Helgarpósturinn - 16.01.1995, Síða 2

Helgarpósturinn - 16.01.1995, Síða 2
2 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 1995 Hvers vegna varþað rétthjájóni Baldvini aðtala ekki við kanadíska sjávarútvegsráðherrann ■ I fyrsta lagi Til hvers að tala við mann sem hefur ekkert á bak við sig? Það er enginn fiskur við Kan- ada. Hann er allur bú- inn. Það er því álíka merkiiegt að vera s]áv- arútvegsráðherra í Kan- ada og að vera námumálaráðherra á Is- landi. Guð einn má vita hvað þessi Brian Topin hefur gert af sér í kanadiskum stjómmálum úr því hann var settur í þetta starf. f öðru lagi Jón er töff. Jón lætur engan vaða yfir sig. Á sínum tíma lýsti hann því yfir að hann hefði „ gengið beint upp í flug- . vél og burt úr ísrael ef hann hefði fengið Mik- ■ son-bréfið sem Davíð Oddsson tók við — þrátt fyrir að seinna hafi komið í Ijós að sú flugvél væri aðeins í stoppi í Jerúsalem og væri á leið til Jó- hannesarborgar. Hvað um það, svona töffaraháttur er miklu meira smart en endalausar viðræður og leit að sam- komulögum. Það er fyrir kerlingar eins og Þorstein. í þriðja lagi Jón gleymdi að tala við Kanadamenn um hags- muni íslendinga við Svalbarða. Og nú þeg- ar.skaðinn er skeður er um að gera að láta llta út fyrir að það hafi verið Kandamenn sem klikk- uðu. Maður á aldrei að taka á sig neina sök nema maður sé tilbúinn að bera hana — eða í tilfelli Jóns, geti borið hana. f fjórða lagi Þetta með samning Kandamanna og Norð- manna er vont mál. Þess vegna fer best á því að Þorsteinn sitji uppi með það. Þeir sem vasast of mikið í vondum málum skítna út. Það lærði Jón á Guðmundi Árna. I' fimmta lagi Jón veit hver er munur- inn á sjávarútvegsráð- herra og utanrikisráð- herra. Alveg eins og „ hann vissi muninn á ut- ■ anríkisráðherra og for- sætisráðherra þegar - Davið bauð Peres hing- að um árið. Utanríkisráðherrar eiga að bjóða utanríkisráðherrum hingað og láta aðra ráðherra í friði. Og það sama á að gilda um aðra ráðherra. Þeir eiga að láta utanríkisráðherrana I friði. Þegar Peres kom fór Jón til ísafjarðar og dvaldi þar á hótelinu. Hann vill bara tala við utanríkis- ráðherra og hann vill að aðrir ráðherrar láti sina utanrikisráðherra í friði. Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði leita leiða til að ná flokksbrotunum saman „Það er ekki tímabært að tala unt þetta á þessu stigi. Ef þetta er í al- vöru hjá mönnum þá mun það koma í ljós. Þeir hafa ekki rætt þetta við mig ennþá," sagði Jó- hann G. Bergþórsson, bæjar- stjórnarfulltrúi sjálfstæðismanna, í gærkvöldi þegar hann var spurður að því hvaða möguleikar væru á því að hann sættist við fyrrum félaga sína í Sjálfstæðisflokknum. Ýmsir af forystumönnum sjálf- stæðismanna í Hafnarfirði hafa verið sagðir vinna að því að koma á sáttum. Eru þar einkurn nefndir til þeir Þórarinn Jón Magnússon, formaður fulltrúaráðsins, og Árni Grétar Finnsson, hæstaréttarlög- maður og fyrrum bæjarstjórnar- fulltrúi. Þeir staðfestu báðir að þeir Þórarinn Jón Magnússon og Árni Grétar Finnsson hafa unnið að því að ná sáttum við Jóhann G. Bergþórsson. sæju sáttarmöguleika í stöðunni en málið. vildu að öðru leyti ekki tjá sig um Eftir því sem næst verður komist telja menn að Jóhann sé nú mun einangraðri í flokknum en hann hafi gert sér grein fyrir þegar hann hóf aðgerðir sínar. Varð það hon- um meðal annars þungt í skauti þegar Árni Grétar bar upp tillögu á fundi fulltrúaráðsins í Hafnarfirði síðastliðinn miðvikudag um að lýsa yfir stuðningi við Magnús Gunn- arsson og aðra bæjarstjórnarfull- trúa. Árni Grétar hefur verið kall- aður guðfaðir Jóhanns í bæjar- stjórnarpólitík og hafði Jóhann lengi vel treyst á stuðning hans. Sömuleiðis hafa harkaleg viðbrögð flokksforystu Sjálfstæðisflokksins, með þá Davíð Oddsson og Fririk Sophusson í broddi fylkingar, ein- angrað Jóhann enn frekar og hefur Jóhann meðal annars ekki getað fundið neinn af lista sjálfstæðis- manna til að vera varamaður sinn ef til hugsanlegra viðræðna við krata kæmi. Það kom fram hjá sjálfstæðis- mönnum að þeir telja útilokað að Jóhann