Helgarpósturinn - 18.05.1995, Side 19
TOHnWg
ÍBf j
19
leikhús
Rhody-
menia
Palmata
FRÚ EMILlA (HÉÐINSHÚSINU
ÓPERAI TlU ATRIÐUM EFTIR HJÁLMAR
H. RAGNARSSON VIÐ KVÆÐASYRPU
EFTIR HALLDÓR LAXNESS
LÝSING: JÓHANN BJARNI PÁLMASON
BÚNINGAR: ELÍN EDDAÁRNADÓTTIR
LEIKMYND: GRETAR REYNISSON
DRAMATURG: HAFLIÐI ARNGRlMSSON
LEIKSTJÓRI: GUÐJÓN PEDERSEN
Hjálmar H. Ragnarsson samdi
þetta ágæta verk til að opna með
Listahátíð 1992. Það var þá sýnt
einu sinni í Þjóðleikhúsinu á dag-
skrá sem mig minnir að hafi ver-
ið helguð Halldóri níræðum og
var gerður góður rómur að. Sýn-
ingin núna er endurvinnsla á
þeirri gömlu og er útkoman
miklu heillegri og skemmtilegri.
Samt er sýningin í Þjóðleikhús-
inu eitt af því fáa sem er minnis-
stætt frá Listahátíð 1992.
Þetta verk Hjálmars (og Hall-
dórs) er kostulegur grautur. Þar
ægir saman stíltegundum úr
ýmsum áttum, þjóðlegri kveð-
andi og kabarett-hugarfari og
öllu mögulegu þar á milli. En af
meðfæddri formgáfu tekst Hjálm-
ari, án þess að láta mikið yfir því,
að halda þessu í listrænum
myndramma og útkoman er
geðslega sannfærandi dægra-
dvöl.
Það er ekki ljóst hvað sam-
vinna þeirra Hjálmars, Guðjóns
og Hafliða er náin, en eins og sýn-
ingin kemur fyrir sjónir hlýtur
hún að vera góð. Margt gott hef-
ur maður séð til þeirra Emilíu-
bræðra, stundum dálítið glanna-
legt og þýskt í expressjóninni, en
alltaf í meira lagi áhugavert. Og
Rhodymenia Palmata er engin
undantekning þar frá. Sýningin
einkennist af tilgerðarlausu hug-
myndaflugi þar sem súrrealískt
flæði texta og tónlistar er látið
ráða ferðinni. Einfaldur hárná-
kvæmur sviðsbúnaður, viðeig-
andi búningar og lýsing, sem er
ekki aðeins fagmannleg heldur
listræn og rétt, gefa áhorfendum
slíka öryggistilfinningu að þeir
njóta þess sem fram fer ljúft og
átakalaust. Þetta rennur ofan í
mann eins og súkkuiaðimúss ala
Soffía og sætt freyðivín og gefur
ekki minnsta tilefni til timbur-
manna.
Og um hvað fjallar þetta svo?
Ástina auðvitað. Samband og
sambandsleysi karls og konu,
eins og hver maður þekkir af eig-
in raun. En það er fjallað um
þetta í mátulegum hálfkæringi og
grínaktugu orðaskaki, sem engan
særir nema hann vilji það sjálfur.
Leik-sönghópurinn er stórgóður.
Edda Heiörún Backman og Jóhann
Sigurösson eru í aðalhlutverkun-
um og þau kunna allt sem til
þarf. Fínir leikarar. Fínir söngvar-
ar. Kontratenórinn Sverrir Guð-
jónsson bregst þá ekki frekar en
fyrri daginn og sníður kostulega
fígúru út úr Salomonsen, sem er
„allra manna minnstur á hæðum,
kunnur af nýtískukvæðum" og
svo framvegis. í kórnum eru ll
leikarar, allt afburða raddfólk og
dramatísk nýting þeirra er frá-
bær. Fullkomlega eðlileg. Og svo
má ekki gleyma fimm hljóðfæra-
leikurum undir forystu höfund-
ar, sem Iék reyndar sjálfur á pí-
anó. Þeir voru hver öðrum betri.
Það er leitt, já hreint og beint
afleitt að frú Emilía hafi ekki bol-
magn til að sýna þetta nema fjór-
um sinnum. Það segir ökkur að
það er eitthvað meira en lítið
bogið við styrkjakerfið, því eftir
tveggja ára lúsastarfslaun er svo
komið, þrátt fyrir afburðasýning-
ar, að hópurinn verður að fara
með veggjum í náinni framtíð.
Þeftá * verður , að. taka ;,í géjg'n.
