Helgarpósturinn - 26.06.1995, Blaðsíða 12
%
MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 1995
LESIÐ I
með Freyju
Jónsdóttur
VIKAN 26. JÚNÍ TIL 2. JÚLÍ
&
HRUTURINN
fawm- Um miöja vikuna kemur upp at-
vik sem getur leitt til þess að þú
(( takir óskynsamlega ákvörðun í
einhverju sem varðar fjármál
þín. Farðu þér hæpt og hugsaðu þig um áður
en þú festir kaup a einhverju sem þig langar í
en bráðvantar ekki. Persónu sem þú hittir um
helgina finnst þú vera spennandi.
I\IAUTIÐ
A næstunni verður þú undir
’ sterkum áhrifum fra Venus. Ef
þú ert ekki (föstu sambandi eru
líkur á að persóna sem þú hefur
stundum leitt hugann að láti frá
sér heyra. Pegar liður á vikuna verður þú
mjög hugmyndarík(ur) en þér er hætt við að
gleyma því að fleiri en þú hafa óskir. Pú verð-
ur mjög félagslynd(ur) um helgina.
TVÍBURINN
Varastu að lofa einhverju á
vinnustað þínum sem þú verður
síðan að afturkalla. Mikil ham-
ingjamun ríkja hjá tvíburum
sem eru í föstu sambandi og
verður rómantíkin í hávegum höfð. Pú mátt
reikna með því að þú veroir nokkuð óákveð-
in(n) í hvað þú átt að gera um helgina.
KRABBINN
Það verður fremur létt yfir þér á
næstunní og þú nærð vissu
marki með eitthvað sem hefur
verið að þvælast fyrir þér. Þú
ættir að vera vel vakandi yfir því
sem þig langar til að gera og ekki að hiira ef
þér bjóoast góð tækifæri til að afla þér meiri
tekna. Um helgina er þér ráðlaat að vera á
varðbergi gegn vafasömum ráoleggingum.
þJÓNIÐ
Ymislegt gengur á en þér líður
samt vei. Þér gengur vel að taka
ákvarðanir og vinsamlegt and-
rúmsloft er í kringum þig. Ef þú
átt heima í Reykjavík er þér ráð-
lagt að fara ekki í miðbæinn á föstudagskvöld-
ið. Þér verður meira úr helginni ef þú hefur
tök á að fara eitthvað út úr bænum. Ljón í
sambúð eiga í vændum unaðslega helgi.
MEYJAN
Stefndu að rólegri viku. Taktu
það ekki nærri þér þó að þér
gangi ekki sem best að sann-
færa einhvern vin þinn um að
hugmynd sem þú færð sé góð.
Þú getur safnað saman upplýsingum um
þetta áhugamál þitt, en þú ættir aö bíða meö
aö taka ákvörðun. Um helgina getur þú orðið
fyrir öfund frá persónu sem þú umgengst.
VOGIN
Það er eins og dulinn kraftur
einkenni alla framgöngu þína og
, þúfinnurekki lengur fyrir
þreytu. Þú hefur komið auga á
ýmislegt sem þig langartil að
gera og hefur nokkuð góða von um að þér
takist það flest. Helgin á eftir að verða með
ágætum og þeir sem eru á ferðalagi verða
heppnir.
SPORÐDREKINN
Ef þú á fyrstu dögum vikunnar
finnur fyrir depuro, skaltu strax
taka á málinu. Stjörnurnar eru
þér hagstæðar og ef þú ert í fríi
verður þessi vika góó til ferða-
laga. Sterkar líkur eru á að þú hittir valdamikla
persónu sem greitt getur götu þína aö settu
marki.
BOGMAÐUR
Eitthvað sem þú hefurverið að
hugsa um að koma í fram-
kvæmd heppnast. Þú ferð nýjar
leiðir og er ekki annað að sjá en
áform þín takist. Ef þú ert á leið
í ferðalag er eins víst að þú hittir persónu sem
þú varst næstum þvi búin að gleyma. Þessi
persóna á eftir að veita þér meiri athygli en þú
gerðir ráð fyrir.
STEINGEIT
Það gleður bæði þig og aðra
hvað þú ert Ijúf(ur) í öllum þín-
um samskiptum. Ef satt skal
segja þá ertu nokkuð þekkt(ur)
fyrir ao sýna stífni í þeim málum
sem þú kemur að, en nú er eins og allt slíkt sé
á bak og burt. Einhver leggur inn gott orð fyrir
þig og þú kemurákveðnu máli áfram. Helgin
verður ánægjuleg ef þú ferð varlega.
