Helgarpósturinn - 12.01.1995, Side 7
: FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR Í995
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
7
Á þriðjudag var skipuð íjögurra manna
uppstillingarnefnd sem í raun er forystulið
Þjóðvaka fram að landsfundi flokksins.
í henni sitja eingöngu konur en hlutverk þeirra
er að raða endanlega á framboðslistana.
Nánast er frágengið hverjir koma til með að fara
fyrir hreyfingunni í hverju kjördæmi fyrir sig
í komandi alþingiskosningum. Konur verða
í öðru hverju sæti og sitja væntanlega í efstu
sætum í fjórum kjördæmum af átta. Jóhanna
hefur þó síðasta orðið um framboðslistana
Aðeins konur
í forystusveitinni
Frá því á haustmánuðum hefur ====== I Svanfríður Jónasdóttir, Þ^óðvaka " 1
a
manna undirbúnings-
nefnd verið starfandi innan stjórn-
málahreyfmgarinnar í kringum Jó-
hönnu Sigurðardóttur sem fékk
svo nafhið Þjóðvaki.
Mikilvægur fundur var haldinn í
undirbúningsnefndinni, sem hefur
gegnt starfí eins konar fram-
kvæmdastjórnar fram að þessu, á
þriðjudagskvöldið þar sem valið var
í kjörstjórn sem telur átta manns og
uppstillingarnefnd sem skipuð er
fjórum af kjörstjórnarfulltrúunum. I
síðartöldu nefndinni sitja með Jó-
hönnu, Ólína Þorvarðardóttir,
Lára V. Júlíusdóttir og Katrín
Theodórsdóttir, framkvæmdastjóri
Þjóðvaka. Þessar fjórar konur er þar
með orðnar valdamestu félagarnir í
Þjóðvaka og það verður í þeirra
höndum að ákveða endanlega
hvernig framboðslistarnir í hverju
kjördæmi verða skipaðir þótt stjórn
Þjóðvaka, sem kjörin verður á lands-
fundi, þurfi að leggja blessun sína yf-
ir niðurstöðuna. Þetta hefúr MORG-
UNPÓSTURINN fengið staðfest.
Landsfundur
í lok mánaðarins
Það vekur óneitanlega athygli að
Jóhanna kýs að hafa einvörðungu
: konur sem sína nánustu ráðgjafa, og
það konur sem korna úr Alþýðu-
flokknum og hafa verið nánir sam-
herjar hennar um árabil, sérstaklega
í ljósi þess að í hreyfinguna hafa
gengið fjölmargir félagar úr Alþýðu-
bandalaginu, auk óháðra og nolck-
urra framsóknarmanna.
Enn hefur ekki verið tilkynnt um
skipun uppstillingarnefndarinnar út
. fýrir undirbúningsnefndina og virð-
! ist farið með það mál eins og hern-
: aðarleyndarmál. Viðbrögð frá öðr-
um félögum í Þjóðvaka eru því eng-
in, enn sem komið er. Auk þess að
mynda forystu Þjóðvaka sitja Jó-
hanna, Lára, Ólína og Katrín jafii-
ffamt í kjörstjórn, senr einnig var
skipuð á þriðjudaginn, ásamt fjór-
um öðrum. Skipulag kosningabar-
áttunnar og allt sem henni fylgir
mun hvíla á þeirra herðurn.
I lok mánaðarins, 28. og 29., er
fýrirhugað að halda landsfúnd Þjóð-
vaka á Hótel Sögu þar sem gengið
verður formlega frá stofnun hreyf-
ingarinnar og komið á föstu skipu-
lagi. Þar verður Jóhanna kjörin for-
maður og við hlið hennar varafor-
maður. Æðsta stofnun hreyfingar-
innar verður 23 manna stjórn og
undir henni verða síðan deildir í
kjördæmunum.
Konur í öðru
hverju sæti
Línur eru nánast orðnar skýrar
um skipun efstu manna á framboðs-
listunum í öllum kjördæmum, ef
Austurland er undanskilið. Mikil-
vægt er talið að ganga frá þessum
hluturn á landsbyggðinni. „Endan-
leg ákvörðun um skipan listanna,
Sigurður Pétursson, sagnfræðingur.
Sveinn Allan Morthens, svæðisstjóri málefna fatlaðra. forseti bæjarstjórnar Dalvíkur.
ýlTS:': J/
einkum í Reykjavík, verður látin
bíða þar til eftir landsfundinn,“
sagði virkur félagi hér í Reykjavík.
En það er ekkert sem rekur menn til
þess að ganga frá listanum í Reykja-
vík af því að allt er hvort sem er
óljóst hjá fleiri flokkum ennþá.
Öðru rnáli gegnir urn stöðuna úti í
kjördæmunum, þar þarf að hafa
hraðari hendur til að hægt sé að
mynda sveitir í kringum þá sem
verða í framboði." Stefnt er að því
að niðurstaðan um efstu sætin verði
kynnt á landsfundinum, eftir því
sem nokkrir heimildarmenn segja.
