Helgarpósturinn - 12.01.1995, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1995
MORGUNPÓSTURINN MANNLÍF
29
firðingar að rétta úr kútnum með
því að taka upp aukin menningar-
samskipti við Rússa! Rússneskir
dagar verða í Hafnarfirði frá 14. til
30. janúar. Á laugardaginn opnar
sýning á vatnslitaverkum eftir
ýmsa þekkta rússneska málara og í
tilefni þess mæta tveir þeirra Bug-
akov og Galatenko. Með þeim
koma tveir tónlistarmenn frá lýð-
veldinu Tatarstan, Rem Urasin pí-
Jói T. (eins og Jón Baldvin segir alltaf) Begg og
félagar í Hafnarfirði auka menningartengsl við
Rússland.
anóleikari og Vladimir Efimov
óperusöngvari sem munu troða
upp. Þá verður matreiðslumeistari
frá Tatarstan með í för og hann
mun kokka ofan í gesti Fjörunnar
meðan dagarnir standa yfir.
Björn Leifsson líkamsræktar- og
skemmtanakóngur er að færa út
kvíarnar en hann ætlar að flytja í 1400
fermetra húsnæði í Fellsmúla.
Baldur Bragason ræðir við Björn
um hvert hann stefni og þó ekki
síður hvaðan hann kom
Tilaðná
árangri
aðbo,
aðeins
meira
arf
riþé
W og dugir ekki til.“
W ^fc^F^fc^M Hvernig er það,
nú er jafnan talað
um World Class
sem einhverja
tískubúllu þar sem
enginn æfir nema feg-
urðardrottningar og vöðvabolt-
en skyr
Þetta er Björn Leifsson. Hann
er best þekktur sem eigandi og
rekstraraðili World Class líkams-
ræktarstöðvarinnar, Þjóðleikhús-
kjallarans og til skamms tíma Ing-
ólfscafé. Hann hefur fengið það orð
á sig að vera mikill bjartsýnismaður
sem sást best þegar hann bauðst til
að kaupa Sundlaugarnar í Laugar-
dal og ætlaði að breyta þeim í risa-
vaxna líkamsræktarnýlendu.
Hvaðan er Björn Leifsson?
„Flateyri. Sveitavargur.“
Hvað er strákur frá Flateyri að
gera með að reka líkamsræktar-
stöð í höfuðborginni, hvernig
kom það til?
„Það var nú þannig að eftir að ég
kláraði Vélskólann þá kom ég suð-
ur og starfaði sem vélstjóri hjá Eim-
skip en það var alltaf draumur að
komast í land. Ég hafði stundað
mikið íþróttir þegar ég var yngri,
mig langaði að stunda þær og heil-
brigt líferni. Ég fór í land og byrjaði
að lyfta lóðum og sóla dekk hjá
Gúmmívinnustofunni en langaði
að gera eitthvað sjálfstætt. Síðan
fannst mér þróunin á markaðinum
vera sú að það vantaði stöð og ég
asnaðist til að fara út í þetta, tók
stóran séns og hér er ég.“
Það hefur gengið upp?
„Já en það var mjög erfitt, fyrstu
tvö árin þá hafði maður varla í sig
og á. Við hlæjum oft að því félag-
arnir þegar ég leigði íbúð hér upp í
Fellsmúla, ég var með sjónvarp og
vídeótæki, eina dýnu á stofugólf-
inu, gamalt hjónarúm og hundrað
og tuttugu fermetra íbúð. Það var
bara ekki úr meiru að moða.“
Sérðu eftir einhverju?
„Nei, það held ég ekki.“
Sáttur við lífið og tilveruna?
„Já, mjög.“
Sérðu einhverjar breytingar í
líkamsræktargeiranum á næst-
unni?
„Þetta er náttúrlega alltaf að
verða fullkomnara og betra. Kröf-
urnar verða sífellt meiri hjá fólkinu,
það er í raun mjög erfitt að fylgja
því. Aðal vandamálið við þennan
rekstur er að það er alveg sama
hvað þú gerir, fólkið vill alltaf
meira. Það sem inn kemur getur
aldrei uppfyllt þær væntingar sem
fólkið gerir. I mínu tilviki til dæmis
þá er aldrei tekin króna út úr
rekstrinum, þetta fer allt í sjálft sig
„Þetta er mjög einfalt mál, við
höfum þjálfað fegurðardrottn-
ingar, við höfum verið mjög í
umræðunni hjá þessu „inn“ liði,
þó að enginn viti almennilega
hvaða lið það er. Þeir sem segja að
hér sé aðeins glansgallalið er und-
antekningarlaust fólk sem ekki hef-
ur komið hingað inn. Jafnframt
held ég að það hafi ekki komið inn
á neinn annan stað. Fólk finnur sér
alltaf afsökun til þess að fara ekki að
æfa ef það nennir því ekki. Okkar
auglýsingar í gegnum tíðina hafa
alltaf verið djarfar, af nánast berum
kroppum þar sem við höfum sett
undir að það séu ekki fötin sem
menn vilja heldur það sem þau
hylja.“
Því ber nú samt ekki að neita að
útsýnið er oft fallegt hérna.
