Helgarpósturinn - 19.01.1995, Side 8
8
MORGUNPÓSTURINN SKOÐUN
FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1995
Útgefandi
Ritstjórar
Fréttastjórar
Framkvæmdastjóri
Auglýsingastjóri
Setning og umbrot
Filmuvinnsla og prentun
Miöill hf.
Páll Magnússon, ábm
Gunnar Smári Egilsson
Sigurður Már Jónsson
Styrmir Guðlaugsson
Kristinn Albertsson
Örn ísleifsson
Morgunpósturinn
Prentsmiðjan Oddi hf.
Verð í lausasölu kr. 195 á mánudögum
og kr. 280 á fimmtudögum.
Áskriftarverð er kr. 1.300 á mánuði fyrir tvö blöð í viku.
Þeir sem greiða með greiðslukorti fá 100 króna afslátt.
Samúð, þökk
og virðing
Það er tregt tungu að hræra þegar fjórtán manns, þar af átta
börn, liggja í valnum eftir hræðilegar náttúruhamfarir í litlu
sjávarplássi vestur á fjörðum. Ekkert fær megnað að sefa sorg
þeirra, sem misstu ættingja sína og ástvini, og Súðavík verður
tæpast söm aftur. Með undarlegum hætti blandast þó sorg-
inni gleði yfir því, að þrátt fyrir allt tókst að hrifsa tólf
mannslíf úr helgreipum dauðans. Hetjudáð þeirra, sem þar
lögðu hönd á plóg, fyrnist ekki - fremur en sorgin. Frammi-
staða björgunarmanna við erfiðustu aðstæður var raunar
með þeim ólíkindum, að menn setur hljóða í þökk og virð-
ingu.
Þegar frá líður á samfélagið allt að draga ákveðinn lærdóm
af hörmungaratburðum sem þessum. I umfangsmikilli úttekt
hér í blaðinu kemur meðal annars fram, að 142 íslendingar
hafa farist í snjóflóðum það sem af er þessari öld, og ekki eru
nema tuttugu ár liðin frá því að tólf menn fórust í snjóflóð-
um á Neskaupstað.
í því ljósi má undarlegt heita, að þessari vá skuli ekki meiri
gaumur gefinn í öiyggis- og almannavarnakerfi þjóðarinnar
en raun ber vitni. f fljótu bragði virðist mannskæðari hætta
stafa af snjóflóðum en annarri óáran í náttúrunni, á borð við
jarðskjálfta og eldgos.
Áherslan sem lögð er á rannsóknir, eftirlit og fyrirbyggj-
andi aðgerðir gegn snjóflóðum hlýtur að teljast í litlu sam-
ræmi við ógnina, sem af þeim stafar. Á grundvelli laga um
snjóflóðavarnir frá árinu 1985 hafa verið gerðar áætlanir þar
sem meðal annars er gert ráð fyrir, að tæpar 600 milljónir
króna þurfi til mannvirkjagerðar, sem myndi fullnægja um
30 prósent af varnarþörfinni.
Það myndi þannig kosta um 1,6 milljarða króna að reisa öll
nauðsynleg mannvirki á grundvelli þeirra áætlana, sem fyrir
liggja. Frá 1985 hefur þó einungis verið varið ríflega 20 millj-
ónum króna í þessu skyni.
Síðustu daga hafa hins vegar ýmsir til þess bærir aðilar lýst
þeirri skoðun sinni, að allar fyrri áætlanir og matsgerðir í
tengslum við snjóflóðahættu þarfnist gagngerrar endurskoð-
unar.
í því sambandi hefur meðal annars verið bent á, að í stað
þess að reisa varnarmannvirki kunni að vera vænlegra að lið-
sinna fólki við að flytjast búferlum af mestu hættusvæðun-
um. Þessi ábending er allrar athygli verð, en menn verða þó
að hafa í huga að hér er verið að tala um fólk en ekki fénað.
Það er því miður oft þannig, að það þarf átakanlega atburði
til að menn sjái í hnotskurn hvað þurfti til að verjast þeim.
