Helgarpósturinn - 18.05.1995, Qupperneq 20
20
wnJU:'.
FllvllvlTÚ DAGu R18rMAn995
Reyndar var þriðja
heimsstyrjöldin
líka yfirvofandi í
desember 1980
og allt I panik, ef
marka má Irene
Hughes, en það
hefur einhvern
veginn farið fram-
hjá heimspress-
unni hingað til -
rétt eins og kjarn-
orkusprengingar
Rússa á tunglinu,
sem orsökuðu
blóðug átök á
milli fulltrúa stór-
veldanna á þeim
ágæta fylgihnetti
okkar.
Heil pláneta ein-
hvers staðar
lengst úti í geimi
er að farast úr
geislun og fleiri
þúsund íbúar
hennar búa þegar
á meðal vor og
hafa reyndargert
það um nokkurra
ára skeið án þess
að nokkur hafi
fattað það. Og
von erá enn fleir-
um.
Og svo má ekki
gleyma sjálfum
æskubrunninum,
sem fannst um
miðjan 9. áratug-
inn — / formi
hugar- og pýram-
ídaorku, að sjálf-
sögðu. Það voru
líklega leynisam-
tök útfararstjóra
sem stóðu fyrir
því að það komst
ekki í hámæli.
Lm L.
-i'i.a tsxd
Árið 1978 birtust í bandarísku bókinni The People's Almanac 2 spádómar 10 virtra spámanna
og -kvenna um nánustu framtíð mannkynsins. Blaðamaður póstsins gluggaði í þessa ágætu
spádóma og komst að því að hann — ásamt meirihluta mannkynsins — er líklega fórnarlamb
alheimssamsæris duttlungafullra Rússa og geimvera sem hika ekki við að blekkja fólk á
svívirðilegan hátt og halda frá því ótrúlegustu stórtíðindum á öllum sviðum tilverunnar.
Lækning á krabbameini
og geimverurútium alK
Þrír spámannanna spáðu því
fullum fetum árið 1978 að Jimmy
Carter næði endurkjöri árið eftir
og spákonan Maris DeLong gekk
meira að segja svo langt að spá
Carter meiri vinsældum en
nokkrum öðrum forseta á 20.
öldinni og var sannfærð um að
hann og stjórn hans kæmi til
með að njóta vinsælda og virð-
ingar út um allan heim fyrir
stefnu sína í mannréttindamál-
um. Daniel Logan heldur því hins
vegar fram í sinni spá að á 9. ára-
tugnum verði ekki lengur einn
forseti við völd í Bandaríkjunum,
heldur komi eins konar „fimm
manna nefnd“ til með að stjórna.
Tvær spákonur voru sammála
um að forsetinn sem tæki við
embætti árið 1980 kæmi til meða
að deyja í embætti — en þó ekki
fyrir morðingjahendi. Önnur
þeirra, Irene Hughes, var á því að
hann kæmi til með að geispa gol-
unni í Rússlandi eða þar um
kring árið 1981. Hvorki Carter né
Ronald Reagan voru enn dauðir
þegar blaðið fór í prentun í gær.
Höldum við.
STRH9 OG FRIÐUR
Það hefur ekki verið mjög frið-
sælt hérna á Jörðunni síðan 1978
fremur en fyrri daginn, en sem
betur fer hefur mannkynið ekki
þurft að ganga í gegnum allar
þær hörmungar sem spámenn-
irnir tíu sáu fyrir. Eftir því sem
við best vitum, það er að segja.
Tenny Hale var svartsýnust og
spáði því að Rússar hefðu tekið
öll völd áður en þessi öld væri
úti. Samkvæmt hennar spá á fólk
að vera farið að lifa í hellum og
öðrum jarðholum um þessar
mundir, réttur einstaklingsins
endanlega fyrir bí og öllum
stjórnað með hugsanaflutningi
og hugarorku. Annar spáði mik-
illi og blóðugri byltingu í Japan
og sameiningu þess við Kína í
beinu framhaldi þar af.
Sú fræga spákona Jeane Dixon
spáði blóðugu borgarastríði í
Bandaríkjunum á 9. áratugnum
— og þá var hún ekki að tala um
smávægilegar götuóeirðir í L.A.
Þar fyrir utan spáði hún því að
gömlu loftvarnarbyrgin yrðu aft-
ur tekin í notkun vel fyrir alda-
mót þegar þriðja heimsstyrjöld-
in rétt slapp framhjá. Reyndar
var þriðja heimsstyrjöldin líka
yfirvofandi í desember 1980 og
allt í panik, ef marka má Irene
Hughes, en það hefur einhvern
veginn farið framhjá heims-
pressunni hingað til — rétt eins
og kjarnorkusprengingar Rússa
á tunglinu, sem orsökuðu blóðug
átök á milli fulltrúa stórveldanna
á þeim ágæta fylgihnetti okkar.
Árið 1987 áttu Rússar líka í gífur-
legu stríði í Afríku, en það hefur
líklega farið fram einhvers stað-
ar djúpt inni í frumskóginum þar
sem enginn sá til.
