Helgarpósturinn - 18.05.1995, Blaðsíða 16

Helgarpósturinn - 18.05.1995, Blaðsíða 16
Ég var mest not- aður í að af- greiða í efna- lauginni og pressa jakka á þar til gerðri gínu sem blés út um brjóstkass- ann - ekki ósvipað og ger- ist þegar Heimir Pálsson byrjar að segja eitt- hvað sem hon- um þykir merki- legt. En þá ætlaði hann að borga á morgun og smátt og smátt áttaði ég mig á að þessi morg- undagur mannsins var svipaður og sá morgundagur sem Nancy Sin- atra upplifði og aldrei kemur. Páll Pétursson hefur sagt Evrópusambandinu stríð á hendur til að vernda einn mikilvægasta þátt íslenskrar menningar - barnaþrælkunina. Og þrátt fyrir hversu ógeðfellt honum það er getur Gunnar Smári Egilsson ekki annað gert en lýst sig sammála Páli. Eins og Páli, þá finnst honum, að úr því hann þoldi að vinna sem barn þá sé ekki til of mikils ætlast þótt börn í dag geri slíkt hið sama. JíkJega Páll Pétursson mn við beinið kvarta ef þeir fengu ekki blöðin sín og hverjir ekki. Við Elli lifðum eins og kóngar þetta sum- ar. Höfðum þreföld sendla- laun og borðuðum alltaf í hádeginu í kaffiteríu Glæsi- bæjar - oftast Scmdköku og appelsín - en stundum deild- um við skammti af frönskum. Ég skil Pál Pétursson. Og ég veit hvað hann meinar. í fyrsta skipti það ég man. Ég las einu sinni viðtal við mann sem hafði eytt rúmum þrjá- tíu árum í fangelsi saklaus og þeg- ar blaðamaðurinn spurði hann hvort hann sæi ekki eftir þessum árum, svaraði hann að þetta hefði verið erfitt en þetta væri reynsla sem hann vildi ekki hafa misst af. Sama segir fólk sem hefur lent í hrakningum og fátækt og orðið fyrir ofbeldi og skorti. Maður trúir þeim ekki ef þau segjast vilja end- urlifa þetta en maður getur ekki efast þegar það segist ekki hafa viljað verða af reynslunni. Fólk er lítið annað en sú reynsla sem það býr að og það er ómannlegt að ætla því að hafna henni. Það er eins og að hafna sjálfum sér. Þess vegna skil ég Pál Péturs- son þegar hann vill ekki kyngja samevrópskum reglum gegn barnaþrælkun. Páll er alinn upp í sveit og þau litlu kynni sem ég hafði af sveitavinnunni voru á þá lund að sá yngsti á bænum gerði allt sem hann gat, sá næstyngsti allt sem hann gat og sá yngsti var ekki búinn að leysa af hendi, og svo koll af kolli. Allt upp í bónd- ann sem lagði sig tvisvar á dag með Tímann yfir andlitinu. Þannig hefur Páll ábyggilega al- ist upp. Og verið hengdur upp á snaga svo hann yrði ekki fyrir þegar hann var of ungur til að taka til hendinni, eins og mér var sagt að Björn á Löngumýri hefði gert við sín börn. Ég er svo miklu yngri en Páll Pétursson svo hann hlýtur að líta á mína barnavinnu sem hvert annað holliday. Ég var aldrei lam- inn til verka eins og jafnlatur drengur og ég hefði sjálfsagt þurft að þola langt fram á þessa öld. En undanfarna daga á meðan ég hef fylgst með þessari deilu Páls - sem hefur vaxtarlag Golíats - og Evrópusambandsins - sem hefur flöktandi sál Davíðs - þá hefur mér verið hugsað til vinnufram- lags míns sem barns. Og velt því fyrir mér hvort ég hafi skaðast af því. Mér til nokkurra vonbrigða hef ég komist að því að ég og Páll eig- um samleið í þessu máli. Alveg eins og Páli þá finnst mér svo vænt um sjálfan mig að ég tel að enginn maður geti skaðast af því að hafa gengið í gegnum það sama og ég. Eins og Páll, þá tel ég að það verði betri menn sem geri það sama og ég. En áður en ég spyrði okkur Pál meira saman vil ég fagna því að það tókst aldrei að gera úr mér sveitamann. Ég var að vísu sendur í sveit sex ára gamall en undi mér ákaflega illa. Mér fannst beljur strax við fyrstu sýn fremur heimskulegar skepnur og sætti mig aldrei við að drekka mjólkina úr þeim volga og kekkjótta. Ég var líka vanur matnum hennar mömmu og sá ekki tilganginn í að venja mig við önnur eldhús jafn ungur og ég var. Ég sat því löng- um skyldaður