Helgarpósturinn - 16.01.1995, Blaðsíða 4
4
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 1995
Skýrsla Samkeppnisstofnunar um samþjöppun valds og fákeppni
Ríkið reyndist
stærsti kolkrabbinn
Ökumaður
í Kópavogi
Féll niður
þtjámetra
Ökumaður á bifreið sinni féll
hátt í þrjá metra er hann ók fram af
brúnni við Kársnesbrautina í
Kópavoginunr á fimmta tímanum í
gærdag. Ökumaðurinn, sem var
kona, lenti á bifreiðinni á gang-
brautinni fyrir neðan brautina. Var
konan flutt á slysadeild en mesta
mildi að ekki fór verr og fékk hún
að fara heim að aflokinni skoðun.
Bíllinn er hins vegar mikið
skemmdur. Er slysið rakið til mik-
illar hálku sem var á vegunum í
gær. ■
Ungur drengur
í Gnoðarvogi
Féll niður af
bílskúrsþaki
Ungur drengur féll niður af bíl-
skúrsþaki um hádegið í Gnoðar-
voginum í dag. Var hann í kjölfarið
fluttur í sjúkrabifreið á slysadeild.
Að sögn lögreglunnar í Reykjavík
var ekki vitað til þess að hann hafi
hlotið alvarlega áverka af. ■
Óveðursárekstrar
við Vesturlandsveg
Fimm bfla
árekstur
Fimm bifreiðar runnu hver á
aðra á Vesturlandsvegi við Leir-
vogsá rétt fyrir klukkan þrjú í gær-
dag. Skömmu áður runnu þrjár bif-
reiðar saman á Vesturlandsvegi við
Hulduhóla og tvær aðrar á sama
stað um svipað leyti. Engin slys
urðu á mönnum, en eru allir þessir
árekstrar raktir til óveðurs sem þá
var skollið á í Reykjavík. ■
Reykjavík síðla
sunnudags
Fimmá
slysadeild
Rétt rúmlega fjögur í gærdag
skullu tvær bifreiðar saman á horni
Dalbrautar og Sæbrautar með þeim
afleiðingum að farþegar úr báðum
bifreiðunum og auk ökumanns úr
annarri voru allir fluttir á slysa-
deild. Áverkar allra reyndust
minniháttar.
Þá ók maður bifreið sinni á staur
við Seljabrautina laust fyrir klukk-
an sjö í gærkvöld. Bæði ökumaður
og farþegi hlutu nokkur meiðsl af,
einkum ökumaðurinn sem var með
áverka á höfði, hálsi og öxl. Farþeg-
inn var hins vegar slasaður á fæti.
Báðir voru þeir enn undir læknis-
höndum þegar síðast fréttist af
þeim í gærkvöld. ■
Samkvæmt bráðabirgðaákvæði
samkeppnislaga sem samþykkt
voru í upphafi árs 1993 var Sam-
keppnisstofnun falið að gera úttekt
á samkeppni hér á iandi með sér-
stöku tilliti til samþjöppunar valds
og hringamyndunar. Þetta var
ákvæði sem Steingrímur J. Sig-
fússon alþingismaður fékk fellt
inn í lögin. Hefur tilgangurinn með
þessu ákvæði verið kynntur þannig
að það sé til að meta umsvif „kol-
krabbans“ í íslensku viðskiptalífi.
Varð þetta að samþykki til að koma
frumvarpinu í gegnum þingið og
samþykkt með öllum atkvæðum
gegn atkvæði Björns Bjarnason-
ar.
