Helgarpósturinn - 16.01.1995, Blaðsíða 31
MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 1995
MORGUNPÓSTURINN SPORT
31
>
■é
Enski boltinn
Úrslít í úrvalsdeild
Arsenal - Everton 1:1
Wright 4. - Watson 13.
Aston Villa - QPR 2:1
Fashanu 7., Ehiogu 76. - Yates 88.
Blackbum - Nott.Forest 3:0
Warhurst 54., Wilcox 78., Sutton 88.
Chelsea - Sheff.Wed. 1:1
Spencer 34. - Nolan 90.
Crystal Palace - Leicester 2:0
Newman 24., Ndah 44.
Leeds - Southampton 0:0
Liverpool - Ipswich 0:1
Tanner 30.
Man.City - Coventry 0:0
Norwich - Wimbledon 1:2
Goss 22. - Fteeves 44., Ekoku 49.
West Ham - Tottenham 1:2
Boere 10. - Sheringham 58., Klins-
mann 79.
Newcastle - Man.Utd. 1:1
Kitson 67. - Hughes 13.
Staðan í úrvalsdeild
Blackbum 23 52:18 55
Man.Utd. 24 45:20 50
Liverpool 24 44:20 45
Nott.Forest 24 36:26 42
Newcastle 23 41:25 41
Tottenham 24 41:35 39
Wimbledon 24 30:38 35
Leeds 23 29:27 34
Norwich 24 22:25 33
Sheff.Wed. 24 31:32 32
Man.City 24 33:38 31
Chelsea 23 30:31 30
Arsenal 24 27:27 29
Southampton 24 34:39 28
QPR 23 35:40 27
Crystal Pal. 24 17:22 26
Coventry 24 21:40 26
Aston Villa 24 29:34 25
West Ham 24 22:30 25
Everton 23 22:32 23
Ipswich 24 26:47 19
Leicester 24 22:43 15
Markahæstir
23 - Alan Shearer (Blackburn)
22 - Robbie Fowler (Liverpool)
21 - Ashley Ward (Norwich, þaraf 17
fyrir Crewe)
20 - lan Wright (Arsenal)
19 - Chris Sutton (Blackbum)
18 - Matthew Le Tissier (Southamp-
ton)
Italía
Úrslit
Cremonese - Brescia 0:0
Fiorentina - Parma 1:1
Batistuta 8. - Pin 46.
Genoa - Padova 2:1
Van’t Schip 28., Manicone 89. - Kre-
ek 75.
Inter - Sampdoria 2:0
Festa 58., Fontolan 68.
Juventus - Roma 3:0
Ravanelli 33. og 82., Vialli 86.
Lazio - Foggia 7:1
Boksic 49., 52. og 88., Signori 64. og
85., Casiraghi 83., Fuser 89. - Mand-
elli 60.
Napoli - Cagliari 1:1
Cruz 23. - Muzzi 32.
Reggiana - Torino 1:0
Simutenkov 57.
Milan - Bari 3:5
Tovalieri 9. og 66., Pedone 73. -
Massaro 11., Savicevic 39., 52., 55.
og 84.
Staðan
Juventus 15 28:13 36
Parma 16 27:14 32
Lazio 16 35:20 28
Fiorentina 16 31:21 27
Roma 16 21:11 27
AC Milan 16 18:14 25
Sampdoria 16 25:14 24
Bari 16 19:23 22
Inter 16 14:13 21
Foggia 16 19:23 21
Torino 15 13:16 19
Cagliari 16 13:18 19
Napoli 16 21:26 18
Cremonese 16 14:20 16
Genoa 16 19:26 16
Padova 16 16:36 14
Reggiana 16 12:21 12
Brescia 16 8:24 9
Dapurt í Austurbergi
Öruggur sigur Valsmanna
Það var fátt sem gladdi augað á
leik KR og Vals í gærkveldi í leik
liðanna í Nissandeildinni. KR-
strákarnir byrjuðu af nokkrum
krafti og höfðu eins marks forystu
eftir tíu mínútna leik. Valsmenn
voru þó ekki á þeirn buxunum að
gefa eftir og rifu sig uppúr byrjun-
arörðugleikum og náðu yfirhönd-
inni sem þeir héldu til leiksloka.
