Helgarpósturinn - 22.05.1995, Blaðsíða 15
IÞROTTIR
I Irglitakpppni MRA
Meistanataktar Houston
Barkley segist vera hættur
•Leikmenn Houston Rockets sýndu frábæra frammistöðu og
lögðu Phoenix Suns, 115-114, á heimavelli þeirra síðarnefndu í
oddaleik liðanna um sæti í úrslitum Vesturdeildarinnar. Petta var
þriðji leikur Houston í röð sem þeir urðu að sigra í til þess að falla
ekki úr keppni, en leikmenn Houston virðast þrífast best undir
pressu á við þessa og sýndu að það var engin tilviljun að þeir
urðu meistarar í fyrra.
„Við höfum trú á okkur sjálf-
um,“ sagði Olajuwon, sem skor-
aði 16 af 29 stigum sínum í fjórða
hluta leiksins. „Við erum ennþá
meistararnir. Við verðum bara
að vera hógværir, spila af krafti,
þá held ég að við getum endur-
tekið leikinn."
Clyde Drexler skoraði einnig 29
stig fyrir Houston, sem sló Pho-
enix út úr úrslitakeppninni ann-
að árið í röð í sjö leikja seríu.s
Með sigrinum varð Houstonl
fyrsta liðið í 13 ár til þess að“
komast áfram í úrslitakeppninni
eftir að hafa lent 3-1 undir.
Tap Phoenix skyggði á frá-
bæra frammistöðu Kevins John-
son, sem setti persónulegt met
og skoraði 46 stig. Hittni John-
sons var með eindæmum góð en
hann setti niður 21 af 22 skotum
sínum af vítalínunni. Charles
Barkley var illa hrjáður af meiðsl-
um en átti engu að síður góðan
RikSmits,
hollenski mið-
herjinn í
Indiana
Pacers, nær
skoti yfir
Patrick Ewing,
miðherja og
leiðtoga New
York Knicks,
sem nú eru úr
leik eftir 95-97
stiga tap í
gærkvöldi.
leik, skoraði 18 stig og tók 23 frá-
köst. Barkley var mjög miður sín
eftir leikinn og sagði að hann
væri að öllum líkindum hættur
að spila körfubolta. Barkley hef-
ur áður talað um að leggja skóna
á hilluna án þess að láta verða ef
því, en það yrði svo sannarlega
sjónarsviptir að þessum litríka
og skemmtilega leikmanni ef
hann ákveður að
standa við orð sín að
þessu sinni.
Houston var 10
stigum undir í hálf-
leik og Phoenix virt-
ist ætla að klára
dæmið. Drexler og
Sam Cassell voru hins
vegar ekki á því að
gefast upp og sýndu
hreint ótrúlegan leik
í þriðja fjórðungi og
settu samtals niður
26 stig, Drexler 14 og _
Cassel 12. Á meðan |
þessu stóð sat“
Olajuwon á bekknum
vegna villuvandræða og meiðsla
og horfði á félaga sína snúa
leiknum sér í hag. Olajuwon kom
síðan aftur til skjalanna í loka-
fjórðungnum og leiddi sína
menn til sigurs með því að skora
þá 16 stig.B
Charles Barkley og
Hakeem Olajuwon
kljást í síðasta leik
Phoenix og Houston.
Feðgarnir Rúnar Jónsson
og Jón Ragnarsson á
góðri siglingu á Kleifar-
vatnsleið.
Sigurvegarar
Norðdekk-
flokksins, Hjört-
ur P. Jónsson og
ísak Guðjóns-
son, sýndu góð
tilþrif í sínu
fyrsta ralli.
■ ■ ...
i:
þær sem lentu í fyrsta til þriðja sæti auk sigurvegaranna í Norðdekk-
flokknum.
Frá hægri: Rúnar Jónsson, Óskar Ólafsson, Hjörtur P. Jónsson, Stein-
grímur Ingason, Páll Kári Pálsson, Jón R. Ragnarsson, ísak Guðjónsson
og Jóhannes Jóhannesson.
Fyrsta, annað, þriðja og — fyrsta! Her sjast bilarnir sem lentu í fyrsta, öðru og þriðja sæti
aranna í Norðdekk-flokknum.
—-aukbílssigurveg-
Islandsmeistararnir Rúnar Jónsson og Jón Ragnarsson voru i goou tormi
um helgina og sigruðu örugglega í fyrsta ralli sumarsins.