„Það leynast náttúrlega alltaf
gullmolar innan um. Það er bara af
hinu góða.“
Hvað með markaðinn hér í
Reykjavík, hvernig eru samkeppn-
ismál, er þetta erfitt?
„Já ég myndi segja það, til dæmis
fjölgaði um þrjár stöðvar á síðasta
ári. Máttur er sú stöð sem er mér
hvað mestur þyrnir í augum, sök-
um þess að hún er á mjög slæmum
samkeppnisgrunni gagnvart okkur
hinum þar sem að niðurgreiðslur
eru mjög miklar. Stöðin fær alltaf
að mestu leyti það sem hún setur
upp fýrir kortin þó að viðkomandi
viðskiptavinur greiði ekki nema
niður undir helming af verðinu.
Þetta er mjög ósanngjörn sam-
keppnisaðstaða, þeir hafa aðgang
að öllum félagaritum, öllum lífeyr-
issjóðunum og þeim verkalýðsfé-
lögum sem standa að þeim. Þeir
eru sem sagt með sín kynningarit
inni á öllum heimilum hér í borg-
inni sér að kostnsðarlausu. Enda
hefur það sýnt sig að Máttur hefur
allt að helmingi meiri gestafjölda á
hverjum tíma heldur en World
Class, sem er næst stærsta stöðin.
Það er mjög erfitt að keppa á þess-
um grundvelli. Það er fullt af fólki
sem æfir hérna sem er hjá þessum
stéttarfélögum sem eru að greiða
niður með þeirra lífeyrissjóðum og
þeirra sjúkrapeningum líkams-
ræktarkostnaðinn í Mætti en fá
ekki niðurgreiðslur á sínum kort-
um hér. Þetta á náttúrlega ekki að
eiga sér stað. Ég tel að þetta standist
ekki samkeppnislög."
Er hægt að gera eitthvað í þessu?
„Já, já. Við erum búnir að skrifa
Samkeppnisstofnun bréf, ég ásamt
tveimur öðrum. Þetta er í athugun
núna. Að sjálfsögðu á að greiða
niður til allra ef það á að greiða nið-
ur til eins.“
Einhverjar breytingar í gangi
hjá þér, stefnir þú hærra?
„Já, við erum búin að festa okkur
húsnæði hér upp í Fellsmúla, þar
sem IKEA var með lagerinn sinn.
Verulega hentugt húsnæði, fjórtán-
hundruð fermetrar á einni hæð,
rúmt um bílastæði og við flytjum
stutt. Þetta eru ekki nema hundrað
og fimmtíu metrar hér upp brekk-
una. Þetta gefúr ýmsa möguleika,
við verðum með potta úti og jafn-
vel tennisvöll. Allt til alls."
Enn einn sénsinn?
„Enn einn sénsinn. Þetta er nátt-
úrlega þvílíkt glapræði að fara út í
þetta að maður ætti varla að tala
um þetta. Ég veit ekkert hvernig ég
á að fara að þessu, þetta reddast
einhvern veginn,“ segir Bjössi og
hlær dátt.
Hvernig fór með sundlaugar-
málið fræga, hvað kom til að það
gekk ekki í gegn?
„Það var bara pólitík. Ég er
nokkuð viss um að ákveðnir aðilar
hafi unnið ákaft gegn því að þetta
yrði að veruleika. Þessu var alfarið
hafnað fyrir rest án þess að neinar
forsendur væru gefnar aðrar en þær
að það mætti ekki byggja í dalnum
sökum skuggamyndunar, þrátt fyr-
ir að ég byðist til að byggja allt neð-
anjarðar. Það mátti heldur ekki og
engar skýringar gefnar. í dag eru
forkólfarnir farnir að nota hluta af
mínum hugmyndum í þessar fram-
kvæmdir sem eiga sér stað þarna í
dalnum. En í dag er staðan sú að
það þarf að endurbyggja þessa laug,
hún er skemmd og síðan þarf að
byggja þessa innilaug sem þeir hafa
áformað. Það er ekki vænlegur
kostur að koma nálægt þessu í dag
sökum þess að það verða bygginga-
framkvæmdir þarna næstu fjögur,
fimm árin. Sem þýðir að það verð-
ur ekkert fólk þarna heldur loft-
hamrar og hamarshögg allan dag-
mn.
