Helgarpósturinn - 26.06.1995, Blaðsíða 9

Helgarpósturinn - 26.06.1995, Blaðsíða 9
 MWNUÐWGUJR UTLOND Á laugardaginn vann kólumb- íska lögreglan mikilvægan áfanga- sigur í baráttunni við eiturlyf. Á laugardaginn náði hún að hafa hendur í hári þriggja af leiðtogum hins umsvifamikla fíkniefna- hrings Cali. Á myndinni sést hvar fingraför eru tekin af Victor Julio Patino Fomeque, leiðtoga hrings- ins, en hann gaf sig sjálfur fram við lögreglu eftir að hún hafði lát- ið til skarar skríða gegn flokki hans. Talsmaður kólumbísku lög- reglunnar sagði að enn væri langt í land með að tækist að koma í veg fyrir fíkniefnasmygl frá Kól- umbíu og vissulega hlytu ein- hverjir að hafa grætt á þeirri at- hygli sem lögreglan hefur sýnt Cali-flokknum.B Enn er sprengt Sprengja sprakk í miðborg Sarajevo í gær með þeim afleið- ingum að fimm fullorðnir og fimm börn særðust. Ekki er vitað til þess að neinn þeirra hafi látist af sárum sínum. Fyrr um daginn lést sextán ára piltur þegar sprengja sprakk í borginni og fjögur börn særðust.B Atján látast í barátiu við eiturlyf \ ''' Nv ^ . * Tt - -W Í ' a* ' v 'jt ' J mt-'-n KGB og CIA fallast í faöma „Það er ekkert að því að skemmta sér svolítið eftir að kalda stríðinu er lokið,“ segir 01- eg Kalugin, fyrrverandi leiðtogi sovésku leyniþjónustunnar KGB. Þarna er hann að vísa til sam- starfsverkefnis síns og Williams Colby, fyrrverandi yfirmanns CIA. Samvinnan er fólgin í að hjálpa til við hönnun á CD-Rom- tölvuleiknum „The Great Game“, sem fjallar um njósnir og leyni- þjónustustörf. Þarna leggja þeir fram hjálp sína til að koma á framfæri upplýsingum um sið- ferðileg vandamál sem njósnarar standa frammi fyrir og leggja til málanna ýmislegt fleira sem eng- inn gæti vitað nema þaulreyndir leyniþjónustumenn. Leikurinn er væntanlegur á markað um næstu jóI.B Victor Julio Patino Fomeque, leiðtogi Cali-fíkniefnahringsins, vartekinn höndum á laugardaginn og lögreglan gætir hans vandlega. Geimferjan Atlantis hélt af stað út í geiminn á laugardag- inn eftir að veður hafði hindr- að að hún færi í loftið á föstu- dag. Samsetning áhafnarinnar er að vissu leyti óvenjuleg þar sem minnihluti áhafnarinnar eða þrír eru miðaldra banda- rískir karlmenn. Áhöfnin er skipuð fimm Bandaríkjamönn- um, þeim Hoot Gibson flug- stjóra, Ellen Baker, Bonnie Dun- bar, Gregory Harbaugh og Charl- es Precourt, og tveimur Rúss- um, Anatoly Solovyev og Nikolai Budarin. Ferjunni er ætlað að fylgjast með gervihnöttum og lagfæra það sem til þarf.B Hér sést áhöfn geimferjunnar Atlantis veifa til áhorfenda áður en haldið er um borð og út í geim. Tékkneska lögreglanTiandtók í gær þrjá starfsmenn ríkisjárn- brautanna eftir járnbrautarslys sem varð átján manns að bana. Vöruflutningavagn rann á lestar- vagn sem klipptist nærri því í sundur. Farþegarnir voru flestir ungt fólk á leiðinni út á lífið. Grunur leikur á að starfsmenn- irnir þrír hafi ekki fylgt settum öryggisreglum og talið er að einn þeirra hafi verið undir áhrifum áfengis. Þetta er alvarlegasta slys sem orðið hefur hjá tékk- nesku járnbrautunum undanfar- in 25 ár. Síðan kommúnisminn féll hafa þær átt við mikinn fjár- hagsvanda að stríða og ekki hafa verið til nægir peningar til að endurnýja öryggiskerfið.B EiMiimnen George Michael Þrátt fyrir nýfengið fjölmiðla- frelsi eiga rússnesk blöð og tímarit í miklum erfiðleikum — eins og með allt þar á bæ eru það efnahagserfiðleikar. Svo virðist sem afþreyingarblöð í æsifréttastíl, héraðsfréttablöð og blöð sem tengja sig hags- munahópum ætli að hafa sigur á kostnað „alvarlegri" blaða. Virðist sem Rússar séu búnir að missa áhugann á að lesa um lýðræði og frelsisbaráttu. Um leið hefur 50 prósenta skatt- lagning orðið til að draga