Helgarpósturinn - 19.01.1995, Síða 32

Helgarpósturinn - 19.01.1995, Síða 32
Menn innan þjónustunnar gapandi yfir skipun Ingimundar Innan utanríkisþjónustunnar eru menn gapandi yfir væntanlegri skipun Ingimundar Sigfússonar sem sendiherra í Bonn og benda á að þrátt fyrir að sendiherraembætti sé alþekkt út- gönguleið fyrir rnenn sem eru komnir að fótum ffam í pólitík sé það óþekkt að maður úr viðskiptalífinu hljóti viðlíka upphefð. Fróðir menn utan ráðuneytis telja hins vegar tíma til kominn að mað- ur með gripsvit á viðskiptum hefji þar störf. Eftir að Þröstur Olafsson datt upp fyrir sem líklegasti kandídatinn í sendiherraembættið í Bonn þótti Bene- dikt Ásgeirsson, skrifstofustjóri varnamálaskrifstofunnar, líklegastur til að hreppa hnossið. Benedikt er mennt- aður í Þýskalandi og starfaði einmitt við upphaf ferils síns f sendiráðinu í Bonn. Enn ffemur er hann sérffóður um örygg- is- og vamarmái, en sendiherrann í Bonn er jafnffamt fastafulltrúi hjá RÖSE, sem er ráðstefna Evrópuríkja um öryggi og samvinnu t álfunni. Það þótti þvi koma eins og þruma úr heiðskíru lofti þegar til- kynnt var að Ingimundur færi til Þýska- lands. Benedikt getur hins vegar vel við unað því hann fékk sendiherrastöðuna í Lundúnum sem þykir heldur veigameiri en sú í Bonn. Bjargvættirnar í leitariok. Frá vinstri Arnar Þór Stefánsson með Hnotu, Bjarni Guðmundsson með Perlu, Hermann Þorsteinsson með Trópí og Mikka og Auður Björnsdóttir með Tuma, Sérþjálfaðir leitarhundar gátu það sem ekki var í mannlegu valdi Hundamir voru Þegar ísfirsku leitarhundarnir komu á staðinn þremur og hálfum tíma eftir að flóðið féll voru Súð- víkingar við björgunarstörf og höfðu tveir menn þegar fundist. Skömmu eftir að hundarnir mættu með eigendum sínum, fúndust þrír menn til viðbótar. Hundarnir skiptu sköpum fyrir allt leitar- og björgunarstarf sem var ákaflega erf- itt sökum veðurs. ísfirsku hundarnir voru fjórir til að byrja með en á öðrum degi bætt- ist sá fimmti í hópinn og þá komu einnig tveir leitarhundar úr Reykja- vík. Labradorhundurinn Perla, í eigu Kristjáns B. Guðmundsson- ar, og Border Collie-hundurinn Mikki, í eigu Hermanns Þor- steinssonar, eru þeir vestfirsku hundar sem hafa hlotið mesta þjálf- un og hafa báðir hæstu prófgráðu sem snjóleitarhundar geta hlotið. Hinir hundarnir hafa ekki gengist undir formlegt próf, en eru vel þjálfaðir og verða innan skamms prófaðir. Það eru Border Collie- hundarnir Trópí og Tumi og Gold- en Retriever-hundurinn Hnota. Allt eru þetta venjulegir heimilis- hundar þegar þeir eru ekki við störf eða þjálfun og ákaflega mannelskir. Allir hundarnir tilheyra Hunda- björgunarsveit íslands. Krafsa og klóra á staðnum A leitarslóð þeysast hundarnir yfir svæðið og gefa merki urn fund með því að krafsa, klóra og ýlfra. Þá er komið með aðra hunda sem staðfesta fundinn, því ýmislegt get- ur afvegaleitt hundana svo sent niðurgrafnir hlutir og fatnaður, sem gefa frá sér lykt. Þegar fundur- inn hefur verið staðfestur af öðrum hundurn koma björgunarmenn og grafa, en það er gífurlega tímafrekt þar sem lyktin sem hundarnir finna er ekki endilega beint yfir staðnum þar sem manneskjuna er að finna. Þegar manneskjan er fundin taka síðan aðrir björgunarmenn við og veita aðhlynningu og sjá um flutning fólks af slysstað. Tvö dæmi um lífsbjörg Hús í efstu húsaröðinni hafði fallið ofan á næsta hús fyrir neðan og þangað leitaði Perla mikið og þefaði ákaft. Við það vöknuðu grunsemdir um að þar væri fólk undir og leiddi til þess að ungur drengur fannst þar á lífi. I öðru tilfelli leitaði Mikki stöð- ugt upp á þak yfir húsarústum — heljur þefaði krafsaði og ýlfraði. Það íeiddi til þess að unglingsstúlka náðist á lífi úr rústunum seint um kvöldið. Það þurfti að hvíla hundana til skiptis með reglulegu millibili, en hvíldin var stutt og áfram voru þeir keyrðir, úrvinda og sundurskornir á fótum af glerbrotum. Undir lokin var þeim haldið gangandi á þrúgu- sykri. Eigendurnir sváfu ekkert og hvíldust lítið í hartnær tvo sólar- hringa og aðspurður sagði Her- ntann Þorsteinsson, eigandi Mikka, að það væri ekki hægt að útskýra hvað héldi mönnum gangandi í jafn langan tíma við svo gífurlega erfiðar aðstæður. „Mannlegur máttur má sín emskis“ „Þetta er í annað skipti sem ég upplifi slíkan atburð en það ei skammt síðan flóðið féll á Tungu- skóg. Þegar allt helst í hendur, líkl og nú í Súðavík, það er snjóflóð og rústir mannvirkja og aftakaveður þá má mannlegur máttur og þat tæki sem við höfum yfir að ráða sír einskis. Það er bara eitt til, leitar- hundar, þeir eru ómetanlegir vic þessar aðstæður,“ sagði Kristján B Guðmundsson, eigandi Perlu. ÞKÞ Vedrid ( dag Áfram norðan hvass- viðri eða stormur á Vestfjörðum, Ströndum og á Breiðafirði. Víðast snjókoma. Lægir og dregur úr of- ankomu síðdegis. Annars staðar á landinu verða 4-5 vindstig og dálítil él eða slydduél. Frost verður 1-4 stig á norð-vestanverðu landinu en annars staðar verður 2-5 stiga hiti. Veðrid næstu daga Norð-aust- ,læg átt, nokkuð stíf á Vestfjörðum en hægari annars staðar. Éljagang- ur norðanlands og austan en þurrt að mestu á Suð- Vesturlandi. Frost 3-6 stig NV-lands en nálægt frost- marki að deginum annars staðar. SPURT ER: Var rétt staðið að björgunaraðgerðum í Súðavík? Greiddu atkvæði! •9 15 16 39,90 krónur mínútan Síðast var spurt: K... uu áfengisauglýsingar í jjölmiðlum mynau auka áfengisneyslu? Veðrið um helqina I hverju tölublaöi leggur Morgunpósturinn spurningu fyrir lesendur, sem þeir geta kosið um í síma 99 15 16.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.