Helgarpósturinn - 16.01.1995, Qupperneq 12
12
MORGUNPÓSTURINN ERLENT
MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 1995
Foreldrarnir
Arafat
verðurfaðir
Yasser Arafat, leiðtogi Palest-
ínuaraba, og hin unga kona hans
Souha, eiga nú von á barni. For-
eldrarnir hafa sagt að ef það verði
strákur heiti hann Amar, en Zah-
wa ef það verði stúlka. Hins vegar
verði uppeldi barnsins ekkert frá-
brugðið uppeldi þrjátíu og átta
barna sem Arafat hefur tekið í fóst-
Lánlaus
klæðskiptingur
Paul Cara, breskur klæðskipt-
ingur, má ekki koma í pilsi í vinn-
una. Þetta er niðurstaða dómstóls
sem fjallaði um mál hans. Paul
Cara hefur starfað hjá félagsmála-
stofnun í Hackney, einni útborg
London. Vinnufélagar hans ömuð-
ust ekki við því þótt hann mætti í
sokkabuxum, legghlífum og gagn-
sæjum blússum í vinnuna, en þegar
hann tók að mæta í pilsi var þeim
nóg boðið. ■
Draumaverk-
smiðjan
1 daglegu máli er oft talað um
kvikmyndaborgina Hollywood sem
„draumaverksmiðjuna". Þetta er
þeirn kvikmyndajöfrunum Steven
Spielberg, Jeffrey Katzenberg
og David Geffen fullkunnugt unt
og nú hafa þeir skírt nýtt fyrtæki
sitt þessu nafni, Draumaverksmiðj-
una. Þetta var tilkynnt í auglýsing-
um sem birtust í bandarískum
blöðum um helgina. Álitið er að
fyrirtækið, sem var stofnað í októb-
er, verði mikið veldi, enda engir
viðvaningar á ferð.B
Gáfaðir
„Fólki sem er svo illa á sig komið
andlega að það getur ekki búið í
mannlegu samfélagi ætti að útrýma
á mannúðlegan hátt eins fljótt og
kostur er.“ Þetta er setning úr grein
sem birtist í fréttabréfi Mensa og
hefur vakið mikla reiði í Bandaríkj-
unum. Mensa eru einkasamtök og
þangað hefur rétt til að fá inngöngu
fólk sem er með greindarvísitölu
yfir 132, en það teljast hafa um tveir
af hundraði Bandaríkjanmanna.B
Netin vaxa
Samkvæmt nýrri skoðanakönn-
un sem gerð var í Bandaríkjunum
fjölgaði notendum upplýsinganeta
um fjörutíu af hundraði á síðasta
ári. Askrifendum að slíkum netum
fjölgaði um 1.7 milljónir og eru nú
6.3 milljónir. Búist er við að þessi
vöxtur haldi áfram á næstunni.B
Tsjetsjnía
Sonur
Dúdcýevs
fallinn
Liðsmenn Dúdajevs Tsjetsníuforseta halda
enn forsetahöllinni í Groznf. Nú erbarist her-
bergi úrherbergi og erhermt að sonur
Dúdajevs hafi fallið á föstudag.
Hingað til hefur verið barist um
Grozní, höfuðborg Tjetsjníu, hús
fyrir hús. Nú segja heimildir að
barist sé herbergi fyrir herbergi.
Liðsmenn Dzhokhars Dúdajevs
forseta halda enn höll hans og sætir
eiginlega furðu að þungvopnuðum
Rússum skuli ekki hafa lánast að
taka hana. Höllin er orðin eins
konar tákn fyrir mótspyrnu Tsjetsj-
ena og leggja harðsnúnir liðsmenn
Dúdajevs því mikla áherslu á að
halda henni. Mun höllin vera orðin
ansi hart leikin eftir skothríðina og
getur varla liðið á löngu áður en
Rússar taka hana. Heimildir herma
að þeir sem fyrir eru í forsetahöll-
inni hafi ákveðið að falla þar.
Einn talsmaður Tsjetsjena sagði í
gær að Rússar kölluðu þá bófa.
Hann bætti vð: „Þeir hafa alvöru-
her en samt erum við að sigra þá.
Bófar sigra ekki heri.“
Samkvæmt óstaðfestum heim-
ildum rússneskra fréttastofa féll
Ovlur Dúdajev, sonur forsetans, af
sárum sem hann hlaut í bardaga.
Segir að hann hafi særst í bardög-
unum um Grozní og látist á föstu-
dag. Ekki segir hvað hann var gam-
all og reyndar hafa fréttir úr þessari
átt ekki alltaf verið áreiðanlegar.