Stráx. 1 ■ . lþ
Sœlkeragallerí við sjávarsíðuna
ÞETTA ER
EKKI HM
TILBOÐ
ÞETTA ER
ALVÖRU
TILBOÐ
Koníaksbætt laxasúpa með laxabitum og graslauk
Hreindýrapaté með engiferbragðbættri tituberjasósu og salati
Krapís með kampavínsívafi
Gufusoðinn langhali með humarsósu
Steikt heilagfiski með tómatkjötsósu
Grillaðar grísasneiðar með ostrusoya og engifer
Möndlu- og súkkulaðiterta með ís og ávaxtasósu
3 tegundir af ís með blönduðum ávöxtum og ávaxtasósu
3 rétta máltíð á 2.200 krónur
Einnig bjóðum við upp á sérréttaseðil með miklu úrvali kjötrétta
OPIÐ FRA KL. 17:30
Borðapantanir 551 5520 - Tel + Fax 562 1485
P.S. erum tneO eitt stærsta sjavardýrafískabúr í einkaeign sem gleður augað.
ÓDÝRASTI HAPPDRÆTTISMIÐINN Á LANDINU
Ef heppnin er með þér vinnur þú Benidorm-ferð fyrir tvo með Heimsferðum í sumar
Spurningin í dag er:
Hver er vinabær „Benidorm“ hér á íslandi?
Klippið miðann út og sendið okkur
|Nafniö þitt:_________________________________________________
j Heimilisfang: ------------
IPóstnúmer: ________________
Símanúmer:
I Setjið í umslag og skrifið utan á: Ferðahappdrætti
I __________ Mánudagspósturinn
Rétt svar:
Vesturgötu 2-101 Reykjavík
Vikuferð til Benidorm.
Sólln skín f um 300 daga á ári á
Benldorm-ströndinni. Hún er ein
fegursta sfrönd Spánar og þar er
einstök ueðursæld. Hár má flnna
merkilegan mennfngararf síðustu
alda, helllandi bæi meó arabískum
áhrifum sem nú eru undirlagðir
llstamönnum.
Verðlagið á Benidorm er með því
lægsta af öllum álangastöðum á
Spáni. Þar er því hægl að njöta lífsins
á tjölmörgum veitingastöðum -
frönskum, itölskum, spánskum og að
sjálfsögðu er mikið úrval af amerisk-
um skyndibitastöðum á Benidorm.
Næturlifið er kröftugt. Það er enginn
staður á Spáni sem hefur jafn marga
skemmtistaði á jafn litlum bletti -
diskólek af öllum stærðum og
gerðum, fjöldi bara og veitingahúsa
með lifandi tónlist.
bíó
FOLKI
NÁTT-
FÖTUM
STAR TREK: KYNSLÓÐIR
HÁSKÓLABlÓ
★★
„Geta life, willyou," er
frægt tilsvar leikarans Willi-
ams Shatner þegar hann
sat einhvern tíma fyrir svör-
um í hópi „Trekkies", en svo
kallast óðir áhugamenn um
Star Trek. Þetta er fólk
sem hefur náð slíku jógastigi
í sérhæfingunni að það veit
allt um persónur á borð við
dr. Spock og kafteinana Kirk
og Picard, um Klingona og
Rómúla, geimfarið Enter-
prise og um alla sjónvarps-
þættina, fréttabréfin og bíó-
myndirnar sem hafa verið
spunnar út frá þessu Star
Trek-liði. Þetta eru svo
kröfuharðir neytendur að
sagt er frá því að eitt sinn
hafi Kirk kafteinn og menn
hans farið aftur í tíma og
lent um nótt í París sumarið
2004. Allt fór á annan end-
ann; sannir áhugamenn um
Star Trekkvörtuðu sáran,
enda sáu þeir í hendi sér að
svona gæti stjörnuhimininn
yfir Frakklandi ekki litið út
það sumarið.
Aðdráttarafl Star Trek er
eiginlega óskiljanlegt fyrir þá
sem eru ekki með í þessum
leik: Þeir sjá ekki annað en
lið i skrítnum náttfötum,
sumt með frekar hallærisleg-
ar grímur; brjóst kvennanna
fylla vel út í búningana en
tæknibrellurnar eru eins og
sparnaðarútgáfa af Star
Wars. Að sjá svona mynd
er eins og að detta ofan í
tuttugasta bindi af bóka-
flokki sem maður vissi ekki
einu sinni að væri til; að lesa
The Silmarillon áður en
maður hefur opnað The
Hobbit, svo vitnað sé í bók-
menntir sem hafa orðið að
áráttu hjá sumum svipað og
Star Trek. En þeir sem
þekkja leikinn hafa ábyggi-
lega ekki yfir neinu að klaga.
Hinir innvígðu sjá sjálf-
sagt í þessu viðbót við epísk-
an sagnabálk. Fyrir okkur
hin heldur söguþráðurinn,
það lítill hann er, varla vatni
— og er maður þó vanur að
kyngja ýmiss konar timarugli
ívísindasagnadeildinni. En
sjálfsagt skiptir það engu
máli; mestanpart hlýtur
þetta að ganga út á að hitta
gamla kunningja.
-EGILL HELGASON