Helgarpósturinn - 18.05.1995, Side 14
Eins og Bubbi segir er sumarið tíminn
Með öðrum orðum; hækkandi
og rómantíkin verður jafnvel sýnile
pósturinn fékk nokkra álitsgjafa til þf
ástina, sambönd, íi
fortíðina og jm
ekki síður
framtíðina
Wú styttist í að
skyndibita-
menning mið-
bæjarins taki nokkr-
um stakkaskiptum.
Subway ætlar að
opna nýjan stað í
Austurstræti, örfáum
metrum frá Hlölla-
bátum sem væntan-
lega finna helst fyrir
þeirri samkeppni.
Ráðgert er að opna
staðinn síðar í þess-
um mánuði. Innar í
Austurstrætinu, eða
í gamla Hressingar-
skálanum, er McDon-
ald’s að innrétta nýj-
an afgreiðslustað.
Pétur Þórir Péturs-
SON, rekstrarstjóri
hjá Lyst, segir að
staðurinn opni í byrj-
un júní. Sögur hafa
verið uppi um að
McDonald’s hafi
hætt við þessi áform
en Pétur Þórir segir
þær sögur algjörlega
úr lausu lofti gripn-
Jakob: Þessi mynd ber eiginlega ekki
með sér svipmót ástarinnar og minnir
óþægilega á stöðu okkar karlmanna.
Hún er að lesa honum pistilinn og hann
er að hugsa með sér: Er þetta „bögg"
þess virði? Er hjónabandið ekki úrelt
stofnun? En hvað Ólafur Tómasson, það
sköllótta glæsimenni kemur þessu
við... um það hef ég ekki grænan grun.
Kolbrún: Þetta samband á ekki langa
framtíð fyrir sér. Hún er nútímakona
sem lætur ekki vaða yfir sig. Hann er
dæmigerður frústreraður karlmaður
sem veit ekki hvernig hann á að haga
sér í samskiptum við konur.
Steingrímur: Hún er að segja: Ég er búin
að fá inni í skólanum úti, en þú verður
að bíða hérna heima í að minnsta kosti
eitt ár því ég ætla að vera á campus.
Heldurðu að þú getir ekki beðið? Við
skrifumst bara á.
Jakob: Þetta er fyr-
irtaks töffari en
það verður ekki
betur séð en hún
skammist sín fyrir
hann verandi svol-
grandi í sig Malt
Extrakt svona á al-
manna færi. Hún er
að reiða höndina til
lofts í því markmiði
að henda pylsunni í
Ijósmyndarann.
Jón: Hann bauð
henni út að borða í
hádeginu en hún
bjóst ekki við því
að fá bara pulsu og
Svala. Hún veit ekki
alveg hvort hún á
að vera spæld yfir
veitingunum eða
ánægð með að
hann skyldi bjóða
henni út.
Kolbrún: í rauninni
hefur hann miklu meiri
áhuga á íþróttum,
veiðum og svona karla-
dóti en henni. Hún veit
ekki að HM er í gangi
en lætur sig hafa það
að fara með honum á
völlinn þó hún hafi
engan áhuga. Það eina
sem þau eiga sameig-
inlegt er áhuginn á
honum.
Steingrímur: Þessi eru ör-
ugglega ekki frá Reykja-
vík. Hann er aðai töffar-
inn í plássinu, eins og
sést á því hvernig hann
heldur á rútumiðunum,
og bauð henni í ferð til
höfuðborgarinnar. Hún
--------b----1 reynir að
1 1 vera
f i voða
I | þakklát
| I en hugs-
| I ar: Hve-
f I nær er
fe | || þetta
P, | £ búið?
Jakob: Það er erfitt að átta
sig á þeim þessum. Hún hallar
sér að honum og það er glatt
á hjalla. Full glatt og fer eig-
inlega yfir strikið og verður
gervilegt. Þetta eru týpurnar
sem leitast við að skemma
stemmningar á börum með
því að vera að kjást og kjass-
ast fyrir framan almennilegt
fólk.
Jón: Þau eru örugglega ný-
byrjuð saman þessi og ástin
blómstrar, að minnsta kosti
af hennar hálfu. Það er dálítið
skrítið að hann skuli ekki
leggja handlegginn utanum
hana fyrst hún hallar sér
svona blíðlega að honum.
Frosinn töffarasvipurinn
bendir til þess að hann vilji
gefa þau skilaboð að hann sé
ekki þessi mjúka kelna týpa,
en þetta gæti líka stafað af
feimni við Ijósmyndarann.
Jakob: Enn virðist allt vera í góðu lagi
milli þessara tveggja. Þau standa þétt
saman og hún er örugglega ekki með
skilnaðarpappírana í hendinni. En hann
er full góður með sig og ég myndi ráð-
leggja honum að vara sig.
SteingrImur: Þetta er gamall strætóbíl-
stjóri sem fann ástina sína í strætó. Þau
eru á Lækjartorgi að upplifa fyrstu
kynnin á nýjan leik; þegar hún kom inn í
leið 6 sem hann ók.
Kolbrún: Hún er dálítið bitur um munn-
inn, eins og hún eigi erfiða reynslu að
baki í ástarmálum, en heldur nú að hún
sé búin að finna þann eina rétta. Það
gæti verið rétt hjá henni.
Jakob: Þessi hjón hafa verið lengi
saman, svo lengi að þau eru nán-
ast samvaxin. Þau eru á leið inn í
Álafossinn að ná í sérpantaða
lopapeysu sem er þeim eiginleik-
um gædd að hún nær um þau
bæði og er með tveimur hálsmál-
um.
Jón: Þessi hjón eru útlendingar,
sennilega þýsk. Hún hefur lengi
haft ódrepandi áhuga á íslandi
og að hennar frumkvæði klipu
þau af lífeyrinum til þess að
koma hingað. Hann vildi hins
vegar miklu frekar fara til Tor-
melinos en komst ekki upp með
neitt múður. Það sést þó á svipn-
um á henni að það eru farnar að
renna á hana tvær grímur.