I Moskvu og Sankti Pétursborg
voru haldnir mótmælafundir til að
andæfa herför Borisar Jeltsín for-
seta í Tsjetsjníu. Allt er á huldu um
mannfall í liði Rússa og Tsjetsena,
en víst er að mörg hundruð rúss-
neskir hermenn hafa látið lífið.
Um 150 þúsund flóttamenn eru
nú á ferli í Tsjetsjníu, en flugvél
með hjálpargögn frá flóttamanna-
stofnun Sameinuðu þjóðanna lenti
í nágrannaríkinu Ingusetiu í gær. í
flugvélinni voru 42 tonn af hjálpar-
gögnum, meðal annars 14 þúsund
teppi, fjögur tonn af súpu og 11.5
tonn af plasthlífum.
Warren Christopher, utanríkis-
ráðhjerrra Bandaríkjanna, sagði í
gær að Bandaríkin myndu halda
áfram að styðja Jeltsín. Herförin í
Tesjetsníu væri reyndar misráðin
og illa að henni staðið, en þrátt fyr-
ir það muni Jeltsín njóta stuðnings
ef hann „heldur áfram að þoka
málum í rétta átt“. ■
Páfia
Hans heilagleiki Jóhannes Páll pafi IL hefur að undanförnu ferðast
um Filippseyjar, en þar í landi er einn fjölmennasti kaþólski
söfnuður í heimi. Nokkuð hefur verið óttast um öryggi páfa á meðan
heimsókn hans hefur staðið, en fram að þessu hefur sá ótti reynst
ástæðulaus, þó svo nokkrir hafi verið handteknir vegna gruns um
að þeir hafi viljað páfa mein. ■
Balladur hef
urmeðbyr
Samkvæmt heimildum nrun
Edouard Balladur, forsætisráð-
herra Frakklands, tilkynna fram-
boð sitt til forsetaembættisins síð-
ar í þessari viku. Hann ætlar að
heyja stutta en snarpa kosninga-
baráttu þar sem hann mun ekki
leggja til atlögu við keppinauta
sína á hægri vængnum, heldur
leggja áherslu á eindrægni og efna-
hagsbata.
Mestu áhyggjur Balladurs þessa
dagana er að sigur hans í kosning-
unum verði svo stór að hann og
gaullistar verði sakaðir um dramb.
Skopteiknarar eru farnir að gera af
honum myndir þar sem ráðherrar
hans í ríkisstjórn bera hann á við-
hafnarbörum til forsetahallarinn-
ar, Elysée.
Balladur hefur fengið allt að 60
af hundraði atkvæða í nýlegum
skoðanakönnunum. Það létti líka
undir með honum þegar Charles
Pasqua, innanríkisráðherra og
einn vinsælasti stjórnmálamaður í
Balladur: Verður sigur hans of
öruggur?
Frakklandi, lýsti yfir stuðningi við
hann á föstudag. Pasqua hefur
mikil áhrif í flokki gaullista og
þykir stuðningur hans skipta
geysimiklu máli og það er mikið
áfall íyrir Jacques Chirac, helsta
keppinaut Balladurs, að Pasqua
skuli hafa tekið þessa afstöðu.B
Karl rekur málglaðan þjón
Karl, prins af Wales, hefur rekið
einkaþjón sinn, hinn 50 ára Ken
Stronach, eftir að hann gerðist
fram úr hófi lausmáll í viðtali við
dagblaðið News of the World. í við-
talinu segir Stronach frá sambandi
Karls og ástkonu hans, Camillu
Parker-Bowles.
Meðal þess sem kemur fram í
viðtalinu er að Karl hafi sniglast út
úr höll sinni, Highgrove House í
Gloustershire, að næturþeii og átt
ástarfundi við Camillu í garðinum.
Segir í viðtalinu að Stronach hafi
þurft að þvo moldug náttföt ríkis-
arfans eftir þessa fundi.
Karli er náttúrlega ekki skemmt
eftir þessar uppljóstranir. Á þessum
tíma dvaldi Camilla, sem er 47 ára,
sem gestur í höll prinsins. Hin unga
kona hans, Díana, dvaldi þar einn-
ig og segir Stronach að þjón-
ustufólk hafi fengið fyrir-
mæli um að umgangast Ca-
millu eins og húsmóður á
heimilinu, alveg burtséð frá
prinsessunni.
I síðustu viku kom yfirlýs-
ing um að Camilla hygðist
skilja við mann sinn,
Andrew Parker-Bowles.
Blöð í Bretlandi hafa velt því
fyrir sér hvort hún og Karl
muni taka upp þráðinn þar
sem frá var horfið í sam-
bandi þeirra. Víst er þó talið
að hún geti ekki orðið
drottning Bretlands, ber-
syndug konan.B
Karl hitti Camillu að nætur-
þeli í garði hallar sinnar.
■