Samkeppnisstofnun hafði tvö ár
til að vinna skýrsluna og skilaði
hún Sighvati Björgvinssyni við-
skiptaráðherra skýrslunni á gaml-
ársdag. Hún er núna í prentun og
Steingrímur J. Sigfússon bað um
skýrsluna en segist hafa óttast
ósjálfstæði skýrsluhöfunda.
verður síðan lögð fram á alþingi
þegar það kemur saman. Sam-
kvæmt heimildum MORGUN-
PÓSTSINS kemur meðal annars
fram í skýrjlunni að ríkið er ótrú-
lega umsvifamikið, með um það bil
100 milljarða króna eignir í við-
skiptalífinu. Ríkið teygir anga sína
víða og er bent á það í skýrslunni að
þegar ríkið seldi hlut sinn í SR-
mjöli þá voru fyrirtæki, sem eru að
stórum hluta til í eigu ríkisins,
meðal stærstu kaupenda! Niður-
staðan er því sú að þó að ríkið hafi
selt þá er fyrirtækið enn að stórum
hluta til í eigu ríkisins.
Megin niðurstaðan mun hins
vegar vera sú að þrátt fyrir allt sé
lítil sem engin hætta á fákeppni og
of mikilli samþjöppun valds í ís-
lensku viðskiptalífi.
Það kemur þó fram að helstu
valdablokkirnar eru auk ríkisins
„kolkrabbinn“ svonefndi sem
tengdur hefur verið í kringum sam-
göngufyrirtæki, tryggingafýrirtæki
og önnur slík fyrirtæki. Þá kemur
einnig fram að „smokkfiskurinn“
er einnig umsvifamikill og myndar
að hluta til andsvar við kolkrabb-
ann.
Skýrslan mun bjóða upp á það að
hver og einn geti túlkað niðurstöð-
ur hennar sér í vil; það er að segja,
þeir sem óttast samþjöppun valds
finna eitthvað við sitt hæfi og einn-
ig þeir sem telja ekki ástæðu til að
óttast. Skýrslan sjálf mun ekki kalla
eftir sérstökum aðgerðum.
í skýrslunni kemur þó fram að
umsvif bankanna eru mikil og sí-
fellt að aukast, til dæmis með því að
eignarhald á kaupleigu- og fjár-
mögnunarfyrirtækjum hefur mikið
færst til bankanna. Þá eru lífeyris-
sjóðirnir gagnrýndir í skýrslunni
fyrir kaup sín í fyrirtækjum og aðr-
ar fjárfestingar þeirra sem oftar en
ekki hafa í för með sér stjórnarsetur
forráðamanna lífeyrissjóðanna.
Steingrímur sagðist ekki vita
mikið um starfsemi Samkeppnis-
stofnunar við skýrslugerðina. „Ég
var nú ekkert sérstaklega bjartsýnn
á að þetta yrði tímamótavinna því
ég vissi hvernig þeir unnu þetta.
Þeir skrifuðu öllum og báðu um
upplýsingar þannig að aðilarnir
sem voru í rannsókn mötuðu sjálfir
nefndina. Af því sem ég frétti í
haust virtist stofnunin ekki hafa
lagt mjög sjálfstæða könnun í þetta.
Auðvitað eru þeir takmörkunum
háðir en ég er hræddastur við að
þeir þori ekki að ógna hinni eigin-
legu fákeppni."
Steingrímur sagðist hafa haft sér-
staklega í huga fákeppni í sam-
göngugeiranum, sem þekkt væri er-
lendis, þar sem settar væru strang-
ari reglur um fákeppni í samgöng-
um og bankakerfi. -SMJ
Prófkjör Alþýðubandalagsins á Norðurlandi vestra
Allaböllum á
Siglufiiöi Ijölgadi
um 127 prósent
„Ég er fullkomlega sáttur við út-
komu mína,“ segir Ragnar Arn-
alds alþingismaður sem hafnaði í
fyrsta sæti prófkjörs Alþýðu-
bandalagsins á Norðurlandi vestra
gær. Aðspurður hvort prófkjörs-
baráttan hefði verið mjög hörð
svarar Ragnar:
„Hún var kannski ekki mjög
æsileg í sjálfu sér en hún var nokk-
uð snörp. Ég held þó að allir fari
ósárir frá þessum leik.“
Ragnar sigraði prófkjörið með
afgerandi hætti og hlaut 83 pró-
sent greiddra atkvæða í fyrsta sæt-
ið. Næstur honum kom Sigurður
Hlöðversson frá Siglufirði sem
fékk 62 prósent atkvæða í annað
sætið og í því þriðja lenti Anna
Kristín Gunnarsdóttir frá Sauð-
árkróki. Kosningin er bindandi
fyrir tvö efstu sætin. Kjördæmis-
ráð mun ákveða hverjum verður
boðið að taka það þriðja en fast-
lega er búist við því að leitað verði
til önnu Kristínar. Anna er hins
vegar ekki búin að ákveða hvort
hún taki það sæti ef henni býðst
það.
