Helgarpósturinn - 16.01.1995, Blaðsíða 9
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
9
MANUDAGUR 16. JANUAR 1995
Eiríkur Smith lauk nýlega við að mála mynd af herra Ólafi Skúlasyni og var
ánægður með frammistöðu biskupsins
„Verst að hann
er svo stór“
Það er löng hefð fyrir því að
fengnir séu listmálarar til að vinna
portrett af biskupum Islands og nú
hefur Eiríkur Smith nýlega lokið
við eitt slíkt af herra Ólafi Skúla-
syni og prýðir það nú ný og glæsi-
leg híbýli Biskupsstofu við Lauga-
veg. Það vekur hins vegar athygli að
forveri herra Ólafs, herra Pétur
Sigurgeirsson er enn ekki kominn
upp á vegg. „Því miður vantar for-
vera minn,“ segir Ólafur, „og ég er
búinn að vera að margrekast í því
að verkinu verði lokið. Það var drif-
ið í að setja málið í framkvæmd fýr-
ir fimm árum og þá byrjaði Pétur
að sitja fyrir en verkið hefur gengið
hægt. Ég var svolítið smeykur við
að vera eiginlega að þjófstarta þetta
og Eiríkur var svo duglegur að
hann var búinn áður en ég átti von
á og þá var ekki um neitt að gera
annað en að koma henni fyrir. En
ég er að vona að þetta verði til þess
að það komist gangur í málið.“
Og þegar MORGUNPÓSTURINN
hafði samband við herra Pétur kom
það einmitt á daginn. „Málara-
meistarinn, Sigurður Sigurðsson
listmálari, er að leggja lokahönd á
verkið sem verður væntanlega af-
hjúpað á næstu dögum og mun
bætast í málverkasafn Biskups-
stofu. „Já, já, það var ánægjuleg
samvinna og hann hefur vandað sig
við verkið,“ sagði herra Pétur í
samtali við blaðið.
Ólafur er n. Reykjavíkurbiskup-
inn frá Geir Vídalín. Hannes
Finnsson fór aldrei frá Skálholti þó
að samþykkt væri eftir jarðskjálff-
ann að eitt biskupsdæmi skyldi vera
sem sameinaði Hóla og Skálholt og
búseta biskups yrði í Reykjavík.
Fyrstu málverkin af biskupunum
eru máluð eftir ljósmynd og öll
með sömu áferðinni. En síðustu
fjögur málverkin hafa verið unnin
með öðrum hætti. Herra Ólafur er
mjög ánægður og hló við þegar
hann var spurður hvernig það væri
að vera módel.
„Eiríkur fór fagmannlega að
þessu og réði hlutföllum og í hverju
ég var,“ en Ólafur er einn biskupa
sem er í biskupakápu á myndinni.
„Hinir hafa allir verið eingöngu í
hempum. Ég er þarna í forláta bisk-
upakápu sem Sigrún Jónsdóttir
listakona vann og gaf biskupsemb-
ættinu. Mjög fallegur og dýrmætur
gripur. Jú, jú, ég hélt að þetta yrði
miklu erfiðara og leiðinlegra en Ei-
ríkur spjallaði bara í rólegheitum
við mig og lét mig ekkert sitja allt of
lengi í sömu stellingunni. Þetta
gekk furðuvel fyrir sig því þetta var
vitanlega mín fyrsta reynsla sem
módel."
Ólafur telur þetta prýðilegt lista-
verk burtséð frá fyrirmyndinni og
að Eiríkur hafi þarna unnið mjög
gott verk.
Eiríkur Smith segir það ákaflega
sérhæfða vinnu að mála portrett og
málarinn þurfi helst að búa yfir
góðri tækni í bland við að hafa nef
fýrir karakter manna. „Menn eru
undir ströngum aga þegar þeir taka
að sér slíka vinnu því allir eru þess
umkomnir að gagnrýna hana og
málarinn leggur sig undir þá krítík.
Herra Olafur Skúlason við málverk af sjálfum sér eftir Eirík Smith.
