Helgarpósturinn - 18.05.1995, Side 25
IMTCJ pygu R"1 '87 M 'A' I "T 'P'9’51
25
LAUCARDAGUR
Sixties aftur á Gauknum.
Stefán og Arna Þor-
steins saman í dúó-i á
Mímisbar, Hótel Sögu á
meðan veðurfræðingarnir
gera sér glaðan dag í
lokahófi í Súlnasalnum.
Skriðjöklarnir Raggi sót
og kompaní aftur með
kombakk á Gauki á
Stöng.
Björgvin Haildórsson,
betur þekktur um allan
heim sem Bo, hefur aftur
stórsýningu sína „Þó líði
ár og öld" eftir frækilegt
afrek í frlandi. Að sýningu
lokinni skemmta svo
Björgvin og Bjarni Ara
með Stjórninni.
In-bloom með rokkflóru-
tónleika og dansleik á
Tveimurvinum.
Arnar Guðmundsson
trúbadúr á Akureyrarhelgi
á Fógetanum.
Hafrót hefur komið sé
haganlega fyrir á Kaffi
Reykjavík.
Tónlistarskóli Sigur-
sveins með síðdegistón-
leika á Café Sólon ísland-
us.
SUMIUUDAGUR
SVEITABÖLL
Miðgarður, Skagafirði
Vinir vors og blóma hefja
sveitaballarúntinn með
pompi og prakt og nýtt
Flúðaefni í farteskinu.
Calypso, Vestmannaeyj-
um Hljómsveitin Karma
leikur bæði kvöldin, það
er föstudags- og laugar-
dagskvöld. Hljómsveitin
hefur bæði að geyma
söngkonu og söngvara.
Áslákur, Mosfellsbæ
Radíus-frændur byrja á túr
þar á föstudagskvöld.
Margir spá því að baráttan á
sveitaballamarkaðnum í ár verði
ekki eins hörð og undanfarin sum-
ur, þegar Helgi Björns og félagar
hans í SSSól voru nánast eina
hljómsveitin sem einhverjar sög-
ur fóru af. Enda þótt Vinir vors og
blóma, Tweety og Sálin hans Jóns
míns fái pústið með því að vera
valdir í aðalhlutverkin í Eyjum í ár
eru meðlimir Milljónamæring-
anna, GCD og Ununar, sem ætla
einnig að hella sér af fullum krafti
út í baráttuna, hvergi bangnir.
Af þessum sex hljómsveitum er
því spáð að Sálin hans Jóns míns
fari með sigur af hólmi enda sé
ógerningur að keppa við þá í ljósi
þess að Sálin verður hugsanlega í
samfloti með fjölmiðlaveldinu
Bylgjunni/Stöð 2. An þess að þurfa
að fjölyrða um það hefur það ekki
lítið auglýsingagildi á annars
þessum viðkvæma markaði. Því
er ekki að leyna að mikill kurr er í
mörgum meðlimum annarra
hljómsveita vegna þessarar „sam-
vinnu“ og sagði einn sem pósturinn
ræddi við þetta ekkert annað er
brot á samkeppnislögum: Það
ætti að kæra svona lagað. Annar
vildi hins vegar meina að Bylgjan
og Stöð 2 gerðu ekki gæfumunin
þegar upp væri staðið: Eftir stæði
hið fornkveðna, einfaldlega „gæð-
in á pakkanum" sem í boði er plús
ákveðinn skammtur af hinu óút-
reiknanlega.
SÓL (IM IUÓTT
Líkt og flestar sveitaballamark-
aðshljómsveitirnar hefur Sálin
hans Jóns míns sig til flugs föstu-
daginn 26. maí með upptroðslu í
Ingólfscafé þar sem hún mun
væntanlega gefa tóninn. Daginn
eftir liggur leiðin til Akureyrar, en
næstu tónleikar hljómsveitarinn-
ar verða á Borg í Grímsnesi 2. júní
og svo koll af kolli. Skipan sveitar-
innar frá „hættinu" fyrir tveimur
árum síðan hefur nánast ekkert
breyst, nema hvað nýr trymbill er
kominn í stað þess gamla sem er
svo að segja með öllu óþekktur.
Hann heitir Tómas Jóhannesson og
spilaði síðast með gríntríói Jóns
Leifs. Plata frá hljómsveitinni er
væntanleg 10. júní og mun hún
bera nafnið Sól um nótt. Að sögn
Stefáns Hilmarssonar, söngvara
sveitarinnar, er hér um týpíska
Sálartónlist að ræða, þótt soul-ar-
áhrifa kunni að gæta í einstaka
lögum eins og nafn skífunnar gef-
ur til kynna.