KR - Valur............22: 26
Mörk Vals: Dagur 7, Jón 6, Ingi
Rafn 3, Davíð Öm 3, Júlíus 2,
Sveinn 2, Frosti 2, Finnur 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkels-
son: 5, Axel Stefánsson: 6
Mörk KR: Guðmundur 7, Sigurpáll
5, Einar B. 4, Magnús A. 3, Páll 2,
Gylfi 1.
Varin skot: Gísli Felix: 7, Sigurjón;
3.
Brottvísanir: KR í 4 mínútur og
Valur í 4 mínútur.
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson
og Rögnvald Erlingsson. Gerðu
báðir sfn mistök eins og leikmenn.
Leikurinn var harður og baráttan
var mikil, sem gerði það að verkum
að handboltinn varð ekki jafn góð-
ur sem skyldi. Menn voru að hnoða
þetta hver í sínu horni í stað þess að
láta liðsheildina vinna verkið. Um
miðbik síðari hálfleiks var orðið
nokkurt jafnræði með liðunum, þá
settu Valsmenn í annan gír og skor-
uðu þrjú mörk í röð sem gerðu
vonir vesturbæinga að engu. Vals-
maðurinn Dagur Sigurðssson er
án nokkurs vafa maður þessa leiks,
þar sem hann skoraði sjö mörk,
hvert öðru glæsilegra, og maður
hefur á tilfinningunni að þessi
maður geti stokkið upp og skorað
þegar hann vill. Hjá KR-drengjum
var það Guðmundur Albertsson
sem stóð upp úr og sýndi að hann
hefur engu gleymt. Markmenn lið-
anna voru ekki í stuði en það væri
þó einna helst Gísli Felix sem
nefna mætti. Áhorfendur í Austur-
bergi hafa líklega ekki náð að fylla
hundraðið og er þar um að kenna
vetri konungi og engum öðrum.
p5Q Dagur Sigurðsson var markahæstur Valsmanna með sjö mörk.
Undanúrslitin í bikarkeppni KKÍ
Naumt hjá Njarðvík
Gömlu jaxlamir þurftu að bíta á jaxlinn.
Flestir bjuggust við að þetta yrði
leikur kattarins að músinni enda
kannski ekki furða. Njarðvíkingar
hafa aðeins tapað einum leik í vetur
og hafa óumdeilanlega spilað jafn-
best allra liða í vetur. Liði Hauka
hefur aftur á móti gengið frekar illa
í vetur; eru útiendingslausir og lent
í þjálfarahallæri. En það var ekki að
sjá að 28 stiga munur væri á liðun-
um í þessum leik. Haukar mættu
dýrvitlausir til leiks, tilbúnir til að
selja sig dýrt.
Liðin skiptu með sér forystunni
allan fyrri hálfleikinn og var mun-
urinn mestur 3-4 stig. Pétur Ing-
varsson fór á kostum í liði Hauka í
hálfleiknum og skoraði 14 stig.
Mest voru þetta körfur sem hann
bjó til upp á eigin spýtur með því
Haukar - UMFN
...........79-83 (37-33)
Stigaskor:
Haukar: Sigfús 27, Pétur 16, Jón
Arnar 11, Óskar 9,Baldvin Johnsen
8, Björgvin 6, Sigurbjörn 2.
UMFN: Robinson 31, Kristinn 14,
Valur 13, Friðrik 9, Teitur 6, Rúnar
4, Ástþór 3, ísak 3.
Haukar: 28 fráköst, 12 stoðsend-
ingar
UMFN: 39 fráköst (Robinson 10,
Kristinn 9), 20 stoðsendingar (Teit-
ur 6).
Dómarar: Kristinn Albertsson og
Jón Bender.
að stinga sér eins og snákur á rnilli
andstæðinganna. Hjá Njarðvík var,
eins og svo oft áður, Ronday Ro-
binson atkvæðamestur. Fundu
varnarmenn Hauka engin ráð til að
stöðva hann enda karl stór og
sterkur. Leit þetta oft út fyrir að
hann væri að spila gegn leikskólak-
rökkum. En það var ekki nóg því
Haukar leiddu í hálfleik 37-33.