til að klára matinn minn á meðan annað fólk á bæn- um var snúið til annarra verka. Reyndar að bóndanum slepptum sem svaf undir Tímanum eins og honum líkaði svo vel. Ég get því ekki sagt að ég hafi kynnst mikið vinnusemi til sveita. Ég var fastur á byrjunarreit. Sat í eldhúsinu og reyndi að dreifa matnum um diskinn og jafnvel fela hann undir botninum. Á fimmta degi reyndi ég að strjúka en rataði ekkert eins og sannur Reykvíkingur í sveitaferð. Á sjö- unda degi kom mamma og sótti mig þar sem ég lá milli heims og helju af slæmu kíghóstakasti, en Haddi bróðir hafði verið svo vænn að sýna mér um veturinn öll helstu einkenni þess. Strax um kvöldið þegar ég kom í bæinn bráði af mér og ég blómstraði í drullupollunum á Seltjarnarnesi þetta sumar. Mamma hafði áttað sig á að sveitalífið átti ekki við drenginn. á byrjaði ég að bera út Mogg- ann. Það var í sjálfu sér hent- ugt starf fyrir sex ára strák. Ekkert helvítis góðæri í þjóðfé- laginu og Mogginn bæði þunnur og léttur. Hentugur fyrir sex ára axlir. Eini gallinn var að ég bjó í Lambastaðahverfinu og einhver snillingur á Mogganum taldi eðli- legt að fjögur hús hinum megin við Lambastaðatúnið tilheyrðu mínu hverfi. Þegar vetraði fjar- lægðust þessi hús. Túnið varð illt yfirferðar og einkum fimm skurðir sem skáru það þvers og kruss. Allan veturinn voru þeir fullir af snjó. Eina leiðin til að komast yfir þá var að láta vaða, stinga sér á kaf í snjóinn og von- ast til að maður hefði það yfir á bakkann hinum megin. Önnur vandræði við útburð- inn voru einkum þau að einn af íbúum þessara fjögurra húsa var tregur til að borga áskriftina. Hann sagði mér alltaf að koma á morgun og af því að ég trúði því þá að fullorðið fólk væri ekki að ljúga að börnum þá kom ég dag- inn eftir. En þá ætlaði hann að borga á morgun og smátt og smátt áttaði ég mig á að þessi morgundagur mannsins var svipaður og sá morgundagur sem Nancy Sinatra upplifði og aldrei kemur. Skiljanlega var ég orðinn þreytt- ur á að vaða túnið bæði kvölds og morgna en þá kom áðurnefndur Haddi bróðir mér aftur til bjargar. Hann fór í innheimtuleiðangur með mér, hunsaði loforð manns- ins um að greiða á morgun, stakk löppinni milli stafs og hurðar og hótaði að flytja inn ef maðurinn borgaði ekki. Haddi var þá kom- inn með bílpróf og þess vegna man ég af myndinni á prófskír- teininu hversu óárennilegur og sérdeilis bítlalegur unglingur hann var og skil vel að maðurinn kaus að borga. Meiri vandræði hafði ég ekki af þeim manni. Eg missti vinnuna hjá Moggan- um þegar fjölskyldan flutti inn í Voga. Mamma fékk þá vinnu í efnalaug við hliðina á Heimakjör og tókst að bjarga mér atvinnu- lausum og átta ára af götunni og koma mér í hlutastarf í þessari efnalaug. Ég man lítið eftir þeirri vinnu nema lyktinni og að það vantaði putta á grjótharða járn- kerlingu sem átti þessa efnalaug. Síðan hefur mér alltaf fundist það merki um dugnað þegar vantar putta á fólk. Það er helst að Páll Magnússon hafi dregið úr þessi trú minni, enda varla að marka, þar sem hann missti sinn þegar hann var strákur. Ég var mest notaður í að af- greiða í efnalauginni og pressa jakka á þar til gerðri gínu sem blés út um brjóstkassann - ekki ósvip- að og gerist þegar Heimir Pálsson byrjar að segja eitthvað sem hon- um þykir merkilegt. Sumarið eftir efnalaugina fékk ég vinnu í gegnum klíku. Leik- félagi minn var sonur Péturs Sigurðssonar, alþingismanns og formanns sjómannadagsráðs, og því þótti snjallræði að við eydd- um sumrinu saman sem sendlar á Hrafnistu. Því hefur oft verið haldið fram að hentugt væri að láta gamalt fólk líta eftir börnum og jafnvel að skella saman leikskólum og elli- heimilum. Ef til vill er það vegna þess að af þremur öfum og þrem- ur ömmum mínum umgekkst ég bara einn afa, eða sökum þess að ég hef aldrei verið sérstakur elli- smellur, þá