LJEGGJA LAIUD QG
LOIUD UIUDIR FOT
Margir gera ráð fyrir því að
hljómsveitirnar Unun og Tweety
komi fást á hæla Sálarinnar, eða
fari jafnvel framúr henni ef svo
ber undir. Tweety hefur það þó
f
framyfir Unun að vera ein af flagg-
skipum þjóðhátíðarinnar í Eyjum
sem hún fær væntanlega nokkra
athygli út á. Unun á hins vegar að
baki plötu ársins og eitt af mest
grípandi popp-pönk lag síðari ára;
Lög unga fólsins, sem jafnvel
fimm ára krakkar iðuðu í skinninu
út af.
Þótt Dr. Gunni hafi nýlega lýst
því yfir að hann ætlaði ekki að
verða að sveskju á sveitaballa-
markaðnum bendir allt til þess að
sumarið verði harðsnúið hjá þeim
enda eftirspurnin töluverð. Svo
þurfa þeir að eiga fyrir salti með
„tequilanu“ eins og aðrir. Mörg
böll eru í sigtinu, en það sem þeg-
ar er vitað er dansleikur á Pava-
rotti á Akranesi 16. júní.
Ekki stendur plötútgáfa fyrir
dyrum hjá Unun þótt nokkur ný
lög líti dagsins ljós í byrjun sum-
ars. Þeir eiga enda enn fullt í fangi
með að kynna afurðina Æ sem
kemur út á ensku í sumar og verð-
ur í framhaldi af því fylgt eftir í
Bandaríkjunum. Flest bendir einn-
ig til þess að sumarrúntur Ununar
á íslandi verði ekki lengri en fram
í byrjun ágúst því að líkindum
skella Heiða og co sér „á túr“ til
Frakklands, en það kemst ekki
endanlega á hreint fyrr en eftir
helgi.
FYRIRTÆKIÐ MILLJ-
OIUAMÆRiniGARIUIR
Milljónamæringarnir eru til alls
vísir sem fyrr, eða hljómsveitin
sem átti aðeins að koma fram eitt
Þungamiðja sumarsins á
sveitaballamarkaðnum,
eins og mörg undanfarin ár,
er þjóðhátíð í Vestmanna-
eyjum. Það þykja því alltaf
tíðindi þegar ákveðið er í
byrjun sumars — um það
bil sem vertíðin er að hefj-
ast — hvaða hljómsveitir
veljast til þess að deila með
sér stóra pallinum í Eyjum.
Guðrún Kristjánsdóttir fékk
veður af því að það verði
hljómsveitirnar Tveety, Vin-
ir vors og blóma og Sálin
hans Jóns míns.
kvöld en hefur verið að undanfar-
in þrjú ár. Fyrirséð er að þessi
snyrtilega en samt glamourous
hljómsveit skipti um söngvara í
ágúst því þá hefur Páll Óskar
Hjálmtýsson ákveðið að snúa sér
að öðrum verkefnum. Að sögn
Steingríms Guðmundssonar, slag-
verksleikara í Milljónamæringun-
um, ætlar hljómsveitin ekki sömu
leið og Páll, því sveitin er þegar
byrjuð að þreifa fyrir sér með nýj-
an söngvara sem væntanlega
verður á nýrri plötu með þeim í
haust. Nokkur þekkt nöfn eru í
sigtinu; enginn trommuleikari
heldur þekktir söngvarar. Þeir
segjast þegar vera bókaðir fram í
ágúst þótt dagsetningarnar lægju
ekki fyrir, þar á meðal í Sjallana
tvo; á ísafirði og á Akureyri og í
Hreðarvatnsskála að sjálfsögðu,
enda löngum verið haldin söguleg
böll með Milljónamæringunum
þar. Endapunkturinn með Páli
Óskari sem söngvara verður svo
með glamourous balli í Perlunni í
byrjun ágúst.
TWEETY IUÆR
TODMOBILE-
VIIUSÆLDUM
Hljómsveitin Tweety sem skip-
uð er gömlu Todmobile-meðlim-
unum, Þorvaldi Bjarna Þorvaldssyni
og Andreu Gylfadóttur, hefur tekist
það sem fyrrum félögum þeirra í
Bong Eyþóri Arnalds hefur ekki,
það er, að halda nánast í sömu
vinsæidir og Todmobile heitin.
Frá því fyrir áramót hefur Tweety
farið geist um landið með góðum
árangri. Fyrstu böll hljómsveitar-
innar úti á landi í nóvember lof-
uðu ekki góðu en svo kom hvert
„dúndurballið“ á fætur öðru. Eftir
mánaðarpásu ætla meðlimir Twe-
ety að leggja í heuin með bjartsýni
í farteskinu í lok maí á Selfossi þar
sem risaball verður með þeim
ásamt SSSól og Bubbleflies. í byrj-
un júní verður ferðinni heitið til
ísafjarðar en helgina þar á eftir er
ákveðið að Tweety komi fram á
Selfossi og í Stapanum Keflavík.