Ekki minni eftirtekt en rallbílarnir
sjálfir hlaut eftirfarinn í Hafnar-
fjarðarrallinu, en hann varað þessu
sinni splunkunýr Hummer-jeppi,
sem hinn gamalreyndi rallari Ævar
Hjartarson hefur hafið innflutning á.
því sú, að þrátt fyrir mikinn
hraða var keppnin lítil í topp-
baráttunni það sem eftir var
rallsins — þrír efstu höfðu sín
sæti allörugg og héldu þeim allt
til endamarks.
Sigurvegarinn, Rúnar Jóns-
son, hafði þetta að segja þegar
hann var að ralli loknu inntur
álits á úrslitunum:
„Það er að sjálfsögðu góð til-
finning að vinna fyrsta rall árs-
ins — það hefur okkur ekki tek-
ist áður eftir því sem ég man
best. Keppnin í toppbaráttunni
hefur reyndar oft verið meiri;
það var nokkuð óvænt að okkur
tækist að halda forystunni
svona frá upphafi til enda. Við
erum vanir því að Steingrímur
veiti okkur harða samkeppni,
það er yfirleitt meiri keppni milli
okkar en var í dag. En við erum í
fínu formi, það hefur örugglega
sitt að segja. Ástand veganna er
líka hugsanlega okkur á fjór-
hjóladrifinu eilítið í hag; sérleið-
irnar eru sumar grófar, þurrar
og lausar. í mikilli lausamöl er
verra að hafa bara afturdrif. En
þetta var bara fyrsta keppni
sumarsins; við eigum eftir að
etja kappi við Steingrím í fleiri
keppnum og hver verður ís-
landsmeistari kemur fyrst í Ijós í
haust. Sigur í fyrstu keppninni
er þó óneitanlega gott veganesti
— nú ætlum við okkur bara að
halda sama striki og stefna á að
halda titlinum."
SPENNANDI KEPPNI í
NORÐDEKK-FLOKKNUM
Það sýndi sig í þessu fyrsta
ralli ársins, að spennan í rallinu
í sumar verður mest í Norðdekk-
flokknum svokallaða. Um Norð-
dekk-flokkinn gilda sérstakar
reglur: Til að vera gjaldgengur í
honum þarf bíllinn að hafa vél
sem er að hámarki 1.600 ccm og
drif á aðeins einum öxli; öku-
menn með A-réttindi eru útilok-
aðir frá keppni í flokknum, en í
honum er keppt til sjálfstæðra
verðlauna.
Norðdekk-flokkurinn hefur
opnað óreyndari mönnum leið
til þátttöku í ralli án þess að
kosta þurfi til þess háum fjár-
hæðum. Alís voru fjórir bílar
skráðir til leiks í Norðdekk-
flokknum. Baráttan var hörð all-
an tímann á milli Corollanna
þriggja, sem höfðu rásnúmer 5,
6 og 8. Fjórða-áhöfnin,. sem
keppti á framdrifnum Peugeot
205 (rásnúmer 9), ók í upphafi
rallsins á eilítið lakari tíma en
„flokksbræður" þeirra á Coroll-
unum, en þeir lentu svo líka í
hremmingum, sem gerðu út af
við möguleika þeirra á að ná
betra sæti. Á fjórðu sérleið fauk
upp húddið og á þeirri fimmtu
vildi ekki betur til en svo að þeir
veltu. Með snarræði og harð-
fylgi tókst þeim félögum, Þorkatli
Símonarsyni og Þórarni Þórssyni,
að koma bílnum aftur á hjólin,
halda sér í keppninni og klára
rallið!
Á fyrstu sérleiðunum náðu
Rúnar Tómasson og Sigurður
Gunnarsson bestu tímunum í
flokknum, en á fjórðu sérleið,
Isólfsskála, sprakk hjá þeim,
sem kostaði þá að minnsta kosti
90 sekúndur. Hjörtur P. Jónsson
og Isak Guðjónsson, sem komu
fast á hæla Rúnars og Sigurðar á
fyrstu sérleiðunum, tóku við for-
ystunni í flokknum og héldu
henni til endamarks, sem skilaði
þeim í fjórða sætið í heildina.
Þorsteinn P. Sverrisson og Ingvar
Guðmundsson á þriðju Coroll-
unni (með rásnúmer 6) náðu
•bestum tíma í flokknum á nokkr-
um leiðum, en enduðu 55 sek-
úndum á eftir Hirti og ísak.
Að rallinu loknu fékkst sigur-
vegarinn í flokknum, Hjörtur P.