„Ég ætla ekki að taka þetta sæti
skilyrðislaust ef mér verður boðið
það,“ segir hún en vill ekki gefa
upp hvaða skilyrði hún hyggst
setja.
Prófkjör Alþýðubandalagsins á
Norðurlandi vestra fór fram með
þeim hætti að 14. desember var
haldið forval þar sem flokksfólki
gafst kostur á að tilnefna þá sem
þeir óskuðu eftir að tækju þátt í
prófkjörinu. Þá hlaut Anna næst
flestar tilnefningarnar á eftir
Ragnari en Sigurður lenti í þriðja
sæti. Fyrir prófkjörið, sem fram
fór á laugardag, fjölgaði Alþýðu-
bandalagsmönnum í heimabyggð
Sigurðar á Siglufirði hins vegar
um 127 prósent. Alls greiddu 216
manns atkvæði í prófkjörinu, þar
af voru 113 Siglfirðingar. Anna
Kristín er ekki alls kostar sátt við
þetta.
„Þessi fjölgun er náttúrlega til-
komin til að tryggja Sigurði kosn-
ingu,“ segir hún og bætir því við
að það gefi augaleið að styrkur Al-
þýðubandalagsfélaga á Siglufirði
sé ekki í réttu hlutfalli við styrk Al-
þýðubandalagsins f kjördæminu.
Sigurður Hlöðversson er hæst-
ánægður með útkomu sína í kjör-
dæminu og kannast ekki við að
hafa staðið að félagasmölun.
„Þetta var bara hreyfing í bæn-
urri, menn voru ekki teymdir i
básinn. Þetta er meira eða minna
Alþýðubandalagsfólk sem hefur
stutt flokkinn í gegnum árin þó
það hafi ekki verið félagsbundið,“
segir hann.
Nokkur straumur hefur undan-
farið legið frá Alþýðubandalaginu
til Þjóðvaka. í því samhengi er
Anna Kristín innt eftir því hvort
það komi til greina að hún hverfi
úr Alþýðubandalaginu í kjölfar út-
komu hennar í prófkjörinu.
„Ég er ekkert á förum og þó svo
færi myndi ég fara ýmislegt annað
en til Jóhönnu,“ svarar hún.
-jk
Ragnar Arnalds hlaut 83 prósent atkvæða í fyrsta sæti í prófkjöri Al-
þýðubandalagsins á Norðurlandi vestra.
Barneignabylgja í leikhúsunum ■ Hafnfirskir tenórar syngja í kapp við rússneskan baritón
■ ÓlöfRún að hverfa afskjánum um stundarsakir
Stundum er eins og barneignir
gangi í bylgjum meðal starfsstétta,
eða innan vissra kreðsa. Ekki fyrir
margt löngu eignuðust Edda Biörg-
vinsdóttir og hennar maður, Glsu
Rúnar Jónsson lítið ör-
verpi, eftir að hafa
komið dreng sín-
um til manns.
fárra mán-
aða ætlar Kol-
irún Hall-
DÓRSDÓTTIR
leikstjóri,
sem meðal
annars hefur
leikstýrt
Skilaboða-
skjóðunni að
verða léttari,
en hún á ein-
mitt eitt barn
fyrir sem komið er í
fullorðinna manna
tölu...
