Helgarpósturinn - 28.11.1994, Qupperneq 32

Helgarpósturinn - 28.11.1994, Qupperneq 32
Wlngvar sloppinn fyrir horn MFyllerí á íþróttaleikjum MKarfan trekkir konurað I ljósi slælegs árangur Valsmanna í úrvalsdeildinni i körfubolta eru menn famir að velta vöngum yfir framtíð INGVARS JÓNS- SONAR þjálfara liðsins. Mann- skapurinn hjá Val er alls ekki slæmur en leik- mennirnir virð- ast með endem- um áhugalaus- ir. Þó má búast við að staða Ingvars hafi styrkst verulega cftir sigurinn á KR-ingum í gærkvöldi. Allavega vilja menn meina að hann hafa sloppið fyrir horn — í ^ bili... .A.fengisneysla áhorfenda á íþrótta- leikjum virðist færast í vöxt hér á landi og hafa rnenn á orði að ef svo fer sem horfir eigi það eftir að hafa áhrif i ills. Á lcik Aftureldingar og Vals í Mosfellsbænum á laugardag voru allmargir með öl í hönd og einhver sagði að annar hver maður væri „íðí“ á leiknum. Vilja menn meina að fólk sé farið að nota íþróttalciki sem nokkurs konar „upphitun“ fyr- ir kvöldið. Hér skal ekki lagður dómur á sanngildi þessara ummæla en hitt er annað mál að þetta ættu forsvarsmenn íþróttahúsanna að taka til íhugunar... ICxmur virðast vera farnar að sækja körfuboltalcik í auknari mæli en áður. Allavega er kynjaskiptingin á leikjum ÍR liðsins sífellt að breyt- ast, konunum í hag. Menn eru ekki á eitt sáttir um ástæðu þess en flest- ir hallast á þá skoðun að innan liðs- ins sé leikmaður sem sé afar vinsæll meðal kvenþjóðarinnar sökum þokka, og ku þær sækja leikina til að berja goðið augum. Nafn mannsins verður ekki gefið upp hér, enda vart þarft því flestir vita við hvern er átt. Fyrir þá sem ekki vita það skal látið uppi að hann skorar yfirleitt mikið og hefur verið töluvert í sviðsljósinu að undanförnu... i»t»iwip'i»iáiii gfmú 686 ö86 Fox: Keppnin um sterkasta mann jarðarinnar fór fram i Laugardalshöll i gær. Manfred Houderl frá Austurríki bar sigur úr býtum en Andrés Guðmundsson hafnaði í öðru sæti, fjórum stigum á eftir Houderl. í þriðja sæti var síðan Skotinn Forbes Cowan. Á myndinni sjást þessir þrír jötnar með sigurlaunin. f m ■'WKes- ■ Húsfyllir á danskeppni Dansráðs íslands JónPétur og Kara unnu Það var margt um manninn I íþróttahúsinu Strandgötu í gærdag þegar danskeppni Dansráðs Islands fór fram þar. A myndinni eru sig- urvegarar í frjálsri aðferð atvinnu- manna, standard-dönsum, þau Jón Pétur Úlfljótsson og Kara Arngrímsdóttir, ásamt Jóhanni Erni Ólafssyni og Unni Berglind Guðmundsdóttur sem lentu í öðru sæti. Húsfyllir var á keppninni og greinilegt að dans hefur sjaldan eða aldrei notið álíka athygli og um þessar mundir. ■ Dregið í bikarkeppni KKÍ Grindavík færÞórí heimsókn Dregið var í átta liða úrslitum bikarkeppni Körfuknattleiks- sambands Islands um helgina. Áætlað er að leikirnir fari fram fimmtudagskvöldið 8. desember. Þó gætu einhverjir leikir færst til. Eftirfarandi lið drógust saman: Kariar: Njarðvík - ÍA Tindastóll - Keflavik Grindavík - Þór Valur - Haukar Konur: KR/Snæfell - Fjölnir Njarðvík - Keflavík Grindavík - UBK IR - Valur Veður Veðurhorfur á mánudag: Suðvestan gola eða kaldi víð- ast hvar á landinu. Él eða slydduél vestan og norðan lands en annars þurrt að mestu. Horfur á þriðjudag: Hvöss suðlæg átt og rigning, einkum sunnan og vestan lands. Hiti 5 til 11 stig. Horfur á miðvikudag: Suðaustan-læg átt. Súld eða rigning suðaustan lands en annars að mestu þurrt. Hiti á bilinu 2 til 6 stig. Á að taka upp Guðmundar- og Greiddu atkvæði 39,90 krónur mínútan Það er einfalt að taka þátt. Þú hringir í síma 99 15 16, hlustar á spurninguna og greiðir síðan atkvæði með því að ýta á 1 eða 2 á símtækinu þínu. A sunnudaginn verður síðan talið upp úr Kjörkass- anum og niðurstöðurnar birtar í mánudagsblaði MORGUNPÓSTSINS. r z' Hlustxim allan sólarhringinn 2 1900

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.