myndi nýjan meirihluta með Alþýðuflokknum, kratar treysti sér einfaldlega ekki til þess. Því sé valið í raun á milli þess að sætta Jóhann og halda áfram nú- verandi samstarfi eða sjá á effir Al- þýðubandalaginu inn í samstarf við krata. „Átta ára eyðimerkurganga í stjórnarandstöðu hér í Hafnarfirði ætti að ýta á eftir því að við næðum sáttum við Jóhann,“ sagði forystu- maður í Sjálfstæðisflokknum í Hafnarfirði. -SMJ Jóhann einangraður og sáttarhuaur í mönnum Kolvitlaust veður um land allt og snjóflóðahætta víða Ertt versta veður sem sést hefur í vetur í gærkvöldi var versta veður um land allt — snjókoma og skafrenn- ingur og Hörður Þórðarson veð- urfræðingur á ekki von á breyting- um næsta sólarhringinn. Hann var- ar jafnframt við snjóflóðahættu víða um land. Hörður sagði enn- fremur í samtali við MORGUNP- ÓSTINN að það væri mjög óvenju- legt að norðanáttinni fylgdi snjó- koma en lægðinni sem hefur stað- næmst yfir landinu fylgir mikill raki. Líldegt má teljast að það verði kolófært víðast hvar og samkvæmt Vegagerð ríkisins í gærkvöldi voru vegir ófærir á öllum Vestfjörðum, norðurleiðin var ófær og á Austur- landi var ófært um Oddskarð. Sunnanlands var verulegur skaf- renningur og færð tekin að þyngj- ast. Má búast við því að rnargir komist ekki til vinnu í dag og að at- vinnulífið lamist að nokkru af þeim sökum. Síðdegis í gær felldu Flug- leiðir niður allt flug og verður að teljast ólíklegt að flogið verði í dag. Þungfært var í Reykjavík í gær- kvöldi og menn héldu sig inni að mestu. Þó voru nokkrir sem létu veðrið ekki á sig fá, það var allavega að skilja á þjóni nokkrum í Perl- unni sem sagði alla mætta í Galad- innerinn sem slær umdeilda vín- sýninguna af. Starfsmaður Há- skólabíós sagði að það væru um 300 gestir mættir á níu-sýningar bíósins en það er talsvert minna en á hefðbundnu sunnudagskvöldi. Stjórnstöð Slysavarnafélagsins hafði ekki fengið neinar hjálpar- beðnir um áttaleytið í gærkvöldi og sögðu að engar fréttir væru góðar fréttir hjá þeim. Allt væri í sóman- um bæði til sjós og lands þrátt fyrir óveðrið. Eina sem hefði komið upp á væri að björgunarsveitin Kyndill í Mosfellsbæ fór til að aðstoða bíl sem fór útaf í nágrenninu og gekk hjálparstarf vel. Mikill viðbúnaður var þó í gær vegna veðurs og var búið að kalla allar björgunarsveitir út og voru þær í viðbragðsstöðu. JBG Snjóstormur var ríkjandi í gær- kvöldi og á norðvesturlandi gæti vindhraði farið upp í 11 stig í dag sem er með almesta móti. íinnst þér sanngjamt aö Matti fái húsaJeigustyrk af því hann býr á skrifstofu tryggingafélagsins. Ég veit ekki, eftir skipti mín við tryggingafélög veit ég ekki hvort ég myndi vilja búa þama - jafnvel þótt ég fengi Eggert Haukdal í framboðsraunum „Misskilningur" segir Eggert. „Þetta er einhver misskilningur. Það er ekkert vandamál að fá fólk á listann og ég verð því að hryggja úr- tölumenn þína með því,“ sagði Eggert Haukdal alþingismaður en því hefur verið haldið fram að hon- um gangi illa að finna menn til að fylla lista sinn við framboð á Suð- urlandi. Eggert segir þetta fjarri lagi - vinna við framboð hans gangi þvert á móti vel og enginn vandi sé að finna þá tólf einstaklinga sem hann þurfi á listann. En getur hann nefnt tvo fram- bjóðendur með sér? „Ég nefni engan, það verður birt á réttum tíma.“ ■ Listi Alþýðubanda- lags á Austurlandi Tilkynntur á miðvikudag Uppstfllingarnefnd Alþýðubanda- lagsins á Austurlandi vinnur nú hörðum höndum að því að ganga frá niðurröðun á lista flokksins í kjör- dæminu. Björn Vigfússon, sem á sæti í uppstillingarnefnd flokksins, segir að fyrirhugað sé að tilkynna list- ann næsta miðvikudag. Aðspurður hvort einhver átök hafi verið milli manna um niðurröðunina svarar hann: „Þetta fer allt ffam með ffiði og spekt og ég á ekki von á miklum breytingum." Síðustu 17 ár hefúr Hjörleifur Guttormsson verið þing- maður Alþýðubandalags á Austur- landi og bendir svar Björns til að Hjörleifi verði ekki hnikað úr efsta sæti listans í kjördæminu. -jk

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.