Hafnfirðingar
fengu gesti nú fyrir
helgi alla leið frá
lýðveldinu Tatarst-
an sem er í fyrrum
Sovétríkjum. Rúss-
neskir dagar eru 14. til 30 janúar í
Hafnarfirði og er tæplega tuttugu
manna hópur kominn til landsins
af því tilefni. Þeirra á meðal eru
myndlistarmennirnir Anatoly
Bugakov og Vladimir Galatenko
en sýning á vatnslitaverkum þeirra
verður í Hafnarborg á rússneskum
dögum frá 14. til 30. janúar. Þá eru
með í hópnum tónlistarmenn sem
ætla að halda tónleika og hituðu
tveir þeirra upp með
því að þenja raddbönd-
in í móttökuathöfn
sem fór fram í veitinga-
húsinu Fjörunni á
föstudagskvöldið. Þar
voru og staddir Ellert
Borgar Þorvaldsson
frá bæjarstjórninni,
sem ásamt Ólafi
Proppé, þökkuðu fyrir
sig með því að syngja lagið „Sofðu
unga ástin mín“ við góðar undir-
tektir viðstaddra. Það verður að
segjast þeim félögum til hróss að
þeir sýndu með þessu talsverðan
kjark því samanburðurinn við
hinn gestkomandi baritón, svo
ekki sé nefndur smávaxinn tenór
með ótrúlegan raddstyrk, var þeim
ekki beinlinis í hag...
Brátt fer að líða að því að Ólöf
Rún Skúladóttir aðalfréttaþulan á
skjá ríkissjónvarpsins taki sér hvíld
frá sjónvarpstörfum. Verður sú
hvíld sjálfsagt kærkomin enda er
hún ekki að fara að skipta um starf
heldur gír. Hún á nefnilega von á
barni innan fárra vikna. Mun þetta
vera fjórða barn
Ólafar Rún-
ar og eig-
inmanns
henn-
Umferðin í Reykjavík um helgina
Tíu á slysadeild
Alls voru tíu manns fluttir á
slysadeild í kjölfar fimm árekstra
sem urðu í Reykjavík um helgina.
Rétt fýrir klukkan ellefu á föstu-
dagskvöld var umferðarslys á mót-
um Miklubrautar og Réttarholts-
vegar. Tvær biffeiðar skullu saman
með þeim afleiðingum að ökumenn
beggja voru fluttir á slysadeild. Ekki
reyndust meiðslin alvarleg en báðar
bifreiðarnar voru óökufærar. Rétt
fyrir fjögur aðfaranótt laugardags
varð svo árekstur við Skúlagötuna
þar sem hún tengist Sæbrautinni.
Tvær bifreiðar runnu saman. Þrír
farþegar úr annarri bifreiðinni voru
fluttir undir læknishendur, en voru
meiðsl þeirra minniháttar.
Síðdegis í gær rákust tvær biffeið-
ar saman við hornið á Njarðargötu
og Bergstaðastræti. Farþegi úr ann-
arri bifreiðinni slasaðist á höfði og
fæti, en þó ekki alvarlega. Bifreið-
arnar voru báðar óökufærar. Rétt
eftir átta á laugardagskvöldið varð
árekstur við Bæjarháls. Enn voru
það tvær bifreiðar sem rákust sam-
an. Ökumenn beggja voru fluttir á
slysadeild, auk farþega úr öðrum
bílnum. Meiðsl þeirra voru ekki al-
varleg. Báðar bifreiðarnar voru
mikið skemmdar. Þá varð árekstur
nokkrum mínútum síðar á Fjall-
konuvegi við Hveraholt. Tvær bif-
reiðar skullu saman og var annar
ökumaðurinn fluttur á slysadeild.
Hann reyndist heldur ekki mikið
slasaður.
Alls voru níu manns kærðir fyrir
meintan ölvurnarakstur um helg-
ina, þar af lentu tveir þeirra í um-
ferðaróhöppum.B