Helgarpósturinn - 18.05.1995, Page 5

Helgarpósturinn - 18.05.1995, Page 5
rögun hefur nokkuð verið til umfjöllunar á síðum Lblaðsins. Eftir því sem næst verður komist hefur aðeins einn maður hætt eða verið sagt upp störfum. Um er að ræða Baldur Pálsson sem starfaði hjá þeim í Kaliforn- íu. Samkvæmt heimildum blaðsins var Baldur mjög ósáttur við að starfsmaður Ratsjárstofnunar í Kaliforníu var ekki boðið á árshátíð Kögunar úti en hans starfssvið er það sama og starfsmanna Kögunar. Litlu síðar urðu launabreytingar hjá starfsmönnum Kögunar þeim til hækkunar en Baldri var ekki boðið slíkt og taldi hann að það væri vegna gagnrýni hans á Gunnlaug M. Sigmundsson vegna árshátíðarmálsins. í fram- haldi af því skrifaði Baldur Gunn- laugi mjög harðort bréf og var í kjölfarið sagt upp störfum... Uppselt hefur verið á fjóra leiki íslenska landsliðsins í HM, sem þýðir að þá hafi verið um það bil 5.100 áhorfendur í Höllinni. Af þeim fjölda greiðir þó aðeins 4.100 manns aðgangseyri því jafnan hafa 1000 miðum, eða um það bil 20 prósent heildarmiðafjöld- ans, verið ráðstafað til fjölmiðla, boðsgesta og meðlima annarra liða... ramundan er keppni milli íslenskra matreiðslu- manna um nafnbótina „Matreiðslumaður ársins“. Úr- slitanna er beðið með meiri eft- irvæntingu en ella vegna þeirra hatrömmu deilna sem spunnist hafa í kringum kokka- landsliðið. PÓST- urinn sagði frá því fyrir skömmu að fjór- ir af sigursæl- ustu matreiðsiumeisturunum í liðinu — þeir sem sópað hafa að sér flestum verðlaunum fyrir lið- ið á erlendri grund — hafi ekki verið valdir í það í ár. í fram- haldi af því sögðu þeir sig úr Klúbbi matreiðslumeistara. Þetta eru þeir Úlfar Finnbjörns- son, eigandi Mávsins, Baldur Öxdal HalldÓRSSON, eigandi Ráðhússkaffis, Bjarki Hilmars- SON, kokkur á Hótel Holti, og Örn Gardarsson, kokkur á Glóð- inni í Keflavík. Úlfar lét þá hafa eftir sér að þeir væru ekki ósátt- ir við að vera ekki valdir, heldur hitt að fá ekki tækifæri til þess að keppa um sæti. Valið í lands- liðið í fyrra byggðist einmitt á árangri í keppninni um „Mat- reiðslumann ársins" og Úlfar var valinn fyririiði. Það hlálega við keppnina í ár er að tveir nýliðar í landsliðinu sendu inn upp- skriftir en komust ekki í keppn- ina sjálfa þar semjjær þóttu ekki nógu góðar. Úlfar og Baldur flugu hins vegar inn. Þeir þurfa varla að óttast hlutdræga dóm- ara því tveir þeirra af fimm eru erlendir og hæsta og lægsta ein- kunn telst ekki með... Im helgina verður mikið um að vera í Ingólfscafé sem opnar á nýjan leik eftir umtalsverða stækkun stað- arins sem nú rúmar 550 manns, eða 200 fleiri en áður. Það er plötusnúðurinn góðkunni Maggi Legó sem leggur lín- urnar í Ingólf- skaffi og fyrir opnunarhátíð- ina hefur hann fengið breska plötusnúðinn Darius til liðs við sig, en sá kappi kom til landsins í fyrra og spilaði við feikigóðar undirtektir í Rósenbergkjallaran- um. Einnig verður Þossi á staðn- um með sína tónlistarblöndu sem er fáu öðru lík. Þeim gest- um, sem kjósa að anda að sér útiloftinu í hinum nýuppgerða þakgarði Ingólfscafés verður P boðið upp á ýmislegt matar- kyns, sem grillmeistarar staðar- ins