Helgarpósturinn - 19.01.1995, Síða 27
FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1995
MORGUNPÓSTURINN MANNLÍF
27
Frumsýning í Kaffileikhúsinu
Hún er allt í senn; leikari, leik-
stjóri og leikmyndahönnuður ein-
þáttungs nokkurs sem frumsýndur
verður í Kaffileikhúsinu, Hlaðvarp-
anurn annað kvöld. Þórey Sig-
þórsdóttir, sem hefur starfsheitið
leikkona, er með öðrum
orðum allt í öllu í leikriti
Elísabetar Jökulsdóttur,
Skilaboð til Dimmu, en El-
ísabet samdi leiritið fyrir
Þóreyju fyrir fjórum árum.
Hvað kemur til aðþú leik-
stýrir þér sjálf?
„Þegar ég var í Leiklistar-
skólanum var hluti af nám-
inu að æfa einþáttung og
sýna hann svo. Annars veg-
ar fékk ég viku til þess að
vinna að honum alfarið
sjálf og sýna svo afrakstur-
inn en svo vann með mér
leikstjóri í aðra viku áður
en ég sýndi aftur sama
mónólóginn. Þetta er sama
leikrit og ég frumsýni í
Kaffileikhúsinu á föstudag.
Frá því ég vann einleikinn
sjálf og þar til ég vann með
leikstjóranum tóku áhersl-
urnar í leikritinu miklum
breytingum. Þegar ég tók
leikritið upp aftur ákvað ég
hins vegar að setja það á
svið eins og ég gerði það í
fýrstu, nema hvað nokkrir
vinir mínir gáfu mér góðar
ábendingar. Það er kannski
óljóst hver er leikstjórinn.
En leikritið hefur þróast
töluvert á þessum tíma,
sem og leikmyndin sem ég
hef þróað smátt og smátt
sjálf frá því ég var í Leiklist-
arskólanum."
Elísabet Jökulsdóttir
samdi leikritið sérstaklega
fyrir þig, hvernig kom það
samstarf til?
„Ég leitaði til hennar
þegar það stóð til að gera eintöl í
skólanum af því mér fannst einmitt
spennandi að virkja eitthvað ungt
skáld. Hún tók vel í það og þetta
leikrit er útkoman.“
Hvað segir leikritið okkur?
Daði Guðbjörnsson
myndlistarmaður
Of mikið talað
- of lítið málað
Daði Guð-
björnsson er einn
ai' athyglisýerðari
myndlistarmönn-
uni okkar af yngri
kynslóðinni og
hann opnaði tvær
sýníngar samtímis,
í Norræna húsinu
og í Gallerí Fold,
olíuverk, teikning-
ar, skúlptúra, tréristur og aquarellur. Hann segist vera
að vinna mikið í stóru spurningunum í sínum verkum
um þessar mundir, eins og til dæmis i myndinni
„Akademía", en þverneitar því að það sé sett til höfuðs
„dr.“ Bjarna Þórarins, höfuðpaurs Vísiakademíunn-
ar.
„Það er síður en svo. Það er frekar að maður sé að
feta í fótspor hans og ég lít fremur á mig sent spor-
göngumann Bjarna að því leytinu til. Annars er þetta
varla sambærilegt því ég nálgast viðfangsefnið á svo
allt annan hátt.“
Hvaða stóru spursmál eru þetta scm þú ert aðfást við?
„Það eru til dæmis hvalveiðar og afstæðiskenningin
og svo náttúrlega konur. Það sem listin hefur fram yf-
ir ýmislegt annað er að hún þarf ekkert að gera grein
fyrir sér. Þetta stendur í myndunum og fólk verður
bara að korna og sjá þær. Listin er önnur vídd og ég
væri kannski kominn í innri mótsögn með því að ætla
mér að fara að útskýra það með orðum.“
Daði segir aðalkreppuna í myndlistinni, ef einhver
er, vera þá að það sé of mikið talað og fundað en allt of
lítið málað. JBG
Þórey Eyþórsdóttir leikkona er allt í öllu í Skilaboðum til Dimmu sem Elísabet Jökulsdóttir samdi
sérstaklega fyrir hana. Þórey segir húmorinn í leikritinu ekki ólíkan þeim sem er að finna í Galdra-
bók Ellu Stínu.