Umræðan um lyfjanotkun
íþróttamanna á síðastliðnum
þremur, fjórum árum ásamt
reglubreytingum um lyf, eyðilagði
þetta sportið?
„Mér finnst svokölluð Body-bu-
ilding eða vaxtarrækt hafa að miklu
leyti dáið, þetta eru í raun mjög fáir
einstaklingar. Það kemur til bæði
vegna umræðunnar og sökum
þeirrar staðreyndar að til þess að ná
töluverðum árangri þá þarf fólk að
borða eitthvað aðeins rneira en
bara skyr. Þá er ég að tala um þá
sem ætia sér að líta hrikalega út,
eins og þeir segja. Það gæti verið til
sá einstaklingur sem gæti náð svona
árangri án lyfja en þeir eru fáir.
Margir af þessum strákum sem
voru að fikta við þetta eru hættir
þessu vegna þess að þetta var ekkert
spennandi lengur, stelpurnar litu
ekki eins mikið við þeim og þeir
héldu. Málið er að vera fitt.“
Hvað fannst þér um kosning-
una á Iþróttamanni ársins, það að
þolfimimaður væri kosinn í nafni
fimleikafélags?
„Mér finnst gott að þolfimin fái
þennan sess í hugum landsmanna
en hvað mitt persónulega álit er,
það skulum við láta liggja á milli
hluta. Vonandi gefur þetta þolfim-
inni byr undir báða vængi og ég er
mjög ánægður í raun og veru fyrir
hönd míns sambands að það sé
keppandi og sigurvegari frá okkar
sambandi sem hlýtur þennan heið-
ur. Það hlýtur að vera viðurkenn-
ing á okkar störf.“ Yfir andlit Bjössa
smýgur sá prakkaralegasti svipur
sem blaðamaður hefur séð og
Bjössi getur ekki stillt sig um að
skella upp úr.
Flugfélagið Loftur hélt öllum aðstandendum „Hársins"
mikla veislu síðastliðið mánudagskvöld í tilefni af því
að sýningum er nú lokið
fyrir fullu húsi. Veislan
fór fram í Hraunholti í
Hafnarfirði og var kara-
ókíkerfi hússins þraut-
reynt enda miklir söng-
fuglar í hópnum.
Rík ástæða var
til að fagna því að þessi
uppfærsla í leikstjórn
Baltasar Kormáks
naut fádæma vinsælda
og urðu sýningar alls 86 — 87 með þeirri sem
Hilmir Snær hné niður á vegna ofþreytu. Áætlað er
að um 40 þúsund manns hafi séð Hárið í
íslensku óperunni og platan með tónlist úr þessari
sömu sýningu fór hátt í sjö þúsund eintaka sölu
/1
Ríkissjónvarpið Stöð2 W
Fimmtuoagur
17:00 Fréttaskeyti
17.05 Leiðarljós
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Stundin okkar (e)
18.30 Fagri-Blakkur
19.00 Él
20.00 Fréttir, íþróttir og veður
20.40 Syrpan
21.15 Óisenliðið fer út í heim
Sprell.
23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok
FÖSTUDAGUR
17.00 Fréttaskeyti
17.05 Leiðarljós
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Bemskubrek Tomma og
Jenna
18.25 Úr ríki náttúrunnar
19.00 Fjör á fjöl-
braut
20.00 Fréttir,
íþróttir og veður
20.40 Kastljós
21.10 Ráðgátur
(5:22)
Mjög fínn amer-
ískur fram-
haldsþáttur um
FBI og geimver-
ur. Jaðrar við
að slefa upp í
Twin Peaks.
22.05 Skin og
skúrir (1:2)
Ævintýri ungs
kvenlæknis á
afskekktri eyju.
23.40 Brian May
á tónleikum
Lengi getur
vont versnað.
00.40 Útvarpsfréttir í dagskráriok
Laugardagur
09.00 Morgunsjónvarp barnanna
10.50 Hlé
13.00 Á tali hjá Hemma (e)
14.00 Kastljós (e)
14.25 Syrpan (e)
14.55 Enska: Blackburn - Nott-
hingham Forest
16.50 Ólympíuhreyfingin í 100 ár
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Einu sinni var...
18.25 Ferðaleiðir (Stórborgir)
19.00 Strandverðir (7:22)
20.00 Fréttir og veður
20.35 Lottó
20.40 Hasar á heimavelli (18:22)
21.10 Skin og skúrir (2:2)
22.50 Tortímandinn II
Sko innkaupadeildina! Nú er það
hið stranglega bannaða meistara-
verk Arnolds sem fær mann til að
hanga heima í kvöld, eða að ýta á
tæmerinn.