VATNSBERI
Ef þú ert ekki í föstu sambandi
eru nokkrar líkur á að vinur frá
fjarlægum stað hafi samband
við þig eða jafnvel komi á heim-
ili þitt í vikunni. Það áeftirað
gleðja þig að bessi persóna skuli enn hafa
áhuga á þér. Minnkandi áhrif frá Satúrnusi
gera það að verkum að þú átt auðveldara með
að skipuleggja tíma þinn en áður og þér verð-
ur meira úr verki.
FISKARNIR
Þú þráir tilbreytingu og þér gæti
orðið hætt við að taka upp á
einhverju í augnabliksfljótfærni.
Ef þú reynir að vera yfirvegaðri í
framkomu en þú hefur verið aö
undanförnu verður þróun mála þér í vil. Þú vilt
helst vera sem mest á ferðinni og um helgina
hittirðu nýtt fólk sem þú átt eftir að hafa nokk-
ur samskipti við.
Foster í Flaueli
'iSIM
Flauelsparið Sigrún og Gilli
ásamt meðeiganda sínum,
Báru, en gítarleikarinn Davíð
* IVlagnússon sýndi sitt betra
andlit tyrir Ijósinyndarann og
skaut kinn að kinn þegar
smellt varaf.
Skituþeytirinn og
verstunareigandinn
Aggi Slæ í Stóra
bróður dró upp úr
tösku galdramanns-
ins Ijúfar ballöður
sem svifu yfir höfð-
- am
Harpa heitir hun þessi
og mætti nefna einn
myngsta mvndlist-
. argúrúinn í dag.
Mstúlka þessi er ít;i}
'4i nánu samneytiffl
|Jvið geimverur og j,v
||nurðudýr ef marka jl
. /má myndefni?
ysíöustu sýningarl
hennar.
•Tískumiðstöðin Flauel efndi til samkvæm-
is síðastliðinn fimmtudag á Laugaveginum. i
Þar voru á boðstólum léttar veigar og Fost-i
erinn var ekki langt undan. Þau voru þvíl
brosmild andlitin sem yfirgáfu samkomuna"
rétt fyrir miðnætti og héldu af stað út í sum-
arnóttina.
Kormakur eða bara Kommi sjáifur
Látti erfitt með að sýna alvöru og
knáðist brosið ekki af manninum
Iþað sem eftir lifði kvölds. Ætli
'hann hafi nýiega heimsótt tann-
lækninn?
•Hi
-
i
Þórir Viðar, tónlistarmaður og Ijósmyndari með meiru,
ásamt litla púkanum Lalla Palla í góðum félagsskap
þokkadísar á fjölum Flauels.
Jón Sæmundur, myndlistarmaður og
leikari, með glæsilegt glóðarauga. Jón
sagði að enn ætti eftir að mála vinstra
augað svo samræmi mætti nást.
Lára í Sautján
brosti sínu
breiðasta við
bakdyr verslun-
arinnar, en nik-
ótínþrælar voru
skikkaðir til að
gera þarfir sínar
utandyra og við
slík tækifæri er
aðeins eitt að
gera; hlýða.
Þessar fallegu
stúlkur lögðu leið
sína að fataslánum
og nutu óskiptrar
athygli veislugesta
fyrir fegurð sína og
frumleik. Þær
stöldruðu hins
vegar stutt við og
yfirgáfu samkund-
una snemma
kvölds.
Nú
Taktu þátt
Ef heppnin er meö þér vinnur þú Parísar-
ferð fyrir tvo með Heimsferðum í sumar.
Það eina sem þú þarft að gera er að svara laufléttri spurningu og senda
svarið til Mánudagspóstsins, Vesturgötu 2. Rétt svör fara í pott sem
dregið verður úr þann 1. júlí næstkomandi. Nafn vinningshafans verður
birt í Mánudagspóstinum 3. júlí.
Spurningin í dag er:
í hvaða heimsálfu er Frakkland?
|pippKi‘ut_____■___
| Nafnið þitt:______________________
l Heimilisfang:
J Póstnúmer:_
.Símanúmer:_______
I Setjiö í umslag og skrifið utan á: Ferðahappdrætti
Rátt svar: Mánudagspósturinn
Vesturgötu 2
101 Reykjavík
Klassískir tónleikar í St. Julian le Pauvre-kirkjunni í Latínuhverfinu,
rauðvín og ostar á St. Louis-eyjunni við Notre Dame-kirkjuna, brasilísk
stemmning í Pau Brasil-veitingastaðnum sem er fyrrum sundhöll og nú
einn vinsælasti veitingastaðurinn í París — fullur af brasilískri tónlist
I og dansi — eða enda í dansi með Grikkjum á rue Huchette eftir ljúf-
J fengan grískan kvöldverð. Le Bains-næturklúbburinn í gömlum tyrk-
neskum baðhúsum þar sem þú sérð fegurstu fyrirsætur heims dansa
og daðra — eða einn af fjölmörgum djassklúbbum borgarinnar þar sem
margir þekktustu djassgeggjarar nútímans troða upp.