„Leikritið segir frá ein-
mana konu sem ekki nær
sambandi við fólk. Hún
er að reyna að gera upp
fortíðina, meðal annars
gagnvart látnum föður
sínum sem hún náði
aldrei sambandi við, og
elskhuga sem hefur yfir-
gefið hana kannski af því
að hún náði aldrei að
tengjast honum. Hún er
með öðrum orðum stöð-
ugt að reyna að ná sam-
bandi við fólk en tekst
ekki, en finnur loks und-
ankomuleið úr einangr-
uninni þegar hún fer að
fá skilaboð úr umhverf-
inu sem gefa lífi hennar
tilgang. Jafnframt að
þessi manneskja á svolít-
ið bágt er nijög skemmti-
legur húmor í þessu
verki. Ekki ólíkur þeim
sem er að finna í bók El-
ísabetar, Galdrabók Ellu
Stínu.
Ég hef komið að þessu
leikriti nokkrum sinn-
um, meðal annars sýndi
ég það á kvennaþinginu í
Turku í Finnlandi í sum-
ar. Mér finnst kjarni þess fjalla um
einmannaleikann; ef maður nær
ekki að höndla einmannaleikann
einangrast maður. I kringum okkur
er einmitt að verða æ algengara að
fólk missi tökin á tilverunni. Þótt
erfitt sé að greina frá kjarnanum í
einni setningu er þetta sú tilfinning
sem eftir situr. Svo finnst mér
kjarninn sá hvernig persónan fer að
því að ná aftur í gegn. Það minnir
mig mikið á þá sem leggjast í nýald-
arfræðin í kjölfar þess að einangr-
ast, en í gegnum þau fræði fær fólk
ýmis hugboð og segir frá þeim í
mestu einlægni. Sumt af þessu eru
undarlegar reynslusögur sem því
fmnst kannski mjög eðlilegar en
manni sjálfum fráleitar.“
Finnst þér þetta leikrit ná eyrum
fólks?
„Já, ég verð að segja það. I Turku
sýndi ég leikritið bæði á sænsku og
íslensku. Á þeim viðbrögðum sem
ég hef fengið virðist fólk finna eitt-
hvað sem það þekkir í þessu.“
Margir ættu að muna eftir Þór-
eyju úr sjónvarpsleikritinu Hvíta
dauða sem nýlega var sýnt í Ríkis-
sjónvarpinu og fjallaði um berkla á
Islandi. Þórey fer að auki um þessar
mundir með hlutverk í Leynimel 13
sem sýnt er í Borgarleikhúsinu.
Þangað fór hún í vetur eftir að hafa
verið þar árið sem hún útskrifaðist.
I millitíðinni starfaði hún í tvö ár í
Þjóðleikhúsinu. Innan skamms
verður svo sýnd stuttmynd eftir
Ingu Lísu Middelton sem Þórey
leikur í.
Hvað erframundan?
„I bili standa allir endar opnir.
Mér finnst mjög spennandi að vita
aldrei hvað er handan næsta horns.
Helst vildi ég vera laus við og fá að
starfa jafnt í leikhúsi, sjónvarpi og
að kvikmyndum. Mér finnst ekki
gaman að vera njörvuð niður í
ákveðna rútínu, en leikhús verður
það svo sem aldrei. Það er það ekki
í eðli sínu. Númer eitt er að fá tæki-
færi til þess að þróa sig áfram.“
Nú ertu búin að starfa töluvert
með öðru leikhúsfólki, en stendur svo
að segja ein í Skilaboðum til Dimmu,
hver er munurinn?
