Helgarpósturinn - 18.05.1995, Qupperneq 4
ÍSLENDING-
AR ERU
TAPSÁRIR
íslendingar eru tapsárir í
keppnisíþróttum. Allir vilja
eiga þá íþróttamenn sem
sigra í keppni en enginn
vill kannast við þá sem
tapa. Þetta er ekki sér-
kenni Islendinga heldur
allra smáþjóða. Fámenn
þjóðfélög gera miklu meiri
kröfur til sinna þegna en
stórþjóðir þar sem íbúum
smáþjóða þykir meira til
hvers annars koma en
þeim í milljónaþjóðfélög-
um. Það er samt sem áður
ótrúlegt hvað smáþjóðir
ná langt í íþróttum þar
sem þetta er yfirleitt
áhugamennska hjá þeim
en í milljónaþjóðfélögum
snýst þetta frekar um pen-
inga. Samt sem áður höf-
um við góðar ástæður til
að vera stolt af okkar
íþróttafólki vegna þess að
okkar fólk hefur náð langt
á heimsmælikvarða.
AMAL RÚN QASE
Island er skrifað af hring-
borði fólks sem á rætur
sínar að rekja til útlanda
en býr hér á landi.
F!M T tl DaG ú FrT8
Matsnefnd vínveitingahúsa:
Tilgangslausl batterí
kostar milljónir á ári
Frá árinu 1956 hefur verið
starfandi á vegum dómsmála-
ráðuneytisins svokölluð Mats-
nefnd vínveitingahúsa. Þetta er
þriggja manna nefnd sem hefur
aðsetur í Reykjavík og hefur því
eina hlutverki að gegna að meta
húsakynni þeirra veitingastaða
sem sækja um vínveitingaleyfi. í
þeim tilgangi ferðast nefndar-
meðlimir vítt og breitt um landið
á fullum dagpeningum. Heil-
brigðiseftirlit viðkomandi sveit-
arfélaga hafa hins vegar undan-
tekningalaust áður tekið út hús-
næði og aðstöðu þeirra veitinga-
staða sem sækja um vínveitinga-
leyfi, enda þarf jákvæð umsögn
að liggja fyrir frá heilbrigðiseftir-
liti áður en veitingaleyfi fæst.
Samkvæmt heimildum póstsins
hafa lengi verið uppi raddir með-
al heilbrigðiseftirlitsmanna að
Matsnefndin sé úrelt fyrirbæri,
og að störf nefndarinnar sé ekk-
ert annað en endurtekning á
þeirra verki, sem þeir séu full-
færir um að inna af hendi. Á síð-
asta ári kostaði rekstur Mats-
nefndarinnar á þriðju milljón
króna og skiptist sú upphæð
þannig að ríflega heimingur féll
til vegna ferðakostnaðar og dag-
peninga, en afgangurinn var
þóknun til nefndarmeðlima.
KIRKJUVÖRÐUR,
HEILBRICÐISEFTIRLITS-
IVIAÐUR A EFTIRLAUIU-
UM OC HÓTELSTJÓRI
Þeir seiTT sitja í Matsnefnd vín-
veitingahúsa eru:
Þórhallur Halldórsson, skipaður
af dómsmálaráðuneytinu. Hann
starfaði áður hjá Heilbrigðiseft-
irliti Reykjavíkur en er að mestu
hættur þar störfum sökum ald-
urs. Sigrún Sturludóttir, kirkju-
vörður í Bústaðakirkju, er full-
trúi Áfengisvarnarráðs og fyrir
hönd Sambands veitinga- og
gistihúsaeigenda situr Einar 01-
geirsson, hótelstjóri Hótel Loft-
leiða.
Að sögn Þórhalls, sem er for-
maður Matsnefndarinnar, reyn-
ir nefndin ávallt að bregðast
eins skjótt við og hægt er þegar
beiðni um mat á veitingahúsi
berst. Hann segir að þó starfs-
vettvangur nefndarinnar sé að-
allega höfuðborgarsvæðið hafi
ferðir út á land verið töluvert
margar á síðasta ári, eins og
sést reyndar á áðurnefndum töl-
um um ferða- og dvalarkostnað.
Þórhallur segir að hlutverk
nefndarinnar sé fyrst og fremst
að meta hvort húsakynni þeirra
veitingastaða sem sækja um
vínveitingaleyfi séu fyrsta
flokks og nefnir að hún geri til
dæmis töluvert strangari kröfur
til aðbúnaðar starfsfólks en
heilbrigðiseftirlitið þegar það
tekur út staði vegna veitinga-
leyfa.
75 PRÓSEIVT SÝSLU-
MAIUIUA TEUA AÐ
HÆCT SÉ AÐ VINNA
ÞETTA í HÉRAÐI
Hjá Sigurði T. Magnússyni í
dómsmáiaráðuneytinu fást þær
upplýsingar að engar hugmynd-
ir séu uppi um að leggja Mats-
nefndina niður enda þurfi laga-
breytingu til þess.
Að sögn Sigurðar var nýlega
gerð skoðanakönnun meðal
allra sýslumanna landsins þar
sem meðal annars var komið
inn á hlutverk Matsnefndarinn-
ar.