Við getum aldrei keypt okkur frá hættunum, sem fylgja því
að búa á íslandi, og svo lengi sem við byggjum landið mun
fólk farast í átökum við óblíða náttúru þess. Við erum hins
vegar betur í stakk búin en gengnar kynslóðir, efnalega og
tæknilega, til að takast á við náttúruöflin og minnka þann
mannskaða, sem þau ávallt og óhjákvæmilega munu valda.
Stjórnvöld hafa lýst því yfir, að þau muni bregðast hratt og
ákveðið við þeirri lexíu, sem læra má af atburðunum á Súða-
vík.
Því verður að trúa, að hugur og umfram allt aðgerðir fylgi
máli.
Þannig getur þjóðin best minnst þeirra sem fórust, vottað
aðstandendum samúð og björgunarmönnum virðingu.
Páll Magnússon
Pósturmn
Vesturgötu 2, 101 Reykjavík,
sími 552-2211 fax 552-2311
Bein númer: Ritstjórn: 552-4666, símbréf: 552-2243 Tæknideild: 552-4888
Auglýsingadeild: 552-4888, símbréf: 552-2241 Dreifing: 552-4999
Fréttaskotið: 552-1900 Smáauglýsingar: 552-5577
Skrifstofa Morgunpóstsins er opin mánudaga til föstudaga frá 9:00 til 17:00
Dreifingar- og áskriftardeild er opin mánudaga og fimmtudaga
frá 8:00 til 19:00, aðra virka daga frá 9:00 til 17:00
Auglýsingadeild er opin mánudaga og fimmtudaga frá 9:00 til 18:00,
aðra virka daga frá 9:00 til 17:00
Smáauglýsingadeildin er opin frá 9:00 til 17:00 virka daga,
til 21:00 á þriðju- og miðvikudögum og milli 13:00 og 21:00 á sunnudögum.
Ummæli
vikunnar
Semsagt; hann gat hætt
eða verið rekinn?
„Það þvingar enginn Jóa til eins né
neins.“
Árni Grétar Finnsson sáttasemjari.
Var hann þá í
sparibuxun-
um?
„Ég er ekkert á
þeim buxunum
að draga mig í —
hlé en égfékk ^
ekkertfyrir
rninn snúð.“
Jóhann bergþórs
son, pólitískur
veðurviti.
Var Davíð
böðuliinn?
„Frá mínum
bœjardyrum séð
er þetta gálga-
frestur."
Ingvar Viktors-
son „hjóna-
djöfull".
Getur hann ekki mælt
götumar?
„Við erum ekki að leita að starfi
handa honum.“
Magnús Gunnarsson, pólitískur
samherji.
Jón Baldvin og boxarinn
„Miðað við venjubundin samskipti vinaþjóða
er líka eðlilegt að œtla að þeir hefðu fyrirfram
gert íslendingum greinfyrir hvað til stóð.
Það gerðu Kanadamenn ekki. Það sem verra
var, kanadíski sjávarútvegsráðherrann undir-
ritaði samninginn svo að segja íþann mund
sem han lagði upp til íslands. “
Svíinn Ingemar Johanson, sem
rotaði Floyd Patterson og varð
þannig heimsmeistari í þungavigt,
sagði einu sinni að fengi maður
óvænt högg í hringnum þá væri
eina leiðin að leggja allan þunga í
snarpt högg á móti til að koma í veg
fyrir að andstæðingurinn gengi á
lagið og gerði út um viðureignina.
Jón Baldvin Hannibalsson hefur
að sönnu eðli Vestfirðingsins en
hefur þó aldrei stundað hnefaleika.
En þessari bardagalist sænska
heimsmeistarans fylgdi utanríkis-
ráðherrann þó út í ystu æsar, þegar
Norðmenn náðu í síðustu viku að
greiða Islendingum óvænt högg í
deilunni um Svalbarðaveiðarnar,
með því að véla kanadískan sjávar-
útvegsráðherra til að veita þeim
skilyrðislausan stuðning í deilunni.