Hins vegar er það algjör mis-
skilningur — eða blekking — að
Austurblokkin sé hrunin og að
Sovétríkin heyri sögunni til — al-
tént kemur það ekki fram í einni
einustu af framtíðarspánum tíu...
GEIMVERUR
GERA ÞAD GOTT
Núna er búið að finna sannan-
ir fyrir lífi bæði á Mars og Júpít-
Af einhverj-
um orsök-
um hafa
stjórnendur
huga okkar
kosið að
láta okkur
trúa því að
Berlínar-
múrinn hafi
fallið og reyndar Austur-
blokkin eins og hún leggur
sig - meira að segja Sovét-
ríkin. Samt ráða þau í raun
öllu í dag - líklega í sam-
vinnu við geimverur.
í seinasta lagi í apríl árið
2000 verðum við farin að
búa í svona líka svaka fín-
um geimstöðvum, og það
þúsundum saman.
Það er
ekki
huggu-
legt
ástandið
í Japan
núna, því
það er
sokkið í
sæ, hvað sem öllum sögum
um hið gagnstæða líður.
Þær lifa á meðal vor og
hafa gert það lengi, blessað-
ar geimverurnar. Og þeim á
eftir að fjölga því plánetan
þeirra er að brenna upp af
geislavirkni.
r
>
rjffwrwrmí’mm
Við trúum því kannski ekki,
en í raun og veru er svona
komið fyrir flestum skipum í
heiminum í dag — og það eru
engir bílar eftir heldur. Fyrir
nokkrum árum var allt mor-
andi í rafmagnsbílum, en það
er liðin tíð.
er, og í apríl árið 2000 verður
búið að koma upp mikilli geim-
stöð þar sem þúsundir karla og
kvenna búa í sátt og samlyndi.
Þar fyrir utan er allt orðið mor-
andi af fljúgandi diskum og
geimverum. Heil pláneta ein-
hvers staðar lengst úti í geimi er
nefnilega að farast úr geislun og
fleiri þúsund íbúar hennar búa
þegar á meðal vor og hafa
reyndar gert það um nokkurra
ára skeið án þess að nokkur hafi
fattað það. Og von er á enn fleir-
um.
Það er líka löngu ljóst að
Bermuda-þríhyrningurinn er
eins konar umferðarmiðstöð fyr-
ir fljúgandi diska, og geimverur
hjálpa okkur við að leysa orku-
vandann í eitt skipti fyrir öll.
Þetta síðastnefnda á að gerast
einhvern tímann fyrir 1996, svo
það má búast við stórtíðindum á
næstunni. Nema þetta verði
þaggað niður líka, því þessar
geimverur kenna okkur víst að-
allega að nýta sólarorkuna af
einhverju viti, og olíubransinn
vill auðvitað ekki sjá svoleiðis
lausnir. Ekki ólíklegt að olíuris-
unum hafi tekist að múta geim-
verunum eins og öllum öðrum
sem vega að hagsmunum þeirra.
UIMDUR .
LÆKIUAVISiniDAlUIUA
Fyrir 1983 átti að vera komið
lyf á markaðinn sem læknaði
alkóhólisma eftir því sem hún
Maris DeLong sagði, og að það
lyf skuli ekki vera komið á mark-
aðinn ennþá sýnir bara að áfeng-
isframleiðendur eiga vini á
æðstu stöðum. Tóbaksbransinn
er líka í plottinu, því eftir því
sem Kathy Sotka sagði, þá átti að
vera komin algjörlega hættulaus
sígaretta á markaðinn árið 1986,
sem ekki veldur krabbameini. En
það er svo sem engin þörf á svo-
leiðis rettu í raun og veru, þar
sem flestir tfmenninganna voru
sammála um að nú ætti að vera
komið fram lyf við krabbameini.
Kebrina Kinkade gefur læknavís-
indunum hins vegar tíma fram til
aldamóta til að komast að því að
krabbamein orsakast af vírus og
finna viðeigandi bóluefni í fram-
haldi af því. Annars verða nokk-
urn veginn allir sjúkdómar úr
sögunni fyrir aldamótin, svo það
má búast við miklum hræringum
í læknaheiminum á komandi ár-
um. Nema menn þaggi það niður
auðvitað eins og allt annað. Þar
að auki verða menn farnir að
stunda útlimaflutninga eins og
gleðina og listina í New
York — ranghugmyndir sem
komið er inn í hausinn á
okkur af hinum máttugu al-
heimsstjórnendum. New
York er nefnilega ekki til
lengur.
Ung og al-
heilbrigð
— við
gætum
öll verið
það ef
samsæris-
meistar-
arnir á
toppnum
leyfðu
okkur að
njóta
allra
þeirra framfara sem orðið
hafa í læknavísindunum —
að ekki sé nú minnst á
æskubrunninn, sem upp-
götvaðist á 9. áratugnum.