„Þetta gekk furðuvel fyrir sig því þetta var vitanlega mín fyrsta reynsla
sem módel.“
Það er eitthvað að ef enginn þekkir
fýrirmyndina." Eiríkur segir ekki
marga sem fást við það að gera
portrett en það sé alltaf eitthvað um
það og tengist þá gjarnan hefð eins
og hjá Biskupsstofu og ýmsurn fýr-
irtækjum. Aðspurður sagði Eiríkur
að það hefði verið mjög gott að eiga
við Ólaf sem módel enda Ólafur al-
veg sómamaður. „Það er verst að
hann er svo stór að ég er alveg eins
og fermingardrengur við hliðina á
honum." Það fóru um tveir mán-
uðir í það að mála Ólaf þó að Eirík-
ur þori ekki að fara með það ná-
kvæmlega. „Ekki vil ég ljúga upp á
biskupinn,“ segir Eiríkur en hann
tekur sér góðan tíma þegar hann
fær slík verkefni í hendurnar. „Ég
vil ekki vinna þetta með neinum
látum og læt þorna vel á milli.“
-JBG
Ölvaður á vélsleða
Lögreglan á Dalvík náði í skott-
ið á ökumanni vélsleða aðfaranótt
laugardagsnótt þar sem frést hafði
af honum ölvuðum og réttinda-
lausum á ferð. Að sögn lögregl-
unnar á Dalvík fékk hún vísbend-
ingu um ferðir hans og gátu þeir
því setið fýrir honum. Var öku-
maðurinn, sem var á eigin sleða,
með farþega með sér. Segir lög-
reglan að venju fremur erfitt að
góma vélsleðamenn þar sem þeir
aki yfirleitt á mikilli ferð. En það
hafi þó tekist í þetta sinn, enda
hafi þeir bókstaflega „stokkið“ á
hann. ■
Hefurðu kíkt í geymsluna nýlega? Er hún kannski
orðin full af kompudóti sem þú hefur engin not fyrir
og gæti gefið þér góðan pening í Kolaportinu.
SÉRSTAKUR AFSLÁTTURÁMMv^
.ó dag fyrír þá sem selja kompudót um
TAKMARKAÐUR
FJOLPI SOLUBASA
Hafðu samband og 4AEAllfl
tryggðu þér pláss í Sima OZðlhSU
KOIAPORTIÐ
ALMENNIR FLOKKAR - FRISTUNDANAM
íslenska:
íslenska, stafsetning og málfræði.
ítarleg yfirferð.
íslenska fyrir útlendinga I, II, III, IV
(í I. stig er raðað eftir þjóðerni
nemenda)
íslenska fyrir útlendinga í - hraðferð.
Kennt fjögur kvöld í viku.
Erlend TVtngumál:
(Byrjenda- og framhaldsnámskeið)
Danska. Norska. Sænska.
Enska. Þýska. Hollenska. Franska. Italska.
Spænska. Portúgalska. Latína. Gríska.
Búlgarska. Pólska. Tékkneska. Rússneska.
Japanska. Hebreska, Arabíska. íranska.
Talflokkar í ýmsum tungumálum. Áhersla lögð
á tjáningu daglegs máls, lesnar smásögur,
blaðagreinar o.s.frv.
Aðstoð við skólafólk:
Stærðfræði á grunnskóla- og
framhaldsskólastigi. Nemendur mæta með
eigið námsefni og fá aðstoð eftir þörfum.
Fámennir hópar.
Stafsetning og málfræði. ítarleg yfirferð.
Enska á grunnskólastigi.
Verklegar greinar:
Fatasaumur. Bútasaumur.
Batik. Myndvefnaður.
Skrautskrift. Postulínsmálun.
Bókband. Stjörnuspeki.
Silkimálun. Glerskurður.
My ndlis tarnámskeið:
(byrjenda og framhaldsnámskeið)
Teikning. Málun. Módelteikning. Teikning
og litameðferð fyrir 13-16 ára.
Olíulitamálun.
Námskeið fyrir börn:
Danska. Norska. Sænska. Þýska.
Fyrir 6-10 ára gömul börn til að viðhalda
kunnáttu þeirra í málunum.
Byrjendanámskeið í þýsku.
Ný námskeið:
Trúarbragðasaga - yfirlitsnámskeið: Fjallað verður um
helstu trúarbrögð heims. Kennari: Dagur Þorleifsson.
Námskeið um þjóðerni, þjóðernishyggju og
kynþáttahyggju. Kennari: Unnur Dís Skaptadóttir.
Stjörnuspeki: Leiðbeint í gerð stjörnukorta og túlkun
þeirra. Kennari: Þórunn Helgadóttir.
Listasaga: Fjallað verður um helstu tímabil listasögunnar
frá upphafi myndgerðar fram á okkar daga. Kennari
Þorsteinn Eggertsson.
Svæðanudd: 60 stunda námskeið. Kennari: Gunnar
Friðriksson.
Glerskurður: Kennari: Ingibjörg Hjartardóttir.
Olíulitamálun: Kennari: Þorsteinn Eggertsson.
Módelteikning: Kennari: Kristín Arngrímsdóttir.
í almennum flokkum er kennt einu sinni til tvisvar í viku, ýmist tvær, þrjár eða fjórar kennslustundir í senn. Námskeiðin standa yfir í 4-11 vikur.
Kennslugjald fer eftir stundafjölda og er haldið f lágmarki. Það skal greiðast við innritun. Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla og Gerðubergi.
Innritun fer fram í Miðbæjarskóla, Fríkirkjuvegi 1, dagana 18. og 19. janúar klukkan 17:00 - 20:00.
Nánari upplýsingar í síma 12992 og 14106.
Kennsla hefst 30. janúar.