ÖUum skráðunr félögum í Þjóð-
vaka, sem eru um fimm hundruð
talsins, var sent bréf fyrir nokkru þar
sem þeim var gefinn kostur á að til-
nefna fólk til framboðs í sinu kjör-
dænri. Frestur til þess rennur út í
næstu viku, þann 17., en gert er ráð
fyrir að deildirnar í hverju kjördæmi
hafi talsvert urn það segja hverjir
verði t framboði.
Náinn ráðgjafi Jóhönnu segir
sarnt augljóst að Jóhanna sjálf hafi
mest um það að segja hvernig list-
arnir komi til með að líta endanlega
út og hafi uppstillingarnefndina til
að styðjast við. Þá mun uppstiliing-
arnefndin alfarið stilla upp listanum
í Reykjavík og líklega einnig á
Reykjanesi.
Ein af þeirn vinnureglum, sem
uppstillingarnefndin rnun hafa til
hliðsjónar, er sú að konur verði í
öðru hverju sæti á listunum og leiði
listana í að minnsta kosti helmingi
kjördæmanna.
„Við erum öll sammála um að
stefna að því að hafa konur og ungt
fólk í efstu sætunum og höfum hvatt
Jóhönnu til þess,“ sagði náinn sanr-
herji hennar. Eins og staðan er núna
er ekki víst að hægt verði að uppfylla
síðartalda kvótann. En ef stíft verður
farið eftir þessari kvótareglu gæti
þurft að fórna frambjóðendum sem
taldir eru mjög frambærilegir en eru
ekki af réttu kyni.
Suðvesturland:
Efstu sætin frátekin
Þótt engar formlegar ákvarðanir
hafi verið teknar er frágengið að Jó-
hanna leiði listann í Reykjavík. Um
skipan listans að öðru leyti er ekki
fullljóst ennþá. Þeir kandídatar sem
einkum eru nefndir til sögunnar í
efstu sætin eru Ásta B. Þorsteins-
dóttir framkvæmdastjóri Þroska-
hjálpar, Þórunn Sveinbjarnardótt-
ir formaður Sóknar, Guðrúr, Ólafs-
dóttir meinatæknir og jafnvel Helgi
Pétursson. Þá segja heimildar-
menn í Reykjavík að ekki sé ólíklegt
að leitað verði til Bjarna Guðna-
sonar prófessors og fyrrum þing-
manns Samtaka frjálslyndra og jafn-
aðarmanna, um að hann taki sæti
ofarlega listanum. Ef hann er ekki
tilbúinn til þess er ekki ósennilegt að
honum bjóðist heiðurssætið.
Ólína Þorvarðardóttir staðfesti í
samtali við blaðið að hún hygði ekki
á framboð og það sama mun gilda
um Láru V. Júlíusdóttur.
Búast nrá við að sjá nöfn Jóhann-
esar Gunnarssonar, fram-
kvæmdastjóra Neytendasamtak-
anna, Páis Halldórssonar, for-
manns BHMR, einhvers staðar á
listanum og jafnvel Marðar Árna-
sonar og Kjartans Valgarðssonar,
fyrrverandi formanns Birtingar.
Á Reykjanesi er Ágúst Einars-
son, prófessor talinn sjálfkjörinn til
að verma efsta sætið en ennþá er á
huldu hverjir raðast þar fyrir aftan.
Nýtt fólk á vesturkjör-
dæmunum þremur
Á Vesturlandi koma tveir kandíd-
atar til greina í efsta sætið;
Runólfur Ágústsson, lögfræð-
ingur og lektor við Samvinnuháskól-
ann á Bifröst, og Sigurlín Svein-
bjarnardóttir, forstöðumaður Nor-
ræna skólasetursins, á Hvalfjarðar-
strönd. Runólfur, sem er nálægt þrí-
tugu, þykir rnjög frambærilegur og
„kemur sterklega til greina", eins og
heimildarmaður orðaði það. Kvóta-
reglan á kynin eykur þó líkurnar á
því að Sigurlín, sem er nokkru eldri
en Runólfur en á fertugsaldri, bjóðist
að leiða listann. Hún sagði spurning-
una ótímabæra þegr hún var innt eft-
ir því hvort hún væri tilbúin til að
setjast i fýrsta sætið.
Alþýðuflokksmaðurinn Sveinn
Þór Elínbergsson í Ólafsvík, sem
laut í lægra haldi fýrir Gísla S. Ein-
arssyni í prófkjöri AlþýðuUokksins,
var inni í myndinni, ekki síst út frá
þeirri kenningu, sem hefur nokkurn
stuðning, að sækja inn á svæði sem
hinir flokkarnir hafa vanrækt sem til
sanns vegar má færa unt Snæfellsnes-
ið. Sveinn Þór studdi Jóhönnu innan
flokksins en hefur nú ákveðið að taka
annað sætið á eftir Gísla.
