Helgarpósturinn - 26.06.1995, Blaðsíða 17

Helgarpósturinn - 26.06.1995, Blaðsíða 17
wíMN 0 ÐWGUJ R1 ÍÞRÓTTIR i ✓ \A, „< Xsl Ríkh3,ráur Dflflasnn -vífci£kytta Fráin~ „Þeip verja hann ekki barna!" Þetta er allt öruggt. Á móti Grindavík fór boltinn kannski að- eins of hátt fyrir suma, en þeir verja hann ekki þarna,“ segir Rík- harður Daðason Frammari um vítaspyrnuna sem hann tók í leik ;egn Grindavík í síðustu umferð slandsmótsins í knattspyrnu, aðspurður af hverju hann skyti svona fast í vítum. Þéttingsföst spyrna Ríkharðs fór í neðan- verða slána og inn í hægra horn- ið hjá Hauki Bragasyni, markverði Grindavíkur. Þótti ýmsum Frömmurum skotið vera óþægi- lega nálægt slánni. Ríkharður hefur tekið vítaspyrnur í þremur síðustu leikjum Fram og skorað úr þeim öllum. Tvisvar hefur hann sent markvörðinn í vitlaust horn og boltann niður í hliðar- netið í hitt hornið, en í þetta skiptið ákvað hann að breyta til. „Það var einhver sem sagði að þetta væri að verða of létt þar sem markverðirnir fóru í vitlaust horn. Og þetta verður líka að vera flott þegar maður er farinn að taka víti svona oft.“ Ríkharður játar því aðspurður að hann hafi ýmis vítaafbrigði upp á að hlaupa og segist ekkert vera að festa sig í neinu einu. Næsti leikur Fram er á mið- vikudaginn í bikarkeppninni gegn íslandsmeisturum IA. Leik- urinn fer fram á Laugardalsvelli og leggst vel í Ríkharð. „Það þýðir ekkert að horfa á þetta öðruvísi. Þeir hafa náttúru- lega ekki tapað leik það sem af er, en það má segja að okkur hafi gengið ágætlega gegn þeim síð- ustu ár, svo við komum ágætlega stemmdir." Ríkharður Daðason. „Þetta verður að vera flott þegar maður er farinn að taka víti svona oft.“ Þess má geta að Fram og ÍA mætast síðan aftur næstkom- andi sunnudag, en þá í íslands- mótinu og á heimavelli meistar- anna.l Ha hn „Þetta er í fyrsta skipti sem liðþófi skaddast svona,“ sagði Guðmundur Benediktsson knatt- spyrnumaður, sem enn á ný er að jafna sig eftir meiðsli. Hann sagðist þó vera búinn að jafna sig að fullu en ætti eftir að kom- ast í leikæfingu. Það kom fram hjá þjálfara hans, Guðjóni Þórðarsyni, að hann teldi að Guðmundur myndi hafa sloppið á gras- og malarvelli en gervigrasið hefði kostað meiðsli. Þessi meiðsli Guðmundar nú eru sérstök, þar sem hann slasaðist á liðþófa isem ekki hefur hent hann áður. 1 Hægra hné: Febrúar ‘91 - lið- þófi/krossbönd Maí ‘91 - krossbönd Vinstra hné: Júní‘92 - kross- bönd Febrúar‘93 - kross- bönd Maí ‘95 - liöþófí ið í hnénu sem tognaði illa. Þá var Guðmundur stopp í þrjár vikur og hóf síðan að æfa aftur en ljóst var að hann var ekki bú- inn að jafna sig. í maí 1993 var hann skorinn aftur í vinstra hné og skipt um krossbönd. Þá kom langt meiðslahlé þar til í maí síðastliðnum.B úrslitakeppnina í Sviss í maí 1991 með drengjalandsiiðinu. Eftir tuttugu mínútur í fyrsta leik fór krossbandið í hægra fætinum alveg. Um miðjan júní 1992 kom hann heim og fór á æf- ingu hjá Þór og þá fór vinstri fót- urinn. Enn voru það krossbönd- in. Guðmundur fór strax í að- gerð úti í Belgíu og var þá skipt um krossbönd í hægra hné og við tók endurþjálfun. Hann fór í aðgerð 1. júlí og var búinn að jafna sig í desember og fór þá aftur að spila með varaliðinu. í febrúar 1993 fór vinstra hnéð aftur. Þá var það innra liðband- Var hnéð speglað og hnén hreinsuð en liðpoki var einnig rifinn. Guðmundur taldi hins vegar ekki ástæðu til að hafa áhyggjur af þessum meiðslum. MEIÐSLAFERILL“ GUDMUNDAR Ef meiðslaferill Guðmundar er skoðaður þá meiddist hann fyrst í febrúar 1991, en þá fór partur úr liðþófa í hægra fæti og einnig var krossband örlítið rif- ið að úrskurði læknis. Þá fór Guðmundur í gifs í þrjár vikur og síðan tók við endurhæfing. Þá átti hann að vera í lagi fyrir Langvinnasti meiðslaferillinn í íslenskri knattspyrnu KEYRIR NU TIL Reykjavi'kur TIL AÐ VINNA. Sem kunnugt er hefur Gísli Felix Bjarnason handknattieiksmaður ákveðið að flytja sig á Selfoss og leika þar í markinu. Ástœða þess að Gísli fer í Selfossliðið er sú að hann er að flytja þangað, en kona hans hefur fengið vinnu á Sel- fossi. Nú mun Gísli keyra til Reykjavíkur til að vinna en heim eftir œf- ingar — öfugt við það sem áður varM Asprilla hefur skorað 23 MÖRK FYRIR PARMA Á ÞREMUR ÁRUM. Asprilla í FÝLU Faustino Asprilla, kól- umbíski framherjinn snjalli sem leikur með Parrna á Ítalíu, hefur nú svarið þess eið að leika aldrei framar fyrir Parma. Asprilla segir að þjálfari liðsins, Nevio Scala, hafi komið í veg fyrir að hann nœði að sýna raunverulega hœfi- leika sína á síðustu leik- tíð og að hann hafí verið látinn vera í skugganum af ítölskum framherja liðsins, Gianfranco Zola. Parma sektaði Asprilia nýlega um 1,7 milljónir króna fyrir ummœli sem hann lét falla fyrir nokkru um þjálfarann og hafa verið fáleikar milli aðila síðan. As- prilla segir að hann geti valið úr tilboðum frá öðrum félögum og for- ráðamönnum Parma sé hollara að átta sig á því við hvern er að eiga, hann sé ekki einhver meðalleikmaður sem þeirgeti boðið hvað sem er. Borussia Dortmund mun hafa sýntAsprilla áhuga og vill kaupa hann tyrir 700 milljónir króna en Parma vill fá 770 milljónir.M

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.