„Það er allt öðruvísi að vera einn.
Maður hefur engan til þess að
styðja sig við og stendur því og fell-
ur með sýningunni sjálfur. Um leið
og það er mjög hollt og jafnframt
skemmtilegt að fá tækifæri til að
þróa leikhús sjálfur verð ég að við-
urkenna að það er skemmtilegra að
vinna með fleirum.“
„Hollt að fá
tækifæri til að
þróalákhús
sjálfur“
Bíöborgin
Viðtal við vampíruna Interview with
the Vampire ©Mikið raus um vanda
þess að vera vampíra.
Konungur Ijónanna The Lion King
★ ★★★ Fallegt á að horfa, oft fyndið,
mátulega væmið og stundum hæfi-
lega ógnvekjandi. Er það ekki kjarni
málsins hjá Disney?
Skuggi The Shadow ★★★ Djengis-
kan er tekinn ofan úr skáp, vill leggja
undir sig heiminn en mætir Skuggan-
um, ofjarli sínum. Þeir hefðu samt átt
að sleppa kvenpersónunni.
B í Ó H Ö L L I N
Junior ★ Með því að gera lítið sem
ekki neitt er Schwarzenegger betri
leikari en Emma Thompson sem með
rykkjum og skrykkjum leikur óþoiandi
meðvitaða kvenpersónu.
Sérfræðingurinn The Specialist ★
Gengur út á að sýna líkamsparta á
Stone og Stallone. Þau haggast hvorki
brjóstin á henni né brjóstkassinn á
hpnum.
Kraftaverk á jólum Miracle on 34th
Street ★★ Endurgerð á einni fræg-
ustu jólamynd allra tíma, en varla til
bóta.
Leifturhraði Speed ★★★ Keanu Ree-
ves er snaggaralegur og ansi sætur.
Háskólabíó
Þrír litir: Rauður Trois Couleurs: Ro-
uge ★★★★★ Kieslowski kann að
segja sögur sem enginn annar kann
að segja, fullar af skringilega hvers-
dagslegri dulúð. Maður vill fara aftur
— til að sjá hvort maður hafi séð rétt.
La Belle Epoque Glæstir tímar ★★
Smáklám frá Spáni og eiginlega næsti
bær við Emanuelle f borgarastríðinu.
Það er smávegis talað um pólitík.
Junior ★ Schwarzenegger er miklu
sennilegri sem óléttur karlmaður en
sem háskólamaður með gieraugu.
Lassie ★★ Skýjahöllin, sjálfsagt millj-
arði dýrari, en ekki endilega betri. Þarf
ekki bráðum að gera mynd um góðan
kött?
Konungur i álögum Kvitebjörn kong
Valemon ★ Norski áiagaísbjörninn er
pappírstígrisdýr.
Forrest Gump ★★★★★ Annað hvort
eru menn með eða á móti. Ég er með.
Næturvörðurinn Nattevagten ★★★
Mátulega ógeðsleg hrollvekja og á
skjön við huggulega skólann í danskri
kvikmyndagerð.
LAUGARÁSB ÍÓ
Góður gæi Good Man ★★ Evrópu-
menn eru fullir, heimskir og spilltir, en
negrar hjátrúarfullir, heimskir og spillt-
ir.
Gríman The Mask ★★★ Myndin er
bönnuð innan tólf ára og því telst það
lögbrot að þeir sjái hana sem
skemmta sér best — tíu ára drengir.
Regnboginn
Stjörnuhliðið Stargate ★★★ Ef maður
gengur inn um réttar dyr lendir maður í
Egyptalandi hinu forna.
Bakkabræður í Þaradís Trapped in
Paradise ★ Jólamynd sem kemur
engum í jólaskap en eyðileggur það
varla heldur.
Reyfari Pulp Fiction ★★★★★ Tarant-
ino er séní.
Undirleikarinn L’accompagnatrice
★ ★ Aðaltiigangurinn er að láta leikar-
ann Richard Bohringer, hitta fallega
og svarteygða dóttur sína, Romane.