GCD; Þeir Bubbi og Rúnar
vita það af fenginni reynslu
að það er ekkert nýtt undir
sólinni.
Unun hefur tekið þá ákvörð-
un að breytast í sveskjur á
sveitaböllunum.
Þorsteinn G. Ólafsson,
söngvari hljómsveitarinnar
Vina vors og blóma, en sú
hljómsveit leggur mikið
undir í ar.
Hugsanlega mun Tweety taka
með sér minni spámenn í brans-
anum til þess að hita upp, enda
segir Þorvaldur Bjarni það gera
böllin meira „powerful“. Sumarið
mun verða annasamt hjá Þorvaldi
því að auki mun hann sjá um tón-
listarstjórnina í Rocky Horror
Picture Show, eins og þegar hefur
verið greint frá. Engin plötugerð
er í bígerð hjá Tweety fyrr en um
jólin en nokkur lög eru á leiðinni.
VIRKA SEM BÝ LÖG
Rúnar Júlíusson og Bubbi Mort-
hens ætla sér, eins og aðrir, stóra
hluti á sveitaböllum sumarsins og
að sögn Rúnar hafa þeir þegar
bókað sig í ein 50 gigg á þremur
mánuðum. Þá kemur út ný plata
með þeim sem ber nafnið Teika
þann 1. júní, en Teika ku vísa til
þess að þeir séu að teika fortíð-
ina, það er að segja þeir byggja
tónlist sína á gömlum merg: Þeir
vita betur en margir í bransanum
að það er ekkert nýtt undir sól-
inni. „Þetta munu þó virka sem ný
lög,“ sagði Rúni Júl í samtali við
blaðið. A föstudaginn eftir rúma
viku hefja þeir rúntinn með balli í
Pavarotti í Akranesi (gamla hótel-
inu) og daginn eftir verða þeir í
Njálsbúð. Segir Rúnar ekki loku
fyrir það skotið að einhvern tíma í
sumar muni Unun birtast þeim
eða þeir Unun á einhverju sveita-
ballinu enda sérstakir kærleikar á
milli Dr. Gunna og Rúna rokks.
Þótt ekki sé það ákveðið endan-
lega er búist við að GCD muni
haldi uppi einhveju „neistaflugi"
um verslunarmannahelgina.
GREIFAR SAMTÍMAIUS
Greifar samtímans; Vinir vors
og blóma hafa lagt mikið undir
fyrir sumarið. Plata er á leiðinni
og ætla þeir eins og flestir að
hefja sveitaballarúntinn um þar-
næstu helgi, þótt þeir hafi tekið
forskot á sæluna um síðustu helgi
í Vestmannaeyjum. Hefst ferðin
fyrir alvöru í Miðgarði, Skagafirði
föstudaginn 26. maí, á jaugardeg-
inum leggja þeir svo Ýdali undir
sig, en helgina þar á eftir verður
stórsveitaball með hljómsveitinni
í Logalandi. Þar hafa Vinirnir jafn-
an átt við miklar vinsældir að
stríða.
Eftir því sem næst verður kom-
ist eru meðlimir Vina vors í sam-
ingaviðræðum við sterkan auglýs-
ingaaðila sem mun fylgja þeim eft-
ir í sumar.
Aðrir sem ætla sér á rúntinn eru
Stjórnin en sú sveit byggir enn
sjálfsagt á einhverri fornri frægð í
sveitum landsins. Og þótt Bong,
Bubbleflies, Jet Black Joe og SSSól
ætli ekki stóran hring er gert ráð
fyrir einu og einu giggi frá þeim í
sveitum landsins í sumar. ■
Ingvar Valgeirsson
nefna þeir stór-trúbadúr-
inn frá Akureyri. Hann
skemmtir á Fógetanum.
Combóið hennar Ellenar
Kristjánsdóttur á Kaffi
Reykjavík.
KK-band með öllum
kynjum og kostum á
Gauki á Stöng.
Sálin hans Jóns míns, eins og hún mun líta út
fullskipuð á sveitaballamarkaðnum í sumar. Að-
eins ein breyting hefur orðið frá því er sveitin
lagðist í dvala fyrir tveimur árum: nýr trymbill,
Tómas Jóhannesson, hefur komið í stað þess
gamla.
Tweety hefur upp á síðkastið haldið hvert dúndurballið af öðru og ætlar
að sögn að halda sama dampi út sumarið. Tweety-meðlimir nú eru auk
Andreu og Þorvaldar, Eiður Arnarsson, Máni Svavarsson og Óli Hólm.
Páll Óskar og Milljónamæringarnir verða í ágúst NN og
Milljónamæringarnir. Þeir verða í Hreðarvatnsskála og á fleiri stöðum og
enda í núverandi mynd með lokadansleik í Perlunni.