ætla að framreiða, ásamt kokkteil af finnskum ættum til að skola herlegheitunum niður með. Þegar þetta er skrifað er hinn nýi hluti Ingólfscafés óðum að taka á sig endanlega mynd, og mun víst verða skipt í nokkra sali í anda þeirra höfðingja: Hitl- ers, Stalíns, Churchills og Rose- velts... Eins og fram kom í fréttum í síðustu viku er mikil óánægja meðal lækna á Landspítalanum vegna skipunar Þorvalds Veigars Guðmunds- SONAR í nýja stöðu framkvæmda- stjóra lækninga við Ríkisspítal- ana. En það var forveri núver- andi heilbrigðisráðherra, SlG- HVATUR BJÖRGVINSSON, sem skip- aði í stöðuna fyrir nokkru. Með þessari skipun sinni sniðgekk Sighvatur bæði vilja stöðu- nefndar Land- læknisembætt- isins sem mælti með Kristjáni Erlendssyni Og vilja lækna við Landspítaiann, en 68 prósent þeirra voru á móti skipuninni, en aðeins 9 prósent hlynntir. ÁSMUNDUR SVEINSSON, formaður læknaráðs Landspítal- ans, sagði í viðtali við Morgun- blaðið lækna ekkert hafa á móti Þorvaldi Veigari persónulega, heldur væri meinið undanfari skipunar ráðherra, einkum í ljósi þess að Ásmundur segist hafa skilið reglugerðina um stjórnskipan Ríkisspítala svo að ráðherra ætti að skipa í starfið í samræmi við tilnefningar stjórn- arnefndar Ríkisspítala. Sam- kvæmt heimildum PÓSTSINS hafa læknar á Landspítalanum þvert á móti sitthvað við Þorvald Veigar að athuga persónulega: Það hafi komið skýrt fram í at- kvæðagreiðslunni sem bæri að túlka aðeins á einn veg, eða þannig að Þorvaldi Veigari bæri að segja upp stöðunni. Það sem ku fara sérstaklega fyrir brjóstið á læknum er að Þorvaldur hafi oftar en einu sinni gengið erinda spítalastjórnar gegn hagsmun- um lækna. Er í því sambandi stimpilklukkumálið og feril- vaktamálið svokallaða sérstak- lega nefnt. Jafnframt hefur ítrek- að verið bent á að verið sé að þróa nýja stöðu og þurfi fram- taksaman mann á besta aldri... o — Wlliams VERÐ AÐEINS KR 898.000,- Reynsluaktu TWINGO! Þaö er vel þess viröi. RENAULT RENNUR UT Bifreiðar & Landbúnaðarxélar hf. ARMULA 13 ■ SIMI 553 1236 úmuEiii link.lAVIk „Ég kalla þá sauða- þjófa nútímans að stela því sem aðrir koma á legg.“ JÓHANNES I BÓNUSI MlBOLTMillR FliimVlllllll „Ég er nú að flýja land- ið og það er kannski best að gera það áður en þessi leikur fer fram.“ IOURI A. RECHETOV, SENDIHERRA RÚSSA PIMRSKOTERl HffllMJSi VVIILV SPIíEVIIíllTI „Sprengjan reyndist púðursprengja og sprakk í andlit þeirra sem bjuggu hana til.“ GUÐMUNDUR ÁRNI STEFÁNS- SON IÐORDAFRÆÐINGUR IITVARPSPERIUi „Eftir að viðtal birtist við mig um daginn hringdi til dæmis einn þekktasti og virtasti útvarpsmaður lands- ins í mig undir því yf- irskini að fá mig í við- tal. Maðurinn tapaði sér síðan algjörlega í símanum og klæmdist í tvo tíma.“ DIDDA SKÁLD ÉFIMSTAÁ BEVKJMESI „Kvennalistinn skað- aðist við að fórna Ingi- björgu í þágu Reykjav- íkurlistans í borgar- stjórn. Við það varð Kvennalistinn í Reykjavík höfuðlaus her. Á toppnum er þar afar litlaus þing- 'maður, sem af aug- ljósu dómgreindar- leysi kenndi borgar- stjóra að nokkru um sínar ófarir." JÓNAS KRISTJÁNSSON, MÁGUR KVENNALISTANS

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.