Helgarpósturinn - 26.06.1995, Blaðsíða 3

Helgarpósturinn - 26.06.1995, Blaðsíða 3
FRETTIR Sigurður Pétur með hu Mnumer Sigurður Pétur að tala í iinn af fjölmörgum sím- um sínum. Myndin er tekin úti á rúmsjó þar em Sigurður var á leið- nni á leik KR og ÍA uppi á Akranesi. Vilji menn ná sambandi við Sigurð Pétur Harðarson, útvarps- mann og baráttumann fyrir Börnin heim, þá er það hægar sagt en gert. Það hljómar ein- kennilega þar sem Sigurður Pét- ur er með hvorki meira né minna en tíu númer á skrá. Það sem er kannski einna undarlegast er að öll eru þau leyninúmer. Þess ber að geta að ekkert þessara núm- era er fyrir söfnunina Börnin heim sem hann stendur að. Það kemur fólki spánskt fyrir sjónir að vilji það ná í Sigurð Pétur fær það ekkert númer uppgefið en samt hlýtur að vera léttir að vita til þess að hann hafi þó tíu núm- er til að örugglega sé hægt að ná í hann, svo framarlega sem þú veist númerin. Ef til vill hefur Sig- urður Pétur ekki alveg hugsað þá hugsun til enda að til að hægt sé að ná auðveldlega í hann í eitthvað af þessum tíu númerum sé ef til vill betra að hafa síma- númerin skráð.B TF-LIF kostaði um einn milljarð. 011 helstu fyrirmenni landsins tóku á móti þyrlunni og blessaði herra Ólafur Skúlason biskup vélina. Biskup , UessarUf Hin nýja björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar er komin til landsins eftir langa bið. Vélin er af gerð- inni Super-Puma og ber einkennisstafina TF-LÍF. Vélin kostar um einn millj- arð króna og hefur bylt- ingarkennda möguleika í björgunarmálum. Helstu kostir þyrlunnar eru að hún tekur mun fleiri en gamla þyrlan eða tuttugu manns, hefur afísingar- búnað og fjögurra ása sjálfstýringu. Framundan eru miklar æfingar á vél- ina.B Neyddír til að hlus og Ma hvalkjöt í nýjasta hefti breska popptímaritsins Melody Maker er að finna umfjöll- un um tónleika Drum Club sem haldnir voru í Tungl- inu í vor. í greininni segir að vel hafi verið tekið á móti sveitinni á íslandi. Tónlist þeirra hafi verið spiluð látlaust á X-inu, sem kölluð er „hippier than hip“ útvarpsstöð. En böggull fylgdi skammrifi. Þeir hafi verið neyddir til að hlusta á Einar Órn tala um Internetið tímunum saman og borða hrátt hvalkjöt. í greininni er tek- ið fram að Islendingar séu meira fyrir að drekka tíu bjóra en gleypa ecstacy. Annars er vel látið af tón- leikunum og boðað að Drum Club. Koma aftur um Verslunn armanna helgina. þeir séu væntanlegir á geisladiski innan skamms. A diskurinn annaðhvort að bera heitið „Live in Ice- Iand“ eða „Tasty Gays- ers“. Að lokum er sagt frá því að íslendingar elski Drum Club og það sé gagnkvæmt, en til stendur að Drum Club komi og spili á tónlistarhátíðinni á Kleifum við Kirkjubæjar- klaustur um verslunar- mannahelgina.B t(-\3 kJ t'Ó' i'CT'iV

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.