Helgarpósturinn - 16.01.1995, Blaðsíða 10
10
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 1995
Grafgötur
Framfærslu-
kostnaður
Annað
Tómstundir |
& menntun |
Innflutningur bifreiða dróst lítillega sam-
an á síðasta ári eða úr 5482 í 5391. Eins
og sést á grafinu að ofan er Toyota lang-
mest seldi bíllinn með 1398 selda bíla.
Volkswagen seldi 139 prósent meira af
bilum 1994 en árið áður og Opel jók sína
sölu um 375 prósent.
Ríkissjóður sýknaður í Hæstarétti af kröfu um
bætur vegna grjótfoks í Vestmannaeyjum
Austanáttinni
einni um að kenna
Hæstiréttur hefur hafnað kröfu
Ólafs R. Sigurðssonar, íbúa á
Stapa í Vestmanneyjum, sem gert
hafði kröfur um tæplega hálfa
milljón króna frá árinu 1989 að
telja, ásamt dráttarvöxtum. Hæsti-
réttur staðfesti því dóm undirrétt-
r.
Upphaf málareksturs Ólafs má
rekja til tjóns sem hann varð fyrir í
fárviðri sem gekk yfir Vestmanna-
eyjar 5. febrúar 1989. íbúðarhús Ól-
afs stendur í suðurjaðri þéttbýlis á
Heimaey og er húsið til vesturs frá
norðurenda Vestmannaeyjaflug-
vallar, það er, frá þeirri flugbraut
sem liggur norður-suður. Braut
þessi var lengd til norðurs í núver-
andi horf eftir eldgosið á Heimaey
1973 og þá lögð eftir jarðfyllingu.
Milli fyllingar og húss Sigurðar er
gróið land og er fjarlægðin frá hús-
horni að henni 110 til 120 metrar.
Sigurður höfðaði málið vegna
skemmda sem urðu á húsi hans
vegna grjótfoks í fárviðri af austri
yfir Vestmannaeyjar 5. febrúar
1989. Kvað hann grjótmylsnu hafa
dunið á plastklæðningu og glugg-
um á tveimur hliðum hússins.
Vegna veðurofsans var ekki hægt
að fara út og kanna hvaðan grjótið
kom en Sigurður taldi það koma
frá flugvellinum. Matsmenn töldu
síðan klæðninguna ónýta vegna
gata á henni.
Rétturinn taldi að Sigurði hefði
ekki tekist að færa nægar sönnur á
að grjótið hefði komið frá flug-
brautinni, í raun hefði aðeins stað-
ið hans staðhæfing fyrir því.
Reyndar taldi rétturinn alls ekki
útilokað að grjótið hefði komið frá
flugbrautinni en þar sem það gat
einnig komið frá mörgum öðrum
stöðum, meðal annars alla leið neð-
an úr fjöru, þá taldi rétturinn þetta
ekki næga sönnun. Málskostnaður
fýrir Hæstarétti var felldur niður en
dómarar voru Hrafn Bragason,
Guðrún Erlendsdóttir, Haraldur
Henrysson, Hjörtur Torfason og
Pétur Kr. Hafstein. -SMJ
Húsið að Stapa stórskemmdist í
austanfárviðri 5. febrúar 1989.
Húseigandi taldi grjótið sem
skemmdi hús hans hafa komið úr
brautinni sem lögð er til norðurs
en dómurinn taldi að það hefði
allt eins getað komið neðan úr
fjöru.
Gleymdu þeir átta umsækjendum þegar þeir
gerðu samkomulag við Jóhann G. Bergþórsson
um bæjarverkfræðingsembættið?
Stungu embættinu
inn í minnispunkta
málefnasamningsins
Eftir kosningarnar í Hafnarfirði
síðasta vor beið nýs meirihluta
bunki af umsóknum frá níu verk-
fræðingum um bæjarverkfræðings-
stöðu í Hafnarfirði. Meirihluti Al-
þýðuflokksmanna hafði auglýst
stöðuna en ekki viljað ljúka málinu
áður en gengið var til kosninga.
Umsóknirnar höfðu því legið þarna
í tvo mánuði.
Einn umsækjenda var Jóhann
G. Bergþórsson, forstjóri Hag-
virkis-Kletts og bæjarstjórnarfull-
trúi, en hann hafði verið metinn
Jóhann G. Bergþórsson
fékk stöðuveitingu bæjar-
verkfræðings handsalaða
við gerð málefnasamnings
þrátt fyrir að flestir teldu
hann hæfastan.
hæfastur, sem meðal annars skap-
aðist af því að hann vann hjá emb-
ættinu 1970 til 1974. Annar hæfast-
ur var talinn Kristinn Magnús-
son, Alþýðuflokksmaður úr Kópa-
vogi.
Staða bæjarverkfræðings bland-
aðist inn í stjórnarmyndurnarvið-
ræðurnar með þeim hætti að þegar
málefnasamningur milli Sjálfstæð-
isflokksins og Alþýðubandalagsins
lá fyrir og bara „eftir að skála í
kampavíni" eins og einn sjálfstæð-
ismaður orðaði það kom ný krafa
frá Jóhanni.