Kanadamaðurinn var á leið til ís-
Iands sem fulltrúi vinaþjóðar og
'ællaði að ræða við íslendinga á ráð-
stefnu um hentugustu leiðina til að
stjórna fiskveiðum, en sem kunn-
ugt er hafa Kanadamenn lent í
meiri hremmingum með eigin
þorkstofn en nokkur önnur þjóð,
að íslendingum meðtöldum. Á
leiðinni drap hann niður fæti í
Noregi og lét þar ginnast til að und-
irrita samning þar sem lýst var fullu
fylgi Kanada við að Norðmenn
hefðu fiskveiðisögu við Svalbarða
og sömuleiðis að samningurinn
sem gerður var um Svalbarða næst-
um 75 árum fyrr gilti ekki á svoköll-
uðum fiskverndarsvæðum Norð-
manna þar um kring. í rauninni
jafngilti þetta því að vinaþjóðin
Kanada lýsti samþykki sínu við að
Norðmenn höguðu stjórnun veiða
við eyjarnar eins og þá lysti, og
héldu uppteknum hætti að taka ís-
lensk skip og draga fyrir norska
dómara. Vitanlega er þetta í algerri
andstöðu við sjónarmið og hags-
muni íslendinga og málstaður
Norðmanna þar að auki meir en
vafasamur.
Undir öilum kringumstæðum
hefðu Islendingar lagst gegn þessari
íhlutun Kanada í deilu, sem er erf-
iðasta milliríkjamál þjóðarinnar
um hartnær tuttugu ára skeið.
Hefðum við haft pata af ráðabruggi
Norðmanna hefði allt verið lagt í
sölurnar til að telja Kanadamönn-
Þungavigtin
um hughvarf. Miðað við venju-
bundin samskipti vinaþjóða er líka
eðlilegt að ætla að þeir hefðu fyrir-
fram gert íslendingum grein fýrir
hvað til stóð.
Það gerðu Kanadamenn ekki.
Það sem verra var, kanadíski sjávar-
útvegsráðherrann undirritaði
samninginn svo að segja í þann
mund sem han lagði upp til Is-
lands. Síðan lét hann kontórista
hringja í embættismann f íslenska
stjórnkerfinu og tilkynna verknað-
inn. I aðdraganda kurteisisheim-
sóknar er þetta einfaldlega brot á
mannasiðum og að öðru jöfnu brot
á öllurn hefðbundnum samskipt-
um þjóða, hvað þá vinaþjóða.
VeÍ má vera, að þetta hafi verið
mistök, og gert í hugsunarleysi af
hálfu Tobins hins kanadíska og
sjálfsagt að láta hann njóta vafans í
því efni. En gegn þessu óvænta
höggi, sem Norðmenn greiddu
okkur með kanadískum boxara
urðu Islendingar að bregðast skjótt
og fast við.
Jón Baldvin gerði því hárrétt í því
að aflýsa fundum sínum með To-
bin, og undir það viðhorf tóku þeir
ráðherrar sem tjáðu sig um málið,
fýrir utan sjávarútvegsráðherrann.
Kjarni málsins var einfaldlega sá að
isíensku þjóðinni var sýnd lítils-
virðing, og að hagsmunum hennar
vegið. Það var pólitísk og embættis-
leg skylda utanríkisráðherrans að
fara að dæmi Ingemars Johanson
og senda boxaranum að westan
snoppung engu minni á móti.
Hvað hafðist upp úr því? I ljós er
komið að vera má að eftir allt sam-
an hafi Tobin hinn kanadíski sam-
þykkt hin umdeildu ákvæði um
Svalbarða af misgáningi og ekki
ólíklegt að hin hörðu viðbrögð Jóns
Baldvins leiði til þess að kanadíska
þingið, sem á eftir að staðfesta
samninginn, felli þau út — ef To-
bin leggur það þá ekki til sjálfur.
Hefði það gerst, ef Jón Baldvin
hefði boðið honum heim í stofuna
á Vesturgötu og látið eins og ekkert
hefði í skorist?
Þungavigtarmenn eru meðal annars: Árni Sigfússon, Geir H. Haarde, Halldór Ásgrímsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Jóhanna Sigurðardóttir,
Jón Erlendsson Jón Steinar Gunnlaugsson, Óskar Magnússon, Páll Kr. Pálsson, Svavar Gestsson, Ögmundur Jónasson, Össur Skarphéðinsson.