Sigurður Pétursson, sagnfræð-
ingur, mun nánast örugglega fara
fýrir Þjóðvaka á Vestfjörðum. Hann
lýsti yfir í samtali við blaðið að hann
væri tilbúinn til þess en þó væri ekki
hægt að slá neinu föstu. Sigurður,
eins og eiginkona hans Ölína, hefur
verið einn af helstu stuðningsmönn-
um Jóhönnu. Þótt ekki sé búist við
að faðir hans, Pétur Sigurðsson
forseti Alþýðusambands Vestfjarða
og áhrifamaður innan Alþýðuflokks-
ins um áratugaskeið, gangi til liðs við
■ litið á hann sem stuðn-
ingsmann hreyfingarinnar og talið
öruggt að hann muni standa að baki
syni sínum að svo miklu leyti sem
hann getur án þess að styggja eigin
flokksbræður.
Sveinn Allan Morthens, for-
stöðumaður Svæðisstjórnar málefna
fatlaðra og fýrrum félagi í Birtingu,
sagðist vera reiðubúinn að taka efsta
sætlð í norðurlandskjördæmi vestra
þegar hann var inntur eftir því. Um
hann er breið samstaða og enginn er
talinn geta ógnað honum. Jón Sae-
mundur Sigurjónsson, fýrrverandi
alþingismaður er sagður hafa haft
nokkurn áhuga á efsta sætinu en þeg-
ar samband var haft við hann kom í
ljós að hann hefúr dregið sig í hlé og
ætlar ekki í framboð. Hann lýsti full-
um stuðningi við Svein Allan. „Mér
líst mjög vel á þann dreng,“ sagði
hann. Jón Sæmundur átti litla mögu-
leika eftir að Sveinn Allan gekk til liðs
við Þjóðvaka. Hann gerði árangurs-
lausa tilraun við síðustu kosningar að
halda þingsæti krata í kjördæminu
og þótti því ekki sérlega vænlegur
frambjóðandi.
Allt óljóst fyrir austan
Svanfríður Jónasdóttir forseti
bæjarstjórnar Dalvíkur, hefur svip-
aða stöðu í norðurlandskjördæmi
eystra og Sveinn Allan í því vestra.
Aðrir virðast ekki vera inni í rnynd-
inni þegar litið er til efsta sætisins.
Á Austurlandi gegnir öðru máli.
Enginn afgerandi frambjóðandi hef-
ur fúndist þar. Kratar hafa lengi átt
undir högg að sækja í kjördæminu
og enginn býst raunar við því að
Þjóðbvaki komi þar manni að. Lík-
legri niðurstaða er að framboð á
Austurlandi verði einungis til þess að
fella séra Gunnlaug Stefánsson,
krata, út af þingi.
Hringurinn lokast á Suðurlandi.
Þar rirðist vera nánast frágengið að
Þorsteinn Hjartarson, skólastjóri,
taki efsta sætið. Hann uppfýllir kröf-
una um að vera ungur og þrátt fyrir
kynjakvótann er ósennilegt að hrófl-
að verði við honum. „Það má vel
skoða það, já, en það er ekkert ákveð-
ið,“ sagði Þorsteinn þegar hann var
spurður hvort hann væri reiðubúinn
að leiða listann. Kona skipar væntan-
lega annað sætið og þar kemur
Ragnheiður Jónasdóttir til greina
þótt líklegra sé að hún verði neðar.
Hún var formaður kjördænrisráðs
Alþýðubandalagsins en sagði sig úr
flokknum eins og
flestum ætti að vera
í fersku minni.
Jóhanna Sigurð-
ardóttir vildi lítið
tjá sig um fram-
boðsmál Þjóðvaka
þegar rætt var við
hana í gær en sagði
að það færi að stytt-
ast í að þau mál
kæmust á hreint.
-SG
Katrín Theodórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Þjóðvaka, á sæti í
uppstillingarnefnd sen skipuð var
á þriðjudaginn og mikil leynd hvíl-
ir yfir. Jóhanna, Ólína Þorvarðar-
dóttir og Lára V. Júlíusdóttir sitja í
nefndinni með henni. Nefndin
hefur það hlutverk að stilla end-
anlega upp framboðslistum Þjóð-
vaka áður en stjórnin leggur
blessun sína yfir þá.
Ólína Þorvarðardóttir ætlar ekki
að gefa kost á sér í framboð en
áhrif hennar innan Þjóðvaka eru
eftir sem áður mikil. Sæti í upp-
stillingarnefndinni tryggir henni
þau, auk setu í kjörstjórn og und-
irbúningsnefnd eins og Jóhanna,
Katrín og Lára V.
Lára V. Júlíusdóttir gefur heldur
ekki kost á sér á framboðslista
Þjóðvaka. Athygli vekur að Jó-
hanna velur aðeins konur sem
koma úr Alþýðuflokknum í upp-
stillingarnefndina, sérstaklega í
Ijósi þess að margir Alþýðu-
bandalagsmenn hafa gengið til
liðs við hreyfinguna.
SlGURÐUR
PÉTURSSON
1. SÆTIÐ Á
VESTFJÖRÐUM.
SVANFRÍDUR
JÓNASDÓTTIR
1. SÆTIÐ Á NORÐ-
URLANDI EYSTRA.