Voru sýslumennirnir spurðir
hvort þeir teldu heilbrigðisyfir-
völd á hverjum stað geta sinnt
þeim störfum sem Matsnefndin
gerir nú.
Yfirgnæfandi meirihluti sýslu-
mannanna, eða um það bil 75
prósent, svöruðu þessari spurn-
ingu játandi.
-JK
ý- ' J
IfcJW&ý
Haukur L. Hauksson í Heildsölubakaríinu stendur enn í stappi við sambakara sína
Haukur L. Hauksson.
Selur tertur á allt að
50 prósentum lægra
verði en samkeppn-
insaðilar, sem einnig
auglýsa sína vöru á
„heildsöluverði".
Heildsala eða smásala?
Áfrýjunarnefnd samkeppnis-
mála, sem starfar á vegum Sam-
keppnisstofnunar, tekur áfrýjun
Hauks L. Haukssonar, eiganda
Heildsölubakaríanna við Grens-
ásveg, Suðurlandsbraut og
Hlemm, til meðferðar á mánu-
cjaginn kemur. Eins og greint hef-
ur verið frá í fjölmiðlum bannaði
Samkeppnisráð Hauki að nota
nafnið Heildsölubakarí og orðið
heildsöluverð í auglýsingum fyr-
ir bakarí sín í vetur, eftir að
Landssamband bakarameistara
kærði Hauk til ráðsins. Haukur
hefur hins vegar fengið nafnið
Heildsölubakarí skráð í firma-
skrá, athugasemdalaust, en
hann má semsagt hvorki hengja
það nafn utan á bakarí sín né
auglýsa það á annan hátt. Hauk-
ur sætti sig ekki við niðurstöðu
ráðsins og áfrýjaði málinu til
áfrýjunarnefndar samkeppnis-
mála, sem tekur það fyrir á
mánudag.
ORÐALEIKUR
Niðurstaða Samkeppnisráðs
byggðist á því að samkvæmt
málvenju væri nafmð heildsala
aðeins notað um þá aðila, sem
fyrst og fremst seldu vöru sína
áfram til smásala. Þar sem Heild-
sölubakaríið seldi sína vöru hins
vegar aðallega beint til neytenda
teldist það röng og villandi upp-
lýsingagjöf að auglýsa með orð-
unum „Heildsölubakarí“ og
„heildsöluverð“. í þessari niður-
stöðu er ekkert tillit tekið til
þess að Haukur selur sína vöru á
mun lægra verði en tíðkast í öðr-
um bakaríum, það er að segja á
verði sem er fyllilega sambæri-
legt og jafnvel lægra en heild-
söluverð annarra og stærri bak-
aría sem fyrst og fremst selja
sína vöru í matvöruverslanir og
stórmarkaði. Ekki var heldur tek-
ið tillit til þess að Heildsölubak-
aríin selja einnig brauðmeti til
smásölukaupmanna, þótt í litl-
um mæli sé, og það á nákvæm-
lega sama verði og hann selur
það beint yfir búðarborðið. Það
er því sama hvernig menn teygja
og toga hugtökin málhefð eða
málvenja, það breytir ekki þeirri
staðreynd að almennir neytend-
ur eru að kaupa brauð sín og
bakkelsi í Heildsölubakaríinu á
sama verði og smásalar, það er
að segja á heildsöluverði. Jafn-
vel þótt Heiidsölubakaríið seldi
framleiðslu sína á svimandi háu
verði, þá ætti það engu að
breyta um rétt þess til að aug-
lýsa vöru sína á heildsöluverði,
svo lengi sem neytendur fá fram-
leiðslu þess á sama verði og
smásalar.
SAMKEPPNISSTQFN-
UN.VERNDAR ÞA
STORU
Á sama tíma og Hauki er bann-
að að auglýsa á þennan hátt,
sendir til dæmis bakaríið Gull-
kornið, sem er innan vébanda
Landssambands bakarameist-
ara, verðlista til foreldra ferm-
ingarbarna, þar sem það býður
upp á tertur á heildsöluverði. Á
þeim Iista er meðal annars að
finna marsipantertur, 16, 20 og
30 manna, sem eru allt að 50 pró-
sentum dýrari en sambærilegar
tertur kosta beint til kúnnans í
Heildsölubakaríinu.
„Það skýtur nokkuð skökku
við að Samkeppnisstofnun skuli í
raun hafa úrskurðað einokunar-
samtökum bakarameistara í hag
í máli þeirra gegn smærri aðila
sem er að selja sína vöru á mun
lægra verði en gengur og gerist
og stuðlar þannig beint að auk-
inni samkeppni á þessu sviði,“
sagði Haukur í samtali við blað-
ið. Sigrún Kristmundsdóttir hjá
Samkeppnisstofnun sagði í sam-
tali við blaðamann PÓSTSINS að
verðið væri í sjálfu sér aukaat-
riði og að Haukur hefði þar að
auki ekki sýnt fram á með óyggj-
andi hætti að hann seldi vöru
sína á heildsöluverði. Það væri
ekki í verkahring stofnunarinnar
að kanna hvort svo væri.