Hann vildi fá tryggingu fyrir því
að hann fengi bæjarverkfræðings-
stöðuna. Þar sem mönnum fannst
liggja beint við að Jóhann fengi
stöðuna var samþykkt þar að lút-
andi sett á minnispunkta við gerð
málefnasamnings. „Gæti fengið“
sagði reyndar einn bæjarstjórnar-
fulltrúi sem vildi ekki viðurkenna
að þetta hefði verið undirskrifað
samkomulag — aðeins sett í minn-
ispunkta. Heimildir eru fyrir því að
samkomulagið hafi verið handsal-
að. Eftir það var hinum umsækj-
endunum sent bréf um að búið
væri að ráðstafa starfinu en ákveðið
var að Björn Árnason gegndi í bili
áfram starfinu.
I haust ætlaði síðan Jóhann að
ganga eftir efndum um starfið en
þá voru komnar efasemdir fram
um að hann gæti gegnt hvoru
tveggja; bæjarverkfræðingsembætt-
inu og setið í bæjarstjórn. Nú í við-
tali á Stöð 2 hefur Jóhann hins vegar
lýst því yfir að hann ætli sér ekki
embættið þannig að það blasir ekk-
ert annað við en að velja úr um-
sækjendum aftur eða auglýsa starf-
ið á ný.
-SMJ
Hyundai
Vísitala framfærslukostnaðar eftir út-
gjaldaflokkum er hér sýndur þannig að
hlutfall nokkurra þátta er sýndur. Það
vekur óneitanlega athygli að bílakostnað-
ur er orðinn meiri en matarkostnaður.
Rekstur bifreiðar er 17,5 þrósent en með
þvi er flokkaður símakostnaður, 1 pró-
sent og annar samgöngukostnaður 1,7
prósent.
Bílasala 1994
Toyota seldi langflesta fólksbíla á síðasta
ári eða 1398. Það er rúmlega 15 prósent
aukning frá fyrra ári. Nissan seldi 803,
Volkswagen 572, Hyundai 480 og Mitsu-
bishi 412. Næstir voru Renault, Lada,
Volvo, Opel og Daihatsu. Sala á Mistsu-
bishi dróst saman um 50 prósent.
Innflutninga alls
Kvennalistinn kemur sér upp „yfirljósmóðurcc
Árangurslaus leit
á miðunum
ÆUar að „taka á móti“ kjósendum
I nýútkomnu fréttabréfi Kvenna-
listans segir af því að listinn sé bú-
inn að ráða sérstaka starfskonu sem
vinnur eingöngu að verkefnum
sem tengjast undirbúningi kosn-
inganna. Danfríður Skarphéðins-
dóttir varð fyrir valinu en þær
Kvennalistakonur leita ýmissa leiða
til að marka sérstöðu sína, eða eins
og segir í fréttinni: „Og þar sem
Kvennalistakonur eru alltaf svolítið
öðruvísi og umfram allt kvenlegar
fannst einhverri tilvalið að sæma
hina nýráðnu kosningastýru
Kvennalistans á landsvísu starfs-
heitinu yfirljósmóðir. í fyllingu
tímans mun svo fæðast marghöfða
þingflokkur.'
MORGUNPÓSTINUM þótti þetta
forvitnilegt og heyrði í Danfríði
sem er á því að þetta sé virðingartit-
ill og ekki sé hægt að líta það öðr-
um augum. „Það var líldega hin
orðsnjalla Kristín Halldórsdóttir
sem sauð þetta saman.“ Danfríður
tók undir það að það væri ekkert
grín að standa undir slíkum titli. „-
Þetta er ábyrðarstarf eins og allt
sem tengist starfsvettvangi þeirra
ljósmæðra sem eru ekki í gæsalöpp-
um.“
En ætlar þú þá í yfirfcerðri tnerk-
ingu að „taka á móti“ kjósendum?
„Ég ætla náttúrlega að vera með
opinn arminn gagnvart þeim sem
og þessum nýju þingkonum
Kvennalistans sem vonandi líta
dagsins ljós 8. apríl á kosningadag-
inn.“
Enfáfeður að vera viðstaddir fœð-
inguna?
„Feður hafa í gegnum tíðina allt-
af stutt konur sínar bæði við barn-
eignir og líka í þessu starfi. Ég held
að mjög margir eiginmenn hafi
stutt konur sínar í þessu Kvenna-
listastarfi. Þannig að þessi samlík-
ing gengur upp.“
Danfríður segir að fyrirhugað
hafi verið að fara út á land á fundi
en það lítur ekki vel út með veður-
spá en það sé bara til
að styrkja þær og
stæla. Það eru mikl-
ar hræringar í öllum
landsbyggðarkjörn-
um þar sem verið er
að stilla upp á lista.
JBG
Danfríður Skarp-
héðinsdóttir hefur
hlotið titilinn „yfir-
Ijósmóðir" hjá
Kvennalistanum.
Engin loðna
fundin enn
Þegar haft var samband við
loðnuleitarskipið Bjarna Sæ-
mundsson seinni partinn í gær var
skipið á leið til lands en vitlaust
veður var á miðunum. Ætlaði skip-
ið að leita vars undir Langanesi
enda to til n vindstig á miðunum.
Ásamt Bjarna var Árni Friðriksson
og loðnuskipin Hólmaborgin og
Jón Kjartansson að leita. Sú litla
loðna sem skipin hafa orðið var við
stóð djúpt og var dreifð. I gær voru
skipin búin að leita á stóru svæði
vestan við Langanesið og gert er ráð
fyrir að leitin haldi áfram þegar
veður lægir. ■