man ég ekki mikið eft- ir gamla fólkinu á Hrafnistu. Það var frekar vinnufélagi minn sem var lunkinn við að fá stungið upp í sig bolsíum. En það er helst að ég muni eftir Pétri sjómanni sem lagði sig út á tún í sólinni með opna buxnaklauf og var alltaf að stinga af í bæinn með því að rífa sérvettu ofan í baukinn á strætó. En ég man þó eftir einum manni - ekki vegna þess að hann hafi veitt mér sérstaka athygli - held- ur vegna þess að hann var áber- andi unglegur. Þegar ég spurði eitthvað út í þetta var mér sagt að hann væri 34 ára gamall. Ekki veit ég hvers vegna ég spurði ekki frekar og sökum þess veit ég ekki hvað maðurinn var að gera á elli- heimili. Mér dettur einna helst í hug að hann hafi hvorki verið geð- veikur, gamall né alvarlega fatlað- ur en ákaflega uppburðarlítill og augljóslega stofnanamatur. Þess vegna hafi honum verið komið fyrir á Hrafnistu. Sorglegt líf þegar maður hugsar aftur. 34 ára gamall maður á elli- heimili hlýtur að horfa á marga herbergisfélaga í gröfina áður en hann nær þeim aldri að dauðinn kæri sig um að líta við honum. Sumarið eftir Hrafnistu gerð- umst við Elli Jóns blaðakóngar í Glæsibæ. Ég var þá um vet- urinn búinn að koma mér upp tveimur hverfum af Mogganum, einu af Tímanum, Þjóðviljanum og Alþýðublaðinu og svo enn einu hverfi af Vísi til að bera út um eftirmiðdaginn. Elli hafði álíka pakka. Þegar við vorum búnir að bera út fórum við niður í Glæsibæ að selja aukablöðin. Til að draga úr samkeppni keyptum við auka- blöðin af öðrum krökkum í heild- sölu og náðum því einokun á þessum ágæta sölustað. En þrátt fyrir sovéska markaðsstöðu þá beittum við lögmálum kapítalism- ans og hækkuðum og lækkuðum blöðin í verði eftir framboði og eftirspurn. Upp úr hádeginu fórum við upp í Blaðaprent, renndum augunum yfir listann yfir þá sem höfðu sagt upp áskrift og földum tilkynning; ar um uppsögn í okkar hverfum. I lok sumarsins hafði mér tekist með þessum hætti að krækja mér í fjórtán aukablöð í stað þriggja. En þetta fullnægði ekki óheiðar- leika okkar gagnvart Vísi gamla heldur fórum við alltaf prent- smiðjumegin út og stálum nokkr- um blöðum til viðbótar. Þegar við komum aftur niður í Glæsibæ þá lömdum við krakka sem voru að selja blöð á prósent- um og tókst með því að halda ein- okunarstöðunni frá því um morg- uninn. Og salan gekk vel. Stund- um svo vel að við áttum ekki nema örfá blöð að bera út til áskrifenda og lærðum því fljótt inn á hverjir voru líklegir til að Sumarið eftir fékk ég aftur vinnu í gegnum klíku. Títt- nefndur Haddi bróðir var þá þjónn á Hótel Sögu og útvegaði mér starf sem pikkaló. Eitthvað hefur kynþroski verið byrjaður að skjóta rótum í iðrum mér því þegar ég hugsa aftur man ég helst eftir lykt af stúlkunum í lobbíinu, blússunum þeirra og einkar tæ- landi nælonsokkum. En hugsan- lega er þetta bara nostalgía því upp úr þessu þá hættu konur að láta kúga sig til að vera konur en kusu frekar að vera stelpur allt til fertugs. Ég er því fyrsta kynslóð karlmanna sem hefur aldrei kynnst almennilega fyrirbrigðinu „ung kona“. Hvað um það. Þegar ég mætti til vinnu fyrsta daginn var ég var- aður við yfirpikkalónum án þess að það væri útskýrt sérstaklega hvað ég ætti að varast. Mér var bara sagt að hann væri hættuleg- ur ungum drengjum. Þessar við- varanir reyndust ástæðulausar hvað mig varðar þar sem ég var stór eftir aldri - orðinn yfir 180 sentimetrar tólf ára. Yfirpikkaló- inn var hins vegar á sextugsaldri en hafði aldrei stækkað umfram þann einn og hálfa metra sem hann hafði verið undanfarna hálfa öld. Hann hefur því sjálfsagt litið á mig sem hálfgerðan kall og alls ekki nógu árennilegan né unglegan. En eitthvað var maður- inn að gera sér dælt við hina pikkalóana og var loks látinn fara mörgum árum eftir þetta sumar mitt.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.