■BÉnapÉHBBHBBHSBtBeSRaei
ekkert sé; hendur, fætur og höf-
uð skipta um eigendur án nokk-
urra vandamála, sem auðvitað
gerir fötluðum lífið mun léttara.
Og svo má ekki gleyma sjálfum
æskubrunninum, sem fannst um
miðjan 9. áratuginn — í formi
hugar- og pýramídaorku, að
sjálfsögðu. Það voru líklega
leynisamtök útfararstjóra sem
stóðu fyrir því að það komst ekki
í hámæli.
SÓLARORKAiy OG
RAFMAGIUSBILARIUIR
Samkvæmt spá Frederick
Davies hefðu rafmagnsbílar átt
að verða feikivinsæl fyrirbæri ár-
ið 1982. 1988 hefði þriðjungur
bílaflotans gengið fyrir sólar-
orku og 1990 hefði átt að vera
búið að gera alla einkabíla út-
læga úr öllum helstu stórborg-
um heims. Það ætti líka að vera
búið að finna upp sólarpilluna,
sem er feikilega merkilegt fyrir-
bæri, því hún dugar hvort held-
ur er fyrir mannfólkið eða ma-
skínur þeirra. Bara gleypa eina
svona sólarpillu, sagði Jeane
Dixon, og þá er maður búinn að
fá alla þá orku og næringu sem
maður þarf fyrir. daginn. Hún tók
hins vegar ekki fram hvað meðal-
fjölskyldubíllinn færi með marg-
ar svona pillur á hundraðið.
Tenny Hale er auðvitað við sama
heygarðshornið og telur að bílar
og skip verði yfirhöfuð ekki til á
þessum tíma — núna, semsagt
— því það verða allir svo kúgað-
ir að þeir hvorki geta né mega
ferðast neitt að gagni.
PÁFIIUIU OG PÓLARIUIR
Sorgartíðindi fyrir kaþólikka:
Páfadómur verður lagður af á
allra næstu árum. Það gerist lík-
lega um svipað leyti og Rússar
og Kanar fara í stríð við Kína. En
þó ekki fyrr en eftir að New York
þurrkast af yfirborði jarðar af
einhverjum orsökum og nei-
kvætt hugsandi fólk er búið að
umpóla Jörðina með hugarork-
unni og valda þannig meiriháttar
flóðum, jarðskjálftum og breyt-
ingum á jöklum og öðru slíku.
Lönd munu rísa úr sæ og önnur
sökkva, þar á meðal Japan, og
vesturströnd Bandaríkjanna
skiptist upp í fjóra hluta. Það er
spurning hvernig fer fyrir Marlon
Brando þegar þessi ósköp dynja
yfir, því hann stofnaði sitt eigið
ríki á einhverri Kyrrahafseynni
fyrir 1980 þótt enginn hafi frétt
það enn. Því varla geta spámenn-
irnir haft rangt fyrir sér um þetta
frekar en annað, sem hér hefur
verið talið upp. Eða hvað?
MÁTTUR HUGAIUS
Góð tíðindi fyrir löghlýðna
borgara, verulega slæmar fréttir
fyrir krimmana: Löggur framtíð-
arinnar Qrað er að segja nútím-
ans) eru skyggnar og sjá gegnum
holt og hæðir og lesa huga ill-
virkjanna eins og opna bók með
hjálp þartilgerðra tækja. Þar að
auki eru þeir sem sjá lengra nefi
sínu á þennan hátt vinsælir
njósnarar og meira að segja við-
urkenndir sem sérfræðingar fyr-
ir dómstólum.
Fólk heilar sjálft sig af flestum
sjúkdómum með hugarorkunni
einni saman, og hún er líka vin-
sæl getnaðarvörn.
Aukinn skilningur og nýting á
hugarorkunni og hugsanalestrin-
um hefur hins vegar einnig sínar
dökku hliðar, ef marka má hina
svartsýnu Tenny Hale, því fólki
er stjórnað algjörlega með hug-
arorkunni nú orðið, og fjölþjóð-
legt hugarstríð kostar milljónir
mannslífa.
SKÝRIIUGIIU KOMIIU
Þarna er líklega komin skýring-
in á þessari fáfræði okkar: Hug-
arorkan. Duttlungafullir stjórn-
endur alheimsins hafa fullkomið
vald yfir hugsunum okkar. Sá
heimur sem við upplifum, og er
ekki í neinu samræmi við þann
heim sem tímenningarnir sáu
fyrir — sem er hinn raunverulegi
heimur auðvitað — er bara
ímyndaður heimur, komið fyrir í
varnarlausum hugum okkar af
máttugum meisturum okkar —
líklega Rússum og geimverum.
Jafnvel rússneskum geimverum.
Það er altént mun líklegri skýr-
ing en að spámennirnir hafi
klikkað, því þrátt fyrir allt hafði
Davies rétt fyrir sér þegar hann
sagði fyrir um stofnun Palestínu-
ríkis fyrir aldamót...
-ÆÖJ