Jónsson, til að segja nokkur orð
um úrslitin:
„Það er mjög ánægjuleg til-
finning að hafa náð sigri í flokkn-
um. Þetta var fyrsta rallið sem
ég tók þátt í sem ökumaður, og
samkeppnin í flokknum var
mjög jöfn og hörð. Við eigum
það allir sameiginlegt, nýliðarn-
ir, að við gerum mörg mistök
ennþá, feilskiptingar eru til
dæmis allt of algengar; það tek-
ur sinn tíma að komast upp í
þjálfun. En eins og sannaðist í
þessu ralli er keppnin í Norð-
dekk-flokknum mjög jöfn og útlit
fyrir spennandi keppni í sumar.
Bílum á eftir að fjölga í flokknum
í næstu keppnum. Mér líst vel á
framhaldið, ég, ísak og þjón-
ustuliðið okkar myndum sterka
liðsheild sem eykur manni
sjálfstraust og trú á áframhald-
andi góðan árangur."
Það urðu fleiri fyrir skakka-
föllum í þessu ralli en þeir
veltufélagar á Peugeotnum, sem
sagt var frá hér að ofan. Þegar á
annarri sérleið urðu tveir bílar
að hætta keppni: Vauxhall Che-
vette þeirra Sigurðar Braga Guð-
mundssonar og Rögnvaldar
Pálmasonar bræddi úr sér og í
Lada Samara-bíl þeirra Jóns B.
Hrólfssonar og Einars L. Lee gaf
vatnslásinn sig sem varð til
þess að heddpakkningin fór.
Stefán Ásgeirsson og Birgir Már
Guðnason á Ford Escort með Ro-
ver V8-vél (gengi X) urðu fyrir
því óláni að sprengja dekk í tví-
gang á þriðju og fjórðu sérleið
(ísólfsskálaleið fram og til baka
frá Grindavík), svo að þeir
neyddust til að aka alla fjórðu
sérleiðina á sprungnu. Við þetta
töpuðu þeir það miklum tíma,
að þótt þeir hefðu oftast náð
fjórða besta tíma urðu þeir að
lokum að gera sig ánægða með
sjötta sætið.
Skipulag og framkvæmd ralls-
ins tókst með ágætum og lauk
því á áætluðum tíma um klukk-
an fjögur síðdegis hjá Aðalskoð-
un í Hafnarfirði. Áætlað er að
næsta rall fari fram 24. júní
næstkomandi. Það verður einn-
ig haldið á vegum Bifreiða-
íþróttaklúbbs Reykjavíkur.B
UM MIÐJAN
BADMINT0N
íslendingar töpuðu síð-
asta leik sínum á heims-
meistarumótinu í badm-
inton, sem fram fer
þessa dagana í Lausanne
í Sviss. Pólverjar sigruðu
okkar fólk 5-0 og lentu
íslendingar því í þriðja
sœti í sínum riðli og um
miðjan hóp í heildar-
keppninni, en alls taka
50 þjóðir þátt í henni.
Einstaklingskeppni hefst
í dag, mánudaginn 22.
maíM
PÚAÐ Á FAXA SAMKVÆMT
VENJU.
VÖLDU ALLTAF
VITLAUST LIÐ
íslensku áhorfendurnir í
Laugardalshöll ákváðu
að styðja Króata í úr-
slitaleik þeirra við
Frakka. Pað var eftir
öðru í keppninni en
áhorfendur virtust alltaf
styðja oitlaust lið — eða
það lið sem tapaði.
Þessu til staðfestingar
tóku þeir upp á að púa á
Staffan „Faxa“ Olsson í
leiknum um 3. sœti og
auðvitað unnu Svíar.
Enginn skilur reyndar af
hverju var púað á Faxa,
þar sem ekki er vitað til
þess að hann hafi gert
íslendingum grikk í
þessari keppniM
Eins og nœrri má geta
brutust út gífurleg fagn-
aðarlœti í Tórínó ígœr
þegar fyrsti ítaliumeist-
aratitill Juventus í níu
ár var í höfn eftiryfir-
burðasigur gegn Parma í
gœr. Parma, sem varð
að vinna leikinn til að
halda lifí í voninni um
titilinn, átti aldrei
möguleika í leiknum og
er nú tíu stigum á eftir
Juventus þegar aðeins
tvœr umferðir eru eftir.
Mörkin gerðu þeir Vialli,
Deschamps og grárefur-
inn Ravanelli, sem skor-
aði tvö mörk. Roberto
Baggio vann hér með
sinn fyrsta (talíumeist-
aratitil, en hann átti
frábœran leik og lagði
upp þrjú markannaM