mátt- inn úr mönnum. Má þar nefna sögu blaðsins Kuranty, sem var í fylkingar- brjósti frelsisaflanna, en blaðið var stofnað i árdaga perestroik- unnar. Blaðið var á hátindi frægðarinnar árið 1991 en fyrir tveimur vikum varð að fresta útkomu þess vegna ógreiddra prentsmiðjureikninga. Nú er blaðið farið að koma út aftur en nú sem vikublað. Prentsmiðjan hefur samþykkt að frysta eldri skuldir og vill staðgreiðslu héð- an í frá. Sala blaðsins hefur fall- ið úr 300.000 eintaka sölu á dag 1992 í 90.000 nú. Þess vegna er Kuranty til sölu fyrir hæstbjóðanda en ritstjór- inn og stofnandinn, Anatoly Pankov, hefur sagt að blaða- menn sætti sig ekki við hvern sem er sem eiganda — blaðið verði að fá að halda frelsi sínu. Blaðið bíður núna örlaga sinna og nýs eiganda. En örlög Kuranty eru ekki einsdæmi. Annað blað úr frels- isbaráttunni, Nezavisimaya (sem þýðir Frjálsa blaðið), hætti einnig að koma út um skeið en virðist nú bíða það hlutskipti að verða gleypt af stjórninni, sem hyggst tryggja útkomu þess. „Samskiptin við ríkisstjórnina eru viðkvæmt mál,“ sagði ritstjórinn, Vitaly Tretyakov, eftir fund með for- sætisráðherranum, Viktor Chernomyrdin, en hann lofaði að tryggja útgáfuna. Fannst mönn- um hálfholur hljómur í fullyrð- ingum ritstjórans um að þetta nýja bandalag myndi ekki hafa áhrif á ritstjórnarstefnuna. Hef- ur sala blaðsins fallið úr 240.000 eintökum í 56.000. Mörgum finnst sem heldur fjari undan frjálsri fjölmiðlun í Rússlandi, enda hefur yfirmað- ur Tass-fréttastofunnar verið gerður að ráðherra. Fyrrum málgagn stjórnarinnar, Izvestia, er hins vegar einnig í vanda og var nýlega sett niður í Alþýðu- blaðsstœrð um helgar. Af frjálsu blöðunum er það aðeins Sevodnya sem er í eðli- legum rekstri, en margir hafa gagnrýnt tengsl þess við banka- kerfið og forsetaframbjóðand- ann tilvonandi, Yuri Luzhkov. Hafa Rússar misst áhuga á blaðalestri? FORMICA Formica haröplastiö er ekki aðeins slitsterkt og auövelt í meðhöndlun, heldur áferöarfallegt. Fœst í hundruðum lita og munstra. Einföld og ódýr lausn ÁRVÍK ÁRMÚU 1 • REYKJAVÍK • SÍMI 568 7222 • MYNDRITI 568 7295 IVIILLJARÐ Breski söngvarinn George Michael, sem hefurstað- ið í langvinnum mála- ferlum við Sony-fyrir- tœkið, hefur nú gert samning við hina nýju samsteypu Spielberg, Katzenberg og Geffen. Hana skipa kvikmynda- framleiðandinn Steven Spielberg, Jeffrey Katzen- berg, fyrrverandi for- stjóri hjá Disney, og hljómplötuframleiðand- inn David Geffen. Félag- arnir keyptu Michael frá málaferlunum með ein- um milljarði króna og gerðu honum þar með kleift að gefa út sína fyrstu plötu í fimm ár.U Félag í Kína Einn fylgifiskur þeirra breytinga sem eru að verða á kínversku sam- félagi er aukin skilnað- urtíðni hjóna. í bœnum Hangzou, en þangað fara mörg hjón í brúðkaupsferð, hefur nú verið stofnað félag fyrir fráskilda. Starfsemin felst meðal annars í te- boðurn og mánaðarleg- um dansleikjum þar sem fráskildir geta hist og reynt að komastyfir hremmingar skilnaðar- ins. Á þeim þremur rnánuð- um sem félagið hefur starfað hefur meðlimun fjölgað úr tuttugu í þrjú hundruð. Karlmenn eru í örlitlum meirihluta í félaginuM Vampíra HANDTEKIN Fyrrverandi hermaður í El Salvador, Alcides Rom- ero, hefur verið handtek- inn og ákœrður fyrir morð á tíu manns og fyrir að hafa drukkið blóð þeirra að auki. Romero var leiðtogi glœpaklíku i bœnum San Martin, rétt utan höfuð- borgarinnar San Salva- dor. Romero neitar öll- um sakargiftum og segir að eina blóðið sem hann hafi smakkað sé sitt eig- ið þegar hann skar sig einu sinni á fingri. Lög- reglan segir að meintum fórnarlömbum Romeros hafi verið varpað í tvo brunna rétt utan við San MartinM

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.