Eftir vondan draum tókst íslans-
meisturunum loksins að jafna sig
og ná þar með undirtökunum. Lið-
ið náði mest átta stiga forskoti og
þá héldu rnargir að það væri aðeins
formsatriði að ljúka leiknum. En
Haukar voru á allt öðru máli. Eftir
atburði undanfarna daga notuðu
hafnfirskir áhorfendur nánast alla
þá orku sem þeir áttu eftir til að
hvetja rnenn sína áfram. Virkaði
þetta eins og vítamínssprauta á lið-
ið sem fór að saxa á forskot stór-
veldisins.
Spennan náði hámarki á síðustu
tveimur mínútum leiksins. Þegar
ein og hálf mínúta var eftir komust
Haukar einu stigi yfir, 77- 76. Héldu
nú margir að Davíð væri að sigra
Golíat en þá skyndilega tók gamla
Suðurnesjaseiglan við. Mikilvægar
körfur frá þjálfaranum Vali Ingi-
mundarsyni og Robinson tryggðu
nauman sigur Njarðvíkur.
Bestu menn vallarins voru þeir
Ronday Robinson (31 stig og 10 frá-
köst) og Sigfús Gizurarson, hjá
Haukum, sem skoraði 18 stig í síð-
Jón Kr. Gíslason, þjálfari ÍBK,
skoraði 29 stig, þar af fimm 3ja
stiga körfur og var bestur í liði
Keflvíkinga.
ari hálfleik. Pétur Ingvarsson (4
stolnir boltar) sást varla í síðari
hálfleik en hann átti í miklum villu-
vandræðum eins og allt Haukalið-
ið. Það er daglegt brauð þar á bæ.
Kristinn Einarsson, Njarðvík,
var þrælsterkur í sóknarfráköstun-
um í síðari hálfleik og skoraði þá
ein 12 stig. Valur Ingimundarson
átti einnig ágætan leik. Aftur á móti
hefur hefur Teitur Örlygsson oft
leikið betur. Nokkuð skrýtið að
hann hafi ekki átt betri leik því
hann leikur venjulega langbest á
úrslitastundu rétt eins og hann
sýndi bæði í úrslitakeppninni og
úrslitaleik bikarkeppninnar í fýrra.
Kanalausir Crindvík-
ingar áfram
I fjórða sinn í vetur í jafnmörg
skipti lagði Grindavík granna sína
úr Keflavík að velli. Þrátt fýrir að
óveður hafi geisað um allt land létu
leikmenn það ekkert á sig fá og spil-
uðu skemmtilegan körfubolta frá
upphafi til enda. Fyrirfram var bú-
ist við að róðurinn yrði Grindvík-
ingum erfiður þar sem Frank
Booker, leikstjórnandi liðsins, var í
leikbanni. Liðið hafði þó undirtök-
in allan tímann en munurinn var
lítill. Það voru „fyrrverandi“ Kefl-
víkingar, Nökkvi Már Jónsson (25
stig) og Guðjón Skúlason (23 stig)
sem gerðu gömlu félögunum sín-
um lífið leitt. Bestur Keflvíkinga var
þjálfarinn, Jón Kr. Gíslason (29
stig), sem skoraði fimm 3-ja stiga
körfur.
Lokatölur urðu 83-80 og fram-
undan er sannkallaður draumaúr-
slitaleikur í bikarnum, Njarðvík og
Grindavík.
-EÞA
Handbolti
ÍH - Stjarnan....23:25
l'H velgdi Stjörnunni vel undir ugg-
um í þessum leik og var lengi vel
yfir. Stjarnan var sterkari á loka-
sprettinum og hafði sigur í lokin.
Sigurður Bjarnason skoraði 9 mörk
og Dimitri Filipov 5 fyrir Stjömuna
en fyrir (H skoraði Jón Þórðarson 7
mörk og Ólafur Magnússon 5.
UMFA - HK...........35:17
Eins og tölumar gefa augljóslega
til kynna var sigur Aftureldingar
aldrei í hættu. Jason Ólafsson átti
stórleik og skoraði 12 mörk en þeir
Páll Þórólfsson og Gunnar Andrés-
son voru með 6 mörk hvor fyrir Aft-
ureldingu. Óskar Ólafsson skoraði
6 mörk fyrir HK.