01.00 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
SUNNUDAGUR
09.00 Morgunsjónvarp barnanna
10.20 Hlé
13.35 Eldhúsið (e)
14.00 Markaregn
15.00 Frumlegir leikstjórar
16.30 Ótrúlegt en satt
17.00 Ljósbrot
17.40 Hugvekja með Ragnheiði
Daviðsdóttur
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Stundin okkar
18.30 SPK
19.00 Borgarlíf (2:10)
19.25 Fólkið í forsælu (26:26)
Þá lýkur þessari hörmung loksins
og öðru eins hefur verið skálað fyr-
ir.
20.00 Fréttir, fþróttir og veður
20.40 List og lýðveldi
Enn eitt innleggið. Nú eru það
kvikmyndir, sjónvarp og útvarp
með Sigurbirni Aðalsteinssyni.
21.40 Draumalandið (15:15)
Öðru drasli lýkur.
22.30 Helgarsportið
22.35 Af breskum sjónarhóli (2:3)
00.15 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
Fimmtudagur
17.05 Nágrannar
17.30 Með Afa (e)
18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn
19:19 19:19
20.15 Sjónarmið
20.45 Dr. Quinn
21.35 Seinfeld
22.00 Hulin sýn
Blind vision Spennumynd um feim-
inn skrifstofumann sem breytist í
gluggagægi og skáld á kvöldin.
23.30 Ung í anda
The Young in Heart Auðnuleysingj-
ar setjast upp á gamla kerlingu.
01.05 Svik á svik ofan (e)
02.50 Dagskrárlok
Föstudagur
16.00 Popp og kók (e)
17.05 Nágrannar
17.30 Myrkfælnu
draugarnir
17.45 Ási einka-
spæjari
18.15 NBA-tilþrif
18.45 Sjónvarps-
markaðurinn
19.19 19:19
20.20 Eiríkur
20.45 Kafbátur-
inn (22:23)
21.35 Sugarland
Express
Nokkuð fyndin
spennumynd
með Goldie
Hawn. Þetta er
fyrsta myndin
sem Spielberg
leikstýrði en
samt ekki búast
við risaeðlum.
23.25 Naked Lunch
Hundleiðinleg sýra gerð eftir sögu
rugladallsins William S. Burrough.
Það skilur enginn neitt í þessari
þvælu nema þau fífl sem hafa haft
úrkynjaða nennu til að lesa skáld-
verkið a.m.k. fimm sinnum — s.s.
enginn sem horfir á Stöð 2.
01.20 The Big Slice
02.45 Finest Hour
04.25 Dagskrárlok
Laugardagur
09.00 Barnaefni
12.00 Sjónvarpsmarkaðurinn
12.25 Lífið er list (e)
12.50 Aftur til Bláa lónsins
14.35 Úrvalsdeildin
15.00 Blettatígurinn
16.20 fskaldur
Cool as lce með Vanilla lce: drasl.
17.45 Popp og kók
18.40 NBA-molar
19.19 19.19
20.00 Fyndnar fjölskyldumyndir
20.30 Bingó lottó
21.40 Faðir brúðarinnar
Father of the Bride Um vanda for-
eldra þegar „ungarnir detta úr
hreiðrinu". Með Steve Martin sem
hefur ekki gert neitt af viti í mörg
ár.
23.25 Saklaus maður
Spennumynd um flugvirkja.
01.15 Ástarbraut
01.40 Dead Bolt
03.10 Salome's Last Dance
04.35 Dagskrárlok
SUNNUDAGUR
09.00 Bamaefni
12.00 Á slaginu
13.00 fþróttir á sunnudegi
16.30 Sjónvarpsmarkaðurinn
17.00 Húsið á sléttunni
18.00 f sviðsljósinu
18.45 Mörk dagsins
19.19 19.19
20.00 Lagakrókar
20.50 Kjamorkukona
Afterburn Baráttusaga: kerlinga-
mynd.
22.35 60 minútur
23.20 Overruled
00.50 Dagskrárlok
Hvað er
í sjón-
varp inu?
„Hœ strákar. Við erum tvær eld-
hressar á lausu 20 og 22 ára og
óskutn eftir að kynnast karl-
mönnum á aldrinum 24 til 30
ára. Áhugamál okkar eru
djamm og tjútt. Efþið hafið
áhuga ýtið þá á 1, munið 100
prósent trúnaður.“
)ér á Stefn u m ótalín u n n i