Annars er þetta dauft.
Lilli er týndur Baby's Day Out ★
Óheppnu bakkabræðurnir eru ekki vit-
und fyndnir.
Sagabíó
Konungur Ijónanna The Lion King
★ ★★★ Dýr mega éta önnur dúr en
bara í hófi. Þar skilur frá Dýrunum í
Hálsaskógi. Stjarna númer fjögur er
fyrir íslensku talsetninguna.
Viðtal við Vampíruna Interview with
the Vampire ©Vampírurnar eru álíka
spennandi og karlarnir á skattinum
sem hafa atvinnu af því að mergsjúga
fólk.
Stjörnubíó
Aðeins þú Only You ★★★ Ítalíuvinum
vöknar um augu og ástsjúkir fá nóg að
moða úr. Aðalleikararnir eru fallegir og
skemmtilegir.
Einn, tveir, þrír Threesome ★★★ Allt
gengur þetta út á uppáferðir og er
möst fyrir karla og konur á aldrinum 14
til 20.
Bíódagar ★★★ Margt fallega gert en
það vantar þungamiðju.
... Náttfatapartíum
Veðráttan er ekki
beinlínis til þess
fallin gæti ein-
hver sagt en það
er bull því þetta
er góð aðferð fyr-
ir kvenpeninginn
að skilja hismið
frá klökunum.
... því að Ágúst Guðmundsson
fái að búa til bíó
Eins og hann
bendir sjálfur á
þá á hann það
skilið og þetta fer
að lykta af einelti
að vera að skilja hann svona út-
undan trekk í trekk.
... yfirgreiddum sköllum
Skallar eru karl-
mennskutákn og
þeir sem greiða
yfir skallann eru
menn sem ekki
eru að flagga
þessurn eftirsókn-
arverða eiginleika. Auk þess sem
þetta gefur til kynna karakter sem
byggir á ákjósanlegri blöndu við-
kvæmni og innbyggðrar hörku.
... dragi
Ef fólk vill vera inni
þá er rétt að fjár-
festa í flassí hárkollu
og gramsa í fata-
skápnum hennar
mömmu. Þær
mættu víst um 200
drottningarnar í bíó
um síðustu helgi
sem er ekkert smá.
... að tilbiðja gleðigjafa
Að hirðin fái útrás fyrir aðdáun
sína á Magnúsi Scheving með því
að falla fram á hnén og tilbiðja
hann eins og múslimir Allah:
Maaaaagnúúússs.
Veðurfræðingar. Þessi stétt er fá-
dærna skemmtileg og hér er þeirri
áskorun komið á framfæri við
Boga Ágústsson að segja ekki: „Og
eftir stutta stund kemur Trausti
Jónsson og
segir veð-
urfregnir."
Það er óaf-
sakanlegt
að taka út
spennuele-
mentið sem fylgir því hver veður-
fræðinganna birtist á skjánum og
skemma þannig þennan fína fjöl-
skylduleik þar sem hver og einn
getur hvatt sinn mann: Hörður!
Hörður! Hörður! Eða: Boggi!
klapp’klapp’klapp. Boggi!
ta ta ta...
Úti
Kaffihús. Hér fyrir nokkrum ár-
um skutu kaffihús upp kollinum
eins og gor-
kúlur og
kaffihúsa-
spekúlantar
lifðu gósen-
tíma. En þessi
Parísarrómantík fer nú kólnandi
enda er það ekld í eðli nema ör-
fárra og afbrigðilegra íslendinga
að hanga á kaffihúsum lon og
don. Og það er sorgleg staðreynd
að alvöru listamenn er víst ekki að
finna á kaffihúsunum. Þeir eru að
vinna. Þetta var öðruvísi hér í
gamla daga þegar þeir gáfu sér
tíma á milli verka og voru mold-
fullir til að viðhalda mýtunni.