Er George Weah
franskur ríkis-
borgari?
AC Milan
meðlög-
fræðingaher
ímálinu
AC Milan hefur mikinn áhuga á
að kaupa líberíska sóknarmanninn
George Weah af Paris St Germain.
Liðið er hins vegar ekki reiðubúið
að fá til sín leikmann sem ekki er
evrópskur vegna reglna sem tak-
rnarka fjölda útlendinga í liðum.
Þær hljóða á að aðeins mega þrír
útlendingar spila með liðinu í einu,
og að minnsta kosti einn þeirra
verður að vera evrópskur. Nú þegar
er Milan með tvo óevrópska leik-
menn, þá Zvonimir Boban og
Dejan Savicevic, og það þykir
þeim nóg. Milan heldur því fram
að Weah sé franskur ríkisborgari
og eru forráðamenn liðsins búnir
að ráða til sín her lögfræðinga til að
sanna að hann sé með franskan rík-
isborgararétt. Hins vegar eru þeir
tilbúnir að hætta baráttunni ef hol-
lenski sóknarmaðurinn Marco
van Basten nær sér að fullu, en
hann hefur ekki leikið með liðinu
síðan hann meiddist á ökkla í maí
1993. ■
Juventus komið með örugga forystu eftir leiki helgarinnar í
ítalska boltanum
Flugeldasýning hjá Lazio
Ravanelli skoraði tvö mörk fyrir Juventus í ólátaleik þar sem þrírleikmenn voru reknir af leikvelli
Juventus hefur nú komið sér vel
fyrir í toppsæti ítölsku 1. deildarinn-
ar í knattspyrnu. Liðið vann í gær
öruggan sigur á Roma á heimavelli
sínum. Fabrizio Ravanelli endur-
tók leikinn síðan um síðustu helgi er
hann gerði tvö mörk gegn Parma, en
í þetta sinn urðu leikmenn Roma
fyrir barðinu á honum. Fyrra mark-
ið skoraði hann í fýrri hálfleik eftir
mistök í vörn Roma, en það síðara
kom úr vítaspyrnu eftir að Gi-
anluca Vialli hafði verið felldur
gróflega innan vítateigs, svo gróflega
að Fabio Petruzzi var rekinn af
leikvelli fýrir vikið. Hann var reynd-
ar ekki sá eini sem fékk að líta rauða
spjaldið, því skömmu áður hafði
dómarinn fækkað leikmönnum lið-
anna niður í tíu eftir að Cervone og
Torricelli hafði lent saman í vítateig
Roma. Vialli innsiglaði síðan örugg-
an sigur Juventus með þriðja mark-
inu, þórum mínútum fyrir leikslok.
Lazio bauð upp á markaveislu er lið-
ið tók á móti Foggia. Alls urðu
mörkin í leiknum átta talsins, þar af
átti Lazio sjö. Króatinn Alen Boks-
ic gerði þrennu og Signori skoraði
tvö rnarka Lazio. Foggia spilaði allan
síðari hálfleikinn og hluta þess fýrri
einurn leikmanni færri en Giordano
Caini var rekinn út af í fyrri hálfleik.
Við sigurinn færðist Lazio upp í
þriðja sæti deildarinnar. Parma og
Fiorentina skoruðu sitt markið
hvort í hörkuleik. Gabriel Bat-
istuta kom Fiorentina yfir strax í
upphafi leiks en Gabriele Pin jafn-
aði fyrir Parma í upphafi seinni hálf-
leiks. Reggiana vann heldur óvænt-
an sigur á Torino. Simutenkov
gerði eina mark leiksins á 57. mín-
útu. I gærkvöldi áttust síðan Bari og
AC Milan. Lauk honum með sigri
Milan, 3:5, og skoraði Dejan Sav-
icevic fjögur af mörkum Milan.B
Fabrizio Ravanelli er í hörkuformi í framlínu Juventus þessa dagana.
Hann hefur nú gert fjögur mörk fyrir liðið í síðustu tveimur leikjum.