körfu Eggerts Garðars-
sonar þegar fimm mínútur voru til
leiksloka. En sú forysta var skamm-
vinn því aftur komst Grindavík yfir.
Á lokamínútunni náði spennan
hámarki. Helgi J. Guðfinnsson
skoraði með ævintýralegu sniðskoti
þegar fimmtán sekúndur voru eftir
og kom Grindavík yfir 83-82. Leik-
menn ÍR flýttu sér að koma boltan-
um í spil og barst hann til Herberts.
Herbert tókst ekki að hrista af sér
varnarmanninn og gaf boltann til
John Rhodes sem kom honum til
Jóns Arnar Guðmundssonar sem
beið fyrir utan þriggja stiga línuna.
Honum tókst að sleppa frá sér bolt-
anum rétt áður en flautan gall og
ofan í rataði hann. Án efa skot árs-
ins. Ætlaði allt um koll að keyra í
húsinu. Stuðningsmenn IR stigu
tryllta stríðdansa á meðan fjölda-
margir Grindvíkingar tárfelldu.
Það er ekki á neinn hallað að
segja að Rhodes hafi verið maður
leiksins. Auk þess að skora sextán
stig tók drengurinn 26 fráköst, stal
fimm boltum og varði þrjú skot.
Sannkallaður stórleikur hjá þessum
geðprúða miðherja sem einnig er
þjálfari liðsins. „Gulldrengurinn“
skoraði tíu mörk, en Valur Arnar-
son skoraði sex. Sigmar Þröstur
átti einnig stórleik og varði fimm-
tán skot. Hjá Víkingum var Sig-
urður Valur Sveinsson marka-
hæstur með tíu mörk en Rúnar
Sigtryggsson gerði sex mörk.
Reynir Reynisson í markinu varði
þrettán skot.
Valsmenn sterkarí
á endasprettinum
Afturelding og Valur áttust við í
Mosfellsbænum. Ekki er langt síð-
an Valur tapaði þar sínum fyrsta
leik á tímabilinu, þannig að þeir
höfðd harma að hefna. Reyndar
benti fátt til þess í upphafi að þeir
ætluðu sér eitt eða neitt í leiknum,
því heimamenn náðu fljótlega
fimm marka forystu, 9:4. Eftir það
tóku Valsmenn við sér og tókst að
jafna með mikilli seiglu. Liðin
skiptust síðan á um að hafa forystu
Herbert Arnarsson átti einnig stór-
leik. Hann hefur leikið frábærlega í
allan vetur og kæmi það mörgum á
óvart ef hann yrði eldd valinn besti
leikmaður deildarinnar, nýliði árs-
ins og svo framvegis. Eggert og Jón
Örn skoruðu einnig þýðingarmiklar
körfur.
Eins og svo oft áður var það
breiddin sem var í fýrirrúmi hjá
Grindavík. Pétur Guðmundsson
ÍR-UMFG 85-83
Stigahæstir: ÍR: Herbert Arn-
arsson 37, John Rhodes 16, Jón
Örn Guðmundsson 12, Björn
Steffensen 8, Eiríkur Önundar-
son 6, Eggert Garðarsson 4,
Halldór Kristmannsson 2.
Tölfræði: Skotnýting innan
teigs: 12/19, skotnýting utan teigs:
15/43.3-ja stiga nýting: 5/16, fráköst:
36, stoðsendingar: 8, stolnir boltar:
13-
UMFG: Guðmundur Bragason
18, Guðjón Skúlason 16, Pétur
Guðmundsson 16, Franc Booker
14, Helgi J. Guðfinnsson 7, Marel
Guðlaugsson 7, Unndór Sigurðs-
son 3, Nökkvi M. Jónsson 2.
Tölfræði: Skotnýting innan
teigs: 21/39, utan teigs: 4/21, 3- ja
stiga nýting: 7/16, fráköst: 38, stoð-
sendingar: 21, stolnir boltar: 14.
Dómarar: Kristinn Albertsson
og Kristján Möller.B
og aldrei varð munurinn meiri en
tvö mörk. Lokamínúturnar voru
æsispennandi. Afturelding var yfir
en Valsmenn náðu að jafna og
komast yfir með mörkum upp úr
vel útfærðum hraðaupphlaupum.
Það var síðan Valgarð Thorodd-
sen sem gulltryggði sigur Vals-
manna er hann sveif inn af línu og
skoraði, nokkrum sekúndum fyrir
leikslok. Lokatölur leiksins urðu
átti skínandi leik og verður ekki
langt að bíða þar til að hann klæðist
landsliðstreyjunni. Hann er alltaf á
réttum stað og nýtir þar með sín
tækifæri vel. Guðmundur Bragason
(tíu fráköst), Franc Booker (níu
stoðsendingar og fjórir stolnir bolt-
ar) og Guðjón Skúlason komu
einnig vel út frá þessum leik.
Aðspurður hver væri ástæðan
fyrir því að IR ynni alla sína heima-
20:22. Jón Kristjánsson var
markahæstur Valsmanna með
fimm mörk en Júlíus Gunnars-
son gerði fjögur. Guðmundur
Hrafnkelsson varði alls átta skot í
leiknum. Hjá Aftureldingu var
Ingimundur Helgason marka-
hæstur með 6 mörk. Bergsveinn
Bergsveinsson átti stórleik í
markinu og varði fimmtán skot.
leiki sagði Herbert að áhorfendurn-
ir væru frábærir. „Það er allt sem
hjálpast að; við erum tíu leikmenn
sem klæðum okkur fyrir leikinn en
svo er náttúrlega fullt að góðum
mönnum fyrir utan liðið sem hjálpa
okkur að gera þetta kleif).“
„Við ætlum að fagna í kvöld en á
morgun verð ég aftur kominn í
World Class alveg á fullu.“ -eþa
Frábær árangur ís-
lensku keppend-
anna á HM í snóker
Jóhannes
komstí
úrslit
Árangur íslensku keppendanna
á heimsmeistaramótinu í snóker í
Suður-Afríku hefur vakið mikla
athygli. Þeir Kristján Helgason
og Jóhannes R. Jóhannesson
komust báðir í átta manna úrslit,
og Jóhannes komst alla leið í úr-
slitaleikinn. Þar tapaði hann hins
vegar 9:11 í tíu tíma viðureign. Ár-
angur hans er frábær og ætti að
gefa honum kost á að komast í at-
vinnumennsku. ■
íslandsmeistaramótið í shotok-
an um helgina
Kamtefélagið
Þórshamar
sigursætt
íslandsmeistaramótið í shotok-
an karate fór fram um helgina í
Víðistaðaskóla í Hafnarfirði. Mót-
ið tókst vel í alla staði og ekki urðu
nein alvarleg meiðsl á fólki. Kar-
atefélagið Þórshamar var sigursælt
á mótinu og varð lang stigahæst
en árangur kollega þeirra frá
Akranesi vakti einnig athygli. Þeir
voru aðeins fjórir að tölu en unnu
þó til sex verðlauna, þar af tvennra
gullverðlauna. Verður það að telj-
ast góður árangur hjá svo fáskip-
uðum hópi keppenda. ■
Oskubuskuævin-
týri í Breiðholtínu
Þriggja stiga karfa Jóns Amarí lokin heldur sigurgöngu ÍR á heimavelli gangandi.
Herbert Arnarsson skorar hér tvö af 37 stigum sínum í leiknum. Fyrir aftan hann má sjá nokkur hundruð
áhorfendur sem fylltu